Morgunblaðið - 14.07.1994, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Sund og
leikir á
Þelamörk
MIKIL aðsókn er að sundlaug-
inni við Þelamerkurskóla og
þeim leiktækjum sem þar eru.
Að sögn sundlaugarvarðar tók
aðsóknin geysilegan kipp um
mánaðamótin síðustu þegar
veður varð bjart og hlýtt. Þá
var slegið aðsóknarmet og
sundgestir urðu alls um 1300 á
einum sunnudegi.
Telja má að hin nýja vatns-
rennibraut sem tekin var í notk-
un fyrir skemmstu dragi ekki
síst að, en auk þess er sundlaug-
arsvæðið snyrtilegt og við ýmis-
legt að vera annað en að renna
sér í brautinni. Laugin sjálf er
vinsæl og hún er jafnan kölluð
„heit sundlaug".
Þarna er opið alla daga frá
klukkan 10 á morgnana til 10 á
kvöldin.
*
ATVR tekur upp debetkortaþjónustu á næstu mánuðum
ÁTVR hyggst brátt
taka við kreditkortum
Höskuldur Jónsson t.v. og Einar S.
Einarsson.
HINGAÐ til hefur Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins ekki tekið við
greiðslukortum af neinni gerð. Á
næstu mánuðum mun verða breyt-
ing þar á og var samningur þess
efnis undirritaður í gær á milli Visa-
Islands og ÁTVR. Innan tíðar mun
því vera hægt að greiða með debet-
kortum í útibúum áfengisverslunar-
innar þótt kreditkortin verði að bíða
enn um sinn. Ákvæði í áfengislög-
unum bannar að lána áfengi og þar
með notkun kreditkorta í áfengis-
verslunum að sögn Höskuldar Jóns-
sonar, forstjóra ÁTVR, sem telur
þó að breyting verði á því innan
tíðar. Nefnir hann sem dæmi að
Fríhöfnin í Keflavík hafi í nokkum
tíma tekið við greiðslukortum at-
hugasemdalaust, þótt hún selji
áfengi.
Höskuldur sagði að það tæki sinn
tíma að koma tækjunum upp í
útibúunum en mjög fljótlega verði
hægt að greiða með bæði Maestro
og Electron debetkortum í Heið-
rúnu. Þegar allt hafi sannað sig
og kerfið hafi sýnt að það virki
verði þess skammt að bíða að
það komi í aðrar verslanir.
Flýtir fyrir afgreiðslu
Afgreiðslustaðir ÁTVR eru
24 og á Stykkishólmi er sá 25.
að bætast við. Ails eru því um
100 afgreiðslukassar um allt
land og er ætlunin að koma upp
posum við alla þeirra. Einar S.
Einarsson, forstjóri Visa-íslands,
segir að það taki um 80 sek. að
greiða með tékka á meðan það taki
aðeins um 20 sek. að greiða með
debetkorti. Það sé því fyrirsjáanlegt
að afgreiðsla ÁTVR á annatímum
verði hraðari og skilvirkari.
Úmferðafljós við
Vesturifindsveg
.Laxalón
wfrtiirlaNDSVEGUR
iolfvöllur
Undir-
göng
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
i Grafarholti
Brg yfir
Suðurlands-
Ný tenging Suðurlandsvegar
við Vesturlandsveg í Reykjavík
^ V ' ' 7--------------1
Rauða-
vm
Ný tenging við Suðurlandsveg
FRAMKVÆMDUM við nýja tengingn
Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar
ofan við Rauðavatn miðar vel og verður
vegurinn opnaður fyrir umferð í októ-
ber, að sögn Rögnvaldar Jónssonar yfir-
verkfræðings hjá Vegagerð ríkisins.
Samið var við verktaka um framkvæmd-
ina og sér Háfell hf. um undirbyggingu
vegarins og tengibrautir.
Sveinbjörn Sigurðsson hf. sér um að
reisa 50 metra langa brú við gatnamót-
in við Bæjarháls og Hagtak sér um und-
irgöng við innkomu að golfvellinum við
Krókháls fyrir bíla og gangandi ásamt
undirgöngum við Rauðavatn. Þá hefur
verið samið við Hlaðbæ-Colas um mal-
bikun vega og gatnamóta.
Aætlaður heildarkostnaður við teng-
inguna og breikkun Vesturlandsvegar
er um 550 milljónir.
Bræðsluofn
Hringrásar hf.
Hollustu-
vernd var
samþykk
kaupunum
ÁKVÖRÐUN um kaup á málm-
bræðsluofni Hringrásar hf., sem inn-
siglaður var 1. júlí sl. að ósk Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur,^ var,
samkvæmt upplýsingum Ásgeirs
Einarssonar framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins, fyrst tekin eftir að sam-
þykki Hollustuverndar ríkisins hafði
fengist fyrir kaupunum í maí 1991.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu var ofninn innsigl-
aður í kjölfar þess að brennsiu í hon-
um var haldið áfram eftir að heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur bannaði
notkun hans 27. júní þar sem grein-
ing á efnainnihaldi reyks frá ofninum
lá ekki fyrir. Samkvæmt upplýsing-
um Ásgeirs, Einarssonar er ofninn
framleiddur samkvæmt viðurkennd-
um Evrópustaðli, meðal annars til
brennslu jarðkapla. í bréfi Hollustu-
verndar ríkisins dagsettu 14. maí
1991 segir að Hollustuvemd veiti
fyrir sitt leyti varðandi mengunar-
vamir leyfi til notkunar á slíkum
ofni sbr. grein í starfsleyfi Hringrás-
ar frá 10. apríl 1991.
-----» ♦ «---
Siglingamálastjóri
Eðlilegt að
setja lág-
markskröfur
LÖG UM eftirlit með skipum gilda
eingöngu um stærri fley en sex
metra, en til eru reglur um smíði
og öryggisbúnað minni báta, en
þar eru uppblásnir bátar undan-
skildir, og því gilda hvorki lög né
reglur um þá báta sem notaðir eru
til siglingar á straumvatni, segir
Benedikt Guðmundsson, siglinga-
málastjóri.
Bendedikt segir að í framhaldi af
þeim atburðum sem hafa orðið sein-
ustu vikur í siglingum á ám, verði
mál þessi skoðuð vandlega með setn-
ingu reglna í huga. Rætt hafi verið
við aðstandendur slíkra ferða, og
hafi þau samskipti verið góð. „Það
er ekki óeðlilegt að settar verði lág-
markskröfur um búnað til þessara
siglinga, enda hafa menn eðlilega
áhyggjur þegar liggur við óhöppum
þó að vel hafi farið til þessa og líkleg-
ast sé útbúnaður viðkomandi aðila
með ágætum. Við munum hins vegar
ræða þessi mál frekar á næstunni
innan stofnunarinnar, og ég er ekki
tilbúinn að segja hvort að reglur
verði settar eða hvemig þær myndu
hljóma," segir Benedikt.
-----» ♦ ♦---
Jóhann
Sigurjónsson
bæjarstjóri í
Mosfellsbæ
JÓHANN Sigur-
jónsson viðskipta-
fræðingur var í
gær ráðinn bæjar-
stjóri í Mosfellsbæ
nýhafið kjörtíma-
bil. Hann tekur til
starfa sem bæjar-
stjóri næstkom-
ándi mánudag. Jóhann hefur und-
anfarin ár gegnt stöðu fjármálastjóra
Pharmaco hf., en var áður aðstoðar-
framkvæmdastjóri Glitnis hf. Jóhann
hefur verið búsettur í Mosfellsbæ
undanfarin 20 ár, kvæntur Ástu
Hilmarsdóttur og eiga þau þijú börn.
Jóliann
Siguriónsson
I
Í
i
»
i
i
B
i,
i
I
9
t
l
9
S
,
s