Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 21
LANDSMÓT UMFÍ
Leikfimiflokkur Iðunnar sýndi á landsmótinu
1911 á Melavellinum í Reykjavík. Myndirnar
eru úr Ræktun lýðs og lands, sögu UMFI á
75 ára afmæli, eftir Gunnar Kristjánsson.
Starfsíþróttir hafa löngum sett mikinn svip á
landsmót UMFÍ en keppt var í fyrsta sinn í
þeim á Eiðum 1952. Lilja Þórinsdóttir vann
þar til verðlauna í að leggja á borð.
LANDSMÓTIÐ 1949 var haldið í Hveragerði og var það hið sjöunda í röðinni. Ráðgert hafði verið
að halda mótið á Austurlandi en vegna vorharðinda töldu heimamenn ráðlegast að fresta mótinu
um ár. Aðrir forystumenn UMFÍ voru ekki á því og var ákveðið að halda mótið í Hveragerði.
Undirbúningi á mótsstað lauk á tilsettum txma, þótt ekki væri nema hálfur mánuður til stefnu.
ef til vill fleiri stökk“ eins og það
er orðað á auglýsingaspjaldi, kapp-
göngu þar sem vegalengdin var
fjórðungur úr enskri mílu, 50 og
100 metra kappsundi og fótbolta-
leik eða knattsparki. Sund var einn-
ig á dagskrá bæði til sýningar og
keppni en þó ríkti enn talsverð tor-
tryggni og vantrú í garð sundsins
enda voru aðstæður á mótinu bág-
bornar, óhreint sundstæði og ískalt
vatn í ljótum polli.
Einnig fór Íslandsglíman fram
og var keppt um Grettisbeltið sem
fyrst var glímt um í ágústmánuði
árið 1906. Beltið var kennt við
glímufélagið Gretti sem stofnað var
á Akureyri það sama ár. Ólafur-
V. Davíðsson vann beltið fyrsta
árið en í næstu tvö skipti sigraði
Jóhannes Jósefsson sem síðar var
kenndur við Borg. Að þessu sinni
var hann fjarri góðu gamni og sigr-
aði sunnanmaðurinn Guðmundur
Stefánsson en Siguijón Pétursson
athafnamaður og stofnandi Álafoss
var í öðru sæti. Almenn ánægja var
ríkjandi á meðal fólks eftir þetta
fyrsta landsmót UMFÍ. Nokkur
tekjuhalli varð af mótshaldinu, full-
ar þrjátíu krónur og þurfti fjórð-
ungssamband Norðlendinga að axla
þá byrði. Skýringuna var að finna
í of lágum aðgangseyri. Það kost-
aði aðeins 25 aura inn á mótið en
hálft kíló af franskbrauði kostaði
það sama, tímakaup verkamanna
var 30 aurar og lítri af mjólk var
seldur á 22 aura.
Mótshald fellur niður
2. og 3. landsmót UMFÍ voru
haldin í Reykjavík með þriggja ára
millibili, hið fyrra 1911 en hið síð-
ara 1914. Síðan liðu tuttugu og sex
ár þangað til 4. landsmótið var
haldið í Haukadal 1940. Ástæðurn-
ar fyrir þessu langa hléi voru marg-
ar, mesti móðurinn var runninn af
mönnum, sérstaklega í Reykjavík
en mótahald hélt áfram í einhverri
mynd víða á landsbyggðinni. Trú-
lega hafa erfiðar aðstæður á stríðs-
tímum valdið þessari deyfð og ekki
bætti úr skák innreið spönsku veik-
innar og frostavetursins mikla
1918. Reyndar öðluðust íslendingar
fullveldi sitt þetta sama ár en
framfarasóknin var í rénum og það
dofnaði yfir hreyfingu ungmennafé-
laganna. Fleiri ástæður mætti tína
til en einkum skorti forsendur ann-
ars staðar en í Reykjavík og Akur-
eyri til mótshalds af þessu tagi. Það
þurfti öfluga og víðtæka íþróttaiðk-
un til þess að standa að landsmóts-
haldi og stóran hóp manna sem
hefðu einhveijar frístundir en hvor-
ugt var fyrir hendi á landsbyggð-
inni á fyrstu áratugum þessarar
aldar. Þá er sú skýring nefnd að
landsmótshald hafi á þessu árabili
lent í einhvers konar tómarúmi
milli ÍSÍ og UMFÍ þar sem íþrótta-
sambandið stóð fyrir sérhæfðari
íþróttamótum en ekki hátíðum með
breiðu menningarlegu sniði þar sem
allir gátu verið með eins og lands-
mótin voru hugsuð í upphafi.
Nýir tímar og heitt í veðri
Eftir endurvakninguna í
Haukadal í júní árið 1940 hefur
landsmót UMFÍ verið haldið reglu-
lega, oftast með þriggja ára milli-
bili, síðast í Mosfellsbæ í júlí árið
1990.12. landsmóti UMFÍ var hald-
ið að Laugarvatni 2. til 3. júlí árið
1965 og er af mörgum talið vera
landsmót allra landsmóta. Einstök
veðurblíða var ríkjandi þá helgi, 20
gráðu hiti á laugardeginum og 4
til 6 vindstig en á sunnudeginum
var 24 gráðu hiti og logn. Til marks
um hitann er sagt að þarna hafi
verið staddur væntanlegur lands-
liðsþjálfari íslands í knattspyrnu,
nýkominn frá Indlandi. Hann sagði
að sólin væri reyndar heit á Ind-
landi en hún væri heitari á Laugar-
vatni. í Morgunblaðinu frá 6. júlí
má lesa um skáta sem hafi hampað
hitamæli í sólinni sem sýndi 53 stiga
hita. Strax á föstudagskvöldið fór
fólk að þyrpast að Laugarvatni og
önnur fjölmennasta borg á Islandi
tók að myndast. Tjöldin skiptu þús-
undum og gestir munu hafa verið
á bilinu 20 til 25 þúsund þegar
mest var en þátttakendur og starfs-
menn voru tæplega 1300 að tölu.
Það voru seldir 13 þúsund að-
göngumiðar en börn yngri en 16
ára fengu frítt inn. Hitinn kom
flestum í opna skjöldu því í Reykja-
vík og á Vesturlandi var hafátt og
þoka upp á miðja Mosfellsheiði.
Hátíðin hófst á morgni laugar-
dags með lúðrablæstri og litskrúð-
ugri skrúðgöngu þar sem fremstir
fór Austfirðingar í rauðu og hvítu,
Eyfirðingar í svörtu, Þingeyingar í
dökkrauðu, Snæfellingár í bláu,
Kjalnesingar í rauðu og svöitu og
loks gestgjafar Skarphéðins í bláum
og hvítum búningi. Ræður voru að
vanda fluttar og lúðrasveitin blés
„Rís þú unga Islands merki“ og
þótti athöfnin vera látlaus og hátíð-
leg. Að henni lokinni hófst keppnin
og allt svæðið iðaði af lífi, knatt-
spyrna á malarvellinum, fijálsar
íþróttir á aðalvellinum, starfsíþrótt-
ir við vatnið, þar á meðal jurtagrein-
ing, blómaskreyting, gróðursetning
og sauðfjárdómar og sund í plast-
pokalaug sem keypt var frá Dan-
mörku og sett upp á staðnum. Að
auki var keppt í glímu, handknatt-
leik og körfuknattleik. Um kvöldið
léku Hljómar fyrir dansi og af frá-
sögnum að dæma virðist sem fáir
hafa þorað að dansa eftir tónlist
þeirra, heldur létu sér nægja að
hlusta og horfa á. Á sunnudeginum
þurftu hátt á finnnta hundrað
manns að leita sér aðstoðar vegna
sólbruna og 10 til 12 manns munu
hafa fengið aðkenningu af sólsting.
En af keppninni sjálfri er það að
segja, að hún var spennandi í flest-
um greinum en Skarphéðinsmenn
sigruðu að lokum og Þingeyingar
urðu í öðru sæti. Fjallað var um
mótið i leiðurum allra dagblaða
landsins og einkum var þar rætt
um myndarskapinn sem einkenndi
mótshaldið og renndi um leið stoð-
um undir þá kenningu að ung-
mennafélögin voru svo sannarlega
ekki dauð úr öllum æðum.
Höfundur er lausamaður í blaða-
mennsku.
DAGAR
fimmtudag,
föstudag og
iaugardag
(Opið laugard. kl. 10-14)
Tilboð
Barnagalli,
verð 3-990,
markmanns-
vettlingar fylgja.
Fullorðinsgalli,
verð 6.600,
Pólóbolur fylgir
íþróttataska,
verð áður 1.590
nú 990.
Nýtt greiðslu-
kortatímabil hafið
10% staðgreiðsluafsláttur
af öðrum Rucanor vörum
SPORTBUÐIN
Ármúla 40 - Sfml 813555 og 813655
7 ÞVOTTAKERFI, HLJÓÐLÁT, SPARNEYTIN
TEKUR BORÐBÚNAÐ FYRIR 12 MANNS
VERÐ 48.900 stgr.
Fjöldi ánœgðra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning
RONNING
BORGARTÚNI 24
SlMI 68 58 68
DPPÞVOTTAVÉLAR HLJOMFUJTMNGSTÆKl
- kjarni málsins!