Morgunblaðið - 01.07.1994, Side 6

Morgunblaðið - 01.07.1994, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ í fylgd með fullorðnum KVIKMYNPIR Stjörnubíó/ Bíó h ö11 i n BÍÓDAGAR ★ ★ 'A Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Handrit: Einar Már Guðmundsson og Friðrik Þór. Framleiðendur: Frið- rik Þór, Peter Rommel, Peter Aalbæk Jensen. Kvikmyndataka: Ari Kristinsson. Leikmynd: Ami Páll Jóhannsson. Búningar: Karl Aspe- lund. Tónlist: Hilmar Öm Hilmars- son. Hljóð: Kjartan Kjartansson. Framleiðslustjóra: Ari Kristinsson. Framkvæmdastjóri: Inga Björk Sól- nes. Aðalhlutverk: Órvar Jens Am- arsson, Orri Helgason, Rúrik Har- aldsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Jón Sigurbjömsson, Guðrún Asmunds- dóttir. Islenska kvikmyndasamsteyp- an, Peter Rommel Filmproduktion og Zentropa Entertainments. 1994. Verð - 800 kr. Eins og margir íslenskir rithöf- undar hafa tíðkað leitar kvik- myndagerðarmaðurinn Friðrik Þór Friðriksson aftur í bemsku sína í Reykjavík og norður í Skagafirði í nýjustu mynd sinni Bíódögum, sem frumsýnd var í Stjörnubíói í gærkvöldi. Það sýnir enn fjöl- breytni Friðriks Þórs sem kvik- myndahöfundar. Hann er óhrædd- ur að takast á við eins ólík efni á hvíta tjaldinu sem hvalfangara á næturgöltri, gamalt fólk á flótta og mannlífið á íslandi í upphafi sjöunda áratugarins þegar amer- íska innrásin með sínu kanasjón- varpi var á fullu í höfuðstaðnum á meðan sveitabragurinn hélst ómengaður. Togstreita sveitamenningar og borgar virðist óþrjótandi brunnur sögumanna. Bíódagar, sem er sjálfsævisöguleg að einhveiju ef ekki öllu leyti, tengist síðustu mynd leikstjórans, Bömum náttúr- unnar, á þann hátt að aðalpersóna hennar fer í Skagafjörðinn (þar sem finna má bestu atriði myndar- innar) og sveitin gegnir enn mjög mikilvægu hlutverki í lífi og örlög- um persónanna. En Friðrik Þór og handritshöfundurinn, Ein'ar Már Guðmundsson, virðast ekki hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu frásagnarinnar því hún er skryk- kjótt, þungamiðjan er lítt undir- byggð og endirinn snubbóttur. Helsti kostur Bíódaga, fyrir utan mjög góðan leik á köflum, liggur í endursköpun tímabils sjöunda áratugarins. Það hefur tekist frá- bærlega til við að skapa andrúms- loft sem var, a.m.k. í minningum Friðriks Þórs og Einars Más, með dýrlegum smáatriðum í hlutum eins og húsbúnaði, húsakosti, bún- ingum, farartækjum, tónlist, bíó- myndum, vinstri umferð og allt ofaní gömlu góðu Spurflöskurnar. Þetta er tímabil Kanans, Roy rollu og Trigger dollu, amerískra stórmynda og æsandi þijúbíósýn- inga. Þetta er augljóslega mynd gerð eftir lok Kalda stríðsins. Inní hana slæðist hermaður af vellinum og verður að athlægi en hugsjóna- maðurinn sem vill herinn burt er fótsár fyllibytta eftir allt Kefla- víkurþrammið. Strákamir fá að sjá Dick Van Dyke í sjónvarpinu ef þeir eru duglegir. Aðrir láta sér útvarpssögurnar ennþá nægja og stórfjölskyldan kemur saman og syngur úr sér lungun. Svo fara allir í bíó, konur og karlar, krakk- ar og ömmur. Allt þetta fáum við að sjá í stuttum en ekki mjög tengdum atriðum, sem safnað hef- ur verið saman úr hrúgu af minn- ingabrotum og því fylgir húmor og skemmtilegheit án þéss þó að maður komist í neina snertingu við perónurnar. Friðriki Þór og félögum tekst betur upp að því leyti þegar þeir halda í sveitina og myndin breytir algerlega um útlit. Sá hluti hefur það framyfir fyrri hluta myndar- innar að tvær sterkar persónur í höndum góðra leikara koma við sögu og taka að glansa. Það eru Jón Sigurbjörnsson, sem leikur bóndann á bænum, og Guðrún Ásmundsdóttir í hlutverki konu hans. Þar fáum við kannski að FRÉTTIR kynnast því sveitalífi er persónurn- ar úr Börnum náttúrunnar lifðu og tengslum fólks við hið yfirnátt- úrulega, sem hér speglast í baráttu Jóns við óhræsi í draumi í magnað- asta atriði myndarinnar og dauð- anum á yfirreið framhjá bænum (í formi hins engilsins úr Himnin- um yfir Berlín að mér sýndist). í sveitinni mætast ameríska hasarmyndamenningin og forn ís- lenskur frásöguháttur og það er engin spuming hvort hefur vinn- inginn. Þar fær líka vönduð myndataka Ara Kristinssonar, sem orðinn er einn okkar fremsti og besti kvikmyndatökumaður, notið sín bæði í mjúkri birtunni innanhúss og eins gullfallegu og seiðandi landslagi Skagafjarðar- ins. Það er hins vegar í uppbygging- unni sem helsti veikleiki Bíódaga kemur fram. Sagan sjálf er fremur óljós lengi framan af því myndin byggir meira á stemmningsatrið- um en heildstæðri frásögn en loks- ins þegar sagan tekur á sig mynd, snertir hún varla taugar áhorf- enda. Strákurinn fær þær fréttir að faðir hans hafi látist og jarða- förin fer fram f sveitinni. Þetta er stór hluti Bíódaga og eiginlegur hápunktur myndarinnar en missir marks því samband föður og sonar hefur ekki verið undirbyggt á neinn hátt og þýðing föðurmissisins fyrir drenginn fer fyrir -ofan garð og neðan hjá áhorfandanum. Ekki bætir úr skák að í kjölfarið fylgir snubbóttur endir svo myndin hang- ir eiginlega í lausu lofti á eftir. Fjöldi fólks fer með stór og smá hlutverk en mest mæðir á Orvari Jens Arnarssyni, sem fer með hlut- verk drengsins. Er reyndar ánægjuefni að sjá hve vel íslensk- um leikstjórum gengur að vinna með krakka og stendur Örvar Jens sig með stakri prýði. Jón Sigur- björnsson er glettilega góður sem íslenskur bóndi, sem þarf bæði að glíma við amerískar bíómyndir og forynjur og hefur ekki verið betri á tjaldinu. Guðrún Ásmundsdóttir er að sama skapi kímileg vel. Rú- rik Haraldsson er manni fjarlæg persóna eins og áður sagði og Sig- rún Hjálmtýsdóttir er hressileg móðir drengsins en hvorug skipa sérstakan sess í myndinni. Arnaldur Indriðason Margir á ferð og flugi um aðra mestu ferðamannahelgi sumarsins Straumur í Þórsmörk LÍKUR eru á að landsmenn verði mikið á ferðinni um landið um helg- ina. Fyrsta helgin í júlí hefur að sögn Gunnars Sveinssonar, fram- kvæmdastjóra BSÍ, slagað upp í verslunarmannahelgi hvað umferð ferðamanna varðar undanfarin ár. Gunnar segir að flestir fari í Þórsmörk og á Höskuldarvelli. Eins megi minna á að hálendið sé smám saman að opnast. Yfir 2.000 manns verða á svæðum Útivistar, Ferð- afélagsins og Austurleiðar í Þórs- mörk. Ótilgreindur fjöldi sækir rokkhátíð í anda Woodstock á Höskuldarvöllum við Keili. Veður ætti samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar að haldast þurrt á báðum stöðum. Bjart verður með köflum í Þórsmörk en dimmara yfir Reykjanesi. Mikið hefur verið að gera í innanlandsflugi fyrir helgina en ekki er sérstaklega mik- ið bókað í dag. Anna Soffía Óskarsdóttir, starfs- maður Útivistar, sagði að 20 manns tækju þátt í helgarferð í Þórsmörk. Gist yrði í öðrum skála Útivistar í Básum, ættarmót væri í hinum. Hún áætlaði að 650 manns leigðu tjaldstæði frá Álfakirkju inn að Hrunaá og gat þess að 14 manns kæmu niður í Bása úr fimm daga gönguferð um hálendið. Gróa Halldórsdóttir, starfsmaður Ferðafélags íslands, sagði að um 100 manns, frá börnum innan við eins árs upp í afa og ömmur, tækju þátt í fjölskylduhátíð í Langadal í Þórsmörk um helgina. Að morgni laugardags bættust 25 göngumenn af Fimmvörðuhálsi í hópinn. Áætla mætti að 250 til 300 manns yrðu á tjaldstæði Ferðafélagsins í Langa- dal. Hjá Austurleið fengust þær upplýsingar að búast mætti við að um 1.000 manns yrðu á vegum félagins í Húsadal í Þórsmörk. Flug og langferðabílar Frímann Benediktsson, starfs- maður Flugleiða, sagðist ekki greina mikla aukningu ferðamanna um helgina. Hins vegar hefði mikið verið að gera fyrir helgi. Hann nefndi sem dæmi að 1.200 manns hefðu flogið innanlands á miðviku- dag, ellefu hundruð daginn eftir og jafnmargir í dag. Hann reiknaði með töluverðum fjölda farþega, á bilinu 1.200 til 1.300, til Reykjavík- ur á sunnudag. Allt uppbókað á Búðum VIKTOR Sveinsson staðarhaldari á Búðum á Snæfellsnesi segir að til- gangslaust sé að koma í Búða-frið- land úm helgina og gista þar nema eiga pantað tjaldstæði eða gistingu. Nú þegar séu öll tjaldstæði, 80 að tölu, pöntuð og öllum ferðamönnum sem ekki hafi þegar gert ráðstafanir verði vísað frá svæðinu. „Við höfum fengið það á tilfinn- inguna í þessari viku að allt að tvö þúsund manns hyggist leggja leið sína til okkar,“ sagði Viktor í sam- tali við Morgunblaðið. „Við getum því miður ekki tekið við öllu þessu fólki. Við leggjum áherslu á að veita þeim sem komast vel fyrir, góða þjónustu og þess vegna grípum við til þess að takmarka aðgang að frið- landinu og tjaldstæðum á svæðinu." Haldið uppi gæslu „Við munum halda uppi gæslu við hlið friðlandsins og vísa þeim frá sem ekki eiga lögmætt erindi. Lög um friðlandið gera ráð fyrir því að svæð- ið sé opið þeim einum sem þangað eigi lögmætt erindi og þar af leið- andi neyðumst við til þess að bera fyrir okkur ákvæði þessara laga,“ sagði Viktor. Hann bendir ferðamönnum á að víða á Snæfellsnesi megi finna ágæt tjaldstæði og nefnir sem dæmi tjald- stæði í Ólafsvík, á Rifí, Hellissandi og við Lýsuhól. Granotier í g’æslu til 26. júlí BERNARD Granotier var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. júlí, að kröfu embættis lög- reglustjórans í Reykjavík. Gra- notier réðst á samfanga í Síð- umúlafangelsi sl. miðvikudags- morgun. Gæsluvarðhald Granotiers átti að renna út í dag, en emb- ætti lögreglustjóra fór fram á framlengingu þess. Eins og skýrt var frá i Morgunblaðinu í gær var ákveðið á þriðjudag að visa Granotier úr landi og var sú ákvörðun tekin að höfðu samráði við ríkissaksóknara, en ekki var ákveðið hvenær fram- fylgja ætti henni. Ákvörðunin byggðist á 12. grein laga um eftirlit með útlendingum sem heimilar m.a. að vísa manni úr landi sem áður hefur verið vísað frá einu öðru Norðurlandanna, en það á við um Granotier. Granotier hefur 15 daga frest til að kæra ákvörðun út- lendingaeftirlitsins, en geri hann það þarf dómsmálaráðu- neytið að úrskurða í málinu. Þjóðminjaráð Rannsókn fram haldið ÞJÓÐMINJARÁÐ lagði til á fundi sínum í gær að vísinda- legri rannsókn á meintum föls- uðum silfursjóði frá Miðhúsum við Egilsstaði verði haldið áfram. Ólafur Ásgeirsson, for- maður ráðsins, segir að tillögur um tilhögun slíkrar rannsóknar hafi verið sendar ráðuneytinu en hann vildi ekki tjá sig nánar um þær. Ólafur sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar væri búið að vinna lengi í þessu máli af hálfu Þjóðminjasafns og hann kvaðst vona að stofn- unin fengi næði til þess að halda því áfram. Hann kvað það stefnu þjóðminjaráðs að ljúka þessu máli með eðlilegum, vísindalegum hætti. Starfstímabili núverandi þjóðminjaráðs lauk frá og með fundi ráðsins í gær en það er í samræmi við ákvæði breyttra þjóðminjalaga. Nýtt ráð hefur ekki verið skipað. Veiðikort í notkun ALLIR veiðimenn sem hyggja á veiðar á villtum fuglum og landspendýrum verða frá og með deginum í dag skyldaðir til að vera með veiðikort. í reglugerð um veiðikort og sérstök veiðikort, hlunninda- kort, er kveðið svo á að til 31. mars 1995 skuli skotveiðileyfi gilda sem veiðikort. Þeir sem ekki eru með skotveiðileyfi og stunda veiðar án skotvopna, t.d. lundaveiðar með háfum, veiðar á fýls- eða skarfsungum, minkaveiðar með gildrum, þurfa að sækja um sérstaka undanþágu frá veiðistjóraemb- ættinu til þess að stunda veið- arnar. Undanþágan er gjaldfrí og er ekki bundin við sérstaka aldurshópa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.