Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 Sumdr' tilboð! Garðáhöld á einstöku verði mjög vandaðar, teflon húðaðar. kr. 1.150 Aðrar gerðir frá kr. 740 Slöngurúlla á hjólum. Kr. 2.250. Slöngurúlla Trjáklippur með löngu skafti, teflon húðaðar kr. 1.100. Garðúðaðar. 3 gerðir. Verð frá kr. 650. Þetta er aðeins hiuti af úrvalinu. Komið, skoðið og gerið góð kaup! Ath.: Við eigum einnig úrval af hillum og hillukerfum í bílskúrinn eða geymsluna á hagstæðu verði. Op/'ð mánud. til föstud. 9-18. Laugard. 10-14. Öll verO eru stgr. verö verði! FAXAFENI 9, SÍMI 887332 VIÐSKIPTI Fundur stórkaupmanna um hafnarmál í Reykjavík og Rotterdam Borgarstjórí viil stuðla að auk- inni samkeppni ísiglingum stórkaupmanna hélt í gær. Þar fluttu ræður þau Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, borgarstjóri, og fulltrúi Rotterdamhafnar, Harry Kloosterboer. A myndinni eru frá hægri þau Ingibjörg Sólrún og Kloosterboer, ásamt konu hans og Jochem Porte, sem einnig á sæti í sendinefndinni frá Rotterdam. BORGARSTJÓRINN í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði á fundi, sem Félag íslenskra stór- kaupmanna hélt í gær, að núverandi meirihluti í borgarstjórn hygðist láta fara fram ítarlega könnun á því, hvernig efla mætti Reykjavíkurhöfn sem umsvifamikið atvinnusvæði, fjölga skipakomum og stuðla að aukinni samkeppni í sjóflutningum. Á fundinum var fjallað um flutn- inga- og hafnannál í Reykjavík og Rotterdam í Hollandi, og var aðal- ræðumaðurinn Harry Kloosterboer, fulltrúi Rotterdamhafnar. Sagði hann að staðsetning borgarinnar og stærð hafnarinnar gæfu Islending- um tilefni til að beina flutningum sínum þangað, bæði innflutningi og útflutningi. Félag íslenskra stórkaupmanna boðaði til fundarins í tilefni af opin- berri heimsókn Hollandsdrottningar hingað til lands. Meðal fundarmanna voru fulltrúar Rotterdamhafnar og sendinefnd, skipuð fulltrúum við- skiptalífsins í Hollandi. Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, setti fundinn, og lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi viðskipta Islend- inga við Holland, bæði í innflutningi og útflutningi. Að ávarpi hans loknu tók til máls Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, borgarstjóri. Rakti hún sögu Reykjavíkurhafnar í stuttu máli og vék sérstaklega að nánum tengslum hennar við verslun og atvinnulíf í borginni í gegnum tíðina. Rætt við stórkaupmenn í máli Ingibjargar Sólrúnar kom fram, að í Reykjavík væri fyrirkomu- lag hafnarmála með þeim hætti, að höfnin sjálf ætti hafnarmannvirkin OECD og sæi til þess að landrými væri nægilegt, en gæfi svo einkaaðilum tækifæri til að byggja upp aðstöðu sína þar. Skipaafgreiðsla og vöru- dreifing væri hins vegar í höndum skipafélaganna og annarra einkafyr- irtækja. Hún sagði að meirihluti R- listans í borgarstjórn hygðist láta fara fram ítarlega könnun á mögu- leikum hafnarinnar í framtíðinni, hvernig efla megi starfsemi hennar, auka vöruflutninga um hana og hvernig hún geti stuðlað að aukinni samkeppni í millilandasiglingum. Um það efni hefði meðal annars verið rætt við Félag íslenskra stórkaup- manna. Þá væri á áætlun að athuga hvernig hægt yrði að skapa fleiri aðilum en nú er aðstöðu til að sinna vöruafgreiðslu. Stærsta vöruflutningahöfn í heiminum Aðalræðumaður fundarins var Harry Kloosterboer, framkvæmda- stjóri hollenska fyrirtækisins Euro- frigo, en hann var hingað kominn fyrir hönd hafnaryfirvalda og hags- munaaðila í Rotterdam. í máli hans kom fram, að Rotterdamhöfn væri stærsta vöruflutningahöfn í heimin- um og mun stærri en aðrar hafnir á svipuðum slóðum í Evrópu, svo sem í Hamborg og Antwerpen. Kostir þess að flytja vörur um Rotterdam væru margir, þar skipti stærðin og Nýtt hagvaxtarskeið framundan OECD SPÁIR HAGVEXTI A NY í spá um efnahagsástandiö I OECD-ríkjunum á þessu árl og því næsta segir stofnunin, aö hagvöxtur í aöildarrlkjunum verði aö aukast hraöar en hann hefur gert I tvo áratugi, eigi áfram aö vera hægt aö halda þar uppi velmegun og tiltölulega háu atvinnustigi. OECD ríki, nokkrar hagtölur* Landsframleiösla Veröbólga 1993 1994 spá 1995 spá 0.9]l | 1 2,e 1 M 2,91 jto 0.5I i.oi 1.5I 2.0I 2,5! 3.0 li oröiö nálægt 3% á næsta ári. i Bandarikjunum, Bretlandi, i, samkvæmt spá OECD. Atvinnuleysi hluttfall af helkfarvlm Meilkö undenskilö Veröbólgutölur innihelde ekki tölur trí Tytklandi HAGVÖXTUR í flestum aðildam'kj- um Efnahags- og framfarastofnun- arinnar í París (OECD) er að glæðast og bjartsýni ríkir um efnahagsþró- unina á næstu árum. Bendir margt til þess að framundan sé nýtt hag- vaxtarskeið. Þetta kemur fram í ný- birtri skýrslu stofnunarinnar um efnahagshorfur í aðildarlöndunum. Spáð er áframhaldandi lægð i ís- lensku efnahagslífí, en Þórður Frið- jónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að hagvöxtur í nágrannalönd- unum muni hafa jákvæð áhrif hér. Gert ráð fyrir að hagvöxtur verði að méðaltali 2,6% í löndum OECD á yfírstandandi ári og nálægt 3% á næsta ári. Eru horfur á að svipaður hagvöxtur haldi áfram á næstu árum, að sögn Þórðar. „Ef þessar áætlanir ganga eftir, þá er nýtt vaxt- arskeið í uppsiglingu og menn telja að það sé þegar vel á veg komið í nokkrum löndurn," sagði hann. Áfram samdráttur í landsframleiðslu hér Spáð er áframhaldandi lægð í ís- lensku efnahagslífí út þetta ár og samdrætti í landsframleiðslu, sem sérfræðingar OECD telja að muni dragast saman um 0,6%. Hins vegar er spáð hægum vexti á næsta ári og að landsframleiðslan muni aukast um 1,4% á árinu 1995. Þórður sagði að ekkert nýtt kæmi fram í spám OECD um ísleriskt efna- hagslíf enda byggðust þær á upplýs- ingum sem lágu fyrir í vor og væru í samræmi við áætlanir Þjóðhagsstof- unar en gera mætti ráð fyrir að fram- undan væri hægur vöxtur í efnahags- lífinu. „Þegar lifnar yfír efnahagslífinu í kringum okkur þá gerir það að verk- um að umgjörðin Um íslensk efna- hagslíf verður rýmri. Við sjáum það meðal annars í því að álverð hefur hækkað verulega og ferðalög aukast í heiminum með bættum efnahag. Hagvöxtur og traustur efnahagur í öðrum löndum hefur góð áhrif á ís- lenskt efnahagslíf," sagði Þórður. staðsetningin miklu, borgin lægi vel við samgöngum og væri auk þess í nágrenni við stór markaðssvæði í Evrópu. 80% af Evrópumarkaðnum væru í innan við tveggja sólarhringa akstursfjarlægð frá borginni og þétt- býlustu svæði Evrópu í innan við sólarhrings fjarlægð. Rotterdam hentug höfn fyrir íslendinga Kloosterboer lagði á það áherslu, að hagstætt væri fyrir íslendinga að flytja vörur um Rotterdam,.það hent- aði bæði útflytjendum og innflytjend- um vel. Ekki væri nóg með að stutt væri á Evrópumarkað þaðan, heldur væri líka hentugt að flytja vörur um borgina þegar menn ættu viðskipti við aðila annars staðar, svo sem í Austur-Asíu. Þá væri Rotterdamhöfn helsta viðskiptahöfn Evrópu á sviði matvæla og væri sérstök áhersla lögð á það að veita þeim góða þjónustu, sem versluðu með frysta og kælda matvöru. Hann bætti líka við, að í Rotterdam hefði verið hannað sér- stakt kerfi til að tryggja hraða vöru- afgreiðslu og ætti samkvæmt því ekki að taka meira en eina klukku- stund að ljúka öllum formsatriðum við tollafgreiðslu og þess háttar. Þetta kerfi ætti að komast í gagnið að fullu eftir 1. október næstkom- andi. Aðspurður um fyrirkomulag hafn- armála í Rotterdam sagði Klooster- boer, að borgaryfírvöld sæju um skipulagningu hafnarsvæðisins og framkvæmdir við hafnarmannvirki, en hollenska ríkið tæki þátt í fjár- mögnun þeirra. Hins vegar væru 90% af þeirri þjónustu, sem veitt væri í sambandi við vöruafgreiðslu og þess háttar, í höndum einkafyrirtækja. Fjölmiðlar CBS og QVC sam- einast New York. Reuter. FRÉTTIR um saméiningu CBS-sjónvarpsins og innkaupa- og kapalsjónvarpsins QVC urðu til þess á fímmtudag að CBS fór þess á leit við kauphöllina í New York að viðskiptum með hlutabréf í fyrirtækinu yrði hætt. CBS mun bjóða 3 millj- arða dollara í QVC. Fyrr á þessu ári beið QVC lægri hlut í langdreginni bar- áttu við Viacom um yfírráð yfír Paramount Communicati- ons. Þá voru 10 milljarðar doll- ara í húfí. Diller aðalframkvæmda- stjóri nýja fyrirtækisins Hermt er að stjórnarfor- mennirnir Laurence Tisch frá CBS og Barry Diller frá QVC standi í samningum um hugs- anlegan samruna félaganna. Diller verður aðalframkvæmda- stjóri eftir sameiningu CBS og QVC, en Tisch stjórnarformað- ur samkvæmt blaðafréttum. Diller var forstöðumaður Fox-keðju Ruperts Murdochs áður en hann fór til QVC, sem er morgun- og innkaupasjón- varp. Hann hefur einnig að baki reynslu í Hollywood, þar sem hann var um tíma for- stöðumaður kvikmyndavera Paramount-kvikmyndafélags- ins. J i I 1 f i I i I I í í í i i t i í E I I > i í > i I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.