Morgunblaðið - 04.09.1994, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
p- Stefán n\jög hæfur
Fyrsta fyrirspumin var f 7 liðum,
lögð fram 9. ágúst og varðaði ráðn-
ingu Stefáns Jóns Hafsteins til að
annast verkefni á vegum borgar-
; stjóra.
=3 f Gt/^IuikI O
Og þessu hjóli eigið þið alltaf að snúa til vinstri, stelpur.
Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga lokið
Lágmarksfjöldi íbúa
sveitarfélaga óbreyttur
LANDSÞING Sambands íslenskra
sveitarfélaga samþykkti á föstu-
dag ályktun þar sem lagst er gegn
því að sameining sveitarfélaga
verði framkvæmd með því að
hækka lágmarksíbúatölu sveitar-
félaga með lagasetningu. Þinginu
lauk síðdegis á föstudag með kjöri
stjórnar. Vilhjálmur Þ. Vilhjáims-
son, borgarfulltrúi í Reykjavík, var
endurkjörinn formaður til næstu
fjögurra ára.
A þinginu reyndist ekki stuðn-
ingur við hugmyndir um að hækka
lágmarksfjölda íbúa í sveitarfé-
lagi, en lágmarkið er í dag 50 íbú-
ar. í ályktun landsþingsins eru
sveitarstjórnarmenn hvattir til að
hafa áfram frumkvæði að umræðu
um stöðu og hlutverk sveitar-
stjórnarstigsins. Jafnframt segir
að nú sé eðlilegt að fleiri kostir
séu skoðaðir varðandi sameiningu
sveitarfélaga.
Stuðningur við flutning
grunnskólans
Miklar umræður urðu um flutn-
ing grunnskólans frá ríki til
sveitarfélaga. í máli margra full-
trúa kom fram ótti við að rekstur
grunnskóla ætti eftir að verða
sveitarfélögum kostnaðarsamur
og mun dýrari en hann er í dag.
Tilfærslan myndi leiða til þess að
almenningur gerði meiri kröfur
til sveitarstjórna um betri þjón-
ustu skólanna og að kennarar
myndu knýja fram hærri laun. Á
þinginu heyrðust einnig þær radd-
ir að sveitarstjórnarmenn ættu
ekki að vera velta þessu máli fyr-
ir sér öllu lengur heldur taka
þennan málaflokk yfir strax og
án skilyrða.
Niðurstaða varð að setja þrjú
skilyrði fyrir stuðningi við málið.
í fyrsta lagi að fullt samkomulag
náist milli ríkis og sveitarfélaga
varðandi flutning verkefna og tek-
justofna til sveitarfélaga til að
standa undir þeim aukna kostnaði
er yfirtökunni fylgir. í öðru lagi
að vanda sveitarfélaga sem yfir-
taka hlutfallslega háan grunn-
skólakostnað miðað við tekjur
verði mætt. í þriðja lagi að fullt
samkomulag náist um kjara- og
réttindamál kennara.
Vetrarstarfið hefst!
Ný stundaskra frá 5. sept. nk.
Næringarfræðileg þjónusta
Einkaráðgjöf
Kjörþyngdarnámskeið
Mælingar
• Morguntímar • Hádegistímar
• Eftirmiðdagstímar • Kvöldtímar
• Leikfimi • Tækjaþjálfun • Skokkhópar
BARMGÆSLA
FAXAFENI 14 REYKJAVÍK SÍMI 689915
Nýr ritstjóri Stúdentablaðsins
Stúdentablað
á tímamótum
Auðunn Atlason hef-
ur verið ráðinn rit-
stjóri Stúdenta-
blaðsins í Háskóla ís-
lands. Hann hyggst
breyta Stúdentablaðinu
verulega, bæði stækka
það og fjölga tölublöðum
og breyta áherslum.
— Hvernig kom val þitt
til sem rítstjóri Stúdenta-
blaðsins?
„Ég svaraði auglýs-
ingu til umsóknar með
langri greinargerð um
efnistök, útlit, ritstjórn-
arstefnu og var ráðinn á
þeim forsendum að
hrinda því í framkvæmd."
— Telur þú að val þitt
hafi verið pólitískt?
„Varla, ég hef ekki
stundað nám við Háskóla
íslands og stend þar af
leiðandi fyrir utan báðar
fylkingar. Þar á ofan er
ég ekki skráður í neinn stjórn-
málaflokk.
Blaðið verður þó ekki mein-
laust eða ópólitískt. Það verður
kraftmikið og þar verður tekin
afstaða. Til þess þarf ekki skír-
teini í stjórnmálaafli eins og
sumir virðast telja nauðsynlegt.
Ég lít á það sem mitt hlutverk
að gera blaðið allra háskólastúd-
enta. Það er mín póiitík."
— Hefurðu kannski þegar
hafist handa?
„Fyrsta blaðið er í bígerð. Síð-
ustu daga hef ég sett mig í sam-
band við fjölbreyttan hóp fólks
sem hefur ólíkar skoðanir, við-
horf og áhugasvið. Það mun
vinna með mér í vetur við að
koma út fjölbreyttu blaði og
hefja það upp úr skotgröfum
stúdentastjórnmála.“
— Verður blaðið opið fyrir alla
stúdenta?
„Að sjálfsögðu — því fleiri
sem vinna við blaðið, því betra
blað. Stúdentablaðið hefur liðið
fyrir þá staðreynd að hafa verið
fylkingapólitískt í gegnum tíð-
ina, sem hefur oft og tíðum ver-
ið ávísun á einlitt blað og einlita
efnisumfjöllun. Þessu á að
breyta í vetur. Öllum sem hafa
áhuga á að starfa við
blaðið er velkomið að
líta í kaffi til mín upp
á skrifstofu stúdenta-
ráðs.“
— Hvernig verður _____________
staðið að efnisvali?
„í stað eingöngu stúdentapóli-
tíkur og hagsmunabaráttu stúd-
entaráðs verður leitað mun víðar
fanga í vetur. í grófum dráttum
verða efnisflokkar fimm, það er
háskólamál, almenn þjóðfélags-
mál, menningarmál, vísindi og
dægurmál í léttum dúr. Að auki
er stefnt að því að taka eitt aðal-
efni í hveiju blaði til
rækilegrar umfjöllun-
ar. Þetta er gert und-
ir því leiðarljósi að
háskólastúdentar eru
líka hluti af samfélag-
inu sjálfu og eiga því
að láta sig þau mál varða.“
— Er þá ætlunin að láta rödd
stúdenta heyrast úti í þjóðfélag-
inu?
„Tvímælalaust — sú rödd er
hins vegar ekki eintóna. Stúd-
entar eru stór hópur og innan
hans rúmast margar skoðanir.
Ég vil virkja háskólastúdenta til
umræðna á síðum blaðsins og
Auðunn Atlason
► Auðunn Atlason er fædd-
ur í Reykjavík 4. febrúar
árið 1971. Hann ólst upp í
Reykjavík og útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reylqavík
árið 1990. Hann fluttist þá
til Berlínar þar sem hann
stundar nám í stjórnmála-
fræði við Freie Universitet.
Hann tók sér árshvíld frá
námi til að ritstýra Stúdenta-
blaðinu, en snýr að því loknu
aftur út og hyggst ljúka prófi
í stjórnmálafræði. Hann á
eftir um eins árs nám og rit-
gerð. Auðunn er í sambúð
með Sigríði Rögnu Jónsdótt-
ur háskólanema og eiga þau
einn son, Illuga Auðunsson,
sem er tveggja og hálfs árs
gamall.
VIII virkja
stúdenta til
umræðna
Hlutlaust án
þess að vera
meinlaust
til að taka afstöðu til einstakra
mála. Það sama gildir um há-
skólakennara en frá þorra þeirra
heyrist eingöngu hávær þögn
þegar þjóðfélagsmál ber á
góma.“
— Hvað á blaðið að koma oft
út í vetur?
„Þrátt fyrir að
blaðið verði stækkað
verulega er stefnt að
því að koma blaðinu
út á þriggja vikna
fresti. Það mun okkur
vonandi takast, en
starfsmenn blaðsins eru auk mín
Kristján Karlsson umbrotsmað-
ur og Sæmundur Norðfjörð aug-
lýsingasafnari. Einnig mun
fimm manna ritstjórn starfa að
blaðinu."
— Hver verður stefna blaðs-
ins?
„í stuttu máli byggist hún á
þremur atriðum. í
fyrsta lagi skemmti-
legt, læsilegt og
lestrarvert. Það hlýt-
ur að vera markmið
hverrar blaðagreinar
að hún sé lesin. í
öðru lagi á blaðið að vera hlut-
laust án þess að vera mein-
laust. Það er landlægur mis-
skilningur að hlutleysi felist í
þægilegum spurningum
silkihanskafréttamennsku.
þriðja lagi á blaðið að vera
gagnrýnið og ekki síst sjálfs-
gagnrýnið í málefnum háskóla-
stúdenta og háskólans."
°!