Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.07.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ1994 31 öðru fólki og guði. Og ég er sann- færður um að guð fylgdist gaum- gæfilega með þessum umræðum. Huldar vættir ljóssins voru fundar- gestir á Reykjanesvita þær stundir. Ég hef semsagt misst góðan vin. Samt fmnst mér ekki tilefni til að barma sér. Allt sem tengist Ósk- ari Aðalsteini er svo óendanlega fjarri öllu því sem kallast getur sorg eða sút. Þvert á móti var hann og er fulltrúi lífsins og ljóssins. Og hann mun lifa áfram í hugum þeirra sem nutu samvista við hann skamma stund. Grétar Kristjónsson. Óskar Aðalsteinn, rithöfundur og vitavörður, er látinn. Hann var ná- granni minn og vinur frá því hann og Hanna kona hans fluttust á Reykjanesvita. Óskar naut leiðsagn- ar og kennslu hjá Guðmundi Hagal- in rithöfundi og í nokkur ár var hann aðstoðarbókavörður hjá hon- um við bókasafnið á ísafírði. Fyrsta bók Óskars kom úr 1939 en tveimur árum síðar kom út Grjót og gróður, athyglisverð og raunsönn lýsing á lífi fátæks verkamanns í litlu sjávarþorpi. 1947 varð Óskar að yfírgefa ísafjörð og flytja að Hornbjargsvita. Um þennan kafla í lífí Óskars fjallar allýtarlega ein besta bók hans, Lífsorusta. Síðar fluttist hann á Galtarvita og þaðan til Reykjanesvita. Síðustu árin bjuggu Óskar og Hanna í Reykja- vík. Á ísafirði hafði Óskar tekið virkan þátt í félagslífi; í leikfélagi staðarins og KFUM. Óskar var skemmtilegur heim að sækja. Vel að sér í bókmenntum og hleypidómalaus í garð annarra rit- höfunda og á framgangi þjóðmála hafði hann mikinn áhuga, svo og á sálarrannsóknum. Við hjónin sökn- uðum þeirra Óskars og Hönnu þeg- ar þau fluttu héðan af svæðinu. Enginn er ég spámaður. En mér kæmi ekki á óvart að sumar bækur Óskars ættu eftir að lifa betur en ýmsar þær sem nú er hossað af bókmenntaspírum. Hönnu og öðrum aðstandendum sendum við hjónin okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hilmar Jónsson, rithöfundur. Nú er til moldar borinn Óskar Aðalsteinn, skáld og vitavörður. Ég átti þess kost að kynnast honum litla stund, er ég heimsótti hann í vitann suður á Reykjanesi, þar sem förunautur hans, Valgerður Hanna Jóhannsdóttir, annaðist umsýslu. Óskar var kurteis maður, glaðvær, kom víða við í orðræðu sinni, en það fann ég fljótt að þótt hann væri góðviljaður og legði aldrei illt til náungans, þá var hann glöggskyggn og sá vel löst og kost á hverjum manni. Óskar Aðalsteinn var eins og sönnu skáldi sæmir frábitinn yfir- borðsmennsku og því upphafna skrumi, sem annarlegir tímar hafa stundum sveipað rithöfunda sína. Hann unni kyrrðinni, kaus að lifa fjarri ysnutn, gaf gaum að blæbrigð- um landsins og skynjaði að þar býr fleira en sýnist. Óskar Aðalsteinn var heiðursfé- lagi í Félagi íslenskra rithöfunda, og má hafa það ásamt öðru til marks um að hann var of góðfús, of skarpskyggn til þess að láta glepj- ast af þeirri helstefnu aldarinnar, sem ánetjaði um skeið helst til marga íslenska rithöfunda og dró þá til stuðnings við ofbeldi og glæpaverk. Hann var í hópi þeirra hugrökku drengskaparmanna, sem aldrei misstu sjónar af muninum á góðu og illu, og þó hann hafi vafalaust goldið þess í ýmsu, hvikaði hann aldrei frá trú sinni á lýðræði, frelsi og mannréttindi. Nú er hann genginn, en verk hans lifa, ljóð og sögur, dýrmætur vitnisburður um hugsun, mannlíf og aldarfar með lítilli þjóð á tímum stófelldra breytinga. Ástvinum hans og ættingjum votta ég einlæga sam- úð. Baldur Hermansson, formaður FÍR. JÓHANN J. JAKOBSSON + Jóhann J. Jak- obsson , efna- verkfræðingur, var fæddur 9. maí, 1920, á Finnsstöð- um í Höfðahreppi, A-Hún. Hann and- aðist í svefni að morgni 6. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jakob Jens Jóhannsson, bóndi á Finnsstöð- um og síðar að Spá- konufelli, og kona hans Emma Pálína Jónsdóttir, hús- freyja s.st. Systkini Jóhanns eru: Jón S., f. 1918, d. 1991; tvíburabróðir Jóns var Árni, en hann lést aðeins fárra ára gam- all; Ástríður, f. 1917, lést 1980. Árni Björn, f. 1924 og býr nú á Ítalíu. Hinn 17.júlí 1948 kvæntist Jóhann Láru Ólafsson, f. 20.2. 1924, og eru börn þeirra: 1) Birna Jakobína, f. 30.1. 1949. 2) Lárus Jóhann, f. 29.1. 1954. 3) Jakob Páll, f. 19.6. 1957, búsettur í París. Jóhann átti son fyrir hjóna- band, Reyni Hlíðar, 6.11. 1946, prentara í Reykjavík, og stjúp- dóttir hans, og dóttir Láru, frá fyrra hjónabandi hennar, er Stella Jóhanna Margeson, f. Klinker, f. 11.3. 1945, hjúkrun- arkona, sem búsett er í Banda- ríkjunum. Jóhann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akur- eyri 1941. Hann stundaði sér- fræðinám í efnaverkfræði við University of Minneapolis í Bandaríkjunum, og lauk þaðan prófi í efnaverkfræði árið 1944. Hann stundaði framhaldsnám í analýtískri efnafræði í Dan- mörku árið 1954 og í olíurann- sóknum í London árið 1955, ennfremur í notkun geisla- virkra ísótópa í iðnaði í Banda- ríkjunum 1959. Árið 1955 starf- aði hann sem efnaverkfræðing- ur hjá bandarísku félagi, en í lok þess árs réðst hann til At- vinnudeildar Háskólans sem efnaverkfræðingur og varð deildarstjóri þar árið 1961. Sama ár stofnaði hann eigin verkfræði- og efnarannsókna- stofu, Fjölver hf. í Reykjavík, og starfaði þar eingöngu frá árinu 1971. Hann var fram- kvæmdastjóri Kjarnfræða- nefndar Islands 1962-64, for- stöðumaður Almannavarna rík- isins 1964-68 og var yfirverk- fræðingur og síðar verksmiðju- sljóri Sementsverksmiðju ríkis- ins 1969-71. Hann var í At- vinnumálanefnd ríkisins 1955- 1963. Útför Jóhanns fer fram frá Fossvogskirkju í dag. Kveðjuorð JÓHANN Jakobsson, efnaverk- fræðingur, vaknaði ekki aftur til þessa lífs að morgni 6. þessa mán- aðar. Þannig er lífíð stundum, að hverfulleikinn er á næsta leiti, þótt menn kenni sér ekki meins, þegar gengið er til hvílu að kveldi. Við höfðum verið vinir og félagar á margvislegan hátt á ævigöngunni allt frá því við kynntumst í Mennta- skólanum á Akureyri fyrir meira en 50 árum síðan. Hans er nú sakn- að af stórum hópi vina og kunn- ingja, sem nutu starfa hans og fag- þekkingar á langri leið. Þótt hann gegndi margvíslegum störfum, m.a. á opinberum vett- vangi, varð þó aðalstarf hans á sviði hagnýtrar verkfræði- og efna- rannsókna, en á því sviði stofnaði hann og rak efnarannsóknarstof- una Fjölver hf., sem hann stofnaði 1961, en þar gerðist hann sam- starfsmaður og aðaltrúnaðarmaður olíufélaganna allra, sem Ieituðu til hans með hin margvíslegustu verk- efni, auk þess, sem allir sem þurftu á slíkri þjónustu að halda gátu jafn- an leitað til hans sem hlutlauss aðila í hvers konar vandmálum. Það má segja, að frá því fyrir 1960 og síðan hafi hann verið sá, sem bar hma raunverulegu ábyrgð á að allar olíu- vörur, sem fluttar voru til landsins, stæðust þær tæknilegu kröfur, sem gerðar eru til elds- neytis fyrir flugvélar, skip og hvers konar iðnað í landinu, svo og fyrir smurningsolíur og alls kyns sérvörur í tengslum við starfsemi olíufélag- anna og annarra. Hann var ávallt mjög samvizku- samur í störfum sínum, og niður- stöður hans og skýrslur nutu viður- kenningar og virðingar hjá þeim, sem á þjónustu hans þurftu að halda. Því var það, að það tókst sérstakt og ánægjulegt samstarf milli hans og íslenzku olíufélaganna við uppbyggingu og rekstur efna- rannsóknarstofu, þar sem sameig- inlega var unnið að uppbyggingu fullkominnar rannsóknaraðstöðu fyrir olíuvörur og aðrar rannsóknir. Ólíufélögin þurftu á þessari þjón- ustu og fyrirgreiðslu að halda og fengu það til baka, sem um var beðið, svo að aldrei bar þar nokk- urn skugga á. Fyrir það samstarf allt ber nú að þakka. Jóhann hafði verið við beztu heilsu, og í gamni heitið því að verða 100 ára. Þetta minnti mig á hina frægu heitstrengingu Stein- gríms, læknis, Matthíassonar Joch- umssonar á ungmennafélagsþing- inu á Akureyri, víst 1912, sem hafði heitið því sama, en bætti því við, „en falla dauður ella.“ Nú hefir það sama hent vin minn Jóhann. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn, að aldrei deyr: dómur um dauðan hvem. Skyndilegt fráfall ástvinar skilur eftir sig stórt sár, sem tíminn einn fær læknað. Við hjónin sendum Láru og allri fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Önundur Ásgeirsson. Þegar sumarið skartaði sínu feg- ursta og miðnætursólin skein hvað skærust kaus Guð að kalla þig til sín, svo óvænt. Á þeim tímum þegar kvöldið er varla kvöld, og nóttin ekki nótt, heldur virðist aðeins dagur. Eins og miðnætursólin sem ekki gengur til viðar, mun minning þín ávallt skína í huga mér. Guð blessi minningu þína. Þinn sonur, Lárus Jóhann. Á björtu og fögru sumarkvöldi lagðist afi til hvílu, lét aftur augun og sofnaði í hinsta sinn. Margar minningar streyma um huga manns eftir margar og góðar samveru- stundir með afa. Hann var alltaf hress og hraustur á líkama og sál, traustur sem klettur og alltaf tilbú- inn að ræða málin ef eitthvað bját- aði á. Afi hjálpaði mér mikið með skóla- nám mitt. Alltaf var hægt að leita til hans með stærðfræðina og var hann að rnínu áliti sá besti stærð- fræðikennari sem völ var á, hann var þolinmóður, fór hægt yfir efni og vildi sjá árangur. Afi vildi hafa nóg fyrir stafni og þegar hann hætti að vinna tók margt við, matseld, göngutúrar, sund og ferðalög að ógleymdri veið- inni. Þegar afi fór í ferðalög til Frakk- lands var mjög tómlegt í Stekkjar- hvamminum, en þegar hann kom heim var gleðin tekin á ný með skemmtilegum ævintýrasögum frá afa í Frakklandi, en svo verður ekki aftur, nú hefur afi farið í ferða- lag í annan heim þar sem Guð mun vernda hann. Elsku afi minn, ég kveð þig með söknuði og þakklæti. Lífið sem við fáum að láni er stutt, en minningin um líf sem vel var varið er eilíf. Guðbjörg Lárusdóttir. Elsku afi minn er dáinn. Upp koma minningar um liðna tíð og man ég þegar ég kom í heimsón til hans, hvað hann hló dátt og klappaði á öxl mér og sagði: „Nei, mikið ertu orðin stór.“ Síðan fór hann í nammikrúsina sína og náði í súkkulaði. Ég bið algóðan Guð að varðveita afa minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Blessuð sé minning þín. Lára Kristjana Lárusdóttir. Þegar við kveðjum afa okkar er margt sem kemur upp í hugann. Hann var ekki sá dæmigerði afi sem sest í helgan stein og tekur lífinu með rÓ. Afí okkar var fullur lífsorku og þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Hestar komu þar mikið við sögu og átti hann nokkra góða gæðinga sem hann eyddi tíma sín- um með, einkum þó Bjarti. Einnig stundaði hann leikfimi, fór í sund og las bækur, og ræktaði þannig bæði líkama og sál. Afi átti margar góðar stundir í gróðurhúsinu sínu þar sem hann sat á góðvirðisdögum og baðaði sig í sólskininu. Alltaf fengum við hlýjar móttök- ur þegar við komum í heimsókn, súkkulaði og klapp á öxlina. Og brosið var aldrei langt undan, afi var gamansamur í meira lagi og átti auðvelt með að koma öllum í gott. skap. Með sanni má segja að hann hafí verið hrókur alls fagnað- ar hvar sem hann kom. En öllu gamni fylgir einhver alvara og afi hafði alltaf ráð undir rifi hveiju. Hann var mjög vitur maður og hafa margir í fjölskyldunni leitað til hans um góð ráð og hjálp við heimalærdóminn. Hafði hann af þessu mikið gaman. í seinni tíð lagði hann ósjaldan land undir fót og ferðaðist til ann- arra landa. Þar var Frakkland oft efst á lista og kannski eitt af hans mestu áhugamálum. Þess má geta að afi talaði mjög góða frönsku og var stoltur af. Eitt var það sem aldrei mátti vanta hjá afa, en það voru fréttirn- ar og saltstangirnar, skolað niður með svörtu kaffi og mola. Að því loknu var bollanum hvolft á undir- skálina, en það gerði hann svo hann gæti gengið að bollanum sínum vís- um. Þó afi sé ekki staddur hér hjá okkur lengur, þá verður hann ávaílt með okkur og passar upp á að við förum gætilega eins og svo oft var hans síðasta kveðja. Blessuð veri minning hans. Magnús Már, Jóhann Þór, Sigríður og Þór. Andlát Jóhanns Jakobssonar kom á óvart þar sem hann var ávallt svo þróttmikill, enda átti hann því láni að fagna, að vera alla tíð heilsu- góður. Jóhann var giftur móður- systur minni og sótti ég alla tíð mikið tii þeirra og var alltaf tekið opnum örmum. Eftir að ég eignað- ist fjölskyldu var hún jafn velkomin og ég og þau hjón í miklu uppá- haldi hjá dætrum mínum. Jóhann ól upp Stellu Jóhönnu dóttur Láru frá fyrra hjónabandi. Hún er núna búsett í Bandaríkjunum, en við vor- um mikið saman á okkar yngri árum og góðar vinkonur og erum enn. Seinna lágu leiðir okkar Birnu saman og er hún í dag ein af mín- um bestu vinkonum. Á mannamótum var Jóhann hrókur alls fagnaðar og minnist ég 60 ára afmælis hans sem er ein af skemmtilegustu afmælisveislum sem ég hef farið í. Árið 1961 stofnaði Jóhann Fjöl- ver, verkfræði- og efnarannsókna- stofu, sem m.a. sér um rannsóknir á bensíni og olíu þegar það kemur til landsins og er eftir því sem ég best veit ein sinnar tegundar hér á landi. Jóhann var alla tíð mikill at- hafnamaður. Var hann einn af frumkvöðlum að stofnun Stálfé- lagsins og sat í fyrstu stjóm þess. Einnig stofnaði hann ásamt fjöl- skyldu sinni fyrirtækið Nyco, en það framleiddi m.a. íslenska ilmvatnið „Mont Bleu“. Hann var mikill útilífsmaður og átti um árabil hesta sem hann hafði mikið yndi af. Síðustu árin var hann að kynna alþjóðasamtökin „Servas“ sem hafa móttöku erlendra ferðamanna og gagnkvæma gestrisni að aðal- markmiði. Geta meðlimir Servas þegið erlendis sömu þjónustu og þeir hafa látið í té hér heima. Var Jóhann mjög ötull í þessum samtök- um og heimsótti meðlimi þeirra í Frakklandi. Með þakklæti mínu og fjölskyldu minnar kveðjum við Jóhann og sendum fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur. Rannveig Gísladóttir. Mánudaginn 4. júlí mætti Jóhann Jakobsson aftur til starfa í sitt gamla fyrirtæki, Fjölver hf., nú til sumarafleysinga. Útitekinn, sælleg- ur og í sama góða forminu, sem einkennt hafði hann þau rúmlega 10 ár, sem samstarf okkar stóð. Greinilegt var að Jóhann naut þess að byija aftur og endurnýja kynni við starfsmenn og viðskiptamenn stofunnar. Á þriðjudeginum spurði hann mig hvort hann mætti ekki hefja vinnu fyrr á morgnana, þar sem hann vaknaði snemma og iðaði í skinninu að hefjast handa. Það var að sjálfsögðu auðsótt mál. Þeg- ar ég mætti til vinnu daginn eftir var Jóhann ekki mættur og skýring- in sú, er síst hefði komið okkur, sem unnum með honum þessa tvo daga í hug, að Jóhann hafði orðið bráð- kvaddur um nóttina. Jóhann lauk námi í efnaverk- fræði frá Minnesota-háskóla 1944 og hóf síðan störf hjá iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans strax eft- ir heimkomuna 1945 og starfaði þar til 1961. Árið 1962 stofnaði Jóhann efna- rannsóknastofuna Fjölver. Þótti það djarft teflt, þar sem slík starfsemi hafði verið einokuð af ríkisstofnun- um, sem reyndust ekki alltaf vera auðveldustu samkeppnisaðilarnir. Starfsemin þróaðist í þá átt að olíu- félögin urðu stærstu viðskiptavin- irnir og árið 1983 varð að sam- komulagi milli Jóhanns og olíufé- laganna að hinir síðarnefndu keyþtu starfsemina. Þá hófst sam- starf okkar Jóhanns. Ég var nýkom- inn frá námi og réðst til starfa hjá Fjölveri hf. Það var góður skóli að hefja starf hjá slíkum brautryðj- anda sem Jóhann var. Skipuleg vinnubrögð voru hans aðal. Hann var hamhleypa við vinnu, margar rannsóknir í gangi í einu og afköst mikil. Öll verkefni tekin með áhlaupi. Jóhann miðlaði mér af ára- tugalangri starfsreynslu sinni og allt okkar samstarf reyndist mér ómetanlegur skóli. Frá tíu ára sam- starfi er margs ánægjulegs að minnast og ofarlega eru mér í huga margir fjörugir kaffitímarnir þar sem þjóðmálin voru rædd, Jóhann hafði yfirleitt ákveðnar skoðanir og lá ekki á þeim og ekki hvað síst þegar athafnir stjórnmálamanna áttu í hlut. Ég sendi Láru og fjölskyldunni mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið Jóhanni vini mínum Guðs blessunar. Ragnar Jóliannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.