Morgunblaðið - 04.09.1994, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 04.09.1994, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍML 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRL: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Dökkt framundan í byggingariðnaði # ^ * • Morgunblaðið/Þorkell Vegið ur launsatri JAFNVEL mjallhvítar friðardúfur eru ekki óhultar fyrir köttum í veiðihug. Endurfjármögnun á 3 erlendum lánum ríkissjóðs Tæpast að við fáum í soðið HARALDUR Guðbrandsson fyrr- verandi sjómaður og starfsmaður Björgunar hefur farið í nokkra róðra í sumar sér ti! skemmtunar ásamt Einari Halldórssyni skrif- stofustjóra Björgunar. Hér er Haraldur að beita línu fyrir næsta róður á Sæbjörgu, rúmlega sjö tonna trillu sem þeir félagar róa á. „Eg er ellilífeyrisþegi og kom- inn hátt á áttræðisaldur," sagði hann. „Við erum að þessu okkur til gamans. Einar er yngri en ég en við höfum verið vinir í tuttugu ár og förum svona tvisvar í mán- uði. Við förum út um alla bugt og erum uppundir tólf tíma í einu. Þetta hefur gengið illa hjá okkur. Dragnótaveiðin hefur eyðilagt allt. Við fáum sama sem ekki neitt miðað við það sem áður var. Það tekur langan tíma og svona tæp- ast að við fáum í soðið. Nú förum við að hætta þegar haustar og setjum bátinn þá upp fyrir vetur- inn þegar veður versnar." Yfir 100 milljónum lægri vaxtagreiðslur báru 5-6% fasta vexti á ári. Voru lánskjör hagstæð fyrir ríkissjóð. Greiddir eru fljótandi vextir af nýja láninu eða 0,265% álag á Libor- vexti í japönskum jenum sem voru þá um 2,35%. Hafa vaxtagreiðslur vegna þessarar lántöku undanfarna mánuði því lækkað verulega miðað við kjör eldri lánanna. „Þetta eru þeir möguleikar sem hafa verið færir að undanförnu. Þeir hafa allir verið nýttir og er áfram unnið að aðgerðum af þessu tagi,“ sagði Ólafur ísleifsson. 72% erlendra lána ríkis bera fasta vexti í ársskýrslu Seðlabankans kemur fram að um seinustu áramót námu erlend lán ríkissjóðs jafnvirði rúm- lega 102 milljarða króna. Um 40% voru í Bandaríkjadölum, 14% í jap- önskum jenum og tæplega 46% í ýmsum Evrópugjaldmiðlum. Eru lágir vextir á erlendum fjánnála- mörkuðum sagðir hafa gefið tilefni til að auka hlutfall lána ríkissjóðs sem bera fasta vexti. í lok síðasta árs voru 72% erlends lánsfjár með föstum vöxtum borið saman við 61% árið áður og 52,4% 1991. Morgunblaðið/Kristinn Stærsta tertan BJÖRG Kristín Sigþórsdóttir, konditor í Bakarameistaranum í Suðurveri, gerir nú tilkall til Islandsmeistaratitils í brúðar- tertubakstri. Hún bakaði þessa 240 cm háu köku með aðstoð Rúnars Felixsonar í tilefni af brúðkaupi systur sinnar. í kök- una fóru 14 kg af marsipani, 25 kg af rjómasúkkulaði, 10 lítrar af rjóma og sex lítrar af Grand Marnier-líkjör. Kakan var skreytt með 150 handunn- um marsipanblómum og 200 marsipanlaufblöðum, auk ann- arra handunninna skreytinga, sem voru 250 talsins. Morgunblaðið/Þorkell í LÁNSSAMNINGUM hluta þeirra lána sem ríkissjóður hefur tekið á umliðn- um árum er heimild til að greiða lánin upp og heftir það gert ríkissjóði kleift að færa sér í nyt hagstæð markaðsskilyrði til að bæta kjör á þessu lánsfé. Á tæpu ári hefur ríkissjóður nýtt þessa heimild til að endurfjármagna þijú lán sem voru í japönskum jenum með nýjum lánum. Hefur með því tekist að lækka vaxtakostnað ríkissjóðs af þessu lánsfé um á annað hundrað milljónir. Að sögn Ólafs ísleifssonar, for- stöðumanns alþjóðadeildar Seðla- bankans, hefur tekist að bæta láns- kjör á þessu lánsfé um a.m.k. 1%. í nóvember sl. var láni að andvirði 3 milljarðar japanskra jena sagt upp og endurfjármagnað með nýju láni að sömu fjárhæð. Lánið er til 9 ára og ber 4,4% fasta vexti. Eldra lánið bar 5,5% vexti á ári en það var tekið á árinu 1988 og átti að endurgreið- ast í einu lagi í mai 1998. Nýja lánið fól í sér framlengingu eldra lánsins um fjögur ár og lækkun vaxta um 1,1% sem lækkaði vaxtabyrði af lán- inu um liðlega 20 millj. kr. á ári eða um rúmlega 100 millj. út lánstímann miðað við núverandi gengi. í mars sl. voru tvö japönsk lán að fjárhæð 5 milljarðar japanskra jena eða um 3,4 milljarðar ísl. króna endurfjármögnuð með skuldabréfa- útgáfu á Evrópumarkaði sem svarar til sömu fjárhæðar en eldri lánin Þrjú tonn af þorski á stöng GUNNAR Valdimarsson, 63 ára gamall Flateyringur, hefur aflað vel af innfjarðaþorski í Önundarfirði undanfamar vikur og fengið allan aflann á sjóstöng. Alls hefur Gunnar ’ komið með rúmlega þijú tonn af þorski að landi úr níu róðrum, en hann hefur þó fyrst og fremst verið á síldveiðum, en síld er vaðandi um allan fjörðinn, að sögn Gunnars. Þorskurinn heldur sig í námunda við síldina og hefur Gunnar fengið að meðaltali rúm 300 kg í róðri. Gunnar rær á trillunni Muggi, sem er lVi tonns bátur með króka- Flateyring-ur mokar upp innfjarðarþorski leyfí, en hann er í eigu Guðjóns Guðmundssonar. „Þetta er svona vítt og breitt um fjörðinn en mest þó út af Mosdalnum. Þorskurinn er hér um allt og heldur sig nokkuð í hnöpgum og er mikið á eftir síld- inni. Eg er svona hálftíma að skreppa þetta svo útgerðarkostnaðurinn er ekki mikill," segir Gunnar. Hann segir, að færabátar á Flat- eyri hafi reynt fyrir sér á sömu slóð- um með skakrúllur, en ekkert feng- ið. „Þorskurinn virðist vilja halda sig við stöngina og ég hef enga skýringu á því. Ég er með gúmmí- króka númer sjö og er búinn að fiska fyrir 220 þúsund kr., en ég fæ það nú ekki allt í minn hlut,“ segir Gunnar. Gunnar rakst á síldartorfu fyrir skemmstu og sagði hann þorskinn hafa vaðið í torfunni allt upp í fjöru- borðið á sjö til átta faðma dýpi. Fjög- ur síldamet hafa verið í firðinum og menn fengið allt upp í 800 kg í netin til beitu. Um 200 manns ‘ megabúast við uppsögnum ALLT að 200 manns í byggingariðnaði gætu fengið uppsagnarbréf á næstu vikum, að sögn Guðmundar Guðmundssonar hjá Samtökum iðnaðarins. Síðustu fjögur ár hefur starfsmönnum í greininni fækkað um 10% á ári. Sagði hann að staðan hjá byggingarmönnum og verktök- um væri slæm og útlitið svart. Ríflega helmingur fyrirtækja í grein- inni þyrfti að segja upp töluverðum mannskap. Minni fyrirtækin hafa ennþá næg verkefni „Það eru stærri fyrirtækin sem standa frammi fyrir þessum upp- sögnum og eru sum þeirra að segja upp allt að 50 manns,“ sagði hann. „Mér sýnist minni fyrirtækin ennþá hafa nóg fyrir sig með verkefni fram á vetur sum hver en þeir eru ef til vill með framkvæmdir upp á von og óvon um hvort þeim takist að selja íbúðir sem verið er að byggja. Hjá stærri aðilum er ástandið væg- ast sagt mjög slæmt framundan.“ Engar opinberar framkvæmdir Guðmundur bendir á að nær engar opinberar framkvæmdir séu í gangi eða nokkrar stærri fram- kvæmdir fyrirsjáanlegar. Helst séu það einstaklingar, félög eða sveit- arfélög sem standi fyrir framkæmdum. „Ég býst við að þetta verði mjög erfiður vetur í greininni,“ sagði hann. „Hugsan- lega stórfelldar uppsagnir og gjald- þrot ) kjölfarið. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fyrirtækin geti staðið af sér verkefnalausan vetur miðað við ástandið eins og það hefur verið að undanförnu. Sérstaklega er ástandið slæmt í jarðvinnuverkefnum. Þar sjá menn ekki neitt framundan og ekki eru menn að hefja framkvæmdir á þessum árstíma.“ Guðmundur sagðist vera þeirrar skoðunar að nú væri botninum náð, verra gæti ástandið ekki orð- ið. „Það verður að vera það,“ sagði hann. „Annars flosnar þessi iðn- grein upp.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.