Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nær dauða en lífi á gocart-brautinni Löndunarbann Rússa á fiski á íslandi __________________ i Eldsvoði í byggða- [ safninu í Glaumbæ Verulegar skemmdirá i endurreistu > Áshúsinu Sauðárkróki. Morgunblaðið yERULEGAR skemmdir urða á Áshúsinu svonefnda í Glaumbæ, sem verið hefur í endurgerð und- anfarna mánuði, og taka átti í notkun næstkomandi sunnudag. Það var vegfarandi sem leið átti um Sauðárkróksbraut um hálfsexleytið sem varð var við reyk frá húsinu, vakti upp á bænum Hátúni, og lét þaðan kalla til Slökkvilið Sauðárkróks, sem var komið örskömmu síðar. Eldsupptök virðast hafa verið við inngang hússins, og hefur eld- urinn ekki náð að breiðást út það- an, en verulegar skemmdir urðu á herbergi safnvarðar svo og á for- stofu, en aðrar skemmdir urðu mest af vatni og reyk. Áshúsið er gamalt timburhús sem flutt var til Glaumbæjar frá Ási í Hegranesi, en það var upp- haflega byggt sem kvennaskóli, og raunar notað sem slíkt um skamma hríð, en síðar sem íbúðar- hús. Ætlunin var að í Áshúsinu yrði veitingasala fyrir safngesti í Glaumbæ, en einnig að þar væri geymsla fyrir muni úr Glaumbæj- arsafninu yfir vetrarmánuðina. Unnið hefur verið mjög mikið og kostnaðarsamt verk í endur- gerð hússins á undanfömum mán- uðum, og fóru síðustu iðnaðar- mennirnir úr húsinu kvöldið fyrir brunann, en áætlað var eins og áður sagði að taka húsið formlega í notkun næstkomandi sunnudag. Slökkvistarf gekk vel Að sögn Óskars Óskarssonar slökkviliðsstjóra tók skamma stund að ráða niðurlögum eldsins, um 45 mínútur frá því að tilkynn- ing barst þar til slökkvistarfi var lokið, enda gott að komast að þeim stað þar sem upptökin voru, en einnig ljóst að ef ekki hefði svo vel viljað til að vegfarandi átti leið um og lét vita, þá hefði sennilega ekki orðið við neitt ráðið. Um eldsupptök er ekki vitað, en með hádegisflugi til Sauðár- króks í gær, komu tveir menn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins til að skoða það mál. Morgunblaðið/Bjöm Húsið er mjög illa farið innanstokks eftir brunann. Ekki tilbúin að horfast í augu við dauðann „ÉG ER að skríða saman lík- amlega. En andlega sjokkið var rosalegt. Rétt rúmlega tvítug manneskja er ekki til- búin til að horfast svona í augu við dauðann," segir Elin Valgerður Guðlaugsdóttir, 21 árs. Hún telur sig hafa verið hársbreidd frá dauða þegar trefill um háls hennar flæktist í afturöxli cocart-bíls á fullri ferð á sunnudag. Elín Valgerður fór ásamt tveimur félögum sínum í Kart- klúbbinn á sunnudagskvöld. Hún ók einum cocart-bílanna þegar hún fann skyndilega að trefill um háls hennar herti að. „Mér fannst skyndilega eins og ég sæti, í sömu stell- ingum og í bíln'um, á stól eða einhverju öðru og allt í kring- um mig væri fullt af fólki, á bilinu 10 til 15 manns. Allt var að gerast í einu, allt á floti og allir að garfa í mér. Ég þekkti engan nema ötfimu mína sem dó fyrir 30 árum. Við hana hef ég haft samband gegnum miðil. Hún fylgir mér,“ sagð Elín Valgerður. Hún segir að allir hafi talað í einu og hún geri sér ekki grein fyrir hvort amma henn- ar reyndi að tala við hana eða ekki. Elín Valgerður segist hafa verið hissa á öllum ósköpun- um í þessu ástandi. En þegar Málin skýrast á fundi með Rodin Morgunblaðið/Árni Sæberg Elín Valgerður segist hafa gengið í gegnum stórkost- lega lífsreynslu sem hún geti þó ekki óskað neinum að lenda í. hún hafi rankað við sér hafi henni fundist eins og langur tími hafi liðið og það fyrsta sem hún hafi sagt hafi verið: „Mig dreymdi svo skrítið. Ég man ekki alveg hvað það var.“ Hún þrírifbeinsbrotnaði og hlaut mar á hálsi í slysinu. Stórkostleg reynsla Aðspurð segist Elín Val- gerður hafa fundið fyrir því að hún væri næm gangvart nærveru framliðinna. En þar sem henni hafi ekki fundist hún tilbúin hafi hún ýtt öðrum en áðurnefndri ömmu sinni frá sér. Hún segist hafa geng- ið í gegnum stórkostlega reynslu sem hún geti þó ekki óskað neinum að lenda í. GUNNAR Gunnarsson, sendiherra íslands í Moskvu, átti í gær fund með Fokin, yfírmanni annarrar Evrópudeildar utanríkisráðuneytis Rúss- lands, vegna löndunarbanns Rússa á físki frá íslandi. Á fundinum komu ekki neinar nýjar upplýsingar fram af hálfu Rússa og var Gunnari tjáð að þeirra yrði ekki að vænta fyrr en eftir fund hans með Alexander Rodin, varaformanni rússneska fískveiðiráðsins, sem verður í dag. Gunnar sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að fundurinn _með Fokin hefði ekki verið langur. „Það sem ég gerði var að lýsa yfír áhyggjum vegna málsins ef um væri að ræða opinbera afstöðu Rússlands. Ég benti á að í Ijósi góðra samskipta íslands og Rúss- lands þá hefðum við vonast til að verða upplýstir fyrirfram og örugg- lega áður en máiið færi í þann far- veg sem það hefur gert,“ sagði Gunnar. Rætt frekar eftir fundinn með Rodin Síðan Alexander Rodin beindi þeim tilmælum til útgerðarmanna i Múrmansk áð eiga ekki viðskipti við fslendinga meðan á deilum þeirra við Norðmenn um veiðirétt- indi á fiskvemdarsvæðinu við Sval- barða stæði hefur a.m.k. tveimur físksölusamningum Rússa við ís- iensk fyrirtæki verið slitið. Á fund- inum með Fokin í gær benti Gunn- ar jafnframt á það mat íslendinga að það væri ekki í samræmi við viðurkennda alþjóðlega viðskipta- hætti að tengja saman tvö ólík mál með þeim hætti sem Rússar hefðu gert. „Fokin meðtók þetta og hon- um var kunnugt um fund minn með Alexander Rodin, varaformanni fiskveiðiráðsins, á morgun [föstu- dag]. Hann sagði að í kjölfar þess fundar myndu málin verða rædd og vænta mætti frekari afstöðu Rússa upp úr því,“ sagði Gunnar. Þurfa ekki að hlíta tilmælum Á miðvikudag hitti Gunnar for- stjóra Karelrybflot, kirjálsks út- gerðarfyrirtækis, að máli. Forstjór- inn greindi Gunnari frá því að hann teidi sig óbundinn af tilmælum Rodins. Útgerðarmönnum í Múr- mansk er úthlutað kvótum í Bar- entshafí beint frá Moskvu en Kiij- ála, sem er sjálfstjórnarlýðveldi, fær úthlutað kvóta og deilir honum síð- an til útgerðarmanna í héraðinu. Það er því óljóst að hve miklu leyti Kiijálar þurfa að beygja sig undir Moskvuvaldið. Kiijála fær úthlutað um 10% hei|darþorskkvóta í Barentshafí og af honum fær Karelrybflot milli 70 og 80% eða 7-8% af heildarkvótan- um meðan flest önnur fyrirtæki fá um 3%. Karelrybflot er því með lang- stærsta hlutdeild einstakra fyrirtækja í Barentshafskvótanum í þorski. 15% hlutdeild Karelrybflot hefur höfuðstöðvar í Belomorsk við Hvítahafíð sem gengur inn úr Barentshafi. Hvíta- hafið leggur á vetrum og hefur fyrirtækið útibú á Múrmansk þaðan sem skip þess eru gerð út. Hlut- deild Karelrybflots í innflutningi Rússaþorsks til íslands hefur verið um 15% síðustu mánuði og misseri. Heimsókn Hollandsdrottningar Beatrix skoðaði Ráðhús og söfn BEATRIX drottning Hollands og eiginmaður hennar Claus prins komu til landsins í gærmorgun. Skömmu eftir komuna héldu þau til Bessastaða þar sem þau snæddu hádegisverð í boði forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur. Aðrir gestir snæddu hádegisverð á Hótel Sögu en utanríkisráðherra íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, og Pieter Hendrik Kooijmans áttu fund þar í gærdag. Síðdegis í gær tók borgarstjóri Reykvíkinga, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, á móti Hollandsdrottn- ingu og fylgdariiði í Ráðhúsinu og gekk síðan með henni út að Iðnó. „Ég hef ekki mikla reynslu í því að heilsa upp á drottningar en þetta er greinlega eins og að heilsa upp á annað fólk. Hún og prinsinn eru mjög indæl og elskuleg og hafa ríka kímnigáfu," sagði Ingibjörg Sólrún. Hálfþeyttur rjómi Hollandsdrottningu varð meðal anrt^rs að orði þegar hún skoðaði íslandskortið í Ráðhúsinu að jökl- amir litu út eins og hálfþeyttur ijómi. „Ég sýndi her.ni einnig vax- töflurnar sem fundust úti í Viðey í uppgreftrinum þar en á þeim eru hollenskar áletranir enda hollensk- ur biskup í Skálholti á 15. öld.“ Ingibjörg Sólrún að drottning hefði lesið áletranirnar á töflunum og frætt viðstadda á því að. um væri að ræða Maríubæn. Drottning og maður hennar skoðuðu einnig í gær listsýningar á Kjarvalsstöðum og Listasafni íslands, ennfremur Árnasafn og í gærkvöldi sátu þau kvöldverðar- boð Vigdísar Finnbogadóttur á Hótel Sögu ásamt fjölda annara gesta. Morgunblaðið/Ámi Sæberg CLAUS prins, Beatrix Hollandsdrottning og Vigdís Finnboga- dóttir á Reyly'avíkurflugvelli í gærmorgun. Myndin til vinstri var tekin þegar Hollandsdrottning var á leið til að skoða Iðnó í fylgd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.