Morgunblaðið - 14.07.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994 25
'
> OG ATVR
brigðis- og félagsleg markmið sam-
ræmist þeim markmiðum sagði Indr-
iði H. Þorláksson, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu: „Áfengislögin
eru sett í þeim tilgangi að hafa áhrif
á dreifingu og neyslu á áfengi út
frá félagspólitískum sjónarmiðum.
Þau miða að því að skilyrða dreif-
ingu á áfengi. Undirrótin er að tak-
marka neysluna og vernda börn og
unglinga. Markmið ÁTVR helgast
m.a. af þessum félagslegum mark-
miðum. Það kemur ekki fram í lög-
um um ÁTVR en það leiðir nokkuð
af sjálfu sér að takmörkun
á dreifmgu áfengis sem
felst í einkasölunni væri
ekki fyrir komið með öðr-
um hætti. Tilgangur
ÁTVR er því ekki fyrst
og fremst tekjuöflun, henni væri
hægt að koma fyrir með öðrum
hætti.“
Óhagkvæmt að uppfylla svo
ströng skilyrði
Eftirlitsstofnun EFTA tók til
starfa 1. janúar sl. um leið og EES
gekk í gildi. Fyrsta erindið sem ESA
tók á móti kom frá Verslunarráði
Islands vegna Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins. Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs, hefur ekki séð bréf ESA til
íslenskra stjórnvalda en hann hefur
upplýsingar um að það sé nokkuð
samhljóða bréfinu til Svía enda þurfi
yfirvöld beggja landa að uppfylla
sömu skilyrði. Vilhjálmur segir að
ESA líti svo á að hægt sé að við-
halda einkasmásölu út frá sjónar-
miðum í heilbrigðis- og félagsmálum
en að uppfylltum mjög ströngum
skilyrðum. Vilhjálmur telur smásölu
ÁTVR ekki uppfylla skilyrði EES-
samningsins eins og henni er háttað
í dag. „Ég tel skilyrðin það ströng
að það sé afar óhagkvæmt fyrir rík-
ið að uppfylla þau og þegar þeir
standi frammi fyrir því að þurfa að
gera það þá gefist þeir upp,“ segir
Vilhjálmur. Hann segir að einkasala
í innflutningi og heildsölu samræm-
ist ekki samningnum og það liggi
fyrir að ef því verði ekki breytt þá
fari málið fyrir EFTA-dómstólinn.
„Það sem skiptir mestu máli eru
vörur utan kjarnaúrvals hjá ÁTVR.
Ef þú kemur inn í ÁTVR og vilt
eitthvað sem ekki er til þá er ÁTVR
skyldug til að útvega það með sömu
álagningu og sama kostnaði og vör-
ur í kjarna. Það er svo óhagkvæmt
að vera skyldugur til að uppfylla
þetta að það getur ekki verið hag-
kvæmt að reka verslun upp á þessi
býti. Þess vegna segi ég að þeir
muni gefast upp á rekstri einkasmá-
sölu. Stefna ÁTVR og fjármálaráðu-
neytisins hefur í rauninni verið að
verjast í sínum vígjum eins lengi og
þeir hafa komist upp með það. Svo
er undanhaldið eins lítið og mögu-
lega er hægt.“
Margar leiðir til að ná
markmiðunum
Um markmið í heilbrigðis- og fé-
lagsmálum segir Vilhjálmur: „Það
eru svo margar leiðir til að ná þess-
um markmiðum í heilbrigðis- og fé-
lagsmálum, það þarf ekki að vera
samasemmerki á milli áfengisstefnu
og einkasölu á áfengi. Annað mark-
miðið er að ríkið hafi tekjur af áfeng-
issölu og hitt að áfengi sé drukkið
í hófi. Tekjunum er hægt að ná með
skattlagningu og ekki með einkasölu
endilega og ég sé ekki neina heil-
brigða skynsemi í því að það þurfi
óijúfanlega að tengjast stefnu í heil-
brigðis- og félagsmálum.“
Vilhjálmur segir að embættis-
menn í fjármálaráðuneytinu verði
að átta sig á því að innflytjendur
og framleiðendur hafi ákveðna rétt-
arstöðu samkvæmt samningnum.
„Mér finnst að þeir ættu að bretta
upp ermarnar í fjármálaráðuneytinu
og fara að breyta einhverju í þessu
máli eins fljótt og hægt er,“ segir
Vilhjálmur.
Ekki formlegar athugasemdir
Indriði H. Þorláksson skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu vildi
ekki tjá sig um fyrirspurnir ESA
efnislega. Hann sagði að embættis-
menn í fjármálaráðuneytinu væru í
stöðugu sambandi við stofnunina út
af ýmsum málum. „Þeir eru að
kanna málið og hafa verið að óska
eftir upplýsingum. Við höfum veitt
þær en getum ekki greint nánar frá
þeim á þessu stigi. Það hafa ekki
verið gerðar formlegar athugasemd-
ir. Þeir hafa komið með ábendingar
og spurningar í sambandi við ýmsa
hluti en formleg niðurstaða liggur
ekki fyrir." Indriði vildi ekkert um
það segja hvort honum sýndist þess-
ar fyrirspurnir gefa tilefni til að það
þurfi að gera einhveijar
breytingar á starfsemi
ÁTVR. „Menn hafa verið
að gera breytingar á starf-
semi ÁTVR, m.a. á inn-
kaupareglum, vöruvali
o.fl. Samningurinn í sjálfu sér kveð-
ur ekki á um tilvist eða ekki tilvist
svona einkasölu. Hann kveður hins
vegar á um að það sé óheimilt að
mismuna þegnum í aðildarríkjunum.
Þessar breytingar sem hafa verið
gerðar á ÁTVR miða m.a. að því
að það sé ekki gert upp á milli fram-
leiðenda eða söluaðila varðandi það
hvað er á boðstólum. Um það hvort
einhvetju þarf að breyta varðandi
starfsemi ATVR er ekkert hægt að
segja fyrr en formleg niðurstaða
liggur fyrir.“
Eitt af því sem spurt er um í bréfi
ESA til Svía er hvert eigi að vísa
deiluefnum er upp kunni að koma
varðandi framkvæmd á áfengissölu,
vali á vörutegundum og fleiri atrið-
um sem samningurinn segir til um.
Indriði vísar í stjórnsýslulög. „í þeim
er kveðið á um kæruleiðir og mögu-
leika til þess að kæra ákvarðanir
lægra setts stjórnvalds til æðra. Ef
ÁTVR fer ekki eftir reglum um inn-
kaup sem ráðuneytið hefur staðfest
þá er það tvímælalaust kæranlegt,"
segir Indriði.
Ekki orðið
vart við
óánægju
*
Sumarbúðirnar á Astjöm í N-Þingeyjarsýslu
Nóg að gera þegar
veðrið er gott
Sumarbúðirnar á
Ástjörn eru löngu þjóð-
kunnar fyrir sumar-
starfsemi í þágu bama.
Þar hefur margur ungur
maðurinn skemmt sér
við leik og alvöru í fögm
umhverfi staðarsins.
Hildur Friðriksdóttir
blaðamaður heimsótti
sumarbúðirnar í síðustu
viku og tók þar nokkra
hressa krakka tali.
Andrúmsloftið var með ró-
legra móti í sumarbúðun-
um á Ástjörn í N-Þingeyj-
arsýslu þegar blaðamann
Morgunblaðsins bar að garði sl.
föstudag. Ástæðan var sú að um
þriðjungur dvalargesta hafði farið
heim þennan dag og aðrir ókomnir.
Sumir sólbrenndust
í glampandi sólinni mátti sjá
nokkur börn úti á vatni á bátum,
en önnur sátu í rólegheitum í gras-
inu og spjölluðu við foringjana.
Blaðamaður rakst á félagana Björn
Björnsson úr Garðabæ, sem er að
verða 13 ára og Sigfús Gunnar
Ágústsson frá Vestmannaeyjum, 13
ára, þar sem þeir voru að koma frá
því að spila borðtennis.
Þetta er þriðja sumarið sem Björn
dvelst á Ástjörn en sjöunda skipti
Sigfúsar. „Það er alltaf nóg að gera
þegar veðrið er gott. Núna er búið
að vera rosalega gott veður og
margir brenndir. Samt notum við
sólaráburð," sögðu þeir félagar.
— Hvernig gengur dagurinn fyr-
ir sig?
„Við erum vaktir kl. 8 og þá er
morgunstund, fánahylling og morg-
unmatur. Við fáum oftast hafra-
graut, súrmjólk eða kornfleks.“
— Hvað er best?
„Kornfleksið," svöruðu þeir báðir
í kór. „Samt er það algjört eitur
hérna. Það er í einhveijum pokum,“
bætti Sigfús við og gretti sig.
„Eftir morgunmat er biblíutími
fyrir 11 ára og eldri og síðan er
frístund."
— Hvað hafið þið þá fyrir stafni?
„Við förum út á bát, í borðtenn-
is, fótboltaspil, körfubolta og fót-
bolta,“ sagði Björn. „Og sofa þegar
maður er þreyttur," hélt Sigfús
áfram.
— Hvað er skemmtilegast í sum-
arbúðunum?
„Það er að tala við stelpurnar.
Bryndís Eva Ásmundsdóttir er
skemmtilegust að mínu mati,“ sagði
Sigfús og undir það tók félagi hans
Björn.
Gaman að fara út á bát
Niðri við vatnið rakst blaðamaður
á þijár stúlkur, sem voru á leiðinni
út á hjólabát. Það var varla að þær
mættu vera að því að setjast niður
og spjalla nema Þórhalla Ásgeirs-
dóttir, 6 ára frá Akranesi, sem sagð-
ist vera vön að láta taka við sig
viðtal. Þær Þórdís Linda Dúadóttir
frá Dalvík og Sigríður Arna Arn-
geirsdóttir frá Akureyri tylltu sér
þó smástund og sögðu að þetta
væri þriðja dvöl þeirra á Ástjörn.
Morgunblaðið/Hildur Friðriksdóttir
BJÖRN Björnsson úr Garðabæ, sem er að verða 13 ára og Sigfús
Gunnar Ágústsson frá Vestmannaeyjum jafnaldri hans voru að
koma úr spennandi keppni í borðtennis.
ÞÓRHALLA Ásgeirsdóttir (fyrir miðju) ásamt vinkonum sinum
Þórdísi Lindu Dúadóttur og Sigríði Örnu Arngeirsdóttur var að
bíða eftir að komast út á jörnina í hjólabát.
Sigurfinnur bátavörður
Efkrakkarnir hegða sér ekki
samkvæmt reglum grípur Sig-
urfinnur Finnsson til gjallar-
hornsins og lætur í sér heyra.
Eitt af því skemmtilegasta sem þær
gera er að fara út á bát, en þeim
finnst líka gaman í leikjum eins og
fallinni spýtu.
„Mér finnst stundum gaman og
stundum leiðinlegt, sérstaklega á
næturnar og morgnana," sagði Þór-
halla, en þetta er í fyrsta skipti sem
hún kemur á Ástjörn. Aðspurð sagð-
ist hún vera með heimþrá, en svo
ljómaði andlitið þegar hún sagði að
mamma sín kæmi á morgun að
sækja hana.
„I fyrsta skipti sem ég var hérna
var ég alltaf með heimþrá,“ sagði
Þórdís. „Ég er stundum með heim-
þrá ennþá,“ sagði Sigríður en bæði
hún og Þórdís fara heim næstkom-
Sigurfinnur Finnsson, 11 ára frá
Ólafsfirði, sat ábyrgðarfullur ofan
á bátaskýlinu og fylgdist með félög-
um sínum úti á vatninu. Undir"
venjulegum kringumstæðum sjá
foringjarnir um bátavarðarstarfið
svo Sigurfinnur var spurður hvers
vegna hann gegndi starfinu núna.
„Af því að Arnar [foringi] nennti
ekki að vera hérna og ég fékk að
vera aðstoðarmaður," svaraði hann
að bragði.
— Hvað gerir bátastjórinn?
„Hann fylgist með vatninu og
passar upp á að reglurnar séu ekki
brotnar. Þeir sem bijóta reglur fara
i bátabann. Það getur verið einn
dagur eða allt upp í þrjá, það er
misjafnt.“
Þegar hér var komið samtalinu
þótti blaðamanni ekki rétt að trufla
bátastjórann við störf, enda um
ábyrgðarmikið starf að ræða og
ekki gott að missa sjónar á sjómönn-
unurn.
andi föstudag.
— Megið þið fara út á bát þegar
þið viljið?
„Nei. Ekki eftir kvöldmat og ekki
á matmálstímum.“
„Ég fer stundum út á bát með f
bróður mínum og frænku minni,
sem eru hérna líka,“ sagði Þórhalla.
„Strákarnir fóru í sund af því að
heita vatnið var búið. Fyrst fóru
stelpurnar í sturtu og mín var ís-
köld af því að ég var seinust.“
— Er gaman að hafa nammidag?
„Já, nema mér finnst Malta vont
og gef það alltaf. Þá fæ ég bara
bland í poka,“ sagði Þórhalla og
stóð upp til að elta vinkonur sínar,
sem komnar voru út í bátana.