Morgunblaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Gangverk eftir Ólaf Benedikt Guðbjartsson. Olafur Benedikt í Gallerí 11 ÓLAFUR Benedikt Guðbjarts- son hefur opnað sýningu í Gall- erí einn einn. Þetta er önnur sýning Ólafs í galleríinu en hann sýndi þar fyrst í águst 1992. Ólafur útskrifaðist úr málaradeild Myndlista og handíðaskóla íslands vorið 1988. Hann hefur sýnt í Cafe List og Cafe 22 auk sýninga erlendis. Sýningin verður opinn frá 13.00 til 18.00 til 28. júlí. Tónleikar í anda Jenny Lind Sauðárkróki. Morg^unbladid TÓNLEIKAR í anda Jennyar Lind verða haldnir í Sauðár- krókskirkju í kvöld klukkan 20.00. Flytjendur eru Susanna Levonen sópran og Þórólfur Stefánsson gítarleikari. Á efn- isskránni eru verk eftir Grieg, De Fall, Schubert og Rossini, auk tónlistar við Ijóð eftir Gyrði Elíasson. „I Jenny Linds anda“ er efn- isskrá sem Susanna og Þórólfur ferðast með í sumar um Finn- land, Svíþjóð, Danmörku og ísland. Þau verða með tónleika í Listasafni Akureyrar föstu- daginn 22. júlí klukkan 20.30 og í Árbæjarsafni sunnudaginn 31. júlí klukkan 16.00. Sumar- kvöld í Há- teigskirkju KÓR Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Háteigskirkju í kvöld klukkan 20:30. Yfirskrift tónleikanna er Islenskt sumarkvöld og er efnisskráin eingöngu með verk- um eftir íslensk tónskáld, þ.ám. Atla Heimi Sveinsson, Pál ísólfsson og Jón Nordal. Einnig verður flutt nýtt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur sem hún samdi í tilefni af stúd- entaútskrift MH í vor. Kórinn mun flytja þessa dagskrá auk fleiri verka á Evrópuhátíð kóra Europa Cantat sem haldin verður á Jótlandi 21.-31. júlí. Skúlptúr skúlptúr að ljúka Á KJARVALSSTÖÐUM fer nú að ljúka sýningunni Skúlptúr skúlptúr skúlptúr. Þessi sýning á íslenskri samtímalist var framlag Listasafns Reykjavík- ur á Kjarvalsstöðum til Lista- hátíðar í borginni fyrr í sumar. Valin voru verk 29 íslenskra myndlistarmanna sem komu á eftir svokallaðri SÚM-kynslóð og sýningunni ætlað að gefa sýn yfír íslenska skúlptúrlist í dag. Hún stendur fram á sunnudag 24. júlí, daglega milli klukkan 10 og 18. Kaffístofa safnsins er opin á sama tíma. Undanúrslit ráðin í Tónvakakeppninni „SJÖ tónlistarmenn hafa verið valdir úr glæstum hópi tónlistar- manna til að taka þátt í úrslita- keppni um Tónvakann, Tónlistar- verðlaun Ríkisútvarpsins" sagði Guðmundur Emilsson tónlistarstjóri RÚV þegar hann var inntur eftir gangi keppninnar. Annar hluti henn- ar fór fram 21. júní sl. og voru þá eftirfarandi keppendur valdir: Hulda Guðrún Geirsdóttir, Björg Þórhalls- dóttir, Kristjana Helgadóttir, Ólafur Kjartan Sigurðsson, Guðrún María Finnbogadóttir, Sif Tuliníus og Bjarni Thor Kristinsson. Að sögn Guðmundar verður loka- keppnin haldin daglangt 25. júlí nk. Hún fer fram á leyndum stað and- spænis dómnefnd. Keppnin verður öll hljóðrituð auk viðtala við kepp- endur. Keppendur verða síðan kynntir tveir og tveir í senn í helgar- útvarpi Rásar 1 og verða fyrstu tveir kynntir um Verslunarmannahelgina. Sigurvegarinn kemur loks fram á lokatónleikum í beinni útsendingu á Rás 1 sunnudaginn 21. ágúst. Í saln- um verður erlendur heiðursgestur, einn helsti forvígismaður tónlistar á Norðurlöndunum, en hann verður síðar kynntur til sögunnar. Niels-Henning Örsted Pedersen gestur á RúRek hátíð „Ég vil þakka öllum sem þátt tóku í keppninni. Við eigum marga stór- efnilega tónlistarmenn og -nema. Þetta er staðreynd sem kemur okkur alltaf í opna skjöldu. Dómnefnd sagði að minnsta kosti sjö ættu skil- ið að komast í úrslitaáfanga keppn- inar og er það glæsileg niðurstaða í harðri keppni." Guðmundur bætti við að sigurvegarinn kæmi fram með Sinfóm'uhljómsveit íslands á sérstök- um hátíðartónleikum Ríkisútvarps- ins í október sem verði útvarpað um öll Norðurlöndinn í fyrsta sinn. RúRek hátíð og lýðveldistónleikar Aðspurður um hvað fleira væri framundan sagði Guðmundur að næst á dagskrá væri RúRek hátíðin. „Hún verður haldin í bytjun sept- ember og verður glæsileg eins og vera ber á lýðveldisafmælinu. Þar verður fremstur í flokki Niels-Henn- ing Örsted Pedersen og leikur hann m.a. við setningarathöfnina. Með honum á hátíðinni verður fjöldi mik- illa listamanna innlendra og erlendra stóijazzara og hljómsveitir en stjórn hátíðarinnar gerir grein fyrir dag- skránni síðar í lok ágúst.“ í nóvember efnir Ríkisútvarpið svo til lýðveldistónleika með Hamra- hlíðarkórnum ásamt innlendum hljóðfæraleikurum og flokkum í samvinnu við EBU, European Bro- adcasting Union, að sögn Guðmund- ar. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem RÚV géngst fyrir beinni útsendingu um alla Evrópu og víðar og nær hún til 100 milljón áheyr- enda. Á tónleikunum verður flutt tónlist innlendra og erlendra tón- meistara samtímans þ.á m. verk þriggja íslenskra tónskálda. „Ef allt gengur eftir er einnig stefnt að því að skreyta lýðveldisár- ið á fullveldisdaginn með tveimur tónleikum í beinni útsendingu svo sem eins og undanfarin ár 1. desem- ber. Þar er um að ræða sumarauka RúRek. Minnst yrði brautryðjenda í íslenskri jazzsögu með því að svið- Niels-Henning Örsted Peder- sen leikur á RúRek hátíðinni í haust. setja og endurskapa fyrstu jazztón- leikanna sem haldnir voru fyrir tæp- um 50 árum. Þeir voru haldnir að frumkvæði Jóhanns Guðmundssonar frá Siglufirði eða Jonna í Hamborg á Akureyri eins og hann var nefndur og mörkuðu tímamót í okkar tónlist- arsögu. Þá um kvöldið er stefnt að enn öðrum tónleikum tileinkuðum íslenskum tónskáldum. Ef að líkum lætur verða frumflutt þijú viðamikil tónverk eftir íslensk samtímaskáld,“ sagði Guðmundur að lokum. > Islensk verk í Bonn Hardtberg Grátt og guggið SÝNING á myndum eftir Mar- gréti Birgisdóttur var opnuð í ráðhúsinu í Bonn Hardtberg í Þýskalandi þann 16. júní sl. Sýn- ingin var opnuð af sendiherra íslands í Þýskalandi Hjálmari W. Hannessyni að viðstöddu fjöl- menni, en auk þess tóku til máls við opnunina bæjarstjórinn í Bonn Hardtberg Gerhard Lorth og Margrét Birgisdóttir. Á sýning- unni eru 22 myndir, bæði grafík- TONLIST llallgrímskirkja Orgeltónleikar Andreas Liebig Verk eftir J.S. Bach, Moz- art, Nielsen, Buckley og Reger Sunnudaginn 17. júlí SUMARKVÖLD við orgelið held- ur vinsældum sínum og sl. sunnu- dagkvöld lék þýskur orgelleikari, Andreas Liebig, á Klais-orgel Hall- grímskirkju. Liebig starfar sem or- gelleikari í Noregi. Hann hóf tónleik- ana á Prelúdíu og fúgu í Es-dúr, sem allir orgelleikarar sækjast eftir að ieika, sakir stærðar og mikilleiks verksins. Liebig hefur tækni góða en ofbauð verkinu með ofhlæði í raddskipan, svo að kontrapúnktískt raddferlið rann saman í einn hljómn- ið, bæði í prelúdíunni en þó sérstak- lega fúgunum, er tónvefnaðurinn náði hámarki í samskipan þriggja stefja í fímm radda kontrapúnkti, eins og hann gerist magnaðastur hjá Bach. Stutt kóralforspil við sálminn Sæti Jesús, sjá oss hér, var fallega leikið og sama má segja um þijú myndir og myndir unnar með blandaðri tækni. Myndirnar eru allar unnar á þessu ári. Margrét útskrifaðist úr Mynd- lista og handíðaskóla Islands, grafikdeild, árið 1985. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga í Reykjavík og á Norðurlöndunum og hélt sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Úmbru í janúar 1993. Sýning Margrétar í Bonn Hardt- berg stendur til 8. ágúst nk. smáverk eftir Mozart. Verk, sem er kallað Leipziger-Gigue (K.574), samdi Mozart er hann kom við í Leipzig og er verkið varðveitt í nótnabók Carls Immanuel Engel, hirðorgelleikarans þar í borg. Þetta er þriggja radda píanóverk, í stíl Bachs, og var það mjög sérkennilega leikið, í allt of miklum hraða, jafn- vel þó gigue eigi að vera hraður dansþáttur. Annað verkið eftir Moz- art var Adagio (K.617), samið fyrir glasharmonikku (fundin upp af Benjamín Franklín), flautu, óbó, lág- fiðlu, og selló. Glasharmonikkan naut nokkurra vinsælda um skeið, aðallega vegna snilldarleiks blindrar stúlku, Marianne Kirchgássner, sem ferðaðist um alla Evrópu og flutti m.a. þetta verk Mozarts, sem er tveggja þátta, adagio og rondo. Lieb- ig lék aðeins fyrri hluta verksins, sleppti rondóinu, og var flutningur hans mjög fallega útfærður, bæði hvað varðar leik og raddskipan. Þriðja verkið eftir Mozart. var Ánd- ante (K.616) fyrir sjálfspilandi org- el, sem Liebig lék leikandi vel. Sjö stutt forspil, op. 51, eftir Carl Nielsen, eru ekki merkilegar tón- smíðar en oft mátti þó heyra skemmtilega og frumlega hljómskip- an og það var þokki yfír leik Liebig og í þessum verkum, svo sem einnig KVIKMYNPIR II á s kó I a bí ó Græðgi (Greedy) ★ Vi Leikstjóri Jonathan Lynn. Handrit Babaloo Mandel. Aðalleikendur Michael J. Fox, Kirk Douglas, Nancy Travis, Jonathan Lynn, Ed Begley Jr., Bob Balaban, Phil Hartnian, Oliv- ia D' Abo. Bandarísk. Universal 1994. GRÆÐGI fer vel í gang. Vænt- anlegir erfingjar þess moldríka gamalmennis, Kirks Douglas, eru að safnast saman á heimili hans í enn eina afmælisveislu karlsins. ÖIl stjórnast þau af peninga- græðgi, eru tilbúin að fórna öllum ærlegum tilfinningum til að kom- ast efst á erðaskrána. Svífast einskis í að skíta hvert annað út og vinna sig í áliti karldurgsins, sem hefur ómælt gaman af öllu í Mozart, enda var raddskipanin smekklega útfærð. í efnisskrá er tilgreint að verk eftir John Buckley sé frumflutt á fslandi. Frumflutningur á verki get- ur aðeins átt sér stað einu sinni, því annars væri sífellt hægt að tala um frumflutning á hveijum stað fyrir sig. Verkið er ekki sérlega skáldlegt en byggir á miklum andstæðum í styrk. Tónmál verksins er oft eins og leikið af fíngrum fram og fráleitt að það búi yfir nokkrum skyldleika við ákallandi ljóð John Donne. Tónleikunum lauk með þrumuleik Liebigs í Fantasíunni og fúgunni yfir tónana BACH, eftir Reger. I gegnum hávaðann mátti vel heyra að Liebig er leikinn orgelleikari og það var aðeins í upphafí fúgunnar, að slegið var af í styrk en síðan rann allt saman, svo að þrumandi niðurlag verksins missti marks. Það getur verið mikil freisting að nota hljómkraft Klais-orgelsins. Það má þó ekki ofbjóða verkunum svo, að erfítt sé að aðgreina t.d. fjölradda tónferli og með því að nota sí þrum- andi kraft orgelsins, nærri því frá upphafi til enda verks, verður rism- ikið niðurlag, eins t.d. í verki Re- gers, algjörlega áhrifalaust. Jón Ásgeirsson saman undir niðri og kyndir öfund- sýkina á milli þeirra. Erfingjarnir fara svo endanlega á taugum þeg- ar Douglas gamli kynnir þá fyrir straumlínulagaðri vinkonu sinni á besta aldri, fyrrum flatbökusendli. Nú hans hægri hönd og vænlegur erfíngjakandídat. Góð ráð dýr. Þá minnast þau lítils frænda (Michael J. Fox) sem heillaði karlinn fyrir langalöngu og leita hann uppi. En þó Fox sé tiltölulega sómakær pilt- ur og í sambúð með hinni vönduð- ustu stúlku (Nancy Travis), þá eru bellibrögð frændgarðsins og pen- ingasýkin ekki lengi að afvatna allar frómar tilfinningar í bijósti hans í garð hins aldraða frænda og fyrr en varir er hann líka kom- in í keppnina eftir auðæfunum. Jafnvel þó svo hann vinni hug og hjarta gamla mannsins. Því miður lognast myndin fljót- lega útaf í enn eina hjartahlýja en marklausa og máttlausa hollívúddsápuna og sú broslega ádeila sem hélt henni gangandi fyrsta veifið smá-lognast útaf og kafnar loks í hallærislegum, ham- ingjusamlegum endaspretti. Fox virðist ekki ætla að eiga aftur- kvæmt í hóp vinsælustu leikara kvikmyndaborgarinnar og ein af ástæðunum er augsýnilega að hann hefur það bamslega útlit á móti sér í dag sem fleytti honum á toppinn í Aftur til framtíðar-myndbálknum. Douglas er mun mannborulegri þó hann gæti verið langafi hans. D’Abo er augnayndi en Travis verð- ur að fara að velja sér bitastæðari hlutverk ef hún á ekki að falla fljót- lega í gleymsku. En það eru erfingj- amir Balaban, Hartman og ekki síst Begley Jr., sem er óborganleg- ur í uppstríluðum fígúrahlutverkum sem þessum, sem kitla helst hlátur- taugamar. En því miður fá þeir lít- ið að njóta sín, frægir handritshöf- undamir eru svo uppteknir við að prédika yfir lýðnum. Leikstjórinn breski, Jonathan Lynn, sem sló í gegn fyrir örfáum árum með hinni bráðfyndnu Vinní frænda, tekst hvorki að skapa ádeilu né gamanmynd, að maður tali ekki um svarta gamanmynd. Hinsvegar vinnur hann fyrir laun- unum sínum sem leikari, „bötl- erinn“ hans er það eina sem getur talist skemmtilegt í myndinni. Sæbjörn Valdimarsson Með þrumandi krafti > i i í > t i I í I I t I I -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.