Morgunblaðið - 04.09.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.09.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 39 Afa sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Nú legg ég augun aftur. 0, Guð, þinn náðarkraftur mín verði vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjöm Egilsson.) Sigríður, Guðmundur og Tryggvi, Dalvík. Kæra amma. Það er erfítt fyrir okkur að koma orðum að því hvernig okkur líður. Það var mikið áfall fyrir okkur að missa þig. Þótt við værum búnar að búast við þessu, þá kom þetta samt sem áður á óvart og erfitt er að sætta sig við að fá ekki að sjá þig aftur í þessu lífi. Það var alltaf jafn gaman að koma í heimsókn til ykkar og okkur fannst eins og þú ættir alltaf eftir að vera hérna með þitt fallega bros og hlátur. Að sjá hvernig andlit þitt ljómaði upp þegar við komum í heimsókn, það þurfti ekki mikið til að gleðja þig. Gleði þín var mest fólgin í því að geta búið um hluti til að gleðja aðra. Öll eigum við handavinnu eft- ir þig sem við munum varðveita til minningar um þig. Jólin voru alltaf sérstakur tími fyrir ykkur, þú áttir afmæli rétt fyrir jólin og einhvem veginn var alltaf eitthvað til að gleðjast yfir. Þú varst einlæg, örlát, glettin, þijósk og gefandi manneskja með góð ráð. Við vonum innilega að þér líði vel þar sem þú ert stödd í dag og að við eigum eftir að hittast aftur einhvern tímann. Veittu afa og mömmu styrk í sorg sinni. Dauðinn er ekki enda- lok, hann er byijun á nýju lífi. Við eigum eftir að sakna þín, elsku amma. Guð blessi þig. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan i frá og að eilífu. Þín barnabörn, Bjarney, Kolbrún, Hafdís og Heiðdís. Elsku langamma. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristján, Sonja, Kristín, Krist- ján Valur og Rósa María. Drottinn er minn hirðir. Mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast. (23. Davíðssálmur.) Nú er amma okkar dáin og horf- in sjónum okkar. Það sem situr eft- ir eru minningarnar um gönguna sem við systkinin höfum fengið að njóta með henni. Hún var alltaf ung í anda og fylgdist vel með hvað var að gerast hjá sínu fólki og í kringum sig. Glaðlyndi og kærleikur ein- kenndi hana sem smitaði út frá sér og er helst að minnast þess þegar öll fjölskyldan hittist saman hjá ömmu og afa. Þá var oft glatt á hjalla og hægt að sjá að amma naut sín „í botn“ þegar stórfjöl- skyldan var á einum stað saman komin. Amma var líka sjálfstæð kona og hafði ákveðnar skoðanir á hlut- unum. Hún hafði líka gott skopskyn og gat því brosað og hlegið með manni, en hún lagði mikla áherslu á trúrækni og góða siði, sem hafði mikil áhrif á okkur og mun það búa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Afí, megi Guð blessa þig og varð- veita í missi þínum og styrkja þig í einu og öllu. Viljum við systkinin þakka samfylgdina og allar þær góðu stundir sem við áttum með ömmu og vottum öllum aðstandend- um innilegustu samúðarkveðjur. Megi hún hvíla í friði. Sigurður Hörður Ingimars- son, Ágústa Eygló Ingimars- dóttir, Svava Ingibjörg Ingi- mundardóttir, Heimir Bjarni Ingimundarson. STOFHSITT 19SI ■ Sí FASTEICMAMIÐSTÖDIMf {jSr SKIPHOLTI 50B - SÍMI62 20 30 - FAX 62 22 90 U Opið hús Framnesvegur 54, Reykjavík Til sölu glæsileg nýlega uppgerð 52 fm risíbúð í þessu fallega húsi. Komið og skoðið þessa góðu íbúð í dag milli kl. 14 og 17. Verslunar- og lagerhúsnæði til sölu eða leigu Vegna væntanlegs flutnings Hljómbæjar er hið þekkta úrvalshúsnæði fyrirtækisins við Hverfisgötu til sölu eða leigu í einu lagi eða hlutum. Eignin er öll í fyrsta flokks ástandi. fjöldi bílastæða og góð aðkoma. 1. HÆÐ Verslunarhúsnæði 432 fm og lagerhúsnæði 332 fm. Stórir gluggar og góðar aðkeyrsludyr. 2. HÆÐ Skrifstofuhúsnæði 124,5 fm auk mikils lagerrýmis. Lóðin er 1,604 fm og fylgir henni byggingarréttur. VAGN JONSSON FASTEIGNASALA Skúlagötu 30 Atli Vagnsson hdl. SÍMI61 44 33 • FAX 6144 50 Erum með f sölu stórskemmtilega 104 fm hæð við Tómasarhaga auk bflskúrs. Eignin er mikið endurnýjuð m.a. gluggar, gler og þak. Frábær staður. Makaskipti vel hugsanleg á minni eign. Verð 10,4 millj. Hafðu samband. HÓLL, fasteignasala, sími 10090. iíÓLl FASTEIGNASALA © 10090 SKIPHOLTI 50B, 2. hæðt.v. Franz Jezorski, lögg. fast.sali. Stuðlaberg - Hf. Hér færð þú ca 150 fm raðh. auk bílsk. á þessum vinsæla stað í Hafnarf. Húsið afh. tilb. að utan, fokh. að innan. Gert ráð fyrir sólstofu og góðri verönd. Teikn. á Hóli. Verð 8,2 millj. Jörð á Vesturlandi Sannkölluð paradís á jörð Vorum að fá f sölu mjög áhugaverða jörð á Vesturlandi sem er í um 220 km fjarlægð frá Reykjavík. Á jörðinni er ca 200 fm steypt íbúðarhús ásamt þremur gullfallegum sumarhúsum. Húsunum fylgir allt innbú. Jörðinni fylgir veiðiréttur í lax- og silungsá. Einn- ig er að finna stórbrotið landslag með þó nokkru beitilandi og ræktuðu landi. Á jörðinni er gott berjaland og rjúpnaveiði á haust- in. Þetta er kjörið tækifæri fyrir félagasamtök, hestamenn og annað útivistarfólk. Myndir og teikningar á Hóli. Verðið kemur þægilega á óvart kr. 8,0 millj. fyrir allan pakkann. Framnesvegur Gullfallegt parhús ca 130 fm á þremur hæðum. Húsið er allt endurn. og í góðu ástandi utan sem innan. Góður suðurgarður m. uppgerðu útihúsi. Láttu drauminn rætast og skoðaðu þetta. Nánari uppl. á Hóli. Tómasarhagi. Faiieg 105 fm íbhæð á þessum góða stað í vesturbænum. Aðeins steinsnar frá sjónum og fjörunni á Ægisíðu. Hús talsv. endurn. Bílsk. fylgir. Verð 9,9 millj, Laus strax. Bergstaðastræti Stórglæsileg miðhæð í þessu fallega húsi. íbúðin er 133 fm auk 30 fm svala og bílskýlis. Ef þú vilt kaupa vandaða eign í algjörum sér- flokki, þá skaltu ekki hika við að skoða þessa. Verð 12,9 millj. Áhvíl- andi byggingasjóður 5,2 millj. OPIÐHÚSKL. 14-17 Framnesvegur 6 Hér bjóðum við upp á sérl. fallega og bjarta 85 fm íb. á 2. hæð í nýl. húsi í hjarta vesturbæjar steinsnar frá gamla, góða miðbænum. Mjög vandaðar innr. og gólfefni. Suður- svalir. Næg bílastæði. Hér þarf ekkert að gera annað en flytja inn. Áhv. byggsj. 2,3 millj. Verð 7,7 millj. Laus strax. í dag kl. 14-17 verða Ólafur og Soffía á staðnum og sýna þér þessa glæsieign. Reyrengi 49 Hér skoðar þú í dag fallegt 200 fm parhús í byggingu. Afh. fokh. að innan, tilb. að utan. Áhv. húsbr. m. 5% vöxtum. Verðið er aldeilis hlægilegt 8,5 millj. Hvað gerir það per fm? Nesvegur57 Þetta er ein af þessum dæmigerðu skemmtil. sérhæðum í vesturbæn- um 4ra herb. 107 fm á 1. hæð ásamt bílsk. Hús nýl. Steni-klætt að utan. Góðar svalir. Verð 9,6 millj. Áhv. 5,0 millj. Þú gengur beint inn og skoðar milli kl. 14 og 17. Það er konfekt á boðstólum. Mávahlíð 14 Hér færðu fallega 3ja herb. 81 fm íb. á 1. hæð. íb. er laus strax. Hlíð- arnar standa alltaf fyrir sínu. Verð 6,8 millj. Áhv. 2,2 millj. Þú skoöar hjá Karli og Önnu í dag kl. 14-17. Á morgun gæti það verið of seint. OPIÐ A HOLII DAG KL. 14-17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.