Morgunblaðið - 01.07.1994, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
RUTH GUÐMUNDSSON
-I- Ruth Dóra Guð-
• mundsdóttir
Bónavide fæddist í
borginni Pillau í
Austur-Þýskalandi
2. febrúar 1920.
Hún lést í Borg-
arspítalanum eftir
stutta en erfiða
sjúkralegu 21. júní
siðastliðinn. For-
eldrar Ruthar sem
bæði eru látin voru
.Júlíus Bónavide og
kona hans, Helen
Bónavide. Júlíus var
um tíma umsvifa-
mikill kolakaupmaður í Pillau.
Systkini Ruthar voru fimm,
auk þess sem hún átti eina
hálfsystur sem var eldri en
alsystkinin. í dag eru eftirlif-
andi systir á Englandi og bróð-
ir í Svíþjóð, en dánir eru tveir
bræður og ein systir. Ruth var
lærð hjúkrunarkona og vann
við líknarstörf um árabil. A
stríðsárunum vann Ruth sem
herhjúkrunarkona og lenti í
ýmsum hrakningum í stríðinu
og þá m.a. þegar hún var við
hjúkrunarstörf um borð í einu
af herskipum þýska flotans.
Skipið sem hún starfaði á var
meðal annars skotið niður tví-
vegis. Til Islands kom Ruth
1949 og vann um tíma sem
starfsstúlka hjá Arinbirni Osk-
arssyni og frú á Hagamelnum
í Reykjavík. Ruth giftist. Guð-
bjarti Guðmundssyni hús-
gagnasmíðameistara og bif-
reiðastjóra 5. september 1951.
Guðbjartur er yngsti sonur
Guðmundar Guðmundssonar
ekils og verslunarmanns og
konu hans, Dagbjartar Gríms-
dóttur. Ruth var mikill dýra-
vinur og ræktaði m.a. sér til
ánægju um langt skeið páfa-
gauka. Ruth og Guðbjartur
hafa allan sinn búskap búið á
Njálsgötu 15a í Reykjavík. Út-
för Ruthar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag.
VIÐ VITUM það sem misst höfum
ástvini okkar, að dauðinn er erfið-
ur þeim sem eftir lifa og sárt sakna
lífsförunautar, sem kvatt hefur
þessa jarðvist endanlega. Auðvitað
má segja sem svo að við fæðumst
öll með feigðaról um hálsinn.
-jf Dauðinn er því einfaldlega sá veru-
leiki sem við vitum fyrir víst að
hittir okkur öll fyrir fyrr eða síð-
ar. Við vitum að hann kemur og
tekur okkur að lokum í arm sinn
og ber okkur á vit nýrra heim-
kynna í ríki Drottins. Samt er
reynsla okkar flestra sú, að þrátt
fyrir þessa vissu og vitneskju um
dauðann, þá eru fá okkar fyllilega
undirbúin undir þá staðreynd að
missa að lokum samband við elsku-
legan ástvin og maka.
Þegar ég frétti lát Ruthar, eigin-
konu afabróður míns Guðbjarts,
var eins og þyrmdi yfir mig eitt
augnablik. Gat þetta verið? Það
_ ^var svo einkennilega stutt síðan
ég og fjölskylda mín áttum svo
góðar stundir saman á heimili
þeirra hjóna og spjölluðum um lífið
og tilveruna á léttum nótum yfir
heitum kaffibolla og meðlæti. Vit-
anlega gerði ég mér grein fyrir
því þá þegar að Ruth var mikið
veik, en samt var erfitt fyrir þá
sem umgengust hana, að átta sig
á því hvað raunverulega var mikið
af henni dregið þessar seinustu
vikur hennar heima. Ruth var ekki
sú manngerð, sem gerði mikið úr
veikindum sínum. Henni tókst þess
vegna að halda þeim þó erfið og
vandmeðfarin væru alltof lengi
leyndum fyrir þeim sem komu í
heimsókn til þeirra hjónanna og
umgengust þau þó nokkuð mikið
á liðnum mánuðum, eins og ég og
fjölskyldan mín óneitanlega gerð-
um og nutum þess vissulega.
í Eftir að Ruth fór á spítala
skömmu fyrir lát sitt
var ég svo heppin að
fá tækifæri til að
heimsækja hana
þangað á hverjum
degi, oftast í fylgd
með _ Guðbjarti
frænda. Eg veit því
hvernig hún bar sig
vel allt til loka, þó
sárþjáð væri. Ruth
lagði nefnilega mikið
upp úr því að halda
reisn sinni og andlegu
atgervi jákvæðu við
allar_ aðstæður. Þetta
sjónarmið hennar
kom skýrt fram í veikindum henn-
ar, sem voru verulega viðkvæm
og vandmeðfarin, sökum þess að
þau reyndu verulega á þolrif henn-
ar, eðlislega skapfestu og hug-
rekki. Hún var stolt kona og vildi
ekki íþyngja sínum nánustu með
umkvörtunum og bar sig því betur
en veikindi hennar gáfu tilefni til.
Hún fór nefnilega í gegnum veru-
lega erfitt og þrautafullt sjúkdóms-
ferli, þó hún sæi ekki ástæðu til
að kvarta eða kveina. Það var bara
ekki hennar stíll.
Ruth var á margan hátt mjög
sérstök kona. Hún hafði reynt tölu-
vert í gegnum lífið og meðal ann-
ars misst marga af ástvinum sínum
um aldur fram á stríðsárunum.
Hún missti t.d. tvo bræður sína
með tiltölulega skömmu millibili í
stríðinu og var það mikill harmur
fyrir hana, systkini hennar og aldr-
aða foreldra. Hún ólst upp í faðmi
ástríkrar fjölskyldu í stórum systk-
inahópi. Fjölskylda hennar var
samhent og kunnugir segja að
Ruth hafi notið mikils ástríkis og
sérstakrar umhyggju foreldra
sinna í uppvexti sínum. Hún minnt-
ist foreldra sinna ávallt með alveg
sérstökum hætti þess, sem hefur
í gegnum uppeldi sitt eignast eitt-
hvað dýrmætt innra með sér sem
hvorki ryð né mölur fá grandað.
Ruth vann að líknarmálum í
seinni heimsstyijöldinni og eðlilega
hafði sú sérstaka lífsreynsla mikil
áhrif á lífsviðhorf hennar. Hún
vissi af reynslu, að þau voru á
stundum afar stutt skilin á milli
lífs og dauða. Það getur sennilega
enginn, sem ekki hefur reynt það
sjálfur, ímyndað sér hvaða áhrif
nákvæmlega stríðshörmungar
hafa á þá, sem eru tilneyddir að-
stæðnanna vegna, til að lifa við
þann ótta og það óryggi sem stríði
fylgir alltaf. Auk þess að þurfa að
horfast í augu við ótímabæran
dauða ástvina sinna, eins og fjöl-
skylda Ruthar mátti gera oftar en
einu sinni, sem vissulega var átak-
anlegt.
Sú reynsla sem Ruth upplifði á
stríðsárunum og var sorgum
blandin átti eftir að setja mikið
mark á Iífsgöngu hennar. Hún vissi
sem ung kona, að það er ekkert
sjálfgefið í þessum hverfula heimi
og hlutur okkar mannanna mis-
þægilegur eftir atvjkum. Hún vissi, ■
að eftir þær eldraunir og hörmung-
ar sem stríðinu fylgdu fyrir hana
persónulega og fjölskyldu hennar
mátti hún kallast heppin að vera
þó ennþá á meðal lifenda. I raun
var merkilegt að hún skyldi kom-
ast andlega og líkamlega heil út
úr þeim hildarleik hörmunga og
hrakninga, sem hinn venjulegi
maður komst í kynni við í stríðs-
hijáðu landi, þar sem ríkti ógnar-
öld valdníðslu og skelfinga. A
stríðstímum er erfitt fyrir alþýðu
manna að gæta réttar síns. Henni
er bókstaflega haldið af örfáum
ráðamönnum í heljargreipum, ótta,
óréttlætis og ógnar. Þetta er flókið
ástand og ófyrirséð, sem erfitt er
að kljást við og vinna úr, fyrir frið-
samt fólk og heiðarlegt, sem má
sín lítils.
Eftir viðsjárverða og ógleyman-
lega reynslu stríðsáranna ákvað
Ruth að leggja land undir fót og
skoða heiminn í ögn öðru ljósi. Hún
ákvað að fara til íslands 1949 og
vinna þar um tíma. Ekki endilega
við hjúkrunarstörf, sem hún var
þó menntuð til, heldur sem heimil-
isaðstoð. Hún tók tiltölulega fljótt
ástfóstri við landið og ákvað að
ílendast hér. Hugsanlega má segja
sem svo, að það hafi fremur verið
tilviljunum háð að Island varð at-
hvarf Ruthar á þessum tíma en
ekki eitthvert annað land.
Ekki hafði Ruth verið ýkja lengi
á landinu, þegar leiðir hennar og
Guðbjarts lágu óvænt saman. Ast-
ir tókust með þeim og þau ákváðu
að eyða ævinni saman. Þau voru
frá upphafi í hamingjusömu hjóna-
bandi. Óhætt er að halda því fram
að í Guðbjarti hafi Ruth ekki bara
fundið lífsförunaut sinn, heldur og
ekkert síður einlægan og elskuleg-
an vin og svo aðdáanda. Hjónaband
þeirra var óvenjulega elskuríkt og
lífssýn þeirra fór saman. Það er
hægt að fullyrða að á heimili þeirra
hafi alla. tíð ríkt óvenjulega ják-
vætt og kærleiksríkt andrúmsloft.
Á milli þeirra var óijúfanlegur
strengur og það ríkti gagnkvæmur
skilningur og virðing á milli þeirra.
Þetta voru mjög áberandi einkenni
í fasi og framkomu þeirra beggja
hvors við annað.
Eftir að Guðbjartur og Ruth
giftu sig breyttist margt í lífi þeirra
beggja. Þau voru alla tíð 4kaflega
samhent og áttu þau mörg áhuga-
mál saman. Um tíma stunduðu þau
páfagaukarækt heima og ótal
páfagaukar áttu samastað hjá
Ruth og Guðbjarti á tímabilum.
Bæði elskuðu þau fugla og létu sér
annt um að þeim Iiði vel, enda var'
unun að sjá, hversu vel og nær-
færnislega þau hlúðu að þessum
líflegu málleysingjum. Það mátti
oft heyra söng fuglanna út á götu,
hafa þeir sagt mér sem leið áttu
á árum áður um Njálsgötuna og
fram hjá húsakynnum þessara
miklu dýravina sem Guðbjartur og
Ruth reyndust vera, ekki síst eftir
að árin færðust yfir þau bæði.
Heimili þeirra var virkilega Iifandi
og hljómmikið, þegar páfagauk-
arnir allir sem einn létu í sér heyra
af mismiklum tilefnum.
Ruth var ákaflega trygg kona
og ræktaði sitt fólk vel. Hún stóð
stöðugt í bréfaskriftum við bæði
eftirlifandi ættingja sína og vini
út um allan heim. Henni var mik-
ils virði að hlú að rótum fortíðar
sinnar í gegnum gott samband við
þá sem henni voru kærir, þó heilu
höfin væru á milli hennar og þeirra.
Hún hélt sambandi við sitt fólk
fram á síðasta dag. í dag eru for-
eldrar hennar látnir.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
Ruth fór á vit vina sinna erlendis
á árum áður og voru þá eðlilega
miklir fagnaðarfundir. Þessa
reynslu var svo hægt að rifja upp
við vini sína hérna heima eftir
mislöng ferðalög til fundar við þá
sem hún unni, en bjuggu erlendis.
Ruth kunni svo sannarlega þá list
að rækta þau sammannlegu tengsl
sem hún áleit mikilvæg, þó langt
væri á milli bæði ættingja hennar
og sumra vina úr fortíð hennar á
stundum. Foreldrar Ruthar komu
tvívegis til íslands og nutu þau
þeirra ferða afar vel, enda væsti
ekki um þau á heimili dóttur sinnar
og tengdasonar.
Ruth var ekki bara mikill dýra-
vinur. Hún elskaði börn og átti
mjög auðvelt með að hæna þau
að sér. Hún var ákaflega gestrisin
kona og mikill höfðingi heim að
sækja.
Synir mínir fóru svo sannarlega
ekki varhluta af gæsku Ruthar og
jákvæðu viðmóti. Hún tók þeim
alltaf tveim höndum þann tíma sem
þeir fengu tækifæri til að umgang-
ast þessa hjartahlýju og barngóðu
konu, sem talaði til þeirra eins og
amma þeirra væri. Það er öruggt
mál að þeir eiga báðir eftir að
sakna Ruthar mikið, en eiga þó í
hjarta sínu og huga mynd af ein-
staklega elskulegri konu, sem tal-
aði til þeirra eins og jafningi þeirra
og vildi þeim allt það besta. Það
er dýrmætt fyrir litla drengi að
hafa kynnst manneskju eins og
Ruth, sem gaf af sjálfri sér í ein-
lægni og af sannri manngæsku og
fannst mikið til þeirra koma. Son-
um mínum var ekki í kot vísað hjá
Guðbjarti og Ruth, enda hafa þeir
fundið í þeim afa og ömmu sem
er dýrmætt og þakkarvert.
Nú er komið að leiðarlokum og
við vinir og ástvinir Ruthar kveðj-
um hana í hinsta sinn í dag. Auð-
vitað er margt sem kemur í hug-
ann. Fyrir mér verður minningin
um þessa jákvæðu og lífsglöðu
fullorðnu konu ávallt kær. Ruth
var þannig, að þeim sem kynntust
henni fannst fljótlega eins og þeir
hefðu alltaf þekkt hana. Hún var
óeigingjörn og velviljuð og naut
lífsins á jákvæðan hátt. Fátt var
henni óviðkomandi og hún hafði
jafnvel gaman að fótbolta sem og
öðrum keppnisíþróttum. Það var
gaman að sjá hana sitja fyrir fram-
an sjónvarpið og klappa löndum
sínum lof í lófa, þegar hún varð
þess áskynja, að þeir væru mögu-
lega að sigra erfiða andstæðinga
sína í fótbolta. Hún lifði sig algjör-
lega inn í atburðarás • leiksins og
hafði gaman af þannig að nær-
staddir hrifust ósjálfrátt með
henni. Segja má með sanni að lífið
og tilveran í öllum sínum marg-
breytileika hafi á margan hátt hrif-
ið Ruth og hafi verið henni viðkom-
andi á einhvern hátt jafnframt.
Við sem kveðjum þessa ágætu
öðlingskonu í dag eigum eftir að
sakna hennar mikið sökum mann-
kosta hennar og elskulegrar nær-
veru. Hún var ein af þessum hóg-
væru konum, sem auðvelt var að
treysta og virða, sökum þess að
hún var sönn og velviljuð og mikil
af sjálfri sér, þó hún gumaði ekki
af neinu og hafi verið bæði auð-
mjúk og lítillát þegar hana sjálfa
bar á góma. Ég og ijölskylda mín
eigum margar ógleymanlegar
minningar um Ruth. Minningar
sem enginn getur tekið frá okkur
og sú vitneskja skiptir miklu máli
á kveðjustundu eins og þessari.
Ruth er nú farin á vit feðra sinna
og ég veit að hennar býður góð
heimkoma í ríki Drottins. Ég þakka
henni af öllu hjarta þær ánægju-
stundir sem ég og synir mínir átt-
um með henni og Guðbjarti á hlý-
legu heimili þeirra á Njálsgötunni,
okkur öllum til uppörvunar og lær-
dóms.
Ég vil að lokum senda eftirlif-
andi ættingjum Ruthar og eigin-
manni hennar, Guðbjarti afabróður
mínum, innilegar samúðarkveðjur
frá mér og fjölskyldu minni. Ég
veit að góður Guð leggur líknararm
sinn utan um Guðbjart og styður
hann áfram til þess lífs sem bíður
hans eftir þessa sáru en óumflýjan-
legu breytingu. Guð styrki hann
og styðji við fráfall elskulegrar
eiginkonu hans og besta vinar.
Þú ert laus frá lífsins þrautum
og liðin jarðarganga.
En áfram lifir á andans brautum
ævidaga langa.
Drottinn verndar dag og nótt
á dularvegi nýjum.
Aftur færðu aukinn þrótt
í eilífð ofar skýjum.
Þú alltaf verður einstök rós
elsku vinan góða.
I krafti trúar kveiki ljós
og kveðju sendi hljóða.
(Jóna Rúna Kvaran.)
Með þessum ljóðlínum kveð ég
Ruth vinkonu mína í vinsemd og
með virðingu. Blessuð sé minning
hennar.
Rósa Rúnudóttir.
GARÐAR JENSSON
+ Garðar Jensson
var fæddur í
Reykjavík 21. sept-
ember 1935. Hann
lést á Landakots-
spítala 27. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Jens Og-
mundsson frá Hálsi
á Skógarströnd og
Sigríður Magnús-
dóttir, ættuð frá
Fáskrúðsfirði.
Bræður hans voru
Magnús og Reynir
sem báðir eru látn-
ir. Kona Garðars er
Anna Klara Guðlaugsdóttir frá
Heiði í Holtum á Rangárvöll-
um. Börn þeirra eru Sigurður
Hallur, Margrét og Hilmar.
Garðar lauk barnaskólanámi
frá Austurbæjarskólanum og
námi í veggfóðrun og dúklagn-
ingum frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Lengst af starfaði
hann við iðngrein sína í
Reykjavík. Einnig var hann í
mörg ár starfsmaður Aðal-
verktaka í Keflavík. Síðast
starfaði hann hjá íslands-
banka. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju í dag.
MIG LANGAR til að minnast vinar
míns, Garðars, í fáum orðum. Nú
er hans síðasta stríði lokið, en það
háði hann af þeirri karlmennsku
og æðruleysi sem honum var lagið.
Því stríð hefur hann áður háð og
haft betur jafnan, enda var hann
baráttumaður og lengi vonaði ég
að hann hefði sigur líka í þetta
skipti, þótti við ramman reip væri
að draga.
Garðar var vel af guði gerður,
bæði líkamlega og andlega. Ung-
um dapraðist honum sjón, en lítt
lét hann það baga sig, las manna
mest og var vel heima bæði í bók-
menntum og dægurmálum. Hann
lærði veggfóðrun og
dúklagningar, sem
vissulega krafðist ná-
kvæmni og handlagni
og stundaði iðn sína
með sóma í mörg ár.
Lengi höfðum við það
fyrir gaman okkar að
skrifast á, aðallega
meðan ég var erlend-
is, en einnig kom það
fyrir að nótur flygju
milli húsa hér í
Reykjavík og höfðum
við báðir gagn og
gaman af.
Garðar hafði mjög
gaman af sögum og kveðskap, á
ég að sjálfsögðu við allt annað en
það sem nú tíðkast, enda voru
skoðanir okkar mótaðar af aldamó-
takynslóðinni, sem ekki menntaði
börn sín lakar en skólakerfi nútím-
ans.
Garðar var glaðsinna og félags-
lyndur maður sem gott var að
umgangast, þótt samgangur yrði
minni með árunum, eftir að fjöl-
skyldur okkar stækkuðu og í fleiri
horn væri að líta í erli dagsins.
Þó héldum við góðu sambandi fram
undir það síðasta og á liðnu sumri
reyndum við að fara í enn eina
veiðiferðina, hann sjúkur og máttf-
arinn eftir erfiða læknismeðferð.
Vorum við svo óheppnir að hreppa
illviðri og hrakning. Ekki lét hann
sig samt muna um að gera það sem
hann langaði, að aka suður há-
lendisheiði, þótt mig brysti kjark
fullfrískan.
En svona var Garðar, hélt sínu
striki ótrauður á hveiju sem gekk.
Ég kveð Garðar vin minn með
söknuði og þakka honum sam-
fylgdina. Konu hans, Önnu Guð-
laugsdóttur, börnum og barna-
börnum sendi ég samúðarkveðjur
frá mér, konu minni og börnum.
Snæbjörn.