Morgunblaðið - 01.07.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 29
MINNINGAR
standendum sendum við innileg-
ustu samúðarkveðjur og megið þið
brátt sjá til sólar aftur.
Bryndís Pétursdóttir,
María Jóhannsdóttir,
Halldóra Gísladóttir og
Bryndís S. Guðmundsdóttir.
Elsku Kata.
Ég er ekki að kveðja þig. Það
mun ég aldrei gera, því ég veit þú
lifir áfram, þó ekki sé í þessu jarð-
lífi og ég sjái þig ekki aftur hérna
megin, þá veit ég að vinátta okkar
varir að eilífu. Vinátta sem engin
tæmandi orð fá lýst.
Upphafið var á strætisvagna-
stöðinni fyrir ofan Ármannsheimil-
ið á leiðinni heim eftir handbolta-
æfingu. Hver strætisvagninn rann
framhjá á fætur öðrum. Við gátum
talað saman endalaust, það var
eins og við hefðum alltaf þekkst.
Og aldrei nokkum tímann í þau
tuttugu og fjögur ár frá því við
hittumst, slettist upp á vinskapinn.
Böndin urðu aðeins sterkari.
Það er sárt að geta ekki lengur
talað við þig bæði í alvöru og gríni.
Ekkert var auðveldara en að fá
þig til að hlæja að smá gríni og
þegar alvöru bar á góma gátum
við alltaf séð björtu hliðarnar eftir
að hafa rætt málin.
Allan þann kærleik sem þú átt-
ir, gafst þú mér sem leiðsögn fyrir
mitt líf. Ekkert var auðveldara
fyrir þig en að fyrirgefa, þú skild-
ir ekki þegar fólk þurfti að erfa.
Þín ást til annarra tók öllu fram,
en sjálfa þig léstu sitja á hakanum.
Þú áttir endalausan kærleik að
gefa. Þar var aldrei komið að tómu
húsi.
Þú þurftir oftar en einu sinni
að taka afgerandi ákvarðanir í
þessu lífi sem ekki voru auðveldar.
Þá lá aldrei annað en óeigingirni
á bak við. Það erfiði sem þú axlað-
ir var það mikið að margur hefði
fyrir löngu kiknað. En þú varst
alltaf tilbúin að beijast og fórna
sjálfri þér.
Kata, þvílík fegurð sem þú hafð-
ir til að bera verður vandfundin.
Fegurðin var ekki aðeins að utan,
hún geislaði frá hjartanu. Ég veit
þú vilt ekki að ég syrgi, en þitt
skarð verður ekki fylit. Þú komst
sem gleðigjafi inn í líf mitt og ég
mun varðveita þá gjöf.
Þú opnaðir augu mín fyrir því
hve lífíð getur verið fallegt. Mér
var nóg að umgangast þig, sjá
hvemig þú vannst úr þínum málum
með kærleik og æðruleysi, jafn-
framt því sem þú bentir mér á að
reiðin er leiðin sem skilur eftir sig
stærstu sárin. Þú og bömin þín
vom orðin hluti af mínu lífi og
barna minna, en þú þurftir að fara.
Enda þótt þær áætlanir okkar að
verða gamlar saman og æra geng-
ið á elliheimilinu hafi ekki gengið
upp, þá ákváðum við að hittast
aftur á öðm tilvemstigi.
Þegar æðri máttarvöld taka af
skarið emm við vamarlaus, enda
þótt hart sé barist. Þinn tími var
kominn og þú vissir það. Hver til-
gangurinn er vitum við ekki sem
söknum þín, en hann er eflaust
mikill.
Elsku Kata, takk fyrir að hafa
fengið að kynnast þér og eiga sem
vinkonu. Þú skilur eftir þig fjögur
yndisleg börn sem öll hafa til að
bera þann kærleik sem þú gafst
þeim. Alveg fram á seinasta dag
beindist kærleikur þinn fyrst og
fremst til bama þinna, að huga
að hag þeirra. Ég veit þú vakir
yfir þeim dag og nótt og megi
æðri máttarvöld veita þeim hand-
leiðslu í þessu lífi og styrkja þau
í sorginni og söknuðinum. í allri
þeirri sorg sem fylgir við för þína
bið ég þess að styrk hönd styðji
alla þá sem syrgja þig og sakna þín
sárt.
Þín vinkona
Erla Björk Sverrisdóttir.
Elskuleg vinkona mín er látin
eftir stutta en harða baráttu við
krabbamein. Ég var svo lánsöm
að fá að kynnast Kötu. Hún var
góður vinnufélagi og góð vinkona,
glæsileg svo að eftir henni var tek-
ið hvar sem hún fór. Við hjónin
gáfum dóttur okkar eitt sinn í jóla-
gjöf dúkku með mikið dökkt hár.
Þegar hún tók hana upp úr kassan-
um virti hún hana fyrir sér-stutta
stund en sagði svo: „Þessi á að
heita Kata eins og Kata í Sólheim-
um því að hún er svo falleg.“ Þetta
litla atvik segir okkur margt um
þessa yndislegu konu.
Er ég lít nú yfir farinn veg kem-
ur margt upp í hugann. Góðar
samvemstundir með þér, elsku
Kata. Allt sem við töluðum og trúð-
um hvor annarri fyrir. Öll símtölin.
En ekki datt mér í hug þegar að
hún hringdi til mín fyrir ári síðan
og sagði mér frá veikindum sínum
að ári síðar stæði ég við gröf henn-
ar. En henni er ætlað eitthvað
annað og meira. Við sem eftir
stöndum eigum margar góðar
minningar sem ekki verða frá okk-
ur teknar.
Hin langa þraut er liðin
er loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin bjðrt upp runnin
á bak við dauðans dimmu nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin
hvað getur grætt oss þá.
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem)
Elskulegum börnum hennar, svo
og öðram ástvinum, votta ég mína
dýpstu samúð. Fari hún í friði.
Erna Geirsdóttir.
Hin ljúfa minning angar eins og reyr.
Um andann leikur heitur sunnanþeyr,
en himnar blána, heimur birtist nýr,
er hugann fyllir von er aldrei deyr.
(Davið St.)
Minningar frá samverustundum
við Katrínu streyma um hugann.
Hún sem barn, unglingur, fullorð-
in. Alltaf voru gleðin, kærleikurinn
og jákvæðnin hennar sterku eigin-
leikar. Sama var hvort í hlut áttu
menn eða málleysingjar - hugsan-
ir hennar og verk snerust um það
öðra fremur að veita hlýju og
bæta úr því sem miður fór. Öllum
öðrum fremur nutu börnin hennar
þessara mannkosta og hlýtur sá
styrkur og ást er hún veitti þeim
að verða að geislum er lýsa upp
ókomna tíma. Við þökkum fyrir
samfylgdina sem hefur gert okkur
ríkari en ella og biðjum Guð að
blessa minningu hennar jafnframt
því sem við biðjum börnum henn-
ar, Kára, foreldram hennar og
systur Guðs blessunar.
Vort líf er svo rikt af ljóssins þrá,
að lokkar oss hirains sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvína,
er hrynjandi geislar skína.
(Jóhannes úr Kötlum)
Katla og Sigrún.
í starfi mínu sem formaður KR
hef ég farið og horft á leik meist-
araflokks kvenna í körfuknattleik.
Þá vakti athygli mína ung og
glæsileg kona sem fylgdist með
leik liðsins af miklum áhuga. Sú
kona var Katrín Axelsdóttir sem í
dag er kvödd hinstu kveðju. Hún
kom til okkar í KR 14 ára gömul
og hóf að æfa körfuknattleik. Hún
lék með öllum yngri flokkum KR
og einnig meistaraflokki. Var hún
góður félagi og traustur keppnis-
maður.
Ung giftist hún og fluttist norð-
ur í land, en fýlgdist vel með öllu
sem gerðist í félagi okkar. Norður
í landi byijuðu veikindi hennar
fyrir nokkrum árum, sem reynd-
ust, því miður, sá skæði vágestur
krabbameinið. Fluttist hún því suð-
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmaslis- og minningargreina
séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er
æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki
yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línu-
lengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar era beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ur til Reykjavíkur vegna tíðra
rannsókna og læknismeðferðar.
Og þá tók hún upp þráðinn að
nýju hjá KR og var í meistara-
flokksráði kvenna í körfuknattleik,
en þar spilar dóttir hennar, Krist-
ín, við góðan orðstír.
KR-ingar sem þekktu Katrínu
Axelsdóttur munu minnast hennar
sem góðs félaga, en fyrst og fremst
hetju sem bar höfuðið hátt og lét
sig ekki vanta á leiki KR þrátt
fyrir þjáningar og þungbæran
sjúkdóm.
Það er með söknuði sem Katrín
er kvödd. Sárastur er hármur
hennar nánustu og eru þeim seridar
innilegar samúðarkveðjur.
Kristinn Jónsson,
formaður KR.
Lífsgöngu hennar Kötu er lokið,
og það er sárt. Hún var glæsileg
hún Kata, með svarta hárið sitt,
og vakti alls staðar athygli. Ekki
vegna þess að gengið væri um með
hávaða og látum, því að hún var
einstaklega prúð og hæversk í
framkomu, og brosið hennar var
svo fallegt. Megi það verða okkur
hinum til ævarandi eftirbreytni
hvernig hún tók örlögum sínum.
Við söknum hennar og þökkum
liðnar stundir. Guð styrki þau sem
misstu mest.
Starfsfélagar í erlendum
viðskiptum BÍ.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR,
Hraunbúðum,
áður Túngötu 22, '
Vestmannaeyjum,
sem lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 23. júní sl.
verður jarðsett fró Landakirkju laugardaginn 2. júlí kl. 14.00
Ágústa Björnsdóttir, Jón Runólfsson,
Alda Björnsdóttir, Hilmir Högnason
og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR
STEINDÓRSDÓTTUR,
Grandavegi 47,
Reykjavík.
Einar Pétursson, Kolbrún Thomas,
Pétur Pétursson,
Steindór Pétursson, Guðrún S. Grétarsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
ÁMUNDA ÓSKARS
SIGURÐSSONAR,
Neðstaleiti 3,
Reykjavík.
Margrét Ámundadóttir,
Sigrún Una Ámundadóttir, Gibbons Dee Cline,
Kristín Helga Ámundadóttir, Friðþjófur Ó. Johnson,
Hiidur Soffia Ámundadóttir, Ásgeir Þórðarson
og barnabörn.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
371800
Opið sunnudag
kl. 13-18
Toyota Corolla Touring 4x4 XL ’89,
blár/grór, 5 g., ek. 82 þ.t sóllúga o.fl.
V. 890 þús.
Mazda 626 GLX hlaðbakur '88, blásans.,
5 g., ek. 82 þ. km., rafm. í rúðum, ný
dekk o.fl. Gott eintak. V. 760 þús.
MMC Lancer GLXI hlaðbakur 4x4 '91,
raður, 5 g., ek 60 þ. km., sportfelgur, low
profile dekk o.fl. V. 1.090 þ.
Toyota Double Cab SR5 '92, hvítur, ek.
44 þ km. Gott eintak. V. 1.830 þús.
WA*PmVrr; —-1 .........\<£2É
..
GMC Jimmy S-10 '88, blár, sjólfsk., sól-
lúga, rafm. i rúðum o.fl. Gott eintak.
V. 1290 þús., sk. á ód.
Dalhatsu Applause 4x4 '91, grór, 5 g.,
ek. aðeins 30 þ. km., dráttarkúla o.fl. V.
980 þ. Sk. ó ód.
Nissan Sunny SLX Sedan '93, hvítur,
sjálfsk., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 1.180 þús.
Toyota Corolla XL '88, 3ja dyra, stein-
grár, 4 g., ek. 82 þ. Gott eintak. Ný skoð-
aður. V. 490 þús., stgr.
Toyota Corolla STD ’89, 3ja dyra, 4 g.,
ek. 40 þ. km. V. 580 þús.
Toyota Corolla STD '89, 3ja dyra, 4 g.,
ek. 40 þ. km. V. 580 þús. Sk. á nýrri bfl.
Nissan Sunny GTi '92, 5 g. með öllu, ek.
48 þ. km. V. 1.200 þús.
MMC Lancer GLX '89, silfurgrár, ek. 55
þ. km. V. 720 þús.
Subaru Sedan Turbo 4x4 '91, sjólfsk.,
ek. 55 þ. km. V. 1.090 þús.
Cherokee Laredo diesel Turbo '90, 5 g.,
ek. 65 þ. km. V. 1.790 þús.
MMC Galant GLS 2000 '87, sjálfsk., ek.
83 þ. km. Toppeintak. V. 620 þús.
Subaru 1800 XT turbo sport '86, 2ja
dyra, hvítur, sjólfsk., ek. 100 þ. km., rafm.
í rúðum o.fl. V. 670 þús., sk. á ód. Topp
eintak.
Peugeot 205 Junior '91, 5 dyra, 4 g., ek.
aðeins 37 þ. km. V. 550 þús.
Tilboðsverö kr. 490 þús.
Daihatsu Charade TX '88, 5 dyra, 5 g.,
ek. 60 þ. km. V. 430 þús.
Toyota Landcruiser stuttur '88, bensín,
5 g., ek. 97 þ. km. V. 1250 þús.
Toyota Corolla XL '90, rauður, 5 dyra, 5
g., ek. 65 þ. km. V. 720 þús.
Nissan Sunny 1600 SLX '91, steingrár, 5
dyra, 5 g., ek. 47 þ. km., rafm. í rúðum,
centrallœsing. V. 860 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla 1300 '87, 3ja dyra, blár,
4 g., ek. 114 þ. Tilboðsverð 290 þús.
Toyota Camry XL ’87, 1800, blár, 5 g.,
ek. 76 þ. km. Topp eintak. V. 650 þús.
Daihatsu Feroza II EFi 16v ’91, vínrauð-
ur, 5 g., ek. 24 þ. V. 1080 þús., sk. ó ód.
Fjörug bflaviðskipti!
Vantar góða bíla á skrá
og á staðinn.
Ekkert innigjald.
Eitt blab
fyrir alla!
JDnrptUniik
- kjarni málsins!
«s.