Morgunblaðið - 01.07.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1994 21
AÐSENDAR GREIIMAR
Mikilvægl á miðju ári
Tíðindi af vettvangi tryggingamála
Ásta R.
Jóhannesdóttir
ÞAÐ ERU tveir
árstímar öðrum frem-
ur sem koma við sögu
þegar um breytingar
í almannatrygging-
unum er að ræða,
áramót og mitt árið
eða 1. júlí.
Mánaðamótin
júní/júlí eru því tími
sem getur skipt líf-
eyrisþega nokkru
máli, einnig sjúklinga
með mikinn læknis-
og lyfjakostnað, eða
mikinn tannlækna-
kostnað, ekkjur og
atvinnulausa. Hér
koma til tekjur, út-
gjöld og réttindi til endurgreiðslu.
Hugum fyrst að endurgreiðsl-
um vegna mikils læknis- og lyfja-
kostnaðar.
Endurgreiðslur vegna
efnaleysis sjúklings
Sparnaðarráðstafanir ríkisins í
heilbrigðismálum hafa aukið hlut
almennings í læknis- og lyfja-
kostnaði. Til að koma til móts við
þá sem verst eru settir fjárhags-
lega og bera mikinn kostnað
ákvað heilbrigðisráðherra að end-
urgreiða hluta kostnaðarins eftir
ákveðnum reglum.
Hinn 1. júlí lýkur fyrra endur-
greiðslutímabili vegna mikils
læknis- og lyú'akostnaðar. Endur-
greiðslan er tekjutengd og verður
að sækja um hana fyrir 1. septem-
ber með kvittunum og/eða út-
skrift yfir lyfjakaup úr apóteki,
fyrir tímabilið frá áramótum til
1. júlí. Sjúklingur með undir millj-
ón krónur í tekjur á ári fær 90%
af kostnaði umfram 18.000 krón-
ur endurgreidd, séu tekjurnar
milli ein og tvær milljónir er
endurgreiðslan 75% af kostnaði
umfram 30.000 krónur og 60%
umfram 42 þúsund ef árstekjur
eru milli tvær og þrjár milljónir.
Einstaklingar með sama fjöl-
skyldunúmer, skv. skilgreiningu
Hagstofu Islands, teljast einn ein-
staklingur. Þannig að t.d. foreldr-
ar og börn þeirra undir 16 ára
með mikinn kostnað eru talin einn
einstaklingur.
Síðara endurgreiðslutímabilið
hefst 1. júlí og er til áramóta.
Allir sem eru með mikinn kostnað
vegna læknisþjónustu og lyfja
ættu að halda til haga öllum kvitt-
unum.
Tannlæknakostnaður
og lágar tekjur
Nýtt ákvæði í tannlæknaregl-
um heimilar auka greiðsluþátt-
töku Tryggingastofnunar þegar
um er að ræða alvarlegar afleið-
ingar meðfæddra galla, sjúkdóma
og slysa, ef um lágar tekjur við-
komandi eða framfæranda er að
ræða.
Forsenda aukinnar greiðslu-
þátttöku er úrskurður frá trygg-
ingatannlækni um greiðsluþátt-
töku Tryggingastofnunar á tann-
læknakostnaðinum. Tekjulágir
einstaklingar geta síðan sótt um
hækkun á greiðsluhlutfalli. Ef
árstekjur eru undir 839.187 krón-
um er heimilt að hækka endur-
greiðslu í 90%, séu tekjurnar á
bilinu 839.188-1.430.980 krónur
er heimilt að hækka endur-
greiðslu hlutfallslega frá 50% í
90%.
Einnig er mönnum bent á að
þeir geta leitað til tryggingatann-
læknis ef þeir vilja fá skýringar
á almennum tannlæknareikning-
um sínum.
Ekkjulífeyrir tekjutengdur
Um áramótin voru samþykkt ný
lög um almannatryggingar og fé-
lagslega aðstoð. Þá
var almannatrygging-
unum skipt upp í tvenn
lög. Nokkrir bóta-
flokkar lífeyristrygg-
inga voru þá teknir úr
almannatryggingalög-
unum og felldir undir
lög um félagslega að-
stoð. Þeir bótaflokkar
eru nú heimildarbæt-
ur.
Ekkjulífeyrir er einn
þeirra bótaflokka.
Ekkjulífeyrir er
greiddur konum yngri
en 67 ára sem misst
hafa mann sinn fimm-
tugar eða eldri. Hann
er einnig greiddur konu sem miss-
ir mann sinn fyrir fimmtugt, þegar
hún verður fimmtug ef hún hefur
20 ára sambúð eða hjónaband að
baki með honum. Einstæðar mæð-
ur, ekkjur og fráskildar konur með
barn á framfæri eftir fimmtugt
geta einnig sótt um ekkjulífeyri frá
þeim tíma er þær hætta að fá
meðlagsgreiðslur eða barnalífeyri.
Nú hefur heilbrigðisráðherra
ákveðið að tekjutengja þessar
greiðslur frá og með 1. júlí. Ekkju-
lífeyrir skerðist nú við tekjur hærri
en 839.187 krónur á ári eða 69.932
krónur á mánuði, aðrar en al-
mannatryggingabætur.
Um 40% þeirra kvenna sem
fengu ekkjulífeyri í júní missa hann
nú um mánaðamótin og greiðslur
til margra skerðast.
Skerðing á elli-
og örorkulífeyri
Lækkun á tekjumörkum vegna
skerðingar elli- og örorkulífeyris
tekur gildi 1. júlí.
Ellilífeyrir mun nú skerðast ef
skattskyldar tekjur aðrar en
greiðslur úr lífeyrissjóði eru hærri
en 68.519 krónur á mánuði eða
822.227 krónur á ári. Tekjumark-
ið lækkar úr 72.921 krónu á
mánuði eða 868.729 krónum á ári.
Tekjumörk örorkulífeyris
lækka nú úr 73.921 krónu í
69.932 krónur á mánuði eða úr
887.058 krónum í 839.187 krónur
á ári. Greiðsla til um 2.700 bóta-
þega mun nú skerðat um 1.000
krónur mánaðarlega. Ætla má að
grunnlífeyrir um 150 lífeyrisþega
til viðbótar sem nú hafa óskertan
lífeyri muni skerðast við þessa
breytingu og þeir missa tekju-
trygginguna og tengdar bætur
hafi þeir haft þær.
Tekjumörk skerðingar örorku-
styrks lækka einnig. Örorku-
styrkur byijar nú að skerðast ef
árstekjur styrkþega aðrar en al-
mannatryggingabætur og
greiðslur úr lífeyrissjóði fara yfir
839.187 krónur og hann fellur
niður við 1.430.980 króna tekjur
eða hærri. Tekjur maka öroku-
styrkþega skerða ekki styrkinn.
Eingreiðslur til lífeyrisþega
í júlí, ágúst og desember
Lífeyrisþegar sem njóta tekju-
tryggingar, heimilisuppbótar og
sérstakrar heimilisuppbótar fá
eingreiðslu 1. júlí í samræmi við
fn KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688055
kjör á almennum vinnumarkaði.
Ofan á tekjutryggingu og
heimilisuppbætur greiðist alls
44,8% tekjutryggingarauki. Hann
samanstendur af 28% uppbót
vegna láglaunabóta og 16,8%
uppbót vegna bættra viðskiptakj-
ara. Fullan tekjutryggingarauka,
alls 15.994 krónur fyrir ellilífeyr-
isþega og 16.280 fyrir öryrkja,
fá þeir sem eru með óskerta tekju-
tryggingu, heimilisuppbót og sér-
staka heimilisuppbót.
Tekjutryggingaraukinn skerð-
ist í sama hlutfalli og þessi þrír
bótaflokkar hjá lífeyrisþega, hafi
hann skertan lífeyri. Á greiðslu-
seðli munu uppbæturnar ekki
koma fram sérstaklega, heldur
verða þær lagðar við ofangreinda
bótaflokka. Þeir sem ekki njóta
tekjutryggingar fá ekki þessar
eingreiðslur.
Tekjutryggingarauki greiðist á
sama hátt í ágúst 20% vegna or-
lofsuppbótar og í desember 30%
vegna desemberuppbótar og 28%
vegna láglaunabóta. Vegna þessa
Þegar breytingar eru
örar á reglum Trygg-
ingastofnunar, segir
— ~~~
Asta R. Jóhannesdótt-
ir, er mikilvægt að þeir
sem eiga hagsmuna að
gæta fylgist vel með
þeim.
geta bætur frá Tryggingastofnun
verið misháar milli mánaða.
Atvinnulausir greiða
lægra gjald hjá lækni
Þeir sem hafa verið atvinnu-
lausir í sex mánuði eiga rétt á
heilbrigðisþjónustu á sömu kjör-
um og lífeyrisþegar frá 1. júlí.
Framvísa þarf vottorði frá At-
vinnuleysistryggingasjóði um sex
mánaða atvinnuleysistíma til að
njóta sömu kjara og lífeyrisþegar.
Þeir greiða yfirleitt þriðjung af
almennu gjaldi fyrir læknisþjón-
ustu og heilsugæslu. Hámarks-
greiðsla fyrir þessa þjónstu á al-
manaksárinu er áfram 12.000
krónur fyrir þá atvinnulausu, en
3.000 krónur fyrir lífeyrisþega,
áður en þeir eiga rétt á afsláttar-
korti.
Sú breyting varð um áramót
að atvinnuleysistryggingarnar
fluttust frá Tryggingastofnun.
Atvinnuleysistryggingasjóður er
nú til húsa á Suðurlandsbraut 24.
Til að fá vottorð um atvinnuleysis-
tímabil skal því snúa sér þangað.
Þekktu rétt þinn
Þegar breytingar eru örar á
reglum hjá Tryggingastofnun er
mikilvægt að þeir sem eiga hags-
muna að gæta á þeim bæ, fylgist
vel með þeim, ella gætu þeir misst
af rétti sem þeir eiga. Bæklingar
og annað kynningarefni frá
Tryggingastofnun auðveldar það.
Félagsráðgjafar eru nú flestir
komnir með handbók Trygginga-
stofnunar, en í henni eru allar
helstu upplýsingar um fram-
kvæmd almannatrygginganna. Í
hana bætast síðan allar nýjustu
upplýsingar þegar breytingar
verða. Handbókin er nú mun víðar
þar sem upplýsa þarf um rétt í
almannatryggingunum. Það ætti
því að vera auðveldara fyrir allan
almenning að kynna sér og þekkja
rétt sinn.
Höfundur er deildarstjóri
félagsmáia- og upplýsingadeildar
Tryggingastofnunar ríkisins.
Vertu viss um
að geta landað
þeim stóra
í meir en hálfa öld hefur versluninVeiðimaðurinn þjónað sportveiðimönnum dyggilega
með úrvali af gæðavörum og góðum ráðum. Hvort sem þú ert að byija í sportveiðinni eða ert einn
af fengsælustu veiðimönnum landsins, þá átt þú erindi til okkar.
Glæsilegt úrval fatnaðar til
að sækja Island heim.
Sportveiði-vörur á verði
við allra hæfi.
Viðgerðarþjónusta.
OPIÐ í SUMAR:
Mánudaga til fimnrtudaga kl. 9 - 18
Föstudaga kl. 9 - 19
Laugardaga kl. 9 - 17
Sunnudaga kl. 11 - 17
Láttu fagmanninn leiðbeina þér um valið!
HAFNARSTRÆTI 5 * REYKJAVÍK ■ SÍMAR 91-16760 & 91-14800