Morgunblaðið - 20.07.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994 81
ÞJÓNUSTA
Þjóðræknisþingið var sett í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fjölsótt Þjóðræknis-
þing á Laugarvatni
ÞJÓÐRÆKNISÞING 1994 var hald-
ið í Reykjavík og á Laugarvatni 2.-3.
julí sl. Þingið sátu um 50 fulltrúar
íslendingafélaga, einkum frá Norð-
ur-Ameríku.
Þetta er í annað skipti sem Þjóð-
ræknisfélag íslendinga, Icelandic
International League (ÞFÍ), beitir sér
fyrir slíku þingi, hið fyrra var haldið
í Washington DC 1990. Að þessu
sinni var tilefni þinghaldsins þríþætt,
til þess að minnast 50 ára afmælis
íslenska lýðveldisins, 75 ára afmælis
Þjóðræknisfélags íslendinga í Vest-
urheimi, Icelandic National League
of North America (INL), og 55 ára
afmælis ÞFÍ.
Daginn áður en þingið sjálft hófst,
1. júlí, bauð forsætisráðherra, Davíð
Oddsson, þeim, sem komu með leigu-
flugi frá Kanada daginn áður, um
200 manns, til móttöku í Reykjavík.
Þjóðræknisþingið var formlega
sett í Ráðhúsi Reykjavíkur að morgni
laugardags 2. júlí að viðstöddum
borgarstjóra. Að lokinni setningarat-
höfn í Ráðhúsinu var haldið að Laug-
arvatni, þar sem þinghaldið sjálft fór
fram. Árni Páll Árnason, fulltrúi í
utanríkisráðuneytinu, ræddi um sam-
skipti milli landanna, Þór Jakobsson,
veðurfræðingur, ræddi um nauðsyn
samvinnu einstakra íslendingafélaga
og framtíðarstefnu Þjónustumið-
stöðvar Þjóðræknisfélagsins í
Reykjavík, Nelson Gerrard frá Ar-
borg í Manitoba ræddi um INL og
starfsemi þess, Dilla Narfason frá
Gimli talaði um unglingasamskipti
og Sigurjón Valdimarsson sagið frá
fyrirhugaðri gerð heimildarkvik-
myndar um íslenska landnámið í
Vesturheimi.
Skógrækt og viðurkenningar
Á sunnudagsmorgni var plantað
tijám í sérstakan reit á Laugar-
vatni. Fimmtíu birkiplöntur voru gjöf
frá Þjóðæknisfélaginu í Vesturheimi
og 20 plöntur voru gjöf frá íslend-
ingafélaginu í Brussel. Meðal þátt-
takenda voru sex konur frá Kanada
sem allar hafa verið í hlutverki Fjall-
konunnar á íslendingadeginum á
Gimli og plöntuðu þær sínum tijám
í sérstakan reit, sem þegar fékk
nafnið Fjallkonulundur.
í lok þingsins var Evelyn Thorvald-
son, fyrrverandi forseta Þjóðræknis-
félagsins í Vesturheimi, og Helga
Austman, núverandi forseta félags-
ins, afhentur svonefndur Forsetapen-
ingur. Jón Ásgeirsson, formaður ÞFÍ,
var gerður að heiðursfélaga Þjóð-
ræknisfélagsins í Norður-Ameríku.
Kleifamót
um helgina
Dagana 22.-24. júlí nk., helgina
fyrir verslunarmannahelgi, hittast
burtfluttir og búandi Kleifamenn
og -konur með fjölskyldur sínar á
Kleifum í Ólafsfirði. Kleifar eru
þyrping nokkurra bæja við vestan-
verðan Ólafsfjörð í mynni Ytri-Ár-
dals.
Fyrr á öldinni var þar mikil út-
gerð og búskapur. Mikið fjölmenni
var á Kleifum á þessum tímum og
mikið líf. Á bæjunum voru barn-
margar fjölskyldur og sem dæmi
má nefna að Finnur Björnsspn og
Mundína Þorláksdóttir á Ytri-Á áttu
saman 20 börn. Kleifamenn hafa
alla tíð haldið mikilli tryggð við
Kleifarnar og er þetta í þriðja sinn
sem slík samkoma er haldin, en hún
er haldin á þriggja ára fresti. Góð
tjaldstæði eru á staðnum.
Föstudagskvöldið 22. júlí verður
opnuð í Holti, sem lengi þjónaði sem
skólahús og samkomustaður Kleifa-
manna, sýning á myndum frá liðn-
um tíma. Á laugardaginn verður
skemmtidagskrá sem lýkur með
brennu, brekkusöng og dansi. Ef
veður leyfir verður gengið í Fossdal
á sunnudeginum. Allir Kleifamenn
eru hvattir til að mæta og skemmta
sér og öðrum á Kleifamóti.
Yfirlýsing
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi yfirlýsing frá sveinsprófs-
nefnd í matreiðslu:
„Að gefnu tilefni vill sveinsprófs-
nefnd í matreiðslu taka fram að það
ríkir fullur einhugur innan próf-
nefndar um framkvæmd og þróun
sveinsprófa í matreiðslu."
AGU
REGNFATNAÐUR
í miklu úrvali.
100% vind- og vatnsheldur.
TRAVEL - st. S-XL
Verð kr. 7.795,-
AGU - st. XS-XXL
Verð 3.990,-
Sendum í póstkröfu.
Mikið úrval af regnfatnaði.
»hummél^
SPORTBÚÐIIM,
ÁRMÚLA 40, SI'MAR 813555 OG 813655.
RAÐ AUGL YSINGAR
KIPULAG RÍKISINS
Mat á umhverfisáhrifum
Frumathugun á Drangsnesvegi
nr. 546, kafli-01
Samkvæmt lögum nr. 63/1993, um mat á
umhverfisáhrifum, er hér kynnt fyrirhuguð
vegaframkvæmd við Drangsnesveg nr. 546,
kafli-01. Um er að ræða nýja veglínu, að
mestu leiti, á 7 km kafla milli Hálsgötugils
og Hellu. Tillaga að þessari breytingu liggur
frammi til kynningar frá 21. júlí til 26. ágúst
1994 á eftirtöldum stöðum: Skipulagi ríkis-
ins, Laugavegi 166, Reykjavík, frá kl. 8.00
til 16.00, og íverslun Kaupfélags Steingríms-
fjarðar, útibúi á Drangsnesi, frá kl. 9.00 til
18.00 mánudaga til föstudaga.
Athugasemdum við þessa frannkvæmd, ef ein-
hverjar eru, skal skila skriflega til Skipulags
ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, fyrir
26. ágúst 1994. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður
haldinn í húsnæði félagsins í Faxafeni 12
sunnudaginn 24. júlí kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, myndir, málverk,
silfur, Ijósakrónur, lampa, bollastell, hatta,
veski, gömul póstkort og smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 91-671989 eftir kl. 16.
Geymið auglýsinguna.
Fyrirtæki óskast
Hef kaupendur að innflutnings- eða fram-
leiðslufyrirtækjum í matvöru. Annars konar
rekstur kemur einnig til greina. Staðgreiðsla
möguleg. Með allar upplýsingar verður farið
sem trúnaðarmál.
Firmasala Baldurs Garðarssonar,
Hreyfilshúsinu, sími 91-811313.
Til sölu
ísafjörður - verslunarhúsnæði
Austurvegur 2 (kaupfélagshúsið), ísafirði, og
Hafnarstræti 6, 1. hæð, ísafirði.
Austurvegur 2 er verslunarhúsnæði í hjarta
bæjarins. 1. hæð og kjallari eru 743 fm,
2. hæð 345 -fm og 3. hæð 362 fm. Samtals
er húsið því 1.450 fm. Húsið gefur fjöl-
breytta möguleika á innra skipulagi þess.
Þá fylgir með iðnaðarhúsnæði á baklóð, 159
fm að stærð.
Hafnarstræti 6 er verslunarhúsnæði í mið-
bænum, 188 fm, að meðtöldum kjallara.
Húsnæðið er steinsteypt frá árinu 1928.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu minni.
Tryggvi Guðmundsson hdl.,
Hafnarstræti 1, ísafirði,
sími 94-3244, fax 94-4547.
PRÍSTUNO
Krossgátublaðið Frístund
nr. 2/94 er komið út.
Frábær ferðafélagi í fríinu.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelffa
Biblíulestur kl. 20.30.
Ræöumaður Mike Fitzgerald.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hörgshlíð12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
Miðvikudagur 20. júlí:
Kl. 20.00 Seljadalur-Nessel
(Miðdalsheiði). Ekið áleiðis í
Seljadal og gengið þaðan.
Verð kr. 700:
Sunnudagur 24. júli
Kl. 08.00: Þórsmörk - dagsferð.
Brottför í dagsferðirnar er frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin, og Mörkinni 6.
Helgarferðir 22.-24. júli:
1) Hringferð að Fjallabaki: Laug-
ar, Eldgjá - Álftavatn. Gist í
sæluhúsum.
2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
3) 23.-24. júli kl. 08.00: Yfir
Fimmvöröuháls (gengið frá
Skógum). Gist í Þórsmörk.
4) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi F.i. í Laugum.
Ath.: Sjálfboðaliða vantar f
vinnuferð að Álftavatni næstu
helgi. Vinna f erfiðara lagi. Haf-
ið samband við skrifstofu F.f.
Ath. 20.-24. júlf: Landmanna-
laugar-Þórsmörk. Nokkur sæti
laus.
Sumarleyfisferðir:
22.-24. júlf (7 dagar) Lónsöræfi
(dvöl í Múlaskála). Landslag og
litir í Lónsöræfum eiga ekki sinn
líka. örfá sæti laus. Fararstjóri:
Karl Ingólfsson.
22. -24. júlí (3 dagar) Hreða-
vatn-Langavatn-Hnappadalur.
Göngutjöld.
Fararstjóri: Árni Tryggvason.
23. -27. júlf (5 dagar). Húsavík-
Þeistareykir-Mývatn. Göngu-
ferð frá Húsavík um Þeistareyki,
Gæsadal að Mývatni. Gist í hús-
um - tjöldum. Allur farangur
fluttur milli staða.
Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson.
23.-26. júlf (6 dagar) Norður-
land (Þingeyjarsýslur). Öku- og
skoðunarferð um Jökulsárgljúf-
ur, Sléttu, Langanes, Vopna-
fjörö, Jökuldalsheiöi (Sænauta-
sel). Gist í svefnpokaplássi. Far-
arstjóri: Sigurður Kristinsson.
30. júlf-8. ágúst (7 dagar) Borg-
arfjörður eystri-Loðmundar-
fjörður. Flogið til Egilsstaða, það-
an með bíl til Borgarfjarðar eystri.
Göngur um slóðir áifa og trölla,
Stórurð, siglt til Loðmundarfjarð-
ar. Fararstjóri: Árni Björnsson.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Mörkinni 6.
Ferðafélag Islands.
.JL
IC
SÍK, KFUM/KFUK, KSH,
Háaleitisbraut 58-60.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00 i Kristniboössalnum.
Iris Kristjánsdóttir hefur upp-
hafsorð. Margrét Hróbjartsdótt-
ir prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.