Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 5
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Fjármálaráðherrar EFTA og ESB á viðræðufundum
i
íslendingar vilja fleiri fundi
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR EFTA
og ESB ræddust við í Brussel á
mánudag en þessir viðræðufundir
hófust á síðasta ári.,Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra óskaði sérstak-
lega eftir því að fundir af þessu tagi
yrðu haldnir áfram á næsta ári burt-
séð frá því hvort flest núverandi
EFTA-ríki gengju í ESB eða ekki.
,,Eg taldi það mjög mikilvægt fyr-
ir Islendinga og aðra þá sem eru nú
í EFTA en verða utan við Evrópu-
sambandið, að viðræðufundir um
sameiginleg áhugamál og aðkallandi
vandamál verði haldnir áfram.
Ástæðan er sú að við megum gæta
okkar á því að einangrast ekki frá
þessum samstarfsaðilum okkar þótt
við gerumst ekki aðilar að Evrópu-
sambandinu í fyrirsjáanlegri framtíð.
Þessu var út af fyrir sig vel tekið
en engin ákvörðun tekin um hvenær
næsti fundur verður,“ sagði Friðrik.
Minni fjárlagahalli
Á fundinum í Brussel kom fram
að Evrópusambandsþjóðirnar hafa
sett sér það markmið að halli á fjár-
lögum verði innan við 3% af vergri
landsframleiðslu árið 1996-97. Frið-
rik sagði að íslendingar hefðu sín
ríkisfjármál í betra lagi því hallinn
væri nú innan við 2%. „Aðalatriðið
í þessari umræðu var þó að taka
verði föstum tökum á ríkisfjármálun-
um nú þegar nokkur uppsveifla er í
efnahagsmálum í Evrópu. Annars
skapist vítahringur hærri skatta og
minni atvinnu og þyngri ríkisfjár-
mála,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að einnig hefði verið
rætt um kerfislægar breytingar
vegna atvinnuleysis, til að reyna að
draga úr langtímaatvinnuleysi og
atvinnuleysi ungs fólks.
Hausar í
hreinsun
NOKKRUM strákum í fjöruferð í
nágrenni Reykjavíkur brá heldur
en ekki þegar þeir gengu fram á
nokkra hreindýrshausa sem mör-
uðu í kafi í sjónum. Þeir létu vita
af fundinum og þá kom upp úr
kafinu að hér var verið að nýta
aldagamla tækni til að hreinsa
bein. Marflær eru lúsiðnar við að
hrcinsa hveija tægju af beinum
og þegar þær hafa lokið verki
sínu eru beinin skinin og hrein.
Hreindýrshauskúpurnar munu
því væntanlega bera nafn með
rentu að hreinsun lokinni.
-----» ♦ ♦-----
21 í Frjálsa flug-
mannaf élaginu
Telja hag
sínum betur
borgið en
innan FIA
STJÓRN og formaður Frjálsa flug-
mannafélagsins vísa því á bug að
félagið sé stofnað til bráðabirgða, Á
sama hátt er því mótmælt að um
atvinnukúgun sé að ræða eða atlögu
við stéttarfélög. Hafþór Hafsteins-
son, flugrekstrarstjóri Air Atlanta,
sagði að fyrirtækið teldi engu að
bæta við tilkynningu frá hinu ný-
stofnaða stéttarfélagi flugmanna
fyrirtækisins. Ekki náðist í Arngrím
Jóhannsson forstjóra fyrirtækisins.
Stjórn Fijálsa flugmannafélagsins
hefur sent frá sér fréttatilkynningu,
þar sem lögð er áhersla á að stofnun
félagsins sé fullkomnlega lögmæt.
Um það megi m.a. vitna til 73. gr.
stjórnarskrár um heimild manna til
að stofna félög í sérhveijum lögleg-
um tilgangi. Rétturinn sé staðfestur
í 1. gr. laganna um stéttarfélög og
vinnudeilur. Tilgangur félagsins sé
m.a. að gæta hagsmuna félags-
manna um kaup og kjör og því um
lögmætt stéttarfélag að ræða.
21 stofnfélagi
„Sú fullyrðing að einungis séu 11
flugmenn í félaginu er röng. Hið rétta
er að stofnfélagar þess eru 21 sem
lætur nærri að séu 75 hundraðshlutar
flugmanna hjá Flugfélaginu Air Atl-
anta. Útlit er fyrir að þeim fari fjöig-
andi,“ segir í fréttatilkynningunni.
Tekið er fram að félagsmenn FFF
telji hag sínum betur borgið innan
félagsins en í FÍA og ákvörðun þeirra
um að stofna félagið hafi verið án
alls þrýstings frá Air Atlanta. Því sé
öllu tali um atvinnukúgun mótmælt.
Einnig þein'i fullyrðingu formanns
FÍA að kjarasamningur FFF sé lak-
ari en kjarasamningur FIA. Enginn
samanburður hafi enn farið fram er
réttlæti slíkar fullyrðingar. Að lokum
segir: „Það er von stjórnar félagsins
að þessi tvö stéttarfélög geti framveg-
is starfað saman í sátt og samlyndi
og unnið þannig að hagsmunum flug-
manna á íslandi."
^Petta er besti og vinsœlasti útigallinn okkar. Hvert
smáatriði er úthugsað. Hénn er fáanlegur rauður;
dökkblár og þrílitur.
Kringlan 8-12
Hár prjónaður kragi
Vítí og gott snið.
Pijónað
stroff
á
eraitmi.
Vasi með rennilás.
Hlýtt fóður sem
hægt er að hneppa
úr, gallinu nýtist
því aUt ário.
Endurskinsmerki.
Teygja.
Miði til áð skrifa nafn
barnsins og símanúmer.
Sterkur
rennilás.
r
I mitti er teygja
sem hægt er að
þrengja að vild.
Sérstakt miUifóður
sem kemur í veg
fyrir að bamið blotni.
Vei-ð frá kr. 7.900,-