Morgunblaðið - 14.07.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 11
Marinó Freyr Sigurjóns-
son og Bjarni Már Svav-
arsson.
Líf og fjör
á hjól-
reiðahátíð
Hvolsvelli - Hjólreiðahátíð
VÍS á Hvolsvelli fór vel fram
í þokkalegasta veðri fyrir
skömmu. Nokkur mótvindur
setti strik í reikninginn hjá
keppendum í ,,Tour de Hvols-
völlur", Islandsmeistara-
keppninni í götuhjólreiðum.
íslandsmeistari varð Bjarni
Már Svavarsson á 4 tímum,
14 mín. og 32 sek.
Magnús Scheving, þolfimi-
kappi, var heiðursgestur á
hátíðinni, keppti hann 'í tor-
færuhjólreiðum við sveitar-
stjóra Hvolhrepps, ísólf Gylfa
Pálmason, og varð sjónarmun
á undan. Þá skemmti hann
gestum hátíðarinnar með
gamanmálum og sýndi þolfimi
við mikla hylli, sérstaklega
yngstu kynslóðarinnar.
Á laugardagskvöldinu fór
fram kvöldvaka þar sem m.a.
var keppt í rúningu. Voru
hárgreiðslumeistarar bæjar-
ins dómarar og fengu kepp-
endur rakspíra og klippingu í
verðlaun. Á sunnudeginum
gátu þátttakendur farið í
ýmsar hjólreiðaferðir. Var
m.a. farið inn í Þórsmörk að
Tumastöðum og svo var keppt
í fjallahjólreiðum, Hvolsvöll-
ur-Krappi-V atnsdalur-Hvols-
völlur. Þar sigraði Haraldur
Vilhjálmsson á 2 tímum og 9
mín.
Líflegt í
Hólminum
um helgina
Stykkishólmi - Það var líf-
legt í Hólminum um síðustu
helgi, en þá heimsótti fjöldi
manns bæinn og nóg að gera
á veitinga- og gististöðum.
Svo var heil tjaldborg í út-
jaðri bæjarins á tjaldstæðun-
um þar, um 40 tjöld þegar
mest var.
Margir gestanna notfærðu
sér góða veðrið t.d. með því
að fara með Eyjaferðum út
um eyjasund og skoða nafn-
fræga sögustaði og eyjalíf,
enda góður maður til að segja
frá. Gestir voru alls staðar
að af landinu og einróma um
að helgin hafi heppnast vel.
Það voru líka ánægðir gestir
sem notuðu sér ferð Baldurs
yfir Breiðafjörð, en hann fór
6 ferðir um helgina.
Sannkallad fólksbílaverö!
Staðalbúnaður I
Daihatsu Feroza
94
Vökvastýri
Læst afturdrif
Driflokur
Veltistýri
Stafræn klukka
Hallamælir
Voltmælir
Bensínlok
opnanlegt innanfrá
Hiti í afturrúðu
Þurrka á afturrúðu
Litað gler
Veltibogi
Aftursætisbak fellanlegt
og skipt
o. m. fl.
Reynsluakstur!
Bíll á staðnum til reynsluaksturs
50% afsláttur af
lúxuspakka fyrir þá
sem panta fyrir 31.
júlí '94. Innifalið I
þeim pakka er:
Rafknúnar rúður
Rafknúnir speglar
Samlæsing
Þriggja þrepa demparar
Sportsæti með plussáklæði
Sjálfvirkar driflokur
Tvílit yfirbygging
Áður: 50.000 kr.
nú: 24.900 kr.
A
IMotaðir
bílar
teknír
uppí nýja
FAXAFENI 8 • SIMI 91- 68 58 70