Morgunblaðið - 20.07.1994, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
TUrFjGorrAp
t>ElTA e£BÚI&'
SKO, pETTA
VAeeio'isvc
h ÍLÍ/14T
BS EEAÐ HElNSTA l SiOGO
t& €1? F/N TAUSAHRÚSA.'
Tommi og Jenni
■fe.bkstu þessa rrtáin.
/*lQ&.rb urs-ta^, Tosy?'>iC'?
Ljóska
Smáfólk
■V£É>ié&
!&&**•*******>
Heita vatnið verður búið þegar ég kemst að.
&V TME TIME I 6ET THERE, ALL
THE HOT UJATER UJILL BE SONE..
O 1994 United Feaiure Syndicate. Inc. 7, /2
BREF
TII. BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
ÞAÐ ER himnesk sæla fyrir hestamenn að fá að ríða fijálsir
um óspillta náttúru landsins.
Draumaferðin
Frá Hilmari Magnússyni:
FYRIR sérhverjum hestamanni er
það himnesk sæla og kemst hvað
næst fullkomnun að fá að ríða frjáls
um ópsillta náttúru landsins á uppá-
halds fáki sínum og vera kóngur um
stund. Því miður er ekki öllum gefíð
að fá uppfylltan þénnan draum sinn.
Nú er svo komið að einhver allra
besta aðstaða í landinu til að þjón-
usta hestamenn er risin að Leiru-
bakka í Landsveit. Byggt hefur ver-
ið hreint frábært hús með öllum
þeim þægindum sem teygður og lú-
inn hestamaður gæti óskað sér í
næsturstað. Girðingar og aðstaða
fyrir hross öll með afbrigðum góð.
Var því ákveðið að slá um sig og
njóta allrar þeirrar aðstöðu sem boð-
ið væri uppá að Leirubakka. Lagði
undirritaður af stað þann 5. júlí frá
Hellu ásamt eiginkonu sinni að Lei-
rubakka sem var fyrsta dagleiðin.
Átti að gista þar og ríða svo um
Skarfanes og Lambhaga. Sunnan
Búrfells á bökkum Þjórsár, daginn
eftir. Síðan gista aðra nótt og ríða
til baka að Hellu þriðja dag. Ekkert
var tekið nema það nauðsynlegasta
og hægj. var að reiða með á hestun-
um. Nú fyrst byijaði ævintýrið.
Neðri kojur
Komið var að Leirubakka um
klukkan 19.30 þar sem við áttum
pantað uppábúin rúm, kvöldmat og
morgunmat tii tveggja nátta. Stóð-
um við hálf kindarleg úti á hlaði og
enginn virtist taka eftir því að við-
skiptavini bæri að garði. Eftir
nokkra leit var okkur vísað á þá
girðingu sem hestarnir skildu
geymdir í, orðrétt „Norðrétt eftir
veginum og fyrsta hlið til hægri“
sem síðar kom í ljós að var ca. kíló-
metra labb hlaðin reðtygjum og öðr-
um farangri. Þar á eftir var okkur
vísað á gistiaðstöðuna sem var tvær
uppábúnar nerðrikojur í sitt hvorum
enda í 6 manna herbergi! Loks var
gengið til kvöldverðar sem var hlað-
borð þar sem var á boðstólum lamba-
pottréttur, hrísgrjón, salat og upp-
hitaður karrýkjúklingur. Að lokum
var einhver gulleitur búðingur í eftir-
rétt. Að lokum var gengið til náða
og hvílst vel enda fjarlægðin slík á
milli okkar hjónanna.
Nesti
Morguninn eftir var vaknað að
sjálfsdáðum enda að sögn matselju
alveg sama hvenær við kæmum í
morgunmat, bara fyrir hádegi. Þeg-
ar við höfðum rétt lokið morgunverð-
inum kom matseljan að máli og
spurði hvort við vildum ekki smyija
okkur nesti af morgunverðarborð-
inu? Þótti okkur rausnarlega boðið
og þáðum með bökkum enda fram-
undan skemmtireið um fagra mold-
arstíga í kjarri vöxnu landi á bökkum
Þjórsár. Smurðum við okkur sitt-
hvora samlokuna, fengum sitthvora
kleinuna og eitt epli. Að þessu öllu
loknu var að ná saman hestunum
sem hafði verið hleypt í stærri girð-
ingu svona líkt og 3-4 fótboltavellir
á stærð og fór því dijúgur tími í að
ná þessum 6 hestum saman í víðátt-
unni. Dagurinn var yndislegur í ynd-
islegu veðri og náttúrufegurð. Síðan
var kvöldmáltíð númer tvö og svona
var uppbyggingin á honum; steiktur
fiskur, kartöflur, salat og upphitaðar
pastaskrúfur með fiskibollubitum út
í. í eftirrétt var svo gijónagrautur.
Reikningurinn
Það vakti athygli mína að meðan
við vorum að borða komu inn þijár
eldri konur á ferðalagi saman og
snæddu við sama borð og við, sama
matinn en voru einungis rukkaðar
um eitt þúsund krónur fyrir. Nóttin
leið líkt og sú fyrri nema hvað mað-
ur vaknaði upp með andfælum um
klukkan 10.00 við að einhver krakki
var mættur í dyragættina með
þvottafötu og gúmmíhanska, nú átti
að fara að ræsta. Eftir þessa uppá-
komu höfðum við okkur á lappir og
skunduðum til morgunverðar þar
sem okkur var tjáð að við værum
of sein enda klukkan rétt að verða
11.00. Var nú skapið heldur farið
að stirðna og því ákveðið að gera
upp og koma sér af stað aftur í
heimahaga hrossana niður við Hellu.
Reikningurinn var svo hljóðandi:
Gisting: 2.200 pr/mann á nótt =
4.400*2 =8.800, Kvöldmatur: 1.700
pr/mann = 3.400*2 = 6.800, Morg-
unmatur: 700 pr/mann = 1.400*2
=1.400, Nesti: 500 pr/mann =
1.000, Girðing f. hestá: 150 pr/hest
á nótt = 900*2 =1.800. Samtals
19.800 krónur.
Riðum við því buit með blendið
bros á vör, hugsi hvort í sínu lagi
um frábæra ferðaþjónustu þar sem
útlendingar væru í meirihluta og
bæru sögu sína víða um lönd um
verðlag og viðmót íslendinga.
HILMAR MAGNÚSSON,
Gljúfraseli 2, Reykjavík.