Morgunblaðið - 14.07.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 17
LISTIR
A------------------
Flemming- Nielsen opnaði ljósmyndasýningu í Stykkishólmi.
Þórður sýnir
í Arnarbæ
ÞÓRÐUR Halldórsson frá
Dagverðará heldur málverkasýn-
ingu-í Amarbæ á Arnarstapa 15.
til 31. júlí. Þetta er 12. einkasýn-
ing listamannsins. Að venju kenn-
ir margra grasa á málverkasýn-
ingu Þórðar en þar verður á þriðja
tug mynda. Þórður einnig hefur
tekið saman ljóðmæli sín í litla
bók og verður hún til sölu á sýn-
ingunni. Þórður skemmtir jafn-
framt gestum og gangandi á
kvöldvökum sem haldnar verða í
Arnarbæ vikuna 17. til 23. júlí.
Þar gefst gestum kostur á að
hlýða á hann segja Snæfellskar
furðusögur frá horfínni tíð.
Gunnar
sýnir í
Stykkishólmi
Stykkishólmi - Nú stendur yfir
í Stykkishólmi sýning á verkum
Gunnars Gunnarssonar myndlist-
arkennara við Grunnskólann í
Stykkishólmi. Gunnar útskrifað-
ist úr kennaradeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1986.
Hann hefur haldið nokkrar einka-
sýningar og átt myndir á samsýn-
ingum. Á sýningunni eru 9 mynd-
ir flestar nýmálaðar og er mynd-
efni fjölbreytt.
Reinhild
Patzelt í
Gallerí Umbru
ÞÝSKA myndlistarkonan Rein-
hild Patzelt opnar í dag fimmtu-
dag sýningu á málverkum á papp-
ír í Gallerí Úmbru, Amtmannsstíg
l.Reinhild bjó um nokkurra ára
skeið hér á landi, fyrst við störf
en lauk svo námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið 1976
úr grafíkdeild. Framhaldsnám
stundaði hún í heimalandi sínu
til 1980 Reinhild gerir myndirnar
með blandaðri tækni, málar á
pappír með olíulitum og notar
ýmiss konar þrykktækni. Rein-
hild hefur haldið fjölda sýninga,
bæði í Þýskalandi og víðar. Þetta
er önnur sýning hennar á Ís-
landi. Sýningjn stendur til 3. ág-
úst og er galleríið opið síðdegis
þriðjudaga til laugardaga kl.
13-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Mánudaga er lokað.
Ljósmyndasýn-
ing í Hólminum
Stykkishólmi - Flemming Niels-
en ljósmyndari hefur opnað ljós-
myndasýningu í Stykkishólmi,
þar _ sem hann sýnir ljósmyndir
frá íslandi og Danmörku. Á sýn-
ingunni eru einnig tvær ljós-
myndir Guðmundar P. Qlafssonar
líffræðings. Flemming er fæddur
í Danmörku og gekk í Árhus
Tegneskole þar sem hann stund-
aði nám. Hann flutti síðan til
íslands fyrir tveimur árum ásamt
konu sinni Sólborgu Olgu Bjarna-
dóttur og eru þau búsett í
Stykkishólmi.
Ingibjörg hjá
Sævari Karli
INGIBJÖRG Eyþórsdóttir sýnir í
Galleríi Sævars Karls 15. júlí til
4. ágúst.
Ingibjörg hefur tekið þátt í
tveimur sam-
sýningum og
haldið tvær
einkasýningar.
Verkin á sýn-
ingunni eru
íjögur málverk,
unnin með olíu,
módellakki og
blýanti á
striga. Sömu form í sömu litum
eru notuð aftur og aftur, en þau
sett á mismunandi bakgrunn eða
í mismunandi samhengi. Ingi-
björg segir hugmyndafræðilegar
ástæður meðvitað fyrir því að hún
velji nákvæmlega þessi form, en
þau leiti alltaf á sig. Af hveiju
viti hún ekki og langi ekki að
skilgreina fyrir sjálfri sér hvers
vegna.
Sýningin er opin á verslunar-
tíma á virkum dögum frá kl.
10-18.
Hafinu vel tekið í Bonn
LEIKFLOKKUR Þjóðleikhússins fyrir utan Borgarleikhúsið í
Bonn, þar sem hann sýndi leikritið á Ieiklistarhátíð helgaðri evr-
ópskri nútímaleikritun.
LEIKÁRI Þjóðleikhússins lauk
með sýningu á leikriti Ólafs Hauks
Símonarsonar Hafinu á leiklistar-
hátíð í Bonn í Þýskalandi. Hér var
um að ræða evrópska leiklistarhá-
tíð, Bonner Biennale, sem haldin
er annað hvert ár og hefur það
að aðalmarkmiði að kynna verk
núlifandi evrópskra leikskálda.
Hafið var sýnt einu sinni í Borg-
arleikhúsinu í Bonn fyrir fullu
húsi og við góðar viðtökur áhorf-
enda. Á eftir sýningunni voru
umræður, þar sem leikhúsgestum
gafst kostur á að spyija höfund,
leikstjóra og leikendur spjörvnum
úr.
Umsagnir um sýningu Þjóðleik-
hússins hafa birst í ýmsum þýsk-
um blöðum og eru yfirleitt lofsam-
legar. Gagnrýnendur ræða nokkuð
um hversu hefðbundið verk Ólafs
sé í forminu og telja það verkinu
ýmist til lofs eða lasts.
Lofsamleg orð um leikarana
Leikarar Þjóðleikhússins fá
hvarvetna góða dóma fyrir leik
sinn. Gagnrýnandi Bonner
Rundschau fer lofsamlegum orð-
um um leikarana með Helga
Skúlason fremstan í flokki og líkir
efnistökum höfundar við höfunda
á borð við Strindberg, O’Neill og
Albee. Hann segir verkið vel byggt
og það bjóði upp á góð hlutverk.
Gagnrýnandi Bonner Stadtanzei-
ger virðist eiga erfitt með að
flokka leikritið og segir að þar
svífi andi bæði Noels Cowards og
Eugenes O’Neills yfir vötnum.
Hann lýkur miklu lofsorði á leik
leikaranna. Lang lofsamlegasta
gagnrýnin birtist í hinu virta blaði
Kölner Stadt-Anzeiger, þar sem
segir að höfundurinn hafi fullkom-
lega á valdi sínu listina að byggja
upp spennu og láta hlutina gerast
á nákvæmlega réttum augnablik-
um. Hann segir ijölskylduátök og
eijur veksins minna á grimmileg
átök íslensku fornsagnanna. Eins
og margir sem um verkið fjölluðu
segir hann það hefðubundið að
formi til en lýkur umsögn sinni á
þeim orðum að hvað sem hver
segi þá sé það staðreynd að leik-
húskvöld sem á yfirborðinu virðist
í ósköp hefðbundnum stíl, en sé
jafn spennandi og geti sagt sögu
á jafn átanklega fyndinn hátt og
hér varð raunin á, sé nokkuð sem
Þjóðveijar séu næstum búnir að
gleyma að sé unnt að gera í leik-
húsi.
3.900,-
Agen stóll, ýmsir litir
> Vi6 sitjum ekki
á verðimi
-fyrir fólkið
í landinu
KKINGLUNNl 7 • StMI 91-686660
Gleymdu ekki að innleysa
spariskírteinin þín
10. júlí 1994 er gjalddagi spariskírteina úr 2. fl. D 1989.
Þeir sem gleyma að innleysa tapa bæði vöxtum og verðbótum.
Landsbréf hf. annast innlausn spariskírteina.
Leitaðu ráðgjafar hjá Landsbréfum og umboðsmönnum í Landsbanka íslands um allt land.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavlk, slmi 91-889200, fax 91-888598
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi Islands.
AUKhf/SÍAkl 17011-188