Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Nicole Kidman • • 011 fjölskyldan leikur í myndinni ►KVIKMYNDIN „My Life“ segir frá dauðvona þjónustu- fulltrúa sem tekur mynd- bandsupptökur af lífi sínu til minningar um sig. Kvikmynd- in sjálf varð síðan minnisvarði Sondru Rubin móður leik- sljórans Joels Rubins, en hún lést fjórum mánuðum eftir að kvikmyndin var frumsýnd. Hún leikur ættingja sem býð- ur ástföngnu parinu, Michael Keaton og Nicole Kidman, inn um dyrnar í einu atriði mynd- arinnar. Reyndar Ieikur öll fjölskylda Rubins í kvikmynd- inni. „Ef myndbandið er stöðv- að í brúðkaupsathöfninni sést öll fjölskylda mín. Þar eru bróðir minn, konan mín, börn- in mín, frænkur minar og frændur," segir Rubin. „Þetta verður þó í síðasta skipti sem , ég bý til kvikmynd með ætt- ingjum, vegna þess að í hvert skipti sem ég klippti eitthvert atriði úr myndinni, þurfti ég að hafa áhyggjur af því að ég væri að sniðganga ættingja mína.“ Michael Keaton leikur dauðvona þjónustufulltrúa. Brimkló komin sam- anáný NÚ ÞEGAR sveitaböllin eru allsráðandi í skemmtanaflóru Islendinga hefur verið ákveðið að slá ugp alvöru sveitaböllum á Hótel Islandi. Þá komast borgarbörnin hjá því að fara út fyrir borgarmörkin og geta samt skellt sér á sveitaball. Af þessu tilefni hefur hljómsveitin Brimkló verið endurvakin eftir þó nokkurt hlé. Hún mun hita upp fyrir aðra hljómsveit, Fán- ana, sem síðan mun halda uppi dansi langt fram á nótt. Þá er líklegt að söngvari Brimklóar, Björgvin Halidórsson, muni einnig taka lagið með Fánun- um. gggwwpm. ... MARISA TOMEI leikur á móti Robert Downey í kvikmyndinni „Just in Time“. Marísa Tomei þykir vera hrokagikkur í HOLLYWOOD fer það orðspor af Marisu Tomei sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn kvikmyndinni „My Cousin Vinny“ að hún sé hrokagikk- ur. Samkvæmt sögusögnum húðskammaði hún hár- greiðsludömuna sína fyrir að mæta of seint, þrátt fyrir að ástæðan fyrir seinkuninni væru tvö óvænt dauðsföll í fjölskyldu hennar. Síðan á hún að hafa sýnt kvikmyndatökuliði nýrrar kvik- myndar „Just in Time“, sem hún leikur í, mikla fyrirlitningu meðan á tökum stóð. Hún segist sjálf vera alveg eins og hún hafí alltaf verið: „Fólk gerir ósjálfrátt ráð fyrir að ég hljóti að vera orðin hrikalegt merkikerti, jafnvel fólk sem ég hef þekkt lengi.“ Hún ber þó ekki á móti þessum sögusögnum, en segir þær að mestu leyti byggðar á mis- skilningi. baukinn f Háskólabíói! wilDlieifes a relatíve. hutverki frænda, sem öil fjölskyldan snattast í kríngum í von um arf. Kvikmyndir Ný kvikmynd um Regn- manninn? FRAMHALD kvikmyndarinnar Regnmaðurinn (Rain Man) gæti verið væntanlegt. Dustin Hoffman fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni árið 1988 og hefur sýnt því mikinn áhuga. Samningar eru þó ennþá á viðræðustigi. I upphaf- legu kvikmyndinni lék Hoffman hinn innhverfa Raymond Babbitt og yngri bróðir hans var hinn fégráðugi Charlie (Tom Cruise). Samkvæmt heimildarmönnum eru Barry Morrow höfundur sögunnar um Regnmanninn og Muray Schisg- al leikritaskáld þegar sestir við skriftir á nýju handriti. Víst er að kvikmyndaáhugamenn bíða með öndina í hálsinum eftir að sjá fram- vindu málsins en Regnmaðurinn sló í gegn um allan heim á sínum tíma. SJÁUM VIÐ Dustin Hoffman aftur í hlutverki Raymonds og Tom Cruise í hlutverki Charlies?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.