Morgunblaðið - 14.07.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.07.1994, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR rótin að þeim óvinsældum. Þetta tímabil varð mikil reynsla fyrir stjórnmálamenn sem þar komu nærri. Það er örugglega mun auðveldara hlutskipti að vera vinsæll stjórnmálamaður en óvin- sæll. Jafnvel þótt maður átti sig nú ekki beinlínis á þeim mæli- kvarða sem notaður er til „vin- sældamælinga". Mótlæti Það er við mótlæti sem á mann- inn reynir. Ríkisstjórnin hefur þrátt fýrir mótlæti og óvinsældir ekki gefist upp heldur tekið á vandanum með framtíðarheill þessarar þjóðar í huga. Þrátt fyrir erfítt árferði, minnkandi þjóðar- tekjur og lítinn hagvöxt hefur hún náð árangri með lækkun vaxta og lágri verðbólgu. Þetta er afrek! Hvers vegna þá að gefast upp áður en kjörtímabilinu lýkur? Eg verð að lýsa undrun minni á um- mælum sumra stjómarþingmanna sem ýtt hafa undir þá umræðu að boða beri til kosninga nú í haust. Ég sé engin haldbær rök til þess gjörnings. Ekki nema einstaka stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar skorti hreinlega áframhaldandi kjark til að takast á við erfiða fjár- lagavinnu og dóm kjósenda að vori. Það þarf kjark í erfiðar aðgerð- ir. Hafa stjórnmálamenn hreinlega ekki meiri kjark? Því skyldi ekki ríkisstjórn sem er að uppskera virðingu landsmanna fyrir kjark og stefnufestu ljúka við dæmið og bera síðan verk sín fyrir kjósendur að því loknu? Þessi þjóð er að mínu mati það skynsöm að ef erfiðar aðgerðir eru vel rökstuddar og alls jafnræðis gætt í aðgerðum þá sé þjóðin reiðubúin að meta þær frá skyn- semissjónarmiði. Að ekki þýði lengur að horfa fram hjá uppsöfn- uðum halla ríkissjóðs og sjálfvirkri aukningu á útgjöldum hans. Þessi þjóð þarf ekki á kjarklitl- um stjórnmálamönnum að halda. Mönnum sem sífellt hlaupast und- an vandanum og eru með lýð- skrum til að öðlast tímabundnar vinsældir. Þjóðin þarf á duglegum og kjarkmiklum stjómmálamönn- um að halda sem halda ró sinni jafnvel þótt vinsældir sígi örlítið. Ég skil ekki hugleiðingar um haustkosningar nema að eitthvað vanti á kjarkinn í íslenska stjórn- málamenn. Höfundur er þingmaður Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. Á að skjóta burt kyrrðina? FYRIR nokkrum árum vorum við hjónin svo heppin að eignast dá- litla spildu í landi Mið- dals í Mosfellssveit. Þegar við síðan fórum að huga að byggingu sumarhúss á spildunni komumst við að því að reglur Mosfellsbæjar um slík hús voru ein- hverjar þær ströngustu sem þá þekktust. Þess- ar reglur eru nú orðnar enn strangari og dug- legur og samviskusam- ur byggingafulltrúi sér um að þeim sé fram- fylgt í hvívetna. Þannig er komið í veg fyrir að kofaræskni særi augað og mengi umhverfið. Þessar ófrávíkjanlegu reglur hafa orðið til þess að nú reisa menn ekki sumarhús á löndum Mosfellsbæjar nema fyrir mikið fé. En það er þess virði því sumarbústaðalönd bæjarfé- lagsins eru mjög fögur, tii að mynda við Selvatn og Krókatjörn. Heiðarnar austur af þessum vötnum eru heill- andi útivistarsvæði og hefur göngu- og hestamönnum f|ölgað þar mjög á undanfömum áram enda stutt að fara þangað úr hávaðasömu þétt- býli. Um þetta svæði liggur líka aðal- reiðvegurinn til Þingvalla. Ásókn í sumarbústaðalönd á þessum slóðum hefur aukist verulega og margar spildur verið seldar úr landi Miðdals síðan við eignuðumst okkar fyrir 7-8 áram. Undirritaður veit að stjórn Mos- fellsbæjar er stolt af þessu svæði. Hún getur líka verið stolt af þeim miklu kröfum sem hún gerir til sum- arhúsaeigenda á svæðinu. Þær stuðla að því að varðveita útivistarperlu óspjallaða handa framtíðinni. Margir sumarbústaðaeigendur — ekki síst við Selvatn — geta líka verið stoltir af framlagi sínu. Þeir hafa fegrað heiðina með ræktun og þar með lagst á sveif með bæjarstjórninni sem hef- ur á síðustu árum látið sér annt um heiðalönd sín og sýnt að hún veit hvers virði þau eru. Ekki þarf lengi að fræða þá sem til þekkja um það sem dregur fólk inn á umræddar heiðar. Töfrar þessa landsvæðis era bæjarstjórnarmönn- um áreiðanlega vel kunnir. Er ekki að efa að sumir þeirra — kannski Birgir Sigurðsson allir — hafa reikað þar um, hlustað á söng fugla, andað að sér kyrrðinni og glaðst yfir því að bera ábyrgð á svo fögra útivistarsvæði. Þama verður stundum svo hljóðbært á stilltum kvöldum að þeir sem eiga sumarhús við Sel- vatn, Krókatjörn, Sil- ungatjöm og þar um kring heyra allir í sama spóanum sem dúrar langt uppi á heiði. Slík kyrrð í nálægð þéttbýlis er dýrmæt og það er ekki síst í henni sem menn vilja eiga griða- stað. Allt þetta veit bæjarstjómin en þó er nú svo komið að það er eins og hún viti ekki nema um sumt af því. Hún virðist að minnsta kosti ekki lengur vita hve mikils kyrrðin er. Ef marka má samþykkt hennar frá 13. apríl síðastliðnum skulu sum- arhúsaeigendur og útivistarfólk á þessum heiðalöndum ekki lengur eiga sér griðastað í kyrrðinni. Með þessari óvæntu og óhollu samþykkt Með óvæntri og óhollri samþykkt, segir Birgir Sigurðsson, veitir bæj- arstjóm Mosfellsbæjar leyfi fyrir leirdúfuskot- velli á heiðinni austan við Selvatn. veitir bæjarstjómin leyfi fyrir leir- dúfuskotvelli á heiðinni austan við Selvatn. Frá vatninu að þessum fyrir- hugaða skotstað eru aðeins 3,5 km. Við þetta gervifuglaskytterí eru not- aðar haglabyssur. Slík vopn valda miklum hávaða. Svo hljóðbært er á heiðunum á stilltum dögum að dran- urnar munu berast um allt þetta útivistarsvæði meira og minna og þó mest til Selvatns þar sem eru frið- sælustu sumarlönd í nágrenni Reykjavíkur. Ekki er heldur að efa að fólk á göngu um Hengilsvæðið mun hafa þessar skotdrunur í vega- nesti því haglabyssuhvellir berast marga kílómetra. Með samþykkt sinni rænir bæjar- stjómin sumarbústaðaeigendur kyrrðinni. Þar með skerðir hún and- lega hagsmuni þeirra og reyndar veraldlega líka. Svo mikið er víst að ekki eykur það verðgildi sumarlanda þegar skothvellir hafa tekið við af fuglasöng á hljóðbærum dögum og kyrrð finnst engin. Látum vera þótt landeigandi sé svo ógætinn í viðskipt- um að sjá hag sínum borgið í því að selja land undir skothríð um leið og hann er að selja fólki sumarbú- staðalönd á sömu slóðum svo það geti notið friðar og óspilltrar nátt- úru. En það er stórslys ef jafn ágæt bæjarstjórn og sú sem hér um ræðir veitir starfsleyfi fyrir þessum skot- hvelli. Þá er hún ekki aðeins að bregðast stundlegum hagsmunum sumarhúsaeigenda, hún er líka að bregðast framtíðinni því gildi þessa landsvæðis er og verður ekki síst fólgið í kyrrðinni sem berst til manna á hljóðum dögum þegar spóinn dúrar. Stjóm Mosfellsbæjar gerir ófrá- víkjanlegar kröfur til sumarbústaða- eigenda. Sá sem gerir miklar kröfur hefur einnig nokkrar skyldur. Leyfí bæjarstjórnin þessa hljóðmengun er hún að bregðast skyldu sinni við sumarbústaðaeigendur og útivistar- fólk. Það hlýtur að vera ófrávíkjanleg krafa þessa fólks að hún endurskoði þessa óheillasamþykkt og sjái til þess að kyrrðin verði ekki skotin burt. Hvers vegna haust- kosningar? í ÞJÓÐMÁLAUM- RÆÐU síðastliðinna vikna hafa verið á kreiki getgátur um haustkosningar. Það verður að viðurkenn- ast að það hefur verið dálítið erfitt að finna út í þessari umfjöllun fjölmiðla og getgátum einstakra stjórnmála- manna hvað á að vera tilefni haustkosninga. Ýmislegt hefur ver- ið nefnt í umræðunni. Sem dæmi má nefna að fjárlagagerð verði erfið, stjórnarflokk- ana skorti úthald til að fara í svo erfiðan niðurskurð sem við blasi. Að ríkisstjóm Davíðs Oddssonar sé veik eftir brotthvarf fyrrverandi félagsmálaráðherra. Á að fara í haustkosningar af því að stjómarandstaðan vill það? Nei, ætli biaðamannafundur Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra með minnisblað Þjóðhagsstofnun- ar í farteskinu með þeim boðskap að nú hilli loks undir góða tíð með blóm í haga í íslensku efnahagslífi sé ekki besti kosturinn fyrir spekúlanta. Má lesa það úr spá Þjóhagsstofnunar að kreppan sé á undanhaldi? skömmum tíma þann- ig að mun erfiðara varð að halda óbreytt- um markmiðum. Menn stóðu ekki að- eins frammi fyrir mik- illi skerðingu á afla- heimildum heldur þrengingum í öllu efnahagsumhverfinu, atvinnuleysi jókst og fleira. Þetta hafði síð- an þau keðjuverkandi áhrif á þá staðreynd að mun erfiðara varð fyrir ráðamenn þjóð- arinnar að ná utan um fögur fyrirheit. Kjarkur eða kjarkleysi Ég tel að sá tími sem fór í hönd haustdagana 1991 og 1992 hafi verið mörgum stuðningsmönnum stjómarflokkanna erfiðir. Menn þurftu að taka á sig óvinsæl verk- efni með niðurskurði á útgjöldum Þrátt fyrir erfítt árferði, minnkandi þjóðartekjur og lítinn hagvöxt, segir Petrína Baldursdóttir, hefur ríkisstjómin náð Petrína Baldursdóttir Hvað af þessu skyldi nú vera besti kosturinn til að rökstyðja stjómarslit og boða til kosninga? Em fjölmiðiar ef til vill í gúrku- tið sinni að búa til atburðarás með þessari umfjöllun?. Stórt er spurt en hver getur svarað? Ríkissljórnin Þegar ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar var mynduð á vordögum 1991 voru menn hóflega bjartsýn- ir á árangur hennar. Lögð var sérstök áhersla á það í starfssáætl- un að markmið ríkisstórnarinnar skyldi vera að ná niður halla á fjárlögum og ríkisfjármálin tekin föstum tökum. Ýmislegt í efna- hagsumhverfinu breyttist á ör- árangri með lækkun vaxta og lágri verð- bólgu. Þetta er afrek! ríkisins sem þýddi í raun að nálega hvert mannsbarn í landinu varð fyrir þeim niðurskurðaraðgerðum. Menn vom neyddir til að fara í gegnum umræður og aðgerðir um hvað væri sjálfsagt að ríkissjóður greiddi og hvað ekki. Nokkurskon- ar endurskoðunammræða fór fram í þjóðarsálinni. Á þeim tíma varð ríkisstjórnin, svo vægt sé til orða tekið, óvinsæl með afbrigðum meðal þjóðarinnar. Ég tel að niður- skurður ríkisútgjalda hafi verið Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.