Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 15 SÞ fagna niðurstöðu Þjóðverja BOUTROS Boutros- Ghali, fram- kvæmda- stjóri Sam- einuðu þjóð- anna, fagnar úrskurði stjórnlaga- Boutros-Ghali dómstólsins þýska um að stjórnarskrá landsins komi ekki í veg fyrir að Þjóðvetjar sinni friðar- gæslu. Telur Boutros-Ghali að þetta þýði að Þjóðverjar eigi eftir að gegna auknu hlutverki á alþjóðavettvangi. Umhverfis- átak í Kína KÍNVERJAR segjast ætla að veija yfir 200 milljörðum yuana, tæpum 1.700 milljörð- um króna á næstu sex árum til að hreinsa umhverfið. A síðasta ári vörðu þeir sem svarar 18 milljörðum kr. til verksins. Nokkrar kínverskar borgir eru taldar vera með menguðustu stöðum heims. Skrímslaleit í þýsku vatni BAÐSTRANDARGESTUM við vatnið Neuss í Þýskalandi var skipað á brott í gær og svínsblóði hellt út í vatnið til að ná á land „Loch Neuss skrímslinu“ svokallaða, gælu- krókódíl sem slapp frá eiganda sínum fyrir þremur dögum. Lítið fylgi Japansstjómar UM helming- ur japanskra kjósenda er ósáttur við hina nýju stjórn fijáls- lyndra demó- krata og sós- íalista og 38% eru sátt við hana, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var um helgina. Sögust 28% kjós- enda styðja forsætisráðherr- ann, Tomiichi Murayama, þar sem ekki væri um neinn annan að ræða. Murayama Greenpeace- menn látnir lausir NORSKA strandgæslan lét í gær lausa fimm félaga í nátt- úruverndarsamtökunum Greenpeace, nokkrum stund- um eftir að þeir voru hand- teknir á tveimur gúmmíbátum nærri norsku hvalveiðiskipi. Var fólkið flutt um borð í skip samtakanna, Síríus. Bandarísk nafnskírteini BANDARÍKJAMENN íhuga nú að gefa út nafnskírteini sem mönnum verður skylt að bera, vegna þess hversu erfið- lega hefur gengið að koma í veg fyrir ólöglega innflytjend- ur til landsins. I skírteini yrði mynd, segulrönd með nauð- synlegum upplýsingum og jafnvel fíngraför. Franskir fjölmiðlar segja Breta hafa verið undirlægjur Bandaríkjanna Þjóðverjar að taka forystuna París, London, Berlín. Reuter. FRÖNSK dagblöð sögðu í gær að Þýskalandsheimsókn Bills Clintons Bandaríkjaforseta staðfesti nýja stöðu Þjóðveija í Evrópu. Þýskaland hefði um langa hríð verið efnahags- legur risi en pólitískur dvergur; hið síðara ætti ekki lengur við. Úr- skurður þýska hæstaréttarins um að senda mætti herlið til friðar- gæslu utan Evrópu og sú ákvörðun franskra stjórnvalda að Helmut Kohl Þýskalandskanslari yrði heið- ursgestur í París við hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardagsins í dag, 14. júlí, sýndu stóraukin áhrif Þjóð- veija. Ihaldsblaðið Le Figaro sagði að þýsk stjórnvöld þyrftu nú að móta stefnu sína í alþjóðamálum og með- an Kohl væri kanslari væri líklegt að Evrópusambandið yrði grund- völlur hennar. Vinstriblaðið ■ Liberation sagði hvatningu Clintons til Þjóðveija um að axla auknar byrðar í forystu vestrænna ríkja sýna breytta stöðu með tilkomu Evrópusambandsins og minnkandi vægi Bretlands. Gömul aðferð Bandarikjanna, að beita Bretum fyrir sig til að koma af stað vandræðum i Evrópu, hefði mistekist. Clinton sagði á mánudag að tengsl Bandaríkjamanna við Breta ættu sér sögulegar rætur en sam- starfið við Þjóðveija væri nú ef til vill mikilvægara en við aðrar Evr- ópuþjóðir. Breski kaupsýsiumaður- inn Sir James Goldsmith var kjörinn á þing Evrópusambandsins nýverið' en hann bauð sig fram í Frakk- landi. Hann gagnrýndi í vikunni Clinton harðlega fyrir ummæli for- setans í Þýskalandsheimsókninni. „Clinton forseti hefur sýnt ótrúleg- an skort á sögulegum skilningi sem bætist við ótrúlegan skort hans á visku“, sagði sir James. Hann sagði Clinton hafa afhjúpað hvert inntak „hinna sérstöku tengsla" Breta og Bandaríkjamanna væri nú. í reynd hefðu Bretar aðeins verið undir- lægja Bandaríkjamanna og upp- skæru að lokum fyrirlitningu þeirra eins og alltaf yrði raunin í slikum samböndum. TRIGANO lsland Sœkjum þaAheim! á 'Vango tandsins mesta úrval af tjöldum á sýningarsvæði OG TILBOÐSVEISLA Á ÚTIVISTARVÖRUM Á SÝNINGARSVÆÐI /T|.^ w'M' Mikiö úrval af hústjöldum, > J | , j »]i 1 göngutjöldum, kúlutjöldum og íslenskum I í “V tBkT-yá: ” ■ ... gæðatjöldum frá '&ÍÍ&LS * Seglageröinni. '3omon , v&r T I L B O Ð 1 CLARA hústjald 4 manna HHMi + 2 Nitestar svefnpokar 47.000 <-5°) jcIrX?r»Ti1 TILBOÐ 2 PEKING 180 4 manna tjald + 2 Nitestar svefnpokar 23.000 (-5°) 19.900 T I L B O Ð 3 SÓLTJALD í garðinn m. 4 súlum 1.40 m á hæð og 6 m langt aðeins T I L B O Ð 4 DUKDALF Relax sólstóll Æk TILBOÐ 5 á ollum skóm DEMON gönguskórRSI 2.500 \ Daíwa Veiðivörur GÓNGUSKOR SÓLHÚSGÖGN BAKPOKAR FATNAÐUR SVEFNPOKAR SÓLTJÖLD VEIÐIVÖRUR... • •• þar scm ferdalagád byrjar! ;RÐIN EYJASLOÐ 7 101 REYKJAVIK S. 91 -621 780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.