Morgunblaðið - 04.09.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.09.1994, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR4. SEPTEMBER1994 MORGUNBLAÐIÐ Porsche 911 SC 1874 sem nýr Porsche umboðiö Guðbergur, s. 989-36001 kl. 9-19, heimas. 675232. Verð tilboð: Fjárfesting alþjóðlegt verðgildi © Sankudo kai karato á íslandi Karatenámskeið árseli við Rofabæ. Flokkur Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Böm 5-8 ára 17.00-18.00 17.00-18.00 Krakkar 9-12 19.00-20.00 19.00-20.00 13.00-14.00 Fullorönlr og unglingar 20.00-21.30 20.00-21.30 14.00-15.30 Ailir flokkar eru fyrir bæði kynin saman. Yfirþjálfari Sankudo kai á íslandi: Sensei Jean Frenette 5. DAN, fimmfaldur heimsmeistari. Aðalþjálfari Fylkis: Vicente Carrasco 2. DAN, 16 ára reynsla. Karate er góð íþrótt fyrir alla. Eflir sjálfstraust, byggir upp líkamann og huga. Innritun á staðnum. Upplýsingar í síma 673593 eftir kl. 17.00 daglega. Karatedeild Fylkis. Stjórn minningarsjóðs Karls J. Sighvatssonar auglýsir styrk til framhaldsnáms í hljómborðsleik Umsækjendur skulu tilgreina fullt nafn, fæðingardag, fyrra nám, fyrirhugað nám og hvar og hvenær nám hefst. Umsóknum skal skila til: SÖNGMÁLASTJÓRA ÞJÓÐKIRKJUNNAR SÖLVHÓLSGÖTU 13,101 REYKJAVÍK fyrir 15. sept. næstkomandi. Sjóðsstjórn. ...blaftib - kjarni málsins! ÍDAG BRIDS l! m s j ó n G u ö m . I* á 11 Arnarson VESTUR tekur tvo fyrstu slagina á ÁK í tígli og spil- ar þriðja tíglinum, sem suð- ur trompar. Samningurinn er fjögur hjörtu og hann lítur vel út, ekki síst eftir strögl vesturs á spaða. ■ Suður gefur; allir á hættu. Norður 4 KG4 4 K764 ♦ 1072 4 965 Suður 4 Á3 4 ÁDG932 4 84 4 ÁD3 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Hvemig á suður að spila? Eftir að hafa aftrompað mótheijana virðist rakið að taka spaðaás og svína gosan- um. Vestur á að öllum iíkind- um spaðadrottningu, en ef ekki, er þó laufsvíningin eft- ir. Þessi einfalda áætlun skil- ar oftast 10 slögum, en ekki í legu eins og þessari: Norður 4 KG4 4 K764 4 1072 4 965 Vestur Austur 4 1087652 4 D9 4 10 llllll *85 4 ÁKG 111111 4 D9653 4 KG2 4 10874 Suður 4 Á3 4 ÁDG932 4 84 4 ÁD3 Kjami málsins er þessi: Ef vestur á spaðadrottningu, þá er óþarfi að svína. Sagn- hafi tekur einfaldlega tvo efstu, spilar gosanum og hendir laufi heima. Vestur verður þá að spila laufi upp í gaffalinn eða spaða út tvö- falda eyðu. Í þessu tilviki veiðir sagnhafi drottninguna aðra fyrir aftan, en ef austur er með drottningu þriðju, trompar suður þriðja spað- ann, tekur laufás, fer inn í borð á tromp og spilar laufi að drottningunni. Þá vinnst spilið þegar laufkóngur er réttur og einnig ef vestur á hann annan. Farsi UJAIS6uAZS(CöOCTUfi,fl-T 01992 Faicus CaitoonMauribuMclby UnnwMt PrauSynScaW „ J<7vc&n(Z&uri nn, þinrues cídscuhteour; e/shextUj en þettou he/ur dhk* i/erio i tísku. C hda. hernans tið. “ VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Armband tapaðist SILFURLITAÐ arm- band með blómamynstri tapaðist í Þjóðleikhú- skjallaranum laugar- dagskvöldið 27. ágúst. Finnandi vinsamlega hringi í Margréti í síma 52161. Þríhjól í óskilum ÞRÍHJÓL með hvítum grófum dekkjum hefur verið í óskilum við Maríubakka í nokkra daga. Upplýsingar í síma 74155 eftir kl. 17. Skór í misgripum í IKEA SVARTIR bamaskór af gerðinni LA-Gear með blikkljósi í hælum vom teknir í misgripum í „bol- talandinu“ hinni nýju verslun IKEA við Holta- garða þann 27. ágúst sl. Viti einhver um þessi mistök er hann vinsam- lega beðinn að hringja í síma 71336. ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu og færðu þær Rauða krossinum ágóðann sem varð 1.289 krón- ur til styrktar bágstöddum í Rúanda. Þær heita Bryndís Björk Asmundsdóttir og Andrea Þor- kelsdóttir. ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu og færðu Rauða krossinum ágóðann sem varð 670 krónur til styrktar bágstöddum í Rúanda. Þær heita Hlíf Kvaran Brynjarsdóttir og Kristín Eva Bjarnadóttir. Víkverji skrifar... Undir septembersól brosti sumarið fyrst“! Þannig Icómst gefigið góðskáld að orði fyr- ir margt löngu þegar haustið reynd- ist sumarbetrungur. Vikveija kom þessi hending í huga þegar hann las haustfréttir úr stjórnarráðinu um vorbata í efnahagslífinu. Svo er að sjá sem hægur efna- hagsbati hafi gert vart við sig á líðandi ári, þegar lýðveldið er fimm- tugt. Stöðugleikinn í verðlagi og á vinnumarkaði undanfarin misseri, lægri skattar og lægri vextir, og merkjanleg efnahagsuppsveifla í umheiminum eru að skila sér í ís- lenzku samfélagi. yiðskiptajöfnuð- ur við útlönd er hagstæður, atvinnu- greinar rétta dulítið úr kútnum, tekjur ríkissjóðs af atvinnulífinu vaxa og atvinnuleysi minnkar. Nú iiggur við að skorpuþjóðin gleymi ekki gömlum sannindum, sem stundum fyrr, að erfiðara er að gæta fengis fjár en afla! xxx Fjórir eru hornsteinar afkomu og efnalegs fullveldis þjóðar- innar, að mati Víkvetja dagsins: * Sá fyrsti og trúlega veigamesti samanstendur af auðlindum láðs og lagar; einkum og sér í lagi nytja- stofnum sjávar. Afrakstur hans ræðst fyrst og fremst af aðstæðum í lífríki sjávar. Við höfum takmörk- uð áhrif á þær aðstæður. Þó verður að gæta þess að ganga ekki á höf- uðstólinn, hrygningarstofnana. * Annar er hagkerfið og þjóðfé- lagsgerðin. Það skiptir máli að hag- kerfið og hagstjórnin leiði til sem beztrar nýtingar auðlindanna og til sem mestra þjóðartekna á hvern vinnandi þegn. í þeim efnum verður gildi menntunar og þekkingar ekki ofmetið. Lífskjör ráðast nefnilega af þeim verðmætum sem til verða í þjóðarbúskapnum - en ekki við samningaborð. Það tjáir ekki að semja um skiptingu verðmæta sem ekki eru til. Samningar um í þá veru, sem vissulega hafa verið gerð- ir á stundum, eru samningar um verðbólgu. XXX riðji hornsteinninn hefur undir- stöðu í erlendum mörkuðum og viðskiptakjörum þjóðarinnar út á við. Afkoma okkar ræðst að dijúgum hluta af því verði, sem við fáum fyrir útflutning, og þeim kjör- um sem við sætum varðandi inn- fluttar nauðsynjar. Milliríkjasamn- ingar (EFTA, EES, GATT o.s.frv.) skipta okkur því ríkulegu máli. * Fjórði hornsteinninn heitir „Enginn er eyland“! Það er sum sé staðreynd, sem ekki verður komizt fram hjá, að hagvöxtur í við- skiptalöndum okkar er eitt af mikilvægari skilyrðunum fyrir framförum og velmegun hér á landi, svo háðir sem við erum milliríkjavið- skiptum. Hvort heldur er bati eða lægð í umheiminum síast sá um- hverfisþáttur inn í íslenzkt efna- hagslíf! XXX Víkveiji nam þá speki úr munni háttsetts bankamanns að „stöðugt verðlag og sterkt lána- kerfi væru mikilvægustu markmið við stjórn peningamála". Ekki skulu þau orð dregin í efa. Trúlega má hnýta því við að ekki saki að bak- larid hins „sterka lánakerfis“ sé innlendur peningasparnaður. Það væri hins vegar synd að segja að íslenzkur efnahagsbúskapur, eins og í pottinn hefur verið búið síðustu áratugi, hafi verið kjörlendi fyrir peningasparnað. Síður en svo. Þess- vegna hafa erlendar skuldir hrann- ast upp. Þessvegna gengur allnokk- ur hluti af þeim verðmætum, sem til verða í landinu, til erlendra spar- enda, sem íslenzka eyðsluhítin hef- ur umfangsmikil viðskipti við. Mál er að breyta um til hins betra í þessum efnum. Betra er seint en alls ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.