Morgunblaðið - 04.09.1994, Side 20
20 SUNNUDAGUR4. SEFl'EMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IBANKA
HINNA
SNAUÐU
þótt hagvöxtur sé nokkur. Ástæðan
er m.a. sú að víða banna trúarbrögð
notkun getnaðarvarna og sumstað-
ar þykir upphefð að eiga sem flesta
syni.
Alþjóðabankinn leggur ríka
áherslu á menntun kvenna og að-
stoð til þess að þær geti komið sér
upp eigin atvinnurekstri. Með tím-
anum leiða slíkar ráðstafanir vænt-
anlega til þess að hægja á fólks-
fjölgun. Aðstoð við þróunarríkin er
langtímaverkefni og menn mega
ekki gera sér óraunhæfar vonir um
skjótan árangur."
ísland með lægst hlutfall
þjóðartekna til þróunarhjálpar
- Finnst þér íslendingar láta
nægilega mikið af hendi rakna til
þróunaraðstoðar?
„Mér finnst að þjóð á því tekju-
stigi sem ísland er ætti að geta
haldið uppi góðum lífskjörum
innanlands jafnframt því að vera
hluti af samfélagi þjóðanna með
ábyrgðarkennd gagnvart þeim sem
minnst mega sín. íslendingar eru
almennt þannig sinnaðir að þeir
vilja ekki horfa upp á nágranna
sína líða skort. Samt virðist sem
almenningur annars staðar á Norð-
urlöndum hafi meiri skilning á þró-
unaraðstoð, gildi hennar og hversu
í tvö ár hefur Helga
Jónsdóttir verið vara-
fulltrúi Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna í
stjórn Alþjóðabankans í
Washington. Valgerð-
ur Þ. Jónsdóttir ræddi
við hana um starfið,
þróunaraðstoð bankans
og veruna ytra.
ABÚÐARMIKLIR ör-
yggisverðir í anddyri
einnar byggingar Al-
þjóðabankans í Wash-
ington hleypa engum
óviðkomandi framhjá sér. Til þess
að hitta Helgu Jónsdóttur, varafull-
trúa Norðurlandanna og Eystra-
saitsríkjanna, í stjóm bankans
þurfti blaðamaður að sýna skilríki
og gera grein fyrir erindi sínu áður
en ástæða þótti til að hringja í
Helgu og fá samþykki hennar fyrir
því að gefa út gestapassa bankans.
Langt er um liðið síðan Helga
fór hvergi nema í gallabuxum og
tréklossum. Með laganámi í Háskól-
anum starfaði hún sem blaðamaður
á Tímanum í tvö ár og þá þótti slík-
ur klæðnaður vel við hæfi. Öðru
máli gegndi fyrir fulltrúa yfirborg-
arfógeta á ámnum 1978 - 1983,
aðstoðarmann forsætisráðherra og
utanríkisráðherra 1983 - 1988 og
skrifstofustjóra í forsætisráðuneyt-
inu frá 1989.
Konan sem tekur á móti mér
uppi á þrettándu hæð hefur breyst
svolítið í áranna rás, yfirbragðið
ögn virðulegra, silkiblússan, pilsið
og dömulegir skórnir hafa sennilega
þau áhrif, því fljótlega sést að hún
er að öðru leyti söm við sig; hressi-
leg, ákveðin og rökföst sem fyrr.
Gallabuxur og tréklossar finnast
henni enn í góðu lagi nánast alls
staðar annarsstaðar en í vinnunni,
en segir áhuga sinn á klæðaburði
ekki mjög mikinn. Hún vill lítið
ræða um slíka smámuni en færist
í aukana þegar talið berst að starf-
inu í bankanum.
„í þessu starfi hef ég kynnst
fólki víða að úr veröldinni m.a. frá
löndum þar sem skortur á öllum
sviðum veldur því að meðalaldur
fólks er ekki nema 50 ár, ólæsi al-
gengara en læsi og innan við 30%
barna sækja skóla. Oft finnst mér
sem viðfangsefni heima á íslandi
ættu að vera auðviðráðanleg í
samanburði við þær ótrúlegu hindr-
anir sem íbúar fátækustu hluta
heims glíma við,“ segir Helga. Hún
bendir á að á Islandi séu þjóðartekj-
ur á mann meira en 20.000 banda-
Morgunblaðið/vþj
HELGA Jónsdóttir í sæti sínu við fundarborð stjórnar Alþjóðabankans.
ríkjadalir (innsk.: 1 dollar = 68 íkr.)
á ári en innan við 500 bandaríkja-
dalir víða í Afríku.
Hlutverk Alþjóðabankans
- Hefur meginviðfangsefni Al-
þjóðabankans frá upphafi verið að-
stoð við þróunarríkin?
„Alþjóðabankinn var stofnaður
fyrir fímmtíu árum. Fyrstu árin
lánaði bankinn einkum til uppbygg-
ingar í stríðshijáðum ríkjum Evr-
ópu. Fjárhagur þessara ríkja var
svo bágborinn að þau áttu ekki
kost á lánum á alþjóðalánamark-
aði. Bankinn með ríkisábyrgð allra
eigenda sinna, þ.e. nánast allra
þjóða heims, að baki getur aflað
lána á afar hagstæðum kjörum á
alþjóðlegum mörkuðum og síðan
endurlánað þjóðum sem eiga í
vanda. Evrópulöndin eru nú komin
á réttan kjöl fjárhagslega og sum
þeirra eru meðal best stæðu þjóða
heims, sem leggja ríkulega af mörk-
um til þróunarhjálpar.
Hlutverk bankans hefur breyst
mikið í áranna rás. Nú er mest lán-
að til þróunarlanda. Slík viðfangs-
efni eru mun flóknari en aðstoð við
ríki þar sem þekking og menntun
fólks var fyrir hendi þrátt fyrir örð-
ugleika í kjölfar stríðsátaka. Erfíð-
leikarnir felast í því að miðla þekk-
ingu til fólks sem býr við frumstæð-
ar aðstæður. Ekki verður komist
að rót vandans án þess að takast
á við þau þjóðfélagslegu viðhorf
sem ríkja í hverju landi. Sem dæmi
má nefna að illa gengur að koma
böndum á fólksfjölgun í ýmsum
fátækustu hlutum veraldarinnar,
þar sem fátæktarvandinn fer vax-
andi vegna vaxandi mannfjölda,
samtvinnaðir hagsmunir þjóða
heims eru. Norðurlandaþjóðirnar,
aðrar en ísland, voru fyrstar þjóða
til að ná takmarki Sameinuðu þjóð-
anna um að leggja 1% af þjóðar-
framleiðslu til þróunarhjálpar.
Mér finnst ánægjulegt að vera
fulltrúi þjóða, sem taka þróunar-
aðstoð jafnföstum tökum og Norð-
urlandaþjóðirnar og ótilneydd vek
ég ekki athygli á að ísland er und-
antekning og leggur innan við 0,1%
þjóðarframleiðslu til þessa mála-
flokks.“
- Skiptir smæð eða framlag þjóð-
anna ekki máli þegar skipað er í
æðstu stöður?
„Æðsta stjórn Alþjóðabankans er
oftast í höndum fjápmálaráðherra
eða utanríkisráðherra aðildarríkj-
anna. Á íslandi er hún í höndum
viðskiptaráðherra. Ráðherrarnir
hafa framselt valdið til að sinna
daglegri stjórn bankans til stjórnar
sem situr að störfum allt árið í
Washington.
I stjórninni eiga sæti 24 aðalfull-
trúar og 24 varafulltrúar. Fimm
stærstu hluthafamir, Bandaríkin,
Japan, Bretland, Þýskaland og
Frakkland eiga fast sæti í stjórn-
inni og þegar Rússland gerðist að-
ili 1992 fékk það einnig fast stjórn-
arsæti. Önnur ríki skipa sér í kjör-
dæmi , sem sameinast um að kjósa
fulltrúa í stjómina. í slíkum kjör-
dæmum hafa stærstu ríkin venju-
lega aðalfulltrúa, þau næst stærstu
varafulltrúa og smærri ríkin skipta
með sér stöðum ráðgjafa og aðstoð-
armann. Þetta fyrirkomulag er ekki
við lýði í Norðurlandakjördæminu
því þar eiga öll ríkin jafnt tilkall
til æðstu starfa án tillits til stærð-
ar. Mér fínnst þetta lýsa norður-
landasamstarfinu í hnotskurn og
finnst fullt tilefni til að meta það
við frændur okkar.“
Alltaf Iangað til að starfa
erlendis
Helgu fannst það kærkomið
tækifæri þegar henni bauðst starf
í stjórn Alþjóðabankans. Hún hafði
alltaf ætlað sér að láta verða af því
að vinna um skeið í útlöndum. Á
námsárunum dvaldi hún sumar-
langt í Noregi, Svíþjóð og Þýska-
landi við ýmiskonar störf og hafði
því Bandaríkin helst í huga.
- „Washington og næsta ná-
grenni er þó fjarri því að endur-
spegla hin raunverulegu Bandaríki.
Hér er miðstöð stjórnsýslunnar, öll
erlend ríki hafa sendiráð hér og hér
eru stórar alþjóðastofnanir. Því er
afar algengt að sjá diplómataskilti
á bílum. Alþjóðabankinn er líka
mjög fjarri því að vera dæmigerður
bandarískur vinnustaður. Hér vinn-
ur hjartnær tugur þúsunda manna
af öllum þjóðernum og litarhætti.
Sumir ganga í þjóðbúningum og
margir tala ensku með hreim. Mér
finnst það gefa lífinu gildi að sjá
þannig fjölbreytileikann í mannlíf-
inu.“
Engin allsherjar hrifning
Helga er gift Heiga H. Jónssyni
varafréttastjóra Sjónvarpsins. Sam-
an eiga þau þijú börn, Oddnýju 13
ára, Sólveigu 9 ára og Gunnlaug 6
ára. Hún viðurkennir að tilfinningar
fjölskyldunnar hafi verið blendnar
þegar hún bar undir hana tilboðið
um stöðuna í bankanum. „Eigin-
manni mínum fannst tilhugsunin
um að helga sig heimilishaldinu í
þijú ár kannski ekkert sérstaklega
spennandi. Hann vildi þó alls ekki
að ég léti mér þetta tækifæri úr
greipum ganga og þá áttu blessuð
börnin engra kosta völ. Frá upp-
hafí hefur allt gengið ósköp vel
þótt bæði börnin og Helgi hafí þurft
að yfirstíga ýmsa byijunarörðug-
leika. Helgi hefur notið þess að eiga
meiri og nánari samskipti við börn-
in en nokkru sinni fyrr og auðvitað
er það að verulegu leyti hans verk
að börnin hafa aðlagast vel og náð
góðum árangri í skólanum. Því er
þó ekki að leyna að hann saknar
starfsins og umhverfísins heima og
allir hlakka mikið til að flytja heim.
Mín tilhlökkun er þó tregablandin
því ég hef aldrei verið i eins
skemmtilegu, lærdómsríku og
krefjandi starfi.“
í hveiju er það fólgið?
- „Stjórnin er skipuð fulltrúum
aðildarríkjanna, og því leitast
stjórnannenn við að koma á fram-
færi sjónarmiðum þeirra landa sem
þeir eru fulltrúar fyrir. Meginverk-
efni stjórnarinnar er að marka
stefnu bankans, hafa eftirlit með
framkvæmd stefnunnar, samþykkja
fjárlög bankans og öll lán sem bank-
inn veitir.
Starf í stjórn bankans er að ég
held um margt áþekkt starfi á lög-
gjafarþingi, þar sem mál eru lögð
fyrir, þau rædd formlega og niður-
staða fengin. Viðamikil og stefnu-
markandi mál fá fleiri en eina um-
ræðu, og oftast tekst að ná sam-
stöðu um endanlega afgreiðslu.
Stjórnin er ábyrg fyrir stefnumótun
bæði inn á við og út á við. Oft er
tekist á um stefnumótun, eins og
geta má nærri þar sem stjórnin er
skipuð fulltrúum frá öllum heims-
hlutum.
i
i
I
I
r
\i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
I
I
f
c
i
i
4