Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Móðir okkar, STEINUNN RÓSA ÍSLEIFSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, lést miðvikudaginn 13. júlí. Marlaug Einarsdóttir, Laufey Einarsdóttir, Baldvin Einarsson. t Vinur minn, JÓN JÓNSSON húsasmíðameistari, Hverfisgötu 74, Reykjavík, andaðist á heimili okkar 11. júlí. Þorgerður Jónsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafað- ir, afi og langafi, MAGNÚS SIGURLÁSSON frá Eyrarlandi, Þykkvabœ, Naustahlein 16, Garðabæ, lést á Hrafnistu Hafnarfirði 12. júlí. Guðjóna Friðriksdóttir, Jón V. Magnússon, Hrafnhildur Bernharðsdóttir, Friðrik Magnússon, Hrafnhildur Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkár, tengdafaðir og afi, VIKTOR ÞORKELSSON frá Siglufirði, Sæviðarsundi 15, Reykjavik, lést að morgni miðvikudagsins 13. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ólöf A. Ólafsdóttir, Ólafur G. Viktorsson, Steinar Viktorsson, Bergljót Viktorsdóttir, Hafsteinn Viktorsson, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR G. ARNFINNSDÓTTIR, Langholti 11, Keflavík, sem lést 8. júlí, verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn 15. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Líknarsjóð Keflavíkur- kirkju. Auður Jónsdóttir, Steinunn Sölvadóttir, Inga Dóra Kristjánsdóttir, ída Sigríður Kristjánsdóttir, Jón Einar Sverrisson, Gfsli Hra'nnar Sverrisson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eigin- konu minnar, ÁGÚSTU EINARSDÓTTUR, Álfaskeiöi 27, Hafnarflröi. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, og heimahjúkrunar Heilsugæslu Hafnarfjarðar. Sigurbjartur Loftsson. t Hugheilar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, GUÐMUNDU MARGRÉTAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Hofteigi 34, Reykjavík. Friðbjörn Guðbrandsson, Hólmfríður Friðbjörnsdóttir, Gíslfna Friðbjörnsdóttir, Gunnar Friðbjörnsson og fjölskyldur. LÝÐUR SIGMUNDSSON + Lýður Sigmundsson var fæddur á Skriðnesenni í Bitrufirði 17. apríl 1911. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 19. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Óspakseyrar- kirkju 2. júlí. LÝÐUR Sigmundson dvaldist á Skriðnesenni í Bitrufirði hjá for- eldrum sínum fyrstu æviárin, en nokkurra ára gamall fluttist hann með þeim að Einfætingsgili þar sem hann ólst upp til fullorðinsára. Lýður var snemma mikill at- gervismaður, hraustur vel og í alla staði vel af guði gerður. Hann var að flestra mati afar skemmtilegur og átti einstaka kímnigáfu. Hann var einn þeirra manna sem hafa einstaka frásagnarhæfileika, svo að unun var á að hlýða og áttum við margar ánægjustundir í návist hans. Lýður var einstakur heimilisfað- ir, umhyggjusamur og einstaklega barngóður. Sjálfur kynntist ég Lýð sem ungur maður er ég dvaldist í sveit á næsta bæ við hann, og voru þau kynni afar góð og mér á margan hátt gagnleg. Lýður naut hvarvetna virðingar í störfum sakir dugnaðar, og á mannamótum og í hvers kyns gleð- skap var hann hrókur alls fagnað- ar. Lýður unni sinni heimasveit og þar vildi hann helst dvelja. Þar átti hann rætur sem aldrei slitnuðu meðan honum entust lífdagar. Greinilegur söknuður var hjá barnabörnum hans er þau kyöddu afa sinn og er það að vonum svo barngóður sem hann var. Eftirlifandi eiginkona Lýðs, Vig- dís Matthíasdóttir, systir mín, hef- ur tjáð mér að árin sem hún átti með honum hafí verið ljúf og far- sæl vegna þess hversu ljúfur og einstaklega hugsunarsamur hann var. Það sem ég kynntist á heimili þeirra var hlýja og glaðværð, enda t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavfk, sem andaðist 7. júlí, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 15. júlí kl. 14.00. Pétur Þórðarson, Erna Sigurbergsdóttir, Elín Þórðardóttir, Kristján Þórðarson, Guðbjörg Samúelsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Guðfinna Arngrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, BJARNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR FABER, Kirkjuteigi 14, Reykjavfk, fer fram frá Fríkirkjunni f Reykjavík föstudaginn 15. júlí kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast henn- ar, er bent á Barnaspítala Hringsins. Gilbert Faber, Donald Guðmundur Faber, Danfel Ragnar Faber, Bruce Leifur Faber, Brian örn Faber, Berta Lucille Faber, tengdabörn og barnabörn. t Faðir okkar, sonur, stjúpsonur og bróðir, ÞORSTEINN EYVAR EYJÓLFSSON, Spóarima 1, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 16. júlí kl. 13.30. Atli Rúnar Þorsteinsson, Andrea Hanna Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Arthúrsson, Hrefna Svava Þorsteinsdóttir og systkini hins látna. t Hjartans þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur og systur, KATRÍNAR AXELSDÓTTUR, Ásbraut 5, Kópavogi. Einnig viljum við senda starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans sér- stakar þakkir. Kári Marísson og börn, Axel Magnússon, Kristfn Karlsdóttir, Kristín Axelsdóttir, Kristinn Guðmundsson. var þar oft gestkvæmt og þaðan fóru allir glaðir brott, vitandi að þeir væru ávallt velkomnir aftur. Allmörg seinustu árin áttu þau heima á Akranesi, þar sem Lýður stundaði lengst af hvers konar fiskvinnu. Eiginkona, börn og barnabörn svo og tengdadætur og tengdasyn- ir flytja þér hlýjar hjartans kveðjur og þakkir fyrir allt göfugt og gott. Sömuleiðis flyt ég þér mínar hjart- ans þakkir fyrir allt og allt. Farðu í friði. Friður guðs sem er öllu æðri þig blessi. Einar Matthíasson. Sunnudagskvöldið 19. júní síð- astliðinn lést á sjúkrahúsinu á Akranesi mágur minn, Lýður Sig- mundsson, eftir erfiðan sjúkdóm sem gerði vart við sig fyrir tveim- ur árum. Það kom mér því ekki á óvart þegar systir mín hringdi og lét mig vita að hann væri dáinn. Mig langar að minnast Lýðs með nokkrum línum. Það er af mörgu að taka og margs að minnast sem ekki verður fest á blað. Lýður var prúðmenni mikið sem tók öllu með jafnaðargeði, sama hvað gekk á. Kæti og glaðværð átti hann í ríkum mæli og kom öðrum til að taka þátt í henni með glettni og gamansemi hvar sem hann var eða kom. Margar sögur kunni hann og sagði skemmtilega frá sem vakti mikla kátínu við- staddra. Vinmargur var hann. Hann hafði gaman af söng í góðra vina hópi og hafði góða og mikla söngrödd. Ekki vantað hjálpsemina og vildi hann öllum vel og allt fyr- ir alla gert ef það var á hans vaídi. Lýður og Vigdís áttu fjögur böm og áður áttu þau sín dótturina hvort. Innilega samúð votta ég systur minni, bömum og aðstand- endum. Ég mun ætíð sakna Lýðs og hans miklu glaðværðar og góð- vildar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Sigríður Matthíasdóttir. Frágangur afmælis- og minningar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minn- ingargreina séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.