Morgunblaðið - 01.07.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 1S
EIN ljósmyndanna á sýningunni.
Nafnlaust lands-
lag í Perlunni
BRAGI Þór Jósefsson
ljósmyndari opnar í
dag, föstudag, sýn-
ingu á landslagsljós-
myndum á íjórðu hæð
Perlunnar. Hann segir
myndirnar án titils því
nöfn staðanna skipti
ekki máli, myndirnar
lifi sínu lífi í litum og
formi.
Bragi tók myndirn-
ar aðallega í stuttum
ferðum út fyrir höfuð-
borgina á síðustu fjór-
um árum. „Þetta er
ekki hefðbundið ís-
lenskt landslag á ljós-
mynd,“ segir hann,
„mér finnst ekki endilega þurfa að 1990 og hefur síðan tekið þátt í
fara á jeppa upp á hálendi til að fjórum samsýningum.
Bragi Þór
Jósefsson.
taka myndir. Lands-
lagið er ekki síður
skammt undan og
myndirnar vitna um
mína sýn á það.“
Bragi Þór er fæddur
í Reykjavík 1961.
Hann lærði ljósmynd-
un við Rochester-
tækniháskólann í
Bandaríkjunum og út-
skrifaðist þaðan 1986.
Nú rekur hann ljós-
myndastúdíó og starf-
ar einkum við heim-
ilda-, auglýsinga- og
tímaritaljósmyndun.
Hann hélt einkasýn-
ingu á Kjarvalsstöðum
LISTIR_______________
Barokktónlist í
Listasafni Sigurjóns
DAVID Knowles, Nora Kornblueh, Matej Sarc og Svava Bern-
harðsdóttir leika á tónleikum í Listasafnin Sigurjóns Ólafssonar.
Á NÆSTU þriðjudagstónleikum í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar
5. júlí kl. 20.30 verður flutt bar-
okktónlist. Á efnisskrá eru verk
eftir Giovanni Paolo Simonetti,
Francois Devienne, Johann Gottli-
eb Graun, Georg Ph. Telemann
og Johann Sebastian Bach. Flytj-
endur eru Matej Sarc óbóleikari,
Svava Bernharðsdóttir víóluleik-
ari, Nora Kornblueh sellóleikari
og David Knowles, sem leikur á
semball.
Matej Sarc nam óbóleik í heima-
landi sínu, Slóveníu, og hjá Heinz
Holliger tið Tónlistarháskólann í
Freiburg. Hann hefur leikið með
ýmsum hljómsveitum, hefur komið
fram sem einleikari og leikið
kammertónlist víðs vegar um Evr-
ópu, Asíu og Ameríku.
Svava Bernharðsdóttir nam
fiðlu- og víóluleik á íslandi, í Eþí-
ópíu, Hollandi og Bandaríkjunum
uns hún lauk doktorsprófi í víólu-
leik (DMA) frá Juilliard-tónlistar-
skólanum í New York 1989. Svava
vann 1. verðlaun í víólukeppni
Juillard-skólans 1986. Hún hefur
starfað með sinfóníuhljómsveitum
í Basel, hljómsveit í Staatstheater
Aachen og Schweizersches
Festspiel Orchester í Luzern. Síð-
astliðinn vetur hefur Svava starfað
með Sinfóníuhljómsveit Islands.
David Knowles Játvarðsson er
fæddur í Englandi. Hann nam
píanóleik og útskrifaðist frá Royal
Northern College of Music í Man-
chester. Frá því hann fluttist til
íslands árið 1982 hefur hann
kennt og unnið sem undirleikari,
meðal annars í Tónlistarskóla
Garðabæjar og Söngskólanum í
Reykjavík. Hann hefur mjög oft
komið fram með þekktum tónlist-
armönnum hérlendis og erlendis.
Nora Kornblueh er fædd í New
York-ríki og hóf þar sellónám hjá
James Doty og stundaði fram-
haldsnám hjá George Neikrug í
háskólanum í Boston. Hún hefur
tekið þátt í fjöida alþjóðlegra tón-
listarhátíða, þar á meðal
Tanglewood-hátíðinni og „Festival
of Two Worlds“ í Spojeto á Ítalíu.
Síðan Nora fluttist til íslands 1980
hefur hún tekið virkan þátt í flutn-
ingi kammertónlistar. Hún leikur
með Sinfóníuhljómsveit íslands og
er félagi í Kaldalóns-tríóinu.
FRAMTIPARBLOM
HAGKAUP