Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Vinna hafin að nýju í frystihúsinu á Grenivík „Hófum starfið af tvöföldum krafti“ SIGRÚN Valdimarsdóttir og Ásgeir Jónsson sögðust hæst- ánægð með að vera ekki lengur atvinnulaus, og vera bjartsýn á að rekstur frystihússins gengi vel héðan í frá. VINNSLA hófst að nýju í frysti- húsinu á Grenivík í gær, en þar hefur engin starfsemi verið síðan fyrirtækið Kaldbakur, sem rak frystihúsið, varð gjaldþrota fyrir rúmlega þremur mánuðum. Út- gerðarfélag Akureyringa keypti nýlega eignir fyrirtækisins, sem er stærsti atvinnurekandi á staðn- um. Um 30 manns hófu vinnu í gær, og ríkti almenn ánægja meðal starfsmanna þegar Morg- unblaðið ræddi við þá. „Það er góð tilfmning að vera byijaður að vinna aftur, enda hófum við starfið af tvöföldum krafti. Þótt maður hafi haldið í vonina allan tímann um að reksturinn hæfist að nýju, er yndislegt að sjá það verða að veruleika,“ segir Hildi- gunnur Eyfjörð Jónsdóttir sem vinnur við að snyrta fiskinn en hún hefur verið atvinnulaus síðan í mars eins og aðrir í frystihúsinu. Hildigunnur segir að suma Grenivíkinga hafi þrotið þolin- mæði meðan frystihúsið var lokað og leitað í önnur byggðarlög eftir atvinnu, m.a. til Patreksfjarðar og Djúpavogs, sérstaklega unga fólkið. „Það er búið að vera mjög erfitt, en ég eins og margir aðrir ákvað að doka við. Ég er líka ánægð með að jafn sterkt og gott félag og ÚA taki við félag- inu,“ segir Hildigunnur. Hún kveðst þó harma að færri fái at- vinnu en fyrir lokunina, þar á meðal skólanemar sem hafi jafn- an getað gengið að vinnu í frysti- húsinu vísri í sumarleyfum. Sú þróun hafi þó þegar hafist í fyrra- sumar, og mestu skipti að starf- semin gangi eðlilega fyrir sig. Bros á hverju andliti Sigrún Valdimarsdóttir vinnur við pökkunina, en hún missti Morgunblaðið/Rúnar Þór Hildigunnir segir ástandið hafa verið erfitt meðan starfsemi frystihússins var lömuð og gott sé að vera komin í vinnu á nýjan leik. starfið í mars ásamt eiginmanni sínum, og kveðst hafa verið hóf- lega bjartsýn um að starfsemi hæfist að nýju. „Ég gerði mér engar sérstakar vonir og hefði án efa flutt úr bænum og leitað mér að vinnu annars staðar, hefði frystihúsið verið aðgerðarlaust öllu lengur. Ég gæti ekki setið hér atvinnulaus í langan tíma,“ segir Sigrún og kveðst álíta að þegar einn atvinnurekandi gegni jafn veigamiklu hlutverki í at- vinnulífi bæjar og á Grenivík, verði að halda starfsemi hans áfram með öllum ráðum. „Fólkið er mjög ánægt þennan fyrsta dag í vinnu, það var bros á hveiju andliti í morgunn. Ég er líka bjartsýn á framhaldið og er sann- færð um að reksturinn muni ganga vel á næstu árum,“ segir hún. Fyrsta vinnudaginn eftir þessa löngu vinnustöðvun var ýsa verk- uð og fryst fyrir Bandaríkjamark- að, en ekið var með 7 tonn _af ýsu frá Akureyri til Grenivíkur. í fyrra frysti húsið um 2.100 tonn af fiski, aðallega þorski, sem var þó samdráttur um ein 500-600 tonn frá árinu þar á undan. Afkasta- getan er þó mun meiri. „Það ríki mikil vinnugleði í morgun og vel gekk að koma starfinu af stað, þrátt fyrir að sumir væru smá- stund að ná upp sínum fyrri hraða og lagni,“ segir Ásgeir Jónsson, verkstjóri. Hann kveðst telja at- vinnuöryggið mun meira með nýjum eigendum, og verstu erfið- leikarnir séu aðbaki.„Ég hef ekki átt heima hérna lengi, en vildi bíða og sjá til hvernig reiddi af með fyrstihúsið áður en ég flytti mig um set. Ég er virkilega ánægður með að hjólin séu farin að snúast aftur og veit að öllum er hjartans mál að halda þeim gangandi áfram.“ A Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli V/SA FJÖLNOTA GREIÐSLU- OG ÞJÖNUSTUKORT Rétta kortið fyrir þig! VISA síMSMMB VJMWdlVbl Álfabakka 16 • Sími: 67 17 00 Norsk svín í einangrun Síðustu grísirnir komnir í heiminn SEINASTA norska gyltan af tíu sem hafa verið í einangrun í Hrís- ey frá því í byijun mars gaut um helgina, og eru nú tæplega 100 grísir komnir í heiminn. Valur Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Svínaræktarfélags íslands sem stendur að innflutningi skepnanna með stuðningi landbúnaðarráðuneytisins, segir að grísirnir vaxi mjög vel og standist þær væntingar sem til stofnsins eru gerðar. Einangrunarstöðin í Hrísey var reist sérstaklega með innflutning norska svínastofnsins í huga, og nemur stofnkostnaður við bygg- inguna og kaup á dýrum um 30 milljónum króna. Við það bætast öll rekstrargjöld, en reiknað er með að sala dýranna greiði þann kostnað að miklu leyti. Til lands eftir ár Valur segir að flestar gylturnar gjóti nú í fyrsta skipti og séu þær rétt ársgamlar. Valin verði hjörð úr grísunum, 30 gyltur og 10 gelt- ir, og sé stefnt að því að flytja afkvæmi hinna nýfæddu grísa eft- ir rúmt ár til lands, um mitt sum- ar 1995. „Ætlunin er bæði að hreinrækta norska stofninn og blanda honum við íslenska stofn- inn til kynbóta," segir Valur. Hann segir vaxtarhraða norsku svín- anna meiri en íslenskra og að þau þurfi minna fóðurs á hvert kíló af kjöti, sem leiði til meiri hag- kvæmni. Kjötið sé einnig ögn frá- brugðið kjöti íslensku svínanna; vöðvar séu meiri og fita minni. Valur segir að þessu verkefni ljúki næsta haust og þá bíði stöðin eftir næsta verkefni á sama sviði. Hann kveðst reikna með að svínin sem seld verði til landsins að ári, verði dýrustu svín á íslandi, en þó á viðráðanlegu verði og hann sé fullviss um að eftirspurnin verði næg vegna þeirrar hagræðingar sem stofninn hefur í för með sér. „Þetta er án efa verkefni sem mun borga sig vel,“ segir Valur. Nýir landnemar AÐALBJÖRG Jónsdóttir sóttvarnardýralæknir og Kristinn Árnason bústjóri, hafa vakað yfir norsku svínunum. Mitsubishi open Bestu kylfingar landsins væntanlegir OPNA Mitsubishi-mótið í golfi hefst á Jaðarsvelli á Akureyri á morgun, 2. júlí. Golfklúbbur Akureyrar stend- ur fyrir mótinu með veglegum stuðn- ingi Hölds hf., og er þetta stærsta mót sem GA stendur fyrir í ár, fyrir utan íslandsmótið. „Mitsubishi open er stigamót til landsliða karla og kvenna, þannig að allir þekktustu og sterkustu kylfingar landsins munu keppa hérna,“ segir Skúli Ágústsson, hjá Höldi hf. Keppt verð- ur í sex flokkum með og án forgjaf- ar. Pjöldi verðlauna eru í boði en auk þess er ferð fyrir tvo til Algarve mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm ' - hótelið þitt í Portúgal veitt fyrir holu í höggi, en náist ekki hola í höggi verða verð- launin dregin út við lok mótsins. Mitsubishi open er nú haldið í sjötta skiptið. Skúli segir að í fyrra hafi 130 kylfingar keppt, en þar sem veðurútlit sé gott megi búast við að minnsta kosti 150 keppendum. Veg- leg verðlaun laði einnig að. Yfirleitt hafi þó verið bíll í verðlaun fyrir holu í höggi, en búið sé að setja reglur til að skilja ,á milli áhuga- manna og atvinnumanna, þannig að áhugamaður sem hreppa myndi bif- reið í verðlaun myndi flokkast sem atvinnumaður. Skráningu fyrir mótið lýkur í dag, föstudag, kl. 19 hjá Golfklúbbi Akur- eyrar. Skúli kveðst geta fullyrt að Mitsubishi open sé eitt hið sterkasta á landinu, og kveðst eiga von á harðri keppni. Listasumar ’94 Föstudagur 1. júlí ÁSLAUG Thorlacius sýnir verk í Glugganum, verslunarglugga KEA í göngugötunni, og stend- ur sýningin í viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.