Morgunblaðið - 14.07.1994, Page 9

Morgunblaðið - 14.07.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ1994 9 AKUREYRI Nýskipað Héraðs- ráð Eyjafjarðar Á FUNDI Héraðsnefndar Eyjafjarð- ar í gær var skipað nýtt Héraðsráð. Oddviti Héraðsráðs var kjörinn Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Aðrir í Héraðs- ráði eru Þórarinn E. Sveinsson, Ak- ureyri, Rögnvaldur Skíði Friðbjörns- son, Dalvík, Birgir Þórðarson, Eyja- ijarðarsveit, og Jónas Vigfússon, Hrísey. Á fundi Héraðsnefndar var kosið í íjölmargar nefndir og fjallað um nokkur mál, meðal annars hugmynd- ir um kynningar- og markaðsskrif- stofu Eyjaíjarðar. Að sögn Guðnýjar Sverrisdóttur er ætlað að meginhlut- verk skrifstofunnar verði að vera sameiginiegt afl héraðsins til að finna leiðir til að laða ferðafólk að og jafnvel að hafa forgöngu um og styðja þá sem hyggjast koma á fót starfsemi sem því tengist. Ekki hefur ríkt einhugur meðal sveitarfélaganna um tilhögun eða starf skrifstofunn- ar, en Héraðsnefnd ákvað að skipa þriggja manna nefnd til að semja endanlegar tillögur þess efnis Barnaverndarnefndir og sameiginlegir kjarasamningar Á fundinum voru samþykktar til- lögur um að stefnt skuli að því að sveitarfélög í Eyjafirði standi sam- eiginlega að kjarasamningum starfs- manna og að skipuð skyldi þriggja manna nefnd til að gera illögur um skipan barnaverndarnefnda og fé- lagsmálanefnda í Eyjafirði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hin björtu ÍBÚAR í tveimur nýjum og stór- um íbúðarhúsum aldraðra við Líndarsíðu á Akureyri munu geta gengið um björt bogagöng, hvort sem leið þeirra liggur milli húsanna eða yfir í félagsmiðstöð þeirra í kjallara Bjargs, húss Sjálfsbjargar. Félagsmiðstöðin verður þar sem áður var Plastiðj- an Bjarg. Göngin eru gerð úr límtrésbogum og klædd plexi- gleri. Botn þeirra er hellulagður og þar eru lág og smekkleg ljós- ker, sem nýtast munu þegar ekki er lengur dagbjart allan sólar- hringinn. Átaki hrint af stað til að græða upp Hólasand Hagkaup leggur fram fé til uppgræðslunnar AHUGAHOPUR um uppgræðslu Hólasands norðan Mývatns mun á föstudaginn kemur hrinda af stað átaki til að græða upp sandinn, sem lengi hefur verið örfoka eyði- mörk. Að því tilefni verður efnt til dagskrár við Sandvatnsbrekku, öðru nafni Blöndalsbrekku, við Kísilveg^ og hefst hún klukkan 13.00. Ýmsar stofnanir og fyrir- tæki styðja þetta mikla land- græðslustarf ljárhagslega. Árni Sigurbjarnarson á Húsa- vík, einn talsmanna áhugahópsins, segir að hér sé um risaverkefni að ræða í uppgræðslu örfoka lands. Hólasandur sé eyðimörk sem sé afmörkuð af grónu landi á alla vegu. Þetta mikla landflæmi hafi áður verið gróið, en menn séu ekki á einu máli um það hvenær það eyddist. Kenningar séu til um að það hafi orðið í kjölfar eldsum- brotanna 1725. Sé svo megi telja þetta tiltölulega unga eyðimörk. Þarna sé enn mikil og hraðfara eyðing í austuijaðri svæðisins og meðan sandurinn sé ógróinn ógni hann gróðri á Reykjaheiði og í Kelduhverfi. Mökkur leggist yfir og allt verði dimmt í moldroki í suðvestanátt. Forgangsverkefni Árni sagðist telja að upp- græðsla Hólasands væri forgangs- verkefni, að hindra frekari jarð- vegseyðingu og græða landið. Yrði þetta ekki gert ógnaði það bæði byggð og búskap á þeim slóðum sem þetta land jyki nú yfír. Upp- græðsla sandsins yrði óefað til góðs öllum sem í grennd við hann búa. Meðal þess sem gert verður til að stöðva fok og græða Hólasand er að stinga niður rofabörð og sá melfræi þar sem hreyfingin á sandinum er mest og að sögn Árna er hugmyndin að vinna að endurheimt landsins með lúpínu og gróðureyjum. Það séu taldar einu færu leiðirnar til að græða upp þetta mikla svæði, en kostnað- ur við að sá fræi og dreifa áburði sé miklu meiri en svo að ráðið verði við það. Landgræðslan og Skógrækt ríkisins komi til með að vinna þetta verk að mestu. 10 áraáætlun Árni sagði að menn væru bjart- sýnir og gæfu sér tíu ár til að koma gróðri í þetta 140 ferkíló- metra land og með því verði endur- heimt landsins komiu á góðan rek- spöl. Verkefnið sé vissulega stórt, en njóti stuðnings víða að. Meðal annars komi stuðningur frá skóg- ræktarfélögum í Noregi, sem telji þetta stórmerkilegt verkefni. Með- al innlendra stuðningsaðila nefndi Árni íslandsbanka og einnig hefði Hagkaup ákveðið að styðja verkið myndarlega. Á föstudaginn verða land- græðsluaðgerðir kynntar við Sandvatnsbrekku og þar munu formaður Skógræktarfélags Suð- ur-Þingeyinga, landgræðslustjóri og landbúnaðarráðherra flytja ávörp og Óskar Magnússon for- stjóri mun afhenda framlag það sem Hagkaup hefur ákveðið að til verksins. □ERTZEN STORVIRKAR HÁÞRÝ STIDÆLUR FRÁDERTZEN Getum boðið þýsku OERTZEN háþrýstidælurnar fyrir verktaka og aðra aðila, sem þurfa kraftmiklar dælur, t.d. til húsahreinsunar, skipahreinsunar og sandblásturs. Dælur og dælustöðvar fyrir sjávarútveginn. Sérstakar rörahreinsidælur sem losa og hreinsa úr stífluðum rörum. Listasumar ’94 Gítartónleikar Arnaldar Arnarsonar í kvöld Á tónleikum Gítarhátíðar á Akureyri og Listasumars ’94 í Akureyrar- kirkju í kvöld klukkan 20.30 leikur Arnaldur Arnarson gít- arleikari fjölbreytta dagskrá tón- listar. Arnaldur starfar við kennslu og tónleikahald í Barcelona á Spáni en hefur iðulega haldið tón- leika hér á landi. Tvívegis hefur hann verið kennari á Gítarhátíð á Akureyri. Djass á Karólínu Djassklúbbur Listasumars ’94. Djass á Karólínu. Ólafur leikur á kontrabassa en auk hans leika í tríóinu Þorsteinn Eiríksson á trommur og Jóhann Kristinsson á píanó. Ragnheiður Ólafsdóttir mun syngja með tríóinu í kvöld. Söngvaka í Minjasafns- kirkjunni í kvöld klukkan 20.30 verður söngvaka í kirkjunni við Minja- safnið á Akureyri. Þar koma fram Rósa Kristín Baldursdóttir og Þórarinn Hjartar- son. Þau kynna og flytja dagskrá með perlum íslenskrar sönglistar fyrr og nú. Minjasafnið á Akureyri er opið til klukkan 22.30 á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum í tengslum við Söngvöku í gömlu kirkjunni. VKSBSBv Neðs,við I M ^ Dunhaga, s: 622230 Opiö virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags íslands n / VIB er nýr rekstraraðili Lífeyrissjóðs / Tæknifræðingafélags Islands Verðbréfamarkaður Islandsbanka hf. hefur tekið við rekstri Lífeyrissjóðs Tæknifræðingafélags Islands frá og með 1. júlí 1994. Nýtt heimilisfang sjóðsins er: Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Islands, Ai'múla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 91 - 608 900. Myndsendir: 91 - 608 910. Framkvæmdastjóri: Gunnar Baldvinsson. Verið velkontin á skrifstofu Lífeyrissjóðs Tæknifræðingafélags íslands hjá VÍB. VlB L J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.