Morgunblaðið - 01.07.1994, Side 44
Jtewri£d
-setur brag á sérhvern tlag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 86
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Könnunarviðræður Islendinga og Norðmanna 1 Danmörku
Ákveðið að halda
viðræðum áfram
ÍSLENSKIR og norskir embættismenn hittust í Kaupmannahöfn í gær til
að kanna hvort grundvöllur sé fyrir viðræðum ríkjanna um fiskveiðihags-
muni. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins varð niðurstaða fundarins sú að
halda viðræðum áfram en ekki fékkst niðurstaða varðandi einstök atriði.
Viðræðurnar voru að ósk Norð-
manna, en ísienska sjávarútvegs-
ráðuneytið leiddi íslensku viðræðu-
nefndina. Ekki tókst að ná tali af
íslensku viðræðunefndinni.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra sagði í útvarpsfréttum
í gærkvöldi að stjómvöld vonuðust
til að viðræðumar leiddu til form-
legra viðræðna þjóðanna.
Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri
sjávarútvegsráðuneytis leiddi ís-
lensku viðræðunefndina en auk hans
eru í henni Guðmundur Eiríksson
sendiherra, Gunnar G. Schram próf-
essor, Arnór Halldórsson lögfræð-
ingur og Ólafur Sigurðsson sendi-
ráðsritari í Osló.
Ollu starfsliði
Þorgeirs og
Ellerts sagt upp
Framtíðarrekstur háður
samþykki Landsbankans
OLLUM starfsmönnum skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts á Akra-
nesi, rúmlega 80 manns, var sagt upp störfum í gær. Leitað hefur
verið leiða til að skjóta stoðum undir framtíðarrekstur fyrirtækisins
og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins liggur nú fyrir niðurstaða
sem gæti tryggt áframhaldandi rekstur. Hvort sú leið nær fram að
ganga mun þó fyrst og fremst háð því að Landsbanki íslands komi inn
í málið með þeim hætti sem menn hafa vonast til.
Sigtryggur Bragason, stjómarfor-
Hollands-
drottning
í heimsókn
HENNAR hátign Beatrix Hol-
landsdrottning kom í opinbera
heimsókn til Islands í gærmorg-
un. A móti konungshjónunum og
fylgdarliði þeirra tóku forseti
Islands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir og ráðherrar auk annarra.
Eftir hádegi heimsóttu konungs-
hjónin Árnastofnun þar sem þau
skoðuðu meðal annars Konungs-
bók Eddukvæða og Snorra-Eddu,
Skarðsbók Jónsbókar, íslend-
ingabók Ara fróða, Landnáma-
bók og Flateyjarbók undir leið-
sögn Jónasar Kristjánssonar for-
stöðumanns. En Jónas lét einmitt
af störfum í gær og móttakan
því hans síðasta embættisverk
eftir 23 ára starf. „Það má segja
að þetta hafi verið góður endir,
að taka á móti Hollandsdrottn-
ingu,“ sagði Jónas. „Þetta er
' ákaflega geðug kona og þau
lijónin vissu auðheyrilega ýmis-
legt um handritin og spurðu mik-
ið,“ sagði hann. I dag aka kon-
ungshjónin til Þingvalla og koma
meðal annars við í Vinaskógi og
síðdegis halda þau til Vest-
mannaeyja.
f ■ HoIIandsdrottning/4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NM í brids
Islendingar
enn efstir
ÍSLENDINGAR eru enn efstir
í opnum flokki á Norðurlanda-
mótinu í brids. Kvennaliðið er
neðst í sínum flokki. Síðustu
umferðirnar verða leiknar í dag.
íslenska liðið vann í gær
þrjá leiki í opnum flokki. Danir
voru lagðir 17-13, Færeyingar
16-14 og leikurinn við Finna
vannst með fullu húsi stiga
25-5. ísland er efst með 154,5
stig, Norðmenn koma næstir
með 140, Svíar hafa 135,
Finnar 110,5, Danir 105 og
Færeyingar 64.
Konurnar töpuðu
Kvennaliðið íslenska tapaði
tveimur leikjum, gegn Dönum
5-25 og Finnum 1-25 en liðið
sat yfir í eina umferð. í kvenna-
flokki eru Danir efstir með 150
stig, Finnar hafa 145, Svíar
128, Norðmenn 123,5 en ísland
er í neðsta sæti með 70 stig.
maður Þorgeirs og Ellerts, staðfesti
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að starfsmönnum hefði verið
sagt upp en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um framtíð fyrirtækisins þar
sem staða mála væri óljós.
Ekki kemur til lokunar
Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akra-
ness, sagði að leitað hefði verið allra
leiða til að tryggja áframhaldandi
starfsemi í skipasmíðaiðnaði í bæn-
um og lausn virtist fundin sem
tryggði að ekki kæmi til lokunar
fyrirtækisins. Niðurstaða um það
hvernig rekstrinum yrði háttað í
framtíðinni lægi þó ekki endanlega
fyrir. Að öðru leyti vildi hann ekki
tjá sig um málið.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var vonast til að jafn-
framt því sem tilkynnt væri um upp-
sagnir í gær yrði unnt að greina
starfsfólki frá þeirri frambúðarlausn
sem fundist hefði en þau áform náðu
ekki fram að ganga eins og fyrr
sagði og bíða þess að viðbrögð
Landsbankans komi í ljós.
Ekki fékkst í gærkvöldi upplýst
hvort framtíðarrekstur fyrirtækisins
byggðist á niðurfellingu skulda,
aukningu hlutfjár, nýjum eignaraðila
eða stofnun nýs fyrirtækis um eign-
ir og rekstur Þorgeirs og Ellerts.
Landsvirkjun tekur þátt í athugun útflutningi raforku um sæstreng
Heildarkostnaður allt að
234 milljónir króna
LANDSVIRKJUN tekur þátt í hagkvæmnisathugun Icenet-hópsins
á útflutningi raforku um sæstreng til Hollands samkvæmt sam-
starfssamningi sem undirritaður verður í dag. Þar er kveðið á um
þátttöku Landsvirkjunar í hagkvæmnisathuguninni án þess að
fyrirtækið verði formlegur aðili að Icenet-hópnum. Jaap Sukkel,
framkvæmdastjóri Icenet-hópsins, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að með þátttöku Landsvirkjunar væri mikilvægum áfanga náð.
Aðilar að Icenet-verkefninu um
útflutning raforku til Hollands eru
þijú hollensk fyrirtæki, PGEM,
EPON og NFK Kabel, auk Reykja-
víkurborgar. Forkönnun sem Ice-
net-hópurinn hefur framkvæmt
leiddi að sögn Sukkels til þeirrar
niðurstöðu að um mjög áhugavert
verkefni væri að ræða. Nú væri
kominn tími á frekari aðgerðir.
Kostnaðaráætlun hagkvæmnis-
athugunar Icenet-hópsins og
Landsvirkjunar hljóðar upp á 2
milljónir hollenskra gyllina eða um
78 milljónir íslenskra króna. Sukk-
el sagði að þar væri eingöngu
verið að tala um útlagðan kostnað
eða svokallaðan ytri kostnað. Gera
mætti ráð fyrir að heildarkostnað-
ur yrði tvisvar til þrisvar sinnum
hærri eða allt að 234 milljónir
króna.
Athugun Iokið innan
12-15 mánaða
Landsvirkjun mun að sögn
Sukkels bera 20% ytri kostnaðar
á móti 80% Icenet-hópsins. Sam-
kvæmt samkomulaginu mun hver
aðili fyrir sig síðan bera kostnað
við vinnu eigin starfsfólks o.þ.h.
Gert er ráð fyrir að hag-
kvæmnisathuguninni verði lokið
innan 12-15 mánaða, en hún hefst
að sögn Sukkels formlega í Hol-
landi í næstu viku þegar fulltrúar
frá Landsvirkjun sitja fyrsta fund-
inn.
„Það verða fimm verkhópar í
gangi. Hlutverk þeirra verður að
kanna rafmagnsframleiðslu með
vatnsorku, háspennubúnað og
endakerfi, byggingu sæstrengja-
verksmiðju í Reykjavík, lagningu
sæstrengs og að lokum markaðs-
þáttinn. Landsvirkjun mun taka
þátt í öllum þessum verkhópum
en eðliiega leggja mesta áherslu á
þann fyrsta varðandi vatnsorkuna
til rafmagnsframleiðslu þar sem
fyrirtækið verður í forsvari," sagði
Sukkel.
187 hús
undir
hamarinn
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa
187 fasteignir verið seldar nauð-
ungarsölu á uppboði í umdæmi
sýslumannsins í Reykjavík.
Nauðungarsölur eru 12 fleiri
nú en fyrri hluta síðasta árs,
þegar 175 fasteignir voru seldar
á uppboði.
Árlegar beiðnir um fasteigna-
uppboð í Reykjavík skipta þús-
undum, en stærstur hluti þeirra
er afturkallaður, þegar viðkom-
andi skuld er gerð upp. Allt árið
í fyrra voru 333 fasteignir seldar
nauðungarsölu á uppboði í um-
dæmi sýslumannsins í Reykjavík.