Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1994 33 FRETTIR Íshátíð í Hveragerði „VIÐ viljum gera þetta að hátíð fyrir Hveragerði, Hvergerðinga og þá gesti sem hingað koma á afmælisdaginn 2. júlí,“ sagði Al- dís Hafsteinsdóttir, einn skipu- leggjenda afmælisdagskrárinnar hjá Kjörís hf. í Hveragerði en fyrirtækið verður 25 ára á þessu ári. í tilefni afmælisins verður vegleg afmælisdagskrá á planinu við fyrirtækið og um allan Hvera- gerðisbæ. Dagskráin verður krydduð með ísnum frá Kjörís og hann þannig gerður að almennum gleðigjafa þennan dag. Aðaldagskráin verð- ur frá 14-18 á laugardag en hefst í raun með því að allir fá ókeypis í sund í Laugarskarði milli 10 og 12. Dagskráratriði eru fjölbreytt. Félagar úr léttsveit Hveragerðis hefja dagskrána á Kjörísplaninu, félagar úr Leikfélagi Hveragerðis flytja leikþátt, Raddbandið syng- ur létt lög, hundar úr Hundaskóla Guðrúnar sýna listir sínar, kvennahljómsveitin Jarðþrúður spilar, torfærutröll ekur yfir bíl- hræ, Magnús Scheving sýnir leik- fimi og Rúnar Júlíusson endur- vekur 25 ára blómastemmningu. Þeir sem verða 25 ára þennan dag eru boðnir sérstaklega velkonjnir. Auk dagskrárinnar á Kjörís- planinu verður hægt að fá sér ökuferð með gamaldags hest- vagni um bæinn, harmonikkuleik- arar og léttsveitarfélagar leika tónlist um allan bæ, bein útsend- ing verður á Bylgjunni frá Hvera- gerði og Græna smiðjan skipu- leggur gönguferðir milli sögu- staða í bænum. Þá verður forn- bílasýning i nágrenni Kjöriss. Sértilboð verður á ís í öllum búðum og sölustöðum í Hvera- gerði. Barnaís verður seldur á 25 krónur. Nokkur fyrirtæki í Hveragerði hafa ákveðið að taka þátt í þessu og m.a. verður sérstakur matseð- ill hjá Húsinu á sléttunni. Ef veð- ur Ieyfir ekki útihátíð verður dag- skráin flutt inn í tívolíhúsið. Kerlingarfjöll opnuð SKÍÐASKÓLINN í Kerlingarfj'öll- um tók nýlega til starfa, þrítugasta og fjórða sumarið í röð. Fyrstu þtjú námskeiðin voru ætluð unglingum. Því síðasta lýkur 1. júlí en þá verð- ur fyrsta helgarferðin farin. Sunnu- daginn 3. júlí tekur við sex daga fjölskyldunámskeið og síðan rekur hvert námskeiðið annað fram til 24. ágúst en þá endar starfstímabilið. Leiðin til Kerlingarfjalla er orðin greiðfær nánast öllum bílum, búið að hefla veginn og ámar eru óvenju vatnslitlar. Hins vegar er geysimik- ill snjór á skíðasvæðinu og útlit fyrir gott skíðasumar, segir í frétta- tilkynningu. Eins og jafnan leggur skólinn áherslu á góða skíðakennslu, ekki Fyrirlestur um hamingju HEIMSPEKINGARNIR Páll Skúla- son og Vilhjálmur Árnason munu laugardaginn 2. júlí kl. 17-19 halda fyrirlestur um hamingjuna. Fyrir- lestrarnir verða haldnir á Hótel Eddu í Menntaskólanum á Laugarvatni. Þeir verða síðan endurteknir á sama stað 6. ágúst kl. 17-19. Þeir Páll og Vilhjálmur munu segja frá kenningum heimspekinga, fjalla um viðhorf íslendinga og greina frá eigin niðurstöðum um eðli hamingjunnar og á hvaða for- sendum menn geti talist hamingju- samir. Páll Skúlason er löngu kunnur fyrir greinar og bækur sem hann hefur sent frá sér undanfarna tvo áratugi. Má þar nefna Pælingar, sem er greinasafn, og Siðfræði sem er nýjasta bók hans. Vilhjálmur Árnason sendi í vetur sem leið frá sér bókina Siðfræði lífs og dauða þar sem hann íjallar um ýmis siðfræðileg álitamál í starfi heilbrigðisstétta. Bókin var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaun- anna. Náttúruskoðun í Viðey AÐSÓKN að Viðey hefur aukist mjög i sumar. í júní sl. voru Viðeyjargest- ir 3.551 en verða rétt um 5.000 í júní í ár. Um þessa helgi verður að venju úr ýmsu að velja fyrir Viðeyjar- gesti. Á laugardag verður náttúruskoð- un með Árna Waag. Hún hefst kl. 14.15 við kirkjuna og stendur um einn og hálfan til tvo tíma. Rétt er að fólk verði á góðum gönguskóm. Ljósmyndasýning, sem opnuð var í Viðeyjarskóla um síðustu helgi, verður opin laugardag og sunnudag frá kl. 13.20-17. Þar er brugðið upp myndum frá lífinu á Sundbakka, þorpinu sem var í Viðey á fyrri hluta þessarar aldar. Á laugardag mun Órlygur Hálfdánarson leiðbeina á sýningunni og einnig um Sundbakk- ann og sýna Vatnsgeyminn, hið skemmtilega félagsheimili Viðey- ingafélagsins. Á sunnudag verður staðarskoðun heima við. Hún hefst í kirkjunni kl. 15.15 og tekur um þijá stundarfjórð- unga. Hestaleigan er opin alla daga, einnig eru veitingar á boðstólum í Viðeyjarstofu. Leyft er að tjalda í Viðey á góðri grasflöt í námunda við ágætar snyrtingar. Ekkert tjald- stæðagjald er tekið, en sækja þarf um leyfi til staðarhaldara. Bátsferðir verða úr Sundahöfn frá kl. 13. ÆÐI & u BBWPIIIjWWWIWWiPPBPWlBBMBWÍHÉÍI AEG kostar minna en þú heldur. Mjög hagstæð verð á eldavélum, ofnum, helluborðum og viftum. ö «| © Ui < © us < © \< < © iU < © iit < © Ui < © iíl < © ‘M < lalægt 20.000 íslenskum heimilum -eru AEG eldavélar. Engin eldavélategund er á fleiri heimilum. Kaupendatrvgg5 vi& AEG er (82.5%).* Hvað segir petta þér um gæði AEG ? ’ Samkvæmt Markaðskönnun Hagvangs í des. 1993. síst fyrir byijendur. Skíðasvæðið er öllum opið, hvort sem menn fara í kennslu eða ekki, og snjótroðari dregur fólk á efstu tinda. Landslið Kanada kemur til æfinga Það telst til tíðinda að 14-16 manna hópur frá skíðalandsliði Kanadamanna í alpagreinum kemur til tíu daga æfinga í Kerlingarfjöll- um 28. júlí til 8. ágúst. Einnig send- ir Skíðasamband Islands unglinga- landslið sín til æfinga og nokkrar skíðadeildir íþróttafélaga hafa einn- ig boðað komu sína í Kerlingarfjöll. Sniglar á lands- mót í Húnaveri ÁRLEGT landsmót Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, verður í Húna- veri dagana 30. júní til 3. júlí. Hefð er fyrir að halda mnótið fyrstu helgi í júlí. Verður ýmislegt gert sér til ánægju og m.a. haft ofan af fyrir fólki með dansleikjum og íþróttaiðkan. Sniglabandið, hljómsveitin Urmull frá ísafirði og Bandover frá Akur- eyri leika- fyrir dansi og „kántrý-gestur" sýnir sig. -------♦ 4-4------ ■ MARKAÐSTORGIÐ í Hvera- gerði verður opið á laugardag og sunnudag frá kl. 12 til 19. Eins og endranær verður þar margt urn-að vera; sígaunaspákona spáir um framtíðina fyrir gesti og þeir kom- ast á hestbak og geta rennt fyrir bleikju á staðnum. Að sjálfsögðu fæst þarna allt á grillið og ótal- margt fleira. PABBI/MAMMA Allt fyrir nýfædda barnið ÞUMALÍNA © «! cA ll <! ©I I 0' helluborð Competence 3100 M-w; Tvær hraSsu&uhellur 18 cm og tvær hraSsuSuhellur 14.5 cm. Onnur þeirra er sjólfvirk . VerS kr. 17.790,- © k Eldavél Competence 5000 F-w; 60 cm -Undir- og yfirhiti, blástursofn, blástursgrill, grill, geymsluskúffa. Verð kr. 62.900,-. Eldavél Competence 5250 F-vk: 60 cm meS útdraganlegum ofni - Undir- og yfirhiti, klukka, blástursofn, blástursgrill, grill og geymsluskúffa. Verð kr. 73.663,- E533I ▲ rofaborð -Competence ’ 3300 S- w: Gerir allar hellur sjálfvirkar. Barnaöryggi. Verð kr. 24.920,- © m < © ui < © rv < i h elluborð Competence 110 K: -stál eSa hvítt meS rofum - Tvær 18 cm hraSsuSuhellur, önnur sjálfvirk.Tvær 14.5 cm hraSsuSuhellur. ~ Verð kr. 26.950,- luSlÍ i keramik -helluborð - Competence 6110 M-v/r.: Ein stækkanleg hella 12/21 cm, ein 18 cm og tvær 14.5 cm. Verð kr. 43.377,-. keramik-helluborð með rofum - Competence 6210 K-wn: Ein 18 cm hraSsuSuhella.Ein stækkanleg 12/21 cmog tværl4.5cm. Verð kr. 56.200,- l veggofn - Competence 5200 B-stál.: Undir- og vfirhiti, blástursofn, blástursgriil, grill og klukka. Verð kr. 62.936,- Hvítur ofn kostar Verð kr.57.450,- eða 54.577,- staðgreitt. «1311 UndÍrborðsofn - Competence 5000 E - w: Undir- og yfirhiti, blástursofn, blástursgriil og grill. Verð kr. 57.852,- Sami ofn í stáli (sjá myndj, verð kr. 68.628,- eða 65.196,- staðgreitt. © Vifta teg. 105 D-w 60 cm - Fjórar hraSastillingar. BæSi fyrir filter og útblástur. Verð kr.9.950,- B R : ©I ©1 © < I © ©I ©i < i © < © I - 9. © m ©I m I < < Q 1 m | © Djohmssomhf Lágmúla 8, Simi 38820 AEG AJEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG ©1 Umboösmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga. Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrlmsson, Grundarfiröi. ÁsubúÖ.Búöardal Vestflrölr: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvlk.Straumur.ísafiröi. Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavlk. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Ðlönduósi. Skagfiröingabúö, Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. UrÖ, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn GuÖmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Hjalti Sigurösson, EskifirÖi. Rafnet, Reyöarfiröi Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KÁSK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavlk. Rafborg, Grindavlk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.