Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand Er það satt, að maður ætti Ekki ef maður Af hveiju er sagt „þú ert Ef þú ert heppinn, mun ekki að hræðast þegar mað- hefur von. aldrei einn á ferð“? hundurinn þinn vera með ur gengur úti I stormi? þér... BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Orfá orð til Þorgeirs Pálssonar, BólstaðarhKð 7 Frá Matthíasi Á. Mathiesen: ÖRFÁ orð vegna bréfs í Morgun- blaðinu 24. júní sl. frá þér til Steins Lárussonar framkvæmdastjóra vegna þjóðhátíðarinnar 17. júní. Eg las í bréfi þínu að þú varst á þjóðhá- tíðinni á Þingvöllum. Ég vona að þú hafir haft mikla ánægju af því eins og aðrir þeir sem þar voru og við mig hafa talað. Ohlutdrægir segja mér að þjóðhátíðin hafi tekist vel, en eins og þú bendir réttilega á dylst engum að umferðarmálin fóru verulega úrskeiðis. Sem betur fer var þjóðhátíðin næsta slysalaus og þeim mikla fjöida sem hana sótti til mikils sóma og er ástæða til að þakka það. Auðvit- að koma alltaf upp einhver vanda- mál á slíkum stórhátíðum og verður seint hægt að koma í veg fyrir slíkt. Skorast þjóðhátíðarnefnd ekki und- an jgagnrýni á því sem er hennar. Eg ætla að víkja að umferðar- vandamálum sem upp komu, enda eru orð Steins í viðtali á Stöð 2, 18. júní sl. um það vandamál tilefni skrifa þinna. Frá upphafi starfa sinna var þjóð- hátíðarnefnd í samstarfi við alla þá innlendu aðila sem verða að hafa afskipti af slíkri þjóðhátíð. Leitaði nefndin álits þeirra og kom fram með tillögur sínar sem hún taldi að mættu koma að gagni og skynsam- legri væru til framkvæmda að henn- ar dómi. Nefndin leitaði jafnframt til útlanda þar sem ekki var inn- lenda aðstoð að fá. Stjórn umferðarmála á vegum er í höndum lögreglustjóra í hveiju lögsagnarumdæmi. Þó er heimilt að fela einum lögreglustjóra alla um- ferðarstjóm og skipulag við sérstak- ar aðstæður á ákveðnum svæðum eins og gert var á þjóðhátíðinni 1974. Fulltrúi dómsmálaráðuneyt- isins gerði í öndverðu grein fyrir því að ekki yrði sama fyrirkomulag nú og var 1974 heldur skyldu lög- Athugasemd frá Harmon- ikkufélagi Reykjavíkur Frá Karli Jónatanssyni: VEGNA bréfs frá Gesti Friðjóns- syni „Óhreinu börnin hennar Evu“ sem birtist í Morgunblaðinu 29. júní sl. vil ég taka það fram að Harmonikkufélagi Reykjavíkur var ekki á nokkum hátt ýtt til hliðar eða á neinn annan hátt einangrað frá hátíðarsvæðinu á Þingvöllum 17. júní. Um það var samið að við gengjum um svæðið í smáhópum og spiluðum þar sem okkur þótti best henta hverju sinni. Þjóðhátíð- arnefnd sveik því ekki á nokkurn hátt samninga við Harmonikkufé- lag Reykjavíkur og af okkar hálfu var ekki undan neinu að kvarta hvað varðar skipulag á okkar skemmtiatriði. Fyrir hönd Harmonikkufélags Reykjavíkur, KARL JÓNATANSSON. reglustjóramir í Ámessýslu og Reykjavík skipuleggja og stjórna umferðarmálum sinna lögsagnar- umdæma. Skyldi nefndin hafa sam- band við þá varðandi upplýsingar og fyrirmæli. Upplýsingar og fyrir- mæli um skipulag og stjómun um- ferðarmála á þjóðhátíðinni 17. júní komu síðan frá þessum tveimur embættum. Hafi ákvarðanir um skipulag og stjórnun umferðarmála þennan dag verið ástæðan fyrir þeim umferðarvandamálum sem upp komu verður þvi að leita skýr- inga hjá embættum lögreglustjóra í Árnessýslu og Reykjavík. Við sem vomm á þjóðhátíðinni 1974 munum eftir umferðarvanda- málunum sem þá urðu jafnvel þótt tvö ár hafi þá verið til undirbúnings og skipulagningar umferðarmála og eitt Iögreglustjóraumdæmi hafi far- ið með umferðarmálin. Fjölmiðlar sögðu: „Mesta umferðarteppa í 1100 ár.“ „Fjöldi manns var þrjá tíma eða meira frá Þingvöllum til Reykjavíkur.“ (Vísir 29. júlí 1974.) En hvað sagði framkvæmdastjóri þjóðhátíðarinnar 1974 og reyndar ritari nefndairnnar, Indriði G. Þor- steinsson rithöfundur, um skipulag umferðarmála þá? í viðtali við Þjóð- viljann 30. júlí 1974 segir hann: „Hátíðin fór fram samkvæmt áætlun að mestu. Reyndar skilst mér að það hafi orðið umferðartaf- ir, en það kemur mér eiginlega ekki við, það var lögreglan sem annaðist þá hlið skipulagningarinnar." Indrið G. Þorsteinsson hafði sömu viðhorf til umferðarvandamálanna 1974 og Steinn Lárusson 1994. Það er ljóst af framangreindu að lögreglunni er mikill vandi á hönd- um þegar skipuleggja þarf fólks- flutninga í sambandi við stórhátíðir, og því þýðingarmikið að nýta sér fengna reynslu. Þjóðhátíðamefndin var skipuð af ríkisstjóm að höfðu samráði við þingflokkana. Var það með svipuðu fyrirkomulagi og skipun eða kosn- ing nefnda þjóðhátíða allt frá 1930. Það er ekki rétt með farið að þær Ásta Erlingsdóttir og Ása Hregg- viðsdóttir hafi verið í nefndinni. Þær störfuðu fyrir nefndina ásamt öðru ágætu fólki sem vann frábært verk við gerð dagskrár og skipulag henn- ar á þjóðhátíðini undir ömggri for- ystu Steins Lárussonar fram- kvæmdastjóra. Aðalatriðið nú er að átta sig á því hvað aflaga fór og læra af reynslunni. Það er stutt í 1000 ára afmæli kristnitöku á íslandi. MATTHÍAS Á. MATHIESEN, formaður Þjóðhátíðarnefndar. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.