Morgunblaðið - 01.07.1994, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
í tilefni
þjóðhátiðar
KANADÍSKIR friðargæsluliðar
í Rúanda heimsóttu Amahoro-
leikvanginn í höfuðborginni
Kigali þar sem hafast við um
2.000 manns sem hrakist hafa
frá heimkynnum sínum vegna
borgarastríðsins. Kanadamenn-
irnir gerðu sér dagamun í tilefni
þjóðhátíðardags Kanada sem er
í dag, 1. júlí.
♦ ♦-
Jemenstríðið
Ráðist á
olíusvæði
Routor
HERFLU GVÉLAR frá Suður-Jem-
en gerðu loftárásir á olíumannvirki
í Norður-Jemen í gær og er búist
við, að vinnsla liggi muni liggja
niðri um einhvern tíma. Vopna-
hléið, sem samið var um í gær
milii heija sunnan- og norðan-
manna, stóð aðeins í fimm klukku-
stundir.
Ráðist var á Marib-olíusvæðið í
N-Jemen en vinnsla þar hefur ver-
ið í höndum Bandaríkjamanna og
framleiðslan upp undir 200.000 föt
á dag. Hefur þessi olía verið helsta
tekjulind stjómarinnar í Sanaa.
Vopnahlé rofið
Sunnanmenn sökuðu norðan-
menn um að hafa brotið vopna-
hléið, sem starfsmenn Rauða
krossins höfðu milligöngu um, eft-
ir fimm klukkustundir með end-
umýjuðum árásum á hafnarborg-
ina Aden í suðurhlutanum. Eru
hermenn Norður-Jemens við borg-
armörkin.
Sjónvarpsþáttur um Karl prins vekur misjöfn viðbrögð
London. Reuter, The Daily Telegraph.
KARL prins sér ekki eftir því
að leyfa gerð þáttar um sig, sem
sýndur var í breska sjónvarpinu
á miðvikudagskvöld og olli miklu
írafári. Bútum úr viðtali við
prinsinn hafði verið lekið í fjöl-
miðla, m.a. um framhjáhald
prinsins og skoðanir hans á
tengslum ríkis og kirkju. Talið
er að 15 milljónir manna hafi
fylgst með þættinum, sem var
um tveir og hálfur tími að lengd,
og virðist almenningur sáttur við
frammistöðu prinsins, en af þeim
80.000 sem hringdu inn til ITV-
sjónvarpsstöðvarinnar í gær,
sögðust 85% telja að hann væri
fyllilega hæfur til að verða kon-
ungur. Dálkahöfundar blaðanna
töldu hins vegar flestir að Karl
hefði tekið óþarfa áhættu, m.a.
spurði Daily Mail á forsíðu hvort
prinsinn hefði enn einu sinni sýnt
dómgreindarskort.
Prinsinn reyndist aðlaðandi
Sá kafli, sem mesta athygli
hefur vakið, er þegar Karl er
spurður um hvort hann hafi ver-
ið Díönu konu sinni trúr. Segir
hann svo vera, allt þar til ljóst
varð að ekki yrði aftur snúið þar
sem hjónabandi væri í rúst.
Sagði prinsinn afar leitt að þetta
skyldi hafa gerst. Aðeins einu
sinni virðist prinsinum þykja
spurning óþægileg, en það er
þegar hann er spurður út í sam-
band sitt við Camillu Parker-
Bowles, en þau eru sögð hafa
átt í ástarsambandi. Fyrst virðist
sem rugl komi á Karl en síðan
segir hann að hún sé „góður vin-
ur“ sem hafi, ásamt öðrum, kom-
ið í veg fyrir að hann gengi af
göflunum í kjölfar skilnaðarins
við Díönu. Þá er m.a. rætt um
trúmál, fjölmiðla, konungsfjöl-
skylduna, uppeldi sona _________
Karls og Díönu, herinn,
varnarmál og mexí-
kanskan mat, sem
prinsinn er lítt hrifínn _______
af.
Mikil umflöllun var í bresku
blöðunum um þáttinn og liggja
dálkahöfundar þeirra ekki á
skoðunum sínum. í The Daily
Telegraph eru menn ekki á einu
máli, dálkahöfundurinn Max
Davidson telur að prinsinn hafí
veðjað á réttan hest. „Langtíma-
áhrif [þáttarins] koma síðar í ljós
en ég tel að þau muni gera það,
„Markaðstil-
u
raun sem
mistókst?
Reuter
Meirihluti almennings telur Karl prins hæfan
til að verða konungur en fjölmiðlar eru lítt hrifnir
Hefði verið
nær að iáta
þögnina tala
og ég tel einnig að flestum þeim
sem horfðu á þáttinn hafí þótt
nokkuð til þess koma, sem þeir
sáu,“ segir Davidson. Segir hann
þáttinn hafa leitt í ljós að prins-
________ inn sé aðlaðandi, til-
fínningaríkur og kraft-
mikill maður. Hann
hafi ekki reynt að kom-
ast hjá því að svara,
hann hafí verið hrein-
skilinn og opinskár, upp að vissu
marki. Á heildina litið, hafí eng-
in náin umfjöllun um konungs-
fjölskylduna verið jafn heillandi
og þessi þáttur.
Markaðstilraun sem mistókst
Annar dálkahöfundur Daily
Telegraph, Martyn Harris, er
ekki á sama máli, telur Karl
hafa gert mistök er hann sam-
þykkti gerð þáttarins. „Hann
ákvað að taka þátt í þessu, eins-
konar markaðstilraun til að bæta
ímynd sína, og sé tilraunin dæmd
á óvæginn hátt, eins -------------------
og vera ber, er niður- |(arl var opin-
mistök," segir skár upp að
staðan
Harris.
Hann fer hörðum
orðum um þau ummæli
Karls að hann hafi verið konu
sinni trúr, allt þar til ljóst hafí
verið að hjónabandið var í rúst
og að ekki yrði aftur snúið.
„Hvað er átt við með „ekki yrði
aftur snúið“?. Taldi Díana að
hjónabandið væri í rúst? Var
þeim báðum það „ljóst“? Þetta
eru tvíræð orð, sem allir þeir sem
hafa haldið framhjá (sjálfsagt
vissu marki
stærstur hluti mannkyns), munu
þegar kannast við.“
Harris segir að þrátt fyrir að
prinsinn hafí lagt áherslu á
sjálfsgagnrýni sína, hafí engrar
hógværðar orðið vart gagnvart
þeim forréttindum sem hann
nyti. „Þess í stað heyrðum við
fjölda umkvörtunarefna; hann
væri ekki tekinn alvarlega, hann
væri bundinn við ákveðna dag-
skrá, stjómmálamenn skildu
hann ekki, og fjölmiðlar væru á
höttunum eftir honum - vesal-
ingnum.“ Og lokaorð umfjöllun-
arinnar eru ekki síður óvægin:
„Hin stórfenglegu skartklæði
voru fáránleg, útskýringarnar
innihaldslausar, afsakanirnar
ekki bomar fram af heilum hug.
Framtíðarkonungi okkar, jafn
ágætum náunga og hann er,
hefði verið nær að láta þögnina
tala fyrir sig.“
Mikill skaði
Leiðarahöfundur sama blaðs
telur að sjónvarpsþátturinn hafí
þegar best lét, gert lítið gagn,
og þegar verst lét, valdið miklum
skaða. Það hafí án efa ekki ver-
ið ætlun þess sem þáttinn gerði,
Jonathan Dimpleby, enda sé
hann afar hliðhollur konungsfjöl-
skyldunni. Það hafí hreinlega
verið heimskulegt að telja að
útkoma þáttar sem þessa myndi
bæta ímynd Karls prins. „Spurt
var spuminga, sem hefði ekki
átt að svara. Þessi kafli [um
framhjáhald] opnar flóðgáttir af
nýjum kjaftasögum slúðurblað-
anna og virðist jafnvel réttlæta
þær. Prinsinum kann að hafa lið-
ið betur eftir að liann opnaði sig
fyrir sjónvarpsáhorfendum, en
aðrir munu telja að sjálfsdekur
hans hafí valdið konungsemb-
_________ ættinu og tengslum
hans við það enn meiri
skaða.
Á þeim fjörtíu ámm
sem drottningin hefur
verið við völd, hefur
henni tekist að koma í veg fyrir
að þegnar hennar viti nokkuð
um skoðanir hennar á neinu,
nema hestum og hundum. Það
hversu opinskár prinsinn hefur
verið um hin ýmsu málefni, hef-
ur aflað honum góðra vina og
aðdáends en hefur um leið ýtt
mjög undir harða andstöðu gegn
honum.“
Heimilistæki
í fullri breidd
ylTUf Jy
rslunum BYKO og Byggt og Búið
jóðast stór og smá heimilistæki
á hagstæðu verði.
í ve
bjóð
M
KÆLISKÁPUR
ME 140
Kælir: 131 lítrar
Frystir: 7 lítrar
Hæö: 85 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 56 cm
GUFUGLEYPIR
D 60 SE W
Afköst 302 M3/klst.
Skiptiborö 41000, 641919
mm
Hólf og gólf, afgreiðsla 641919
Verslun. Dalshrauni 15, Hafnarfird
9
Almenn afgreiösla 54411, 52870
UNDIRBORÐSOFN
HM 10 W
Blástursofn
5 stillingar
Grill og blástursgrill
~ KR. 39.700,-
Verslun. Hríngbraut 120, Reykjavík:
Almenn afgreiösla 629400
Almenn afgreiösla 689400, 689403
k'MTmdim.u
áí ARISTON
Falleg, sterk og vönduð
ítölsk heimilistæki
í KRINGLUNNI
Whitewater
Foster
framdi
sjálfsvíg
Washingfion. Reuter.
ÓHÁÐ rannsókn á Whitewater-mál-
inu hefur leitt í ljós að Vincent Fost-
er, fyrrverandi ráðgjafí Bills Clint-
ons, framdi sjálfsmorð, og að dauði
hans tengdist ekki málinu. Engar
ákærur verða gefnar út á hendur
opinberum embættismönnum í kjöl-
far rannsóknarinnar.
í fyrstu skýrslunni um meintan
þátt stjómvalda í deilumálunum sem
risu vegna fjárfestinga Clintonhjón-
anna í Arkansasríki, segir Robert
Fiske, óháður ráðgjafí um rannsókn
málsins, að Foster hafí verið haldinn
þunglyndi áður en hann lést, fyrir
tæpu ári. Ástæðan fyrir þunglyndi
hans verði að líkindum aldrei kunn.
Létu rannsókn óáreitta
Þá segir Fiske að ekki liggi fyrir
fullnægjandi sannanir fyrir því að
nokkur í Hvíta húsinu eða fjármála-
ráðuneytinu hafí reynt að hafa áhrif
á opinbera rannsókn Whitewater-
málsins.