Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 40
40
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994
Word námskeið
94026
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
40% afsláttur af öllum
uppfærslum. A
Með því að nýta möguleikann á uppfærslu
Novell NetWare fyrir 31. júlí 1994, velur
þú að njóta þess besta sem kerfið býður
upp á hverju sinni. Og þú færð þar að
auki 40% afslátt af listaverði
- í boði Novell og Tæknivals hf.
W Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
Tilboð
Tveggja manna tjald
Verð 3.330 kr.
Tilboð til SAFNKORTSHAFA
2.990 kr.
og 2990 punktar inn á safnreikning.
Verkfærataska
Verð 4.500 kr.
Tilboðtil SAFNKORTSHAFA
3.990 kr.
og 3990 punktar inn á safnreikning.
Ferðagasgrill
Verð 5.150 kr.
SAFNKORTSHAFAR FÁ AÐ AUKI
5150 punkta inn á safnreikning.
I SAFNK0RTESS0
| Enginn kostnaður, aðeins ávinningur!
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 9-5 frá mánudegi til föstudags
Heiðrúnu
svarað
í VELVAKANDA í fyrra-
dag lætur Heiðrún Júlíus-
dóttir í ljósi óánægju vegna
vangoldinna launa fyrir
símhringingar til kynning-
ar á Reykjavíkurlistanum
fyrir borgarstjómarkosn-
ingarnar. Af því tilefni er
rétt að taka fram, að þetta
verkefni var að öllu leyti í
höndum þeirra Hrannars
B. Arnarsonar og Helga
Hjöi'var. Samið var um að
þeir tækju það að sér sem
verktakar, greiddu þeim
laun sem þeir réðu til verka
og bæru annan tilfallandi
kostnað.
Reykjavíkurlistinn
greiddi þeim fyrir verktök-
una og lagði til húsnæði
og síma. Verkið var því
ekki unnið á vegum kosn-
ingaskrifstofu Reykjavík-
urlistans. Það er leitt ef
þeir Hrannar og Helgi hafa
ekki staðið við umsamdar
greiðslur til starfsmanna
sinna, en við þá eina er
að sakast.
Fyrir hönd kosninga-
stjómar,
Valdimar K. Jónsson.
Fyrirspurn til
launadeildar
Ríkisspítalanna
MIG LANGAR að koma
eftirfarandi fyrirspurn til
þess er sér um launamál
eftirlaunaþega Ríkisspítal-
anna.
Ég er 72 ára gömul og
er því búin að vera á eftir-
launum í tvö ár. Á þessu
tveggja ára tímabili hafa
launaflokkahækkanir átt
sér stað hjá Ríkisspítölun-
um. Þessar hækkanir hafa
hins vegar ekki skilað sér
sjálfkrafa í mitt launaum-
slag, né fjögurra annarra
kvenna sem ég veit að era
á eftirlaunum hjá Ríkis-
spítölunum. Við höfum all-
ar unnið á símavaktinni.
Á þessu tímabili fékk
ég reyndar afturvirka leið-
réttingu á laununum mín-
um eftir að hækkun hafði
orðið og þá samkvæmt
minni ósk.
Núna á þessu ári hafa
launin hækkað tvisvar, 1.
janúar og 1. júní, en ég
fékk ekki þá hækkun.
Ég hef reynt að grennsl-
ast fyrir um hvemig á
þessu standi en alls staðar
komið að lokuðum dyrum.
Mér þykir leiðinlegt að
þurfa að biðja um þetta í
hvert skipti sem hækkun
á sér stað því að sjálfsögðu
á þetta að ganga sjálfkrafa
fyrir sig.
Nú óska ég eftir svari á
sama vettvangi og þessi
klausa birtist.
Margrét Hansen,
Ásholti 2,
Reykjavík.
Hjólreiðafólk og
gangandi
vegfarendur
MARÍA hringdi og vildi
koma því á, framfæri til
hjólreiðafólks að það sýni
meiri tillitssemi í garð
gangandi vegfarenda. Hún
segir að hjólreiðafólk ætti
að gera vart við sig þegar
það kemur að gangandi
vegfarendum og nota
meira hjólreiðastígana sem
búið er að leggja. Hjól-
reiðafólk virðist ekki geta
ákveðið sig hvort það ætlar
að haga sér í umferðinni
eins og gangandi vegfar-
andi eða eins og vélknúið
ökutæki.
Oft ber það við, segir
María, að einhver kemur á
fljúgandi ferð upp að hlið-
inni á henni svo hún hrekk-
ur við og stígur til hliðar,
og þá kemur kannski ann-
að hjól upp að hinni hlið-
inni svo litlu má muna að
slys hjótist af.
Henni finnst öll sú um-
ræða sem verið hefur í fjöl-
miðlum upp á síðkastið,
þar sem hjólreiðafólki
finnst að ekki sé tekið nóg
tillit til þess, of einhliða.
Tillitssemin ætti ekki að
gilda eingöngu í aðra átt-
ina heldur báðar, þannig
að hjólreiðafólk verður líka
að virða umferðarreglur
og rétt hins gangandi
vegfaranda.
Tapað/fundið
Myndavél tapaðist
MYNDAVÉL af gerðinni
Mamya, 12 ára gömul, sem
í var 24 mynda átekin
filma, var lögð á bílhúdd
við Vífilsgötu og þaðan
ekið sem leið lá um Gunn-
arsbraut, Guðrúnargötu og
Rauðarárstíg að Hlemmi.
Þá uppgötvuðust mistökin
en vélin fannst ekki þrátt
fyrir að sama leið væri
ekin til baka og leitað.
Þetta gerðist þriðjudaginn
5. júlí sl. Hafi einhver
fundið vélina er hann vin-
samlega beðinn að láta vita
í síma 10160 eða hafa
samband við vanskila-
munadeild lögreglunnar.
Hestar í óskilum
TVEIR hestar töpuðust úr
girðingu á Ingjaldshóli á
Snæfellsnesi 19. júní sl.
Grunur leikur á að þeir
hafi strokið suður til Borg-
aríjarðar og farið um Fróð-
árheiði. Annar er jarpur
og ójárnaður, hinn er
rauðtvístjörnóttur og járn-
aður (skaflaskeifur). Báðir
eru eins markaðir: gagn-
bitað bæði. Þeir sem verða
hestanna varir vinsamlega
hringi í síma 93-66920
(Ólafur Jens eða Ólöf
Helga).
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með mörg-
um lyklum, þ.á m. pen-
ingaskápslykli, var skilin
eftir í Konfektbúðinni,
Laugavegi 12a, fyrir u.þ.b.
þremur vikum. Upplýs-
ingar í síma 10777 eða í
búðinni.
Teikning tapaðist
TAPAST hefur teikning
af tillögu um sumarbústað
við Þingvallavatn með
nafni eiganda, sennilega
við Laugarvatn. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
91-18510 eða skili á skrif-
stofu byggingarfulltrúa á
Laugarvatni.
Svefnpoki fannst
SVEFNPOKI fannst í
Þórsmörk sl. helgi. Upplýs-
ingar í síma 656421 eftir
kl. 17.
Úr tapaðist
KVENGULLÚR, Pier-
point, með skelplötuáferð
á úri og brúnni leðuról,
tapaðist á Miklatúni eða í
miðbæ Reykjavíkur mið-
vikudaginn 6. júlí sl.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 861045.
Blómaker tapaðist
HVÍTT blómaker með gul-
um stjúpum hvarf af stiga-
palli við Túngötu 32, lík-
lega á sunnudag. Sá sem
veit hvar kerið er niður-
komið er vinsamlega beð-
inn að láta vita í síma
14549.
Veski tapaðist
SVART seðlaveski með
skilríkjum, ávísanahefti,
debetkorti o.fl. tapaðist í
miðbænum aðfaranótt sl.
sunnudags. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
75566. Fundarlaun.
Úr fannst
KVENÚR fannst að kvöldi
17. júní á göngustíg í Heið-
mörk. Upplýsingasími er
671913.
Myndavél tapaðist
OLYMPUS AF-1 mynda-
vél í gráu hulstri tapaðist
á Fjórðungsöldu við minn-
ismerki af Geir Zoéga á
Kjalvegi. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 32742.
Kápa og peysa
týndust
DÖKK ullarkápa og brún
peysa töpuðust í Ingólfs-
kaffi sl. laugardagskvöld.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 77001.
Gæludýr
Kettlingar
SJÖ vikna kassavanir
kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 44401.
Kettlingar
FIMM sjö vikna kassavana
kettlinga vantar góð heim-
ili. Upplýsingar í síma
654436.
Kettlingar
TVEIR kassa- og hunda-
vanir kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma
40500 eða 622264.
Víkverji skrifar...
*
Iþrótta- og tómstundaráð og fleiri
aðilar um alit iand standa fyrir
margvíslegum námskeiðum fyrir
yngri kynslóðina á hveiju sumri og
hefur sennilega aldrei verið meira
framboð heldur en í ár. I borginni
hafa reiðnámskeið ITR í Víðidal lengi
notið mikilla vinsælda og svo mun
einnig hafa verið í ár. Til að bregð-
ast við mikilli aðsókn hefur reiðnám-
skeiðum verið fjölgað á hverju ári
tii að anna eftirspurn.
Annað námskeið tengt útivist og
sveitastörfum mun einnig hafa verið
mjög vinsælt hjá borgarbömum á
þessu sumri, þ.e. umhirða og aðstoð
í húsdýragarðinum í Laugardal. Þar
munu færri hafa komist að en viidu
og hefur ekki væst um krakkana í
návist dýranna í góða veðrinu að
undanfömu.
Þetta leiðir hugann að þeim merka
og nauðsynlega skóla sem sumardvöl
í sveit er hveiju bæjarbarni. Áhrif
siíkrar dvalar vara oft alla ævi og
koma fram í ýmsum myndum, jafn-
vel bókstaflega eins og til dæmis
má sjá í kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Bíódögum.
XXX
Frétt á forsíðu Morgunblaðsins
síðastiiðinn sunnudag fjallaði
um að eigandi gæludýrabúðar í Jap-
an hefði gripið til þess ráðs að leigja
viðskiptavinum sínum hunda og ketti
klukkutíma í senn.. Þannig fær búð-
areigandinn tekjur í reksturinn og
reyndar er leigan taisverð eða um
þúsund krónur á klukkutímann, mis-
jafnt eftir stærð dýranna. Hundar
hafa reynst mun vinsælli á dýraleig-
unni og á þennan hátt kemst fólk,
sem ef til vill hefur ekki aðstöðu til
að eignast eða halda hund, í kynni
við dýr og ferfætlingarnir fá lang-
þráða hreyfingu.
Þessi frétt leiddi huga skrifara að
því að fyrir nokkru heyrði hann dýra-
lækni tala um hvað það væri sorg-
legt að þurfa að lóga fallegum, nokk-
urra mánaða gömlum heimilishund-
um, sem fólk hefði gefist upp á að
eiga. Fólkið hefði kannski keypt sér
hvolp af vinsælu hundakyni fyrir
tugi þúsunda en síðan komist að því
nokkrum mánuðum síðar að það
hafði hvorki áhuga né aðstöðu til að
hafa hund. Nýjungagirni og bráðlæti
væru gjarnan að baki ákvörðun um
hundakaup í upphafi, en það væri
meira en að segja það að ala upp
og hugsa um hunda. Einhverjum
tækist að koma hundinum í aðra vist
en ótrúlega margir ættu ekki aðra
leið en að leita eftir -aðstoð dýralækn-
isins við að svæfa dýrið. Þetta vafst-
ur skildi oft eftir sig sár og sorg,
einkum meðal þeirra yngri.
Skrifari ætlar að leyfa sér að vona
að fréttin um japönsku dýraleiguna
gefi engum þá hugmynd að hefja
leigu á dýrum í lengri eða skemmri
tíma. Hugsunarleysið sem ræður
ríkjum hjá mörgum er þeir fá sér
heimilishund er slæmt, en dýraleiga
er lítið geðfelldari hugmynd og henda
ferfætlingunum þannig á milli
manna.