Morgunblaðið - 20.07.1994, Síða 9

Morgunblaðið - 20.07.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994 9 Hríseyingar sundur- greina húsasorp í HRÍSEY er sorp sem fellur til á heimilum sundurgreint. Plast og pappír er tekið sérstaklega frá húsum og annað heimilissorp er tekið á öðrum tíma. Einnig eru í Hrísey gerðar tilraunir til að nýta lífrænt húsasorp. Jónas Vigfússon sagði að um nokkurra mánaða skeið hefði sá háttur verið hafður á í Hrísey að á mánudögum væri farið í hús og safnað pappírsrusli og linu plasti, pokum, filmum og þvílíku. Á þriðjudögum væri safnað öðru húsasorpi. Notaðir væru sorppokar í tveimur litum til að auðvelda fólki aðgreininguna. Þetta væri síðan sent í land í aðskildum gámum og færi plastið og pappírinn til vinnslu hjá Urvinnslunni hf. á Akureyri. Jónas sagði að þessi háttur hefði verið hafður á síðan í ljós kom í vetur að Úrvinnsluna hf. vantaði plast og pappír. Þá hefðu verið fengnar merkingar á gáma hjá Gámaþjónustu Norðurlands á Akureyri og þannig hefði fólk séð hvað mætti fara hvar. Síðan hefðu boð verið látin út ganga. „Hér eru menn umhverfisvænir og tóku þessu afar vel, voru raunar all- margir byijaðir að sundurgreina þetta heima hjá sér áður en þessi sérstaka söfnun hófst. Það er ekki rétt að kalla þetta tilraun hjá okk- ur, þetta er einfaldlega svona og svona verður það til frambúðar. Það kostar að vísu dálítið aukalega að senda tvær tegundir af sorpi, en þetta er framtíðin.“ Tilraunir með lífrænan úrgang Jónas Vigfússon sagði að frá því í vor hefði í Hrísey staðið yfir á þremur heimilum tilraun með líf- rænan heimilisúrgang. Komið hefði verið fyrir sérstökum tunnum sem „anda“, væru með götum og ristarbotni, en ætlunin væri að nýta þetta lífræna sorp ásamt garðaúrgangi til jarðvegs- gerðar. Þarna væru settir matarafgangar og annað það lífrænt sem til fellur á heimilum. Ekki væri annað sýnt en þessi tilraun ætlaði að heppnast vel og mætti gera því skóna að innan skamms yrði komið fyrir tunnum fyrir lífrænan úrgang við hvert heimili í Hrísey. Morgunblaðið/Rúnar Þór Og enn þurrka menn tað SVERRIR Tryggvason á Víðihlíð í Mývatnssveit heldur við þeim forna sið að þurrka tað. Hann þurrkar það á klapparhellum norðan við Reykjahlíð og var að hyggja að taðhraukum sínum þegar ljósmyndari Morgunblað- ins átti leið hjá á dögunum. Sverrir var lengi frægur veiði- maður en kvaðst nú vera orðinn of gamall til að hafa náttúru til þess eins og annarra ljúfra lysti- semda. Taðið þurrkar liann fyrir Héðin son sinn, sem nýtir það í reykhúsi sínu á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit. Norðmenn landa í Krossanesi Manuela á tónleikum MANUELA Wiesler flautuleikari kemur fram á Sumartónleikum á Norðurlandi í þessari viku. Hún leik- ur í Raufarhafnar- kirkju fimmtu- dagskvöldið 21. júlí klukkan 21, í Svalbarðskirkju í Þistilfirði á sama tíma á föstudags- kvöld og í Reykja- hlíðarkirkju í Mý- Manuela vatnssveit á sama tíma á laugardagskvöld. Lokatón- leikar Manuelu í þessari tónleikaferð verða í Akureyrarkirkju sunnudag- inn 24. júlí kl. 17. Á tónleikunum mun hún flytja verk eftir Marin Marais, Sven-Erik Back og Johann Sebastian Bach. Manuelu Wiesler má telja í hópi íslenskra tónlistarmanna, en hún bjó hér á landi í áratug og hélt fjöl- marga tónleika víða um land. Hún er austurrísk, fæddist að vísu í Bras- ilíu. en ólst upp í Vín. Frá íslandi flutti hún til Svíþjóðar, en hefur búið í Vín frá 1988. -----♦ » ♦.— Atvinnulausir Opið hús OPIÐ hús verður hjá Miðstöð fólks í atvinnuleit í Safnaðarheimili Ak- ureyrarkirkju í dag klukkan 15-18 og mun Guðrún Pálína Guðmunds- dóttir verkefnisfreyja kynna Menntasmiðju kvenna á Akureyri. Boðið verður upp á kaffí og dag- blöð liggja frammi. Upplýsingar um starf Miðstöðvar fólks í atvinnuleit eru gefnar í síma 27700 kl. 15-17 á þriðjudögum og föstudögum. ÞRÍR norskir loðnubátar lönduðu í Krossanesi um helgina. Auk þeirra kom Sigurður VE með loðnu til bræðslu. Norsku loðnubátarnir voru allir með slatta, frá 250 og upp í 390 tonn. Jóhann Pétur Ándersen framkvæmdastjóri í Krossanesi sagði að þessir bátar hefðu landað hér þar sem ekki þætti svara kostnaði að sigla alla leið til Nor- egs með slatta af þessu tagi. Einn skipstjóranna hefði sagt að kvóti hans væri rétt ríflega tveir túrar og ekki hefði borgað sig að fara með tvo heim til Noregs og fara síðan eftir slatta í þriðja túr. Um geymslu loðnunnar um borð sagði Jóhann að Norðmennirnir settu edikblöndu saman við loðn- una til að lengja geymslutíma hennar og einn þeirra hefði tekið ís áður en hann fór á miðin á ný. Um framhald á þessum löndun- BÍLABÆNIN hefur verið gefin út á Akureyri í meira en 20 ár. Útgefandi hennar er Jón Oddgeir Guðmundsson, stjórnarmaður í KFUM og KFUK. Jón Oddgeir segir hugmyndina að bílabæninni upphaflega komna frá Bretlandi. Texti hennar hafi veið þýddur og staðfærður og fá- ist nú á límmiðum í ýmsum litum, en miðana megi til dæmis festa á mælaborð bifreiða. Jón Oddgeir segir að bílabænin hafi frá upphafí verið gefin út til um Norðmanna sagði Jóhann ómögulegt að segja, þetta kæmi fyrirvaralítið. Skipstjórarnir hygðu að þessu þegar nálgaðist heimferðartíma ogþyrftu að sækja um leyfi til Noregs ef þeir vildu setja afla á land annars staðar en heima. Hins vegar væru það ein- ungis slattar sem virtist að þeir fengju að landa erlendis. Ekki stöðug bræðsla Sigurður VE landaði 580 tonn- um af loðnu í Krossanesi um helg- ina. Jóhann Pétur sagði að vegna tregrar veiði hefði hráefnisskorts gætt í verksmiðjunni og þannig hefði slitnað sundur og verið hlé í l'/2 sólarhring um helgina. Þá sagði hann verksmiðjur halda að sér höndum og safna ekki of mikl- um birgðum af hráefni, ekki síst í ljósi óhappsins sem orðið hefði á Siglufirði fyrir helgina. að afla fjár til rekstrar símsvara með kristilegum hugleiðingum, en hann hefur annast rekstur Orðs dagsins í síma 21840 á Akureyri frá árinu 1971. Auk þess sé bæn- in gefin út til að koma skilaboðum til ökumanna og annarra vegfar- enda með orði Guðs til að hafa aðgát við akstur og aðra umferð. Bílabænin er fáanleg í Kirkju- húsinu og versluninni Jötu í Reykjavík og í Hljómveri á Akur- eyri. Bílabæn gefin út í 20 ár LANCÖME kynning PARÍS á morgun, 21. 7., frá kl. 12— 7 7. Snyrfisérfrœðingur á staðnum. Nb°,0 afsló% Snyrtivöruverslunin Gullbrá, Nóatúni 17. sími 624217. 164 kr. á dag koma sparnaMnum í lag! Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú bíður með að spara þangað til þú heldur að þú hafir „efni" á því byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem hluta af reglulegum útgjöldum þínum, þannig verður sparnaðurinn auðveldari en þú heldur. Ert þú búin(n) aö spara 164 kr. í dag? Hringdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og byrjaöu reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-626040

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.