Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 33 Atlasklúbburinn dregur út bónusferðir vetrarins VETRARBÓNU SFERÐIR Atlas- klúbbsins voru dregnar út og sýnir myndin vinningshafa sem allir eru handhafar Atlas-korta eða Gull- korta Eurocard. Að þessu sinni leggja Flugleiðir til alla vinninga sem féllu þannig: Alfreð Þór Al- freðsson, Kópavogi, ferð fyrir tvo til Glasgow, Þorsteinn H. Astráðs- son, Seltjarnarnesi, ferð fyrir tvo til London, Kristbjörn Þorkelsson, Reykjavík, ferð fyrir tvo til Kaup- mannahafnar, Sigurður Kr. Björns- son, Reykjavík, ferð fyrir tvo til Hamborgar, Jóhanna Kr. Guð- mundsdóttir, Hafnarfirði, ferð fyrir tvo til Luxemborgar, Ólöf Bjarna- dóttir, Garðabæ, ferð fyrir tvo til Baltimore og Ágúst Þór Jónsson, Selfossi, ferð fyrir tvo til Amster- dam. Með vinningshöfum á mynd- HANNA Björk Wiium í hinni nýju verslun sinni. Stúdíó Hönnu Bjarkar opnað NÝLEGA var opnuð á Skólavörðu- stíg 22c í Reykjavík verslun sem ber nafnið Stúdíó Hönnu Bjarkar. Þetta er sérverslun fyrir Shirley Price á íslandi, en það er breskt fyrirtæki og eitt af því stærsta i heimi sem sérhæfir sig í fram- leiðslu á vörum sem unnar eru úr 100% jurtum. Verslunin hefur til sölu ilmolíur, grunnolíur, krem, baðvöru, bækur og plaköt allt tengt jurtum. Eigandi verslunarinnar er Hanna Björk Wiium. Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 13-18. ------♦ ♦ ♦ ■ KVENFÉLAG Kópavogs er nú að hefja 35. starfsár sitt og verður fyrsti félagsfundur vetrar- ins nk. fimmtudag, 22. september, og hefst kl. 20.30. Á fundinn kem- ur Hlíf Geirsdóttir og fjallar um íslenska búninginn á ýmsum skeið- um sögunnar og skartar búningi sem hún hefur sjálf saumað. Stjórn og varastjórn Kvenfélags Kópa- vogs skipa: Helga Sigurjónsdótt- ir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ása Baldurs, Kristín Pétursdóttir, Rannveig Garðarsdóttir, Sigríð- ur S. Jónsdóttir og Sigríður Andrésdóttir. inni er Pétur Ómar Ágústsson, full- trúi Flugleiða. Þetta er í sjöunda sinn sem bónusvinningar Atlas- klúbbsins eru dregnir út. Sumar- bónusferðir, samtals 7 ferðavinn- ingar, verða dregnir út í apríl nk. Konukvöld haldið í Naustkjall- aranum HEIÐAR Jónsson snyrtir heldur konukvöld í Naustkjallaranum fimmtudaginn 22. september. Hús- ið verður opnað kl. 19 og skemmt- unin hefst kl. 20.30. Um kvöldið munu Módelsamtök- in sýna undirfatnað frá versluninni Blái fuglinn, Borgarkringlunni, og einnig kynnir snyrtivöruverslunin Jósefína, Laugavegi 17, ilmvatnið Vivid Liz Claiborne. Kynning verð- ur á Grænu appelsínunni eða „Pis- ang Ambon“ og verður það veitt við innganginn. Salurinn verður skreyttur af blómabúðinni Uridir stiganum, Borgarkringlunni. Aðgangseyrir er 500 krónur og eru allar konur vel- komnar. HEIÐAR Jónsson snyrtir sér um konukvöld í Naustkjallar- anum ásamt eigendum Naust- kjallarans Siggu og Jönu. Vernharður Linnet heiðraður á Kringlukrá VERNHARÐUR Linnet fram- kvæmdastjóri RúRek-djasshá- tíðarinnar varð fimmtugur á dög- unum og af því tilefni ætla félagar hans úr djassinum að heiðra hann með djammsessjón á Kringlu- kránni í kvöld, miðvikudaginn 21. september. Hrynsveit skipuð þeim Guð- mundi Steingrímssyni, Karli Mell- er og Bjarna Sveinbjörnssyni verð- ur til taks til að leika undir fyrir ljölda djassleikara sem hefur boð- að komu sína. Vernharður Linnet er einn af stofnendum Jassvakn- ingar, framkvæmdastjóri RúRek síðastliðin ár, varaformaður Jass- klúbbs Reykjavíkur svo fátt eitt sé talið Samkoman hefst skömmu eftir kl. 21 og eru allir velkomnir. Norræna Ráðherranefndin Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjórnanna á Norðurlöndum. Skrifstofa nefndarinnar, sem staðsett er í Kaupmannahöfn, auglýsir nú eftirfarandi stöður lausar til umsóknar. Tvær stöður skrifstofustjóra Skrifstofustjóramir vinna í nánu sambandi viö framkvæmdastjórann og sitja í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Umsækjandinn þarf að hafa forystuhæfileika og geta unnið markvisst og þverfaglega. Skrifstofustjóri fjármála og rekstrar Skrifstofusljórinn ber ábyrgð á stjóm u n og skipulagningu á rekstri skrifstof- unnarásamttuttugustarfsmönnum, • gerð fjárhagsáætlunar og fylgist með framfylgd hennar. Norrænu fjárlögin nema 706 milljónum d.kr. Starfið krefst samningslipurðar og breiðrar faglegrar þekkingar frá fyrri störfum. Upphaf ráðningartíma er eftir nánara samkomulagi. Skrifstofustjóri samstarfs sem varðar atvinnumarkað, vinnuvernd, félags- og heil- brigðismál, jafnrétti, neytendamál og matvæla- iönaö í samvinnu við átta starfsmenn ber skrifstofustjórinn ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd á sam- starfi ráðherranefndar og embættismanna á fyrrnefndum sviðum. Þar á meðal telst starf nor- rænna stofnana og ýmis sam- starfsverkefni. Starfið krefst þekkingar á öllum geiranum í heild sem og norrænni stefnu þar að lútandi. Upphaf ráðningartíma er 1. apríl 1995. Deildarstjóri alþjóðlegra samskipta Alþjóðadeildin stjómarog skipuleggur starfsemi ráðherranefndarinnar á grannsvæðum Norðurlanda (Eystrasaltsríkjum, Rússlandi), en þar á meðal teljast fjórar upplýsingaskrifstofur. Fjárlög starf- seminnar nema 50 milljónum d.kr. Þá sér deildin um námskeið og aðra starfsemi á vegum ráðherranefdar- innar á meginlandi Evrópu. Deildarstjórinn þarf að vera vel til forystu fallin(n), hafa reynslu af skipulagningu, góða tungumála- kunnáttu og vera vel að sér í málefnum Norðurlandanna og Evrópu í dag. Ráðning frá 1. febrúar 1995. Tvær stöður deildarsérfræðinga - Deildarsérfræðingur á sviði rannsókna og æðri menntunar - Deildarsérfræðingur á sviði fullorðins- og alþýðufræðslu Starfið felst m.a. í því að undirbúa og fylgja eftir ákvörðunum raðherra- nefndar og annarra norrænna nefnda og annast upplýsingastarf og önnur samskipti við aðila á þessu sviði í aðildarríkjunum og á alþjóðavettvangi. Ráðningartími hefst 1. mars 1995 eða eftir samkomulagi. Fimm fulltrúastöður - Deildarfulltrúi mennta-, menn- ingar og rannsóknarskrifstofu er ritari skrifstofustjóra og skipuleggur verkaskiptingu og vinnutilhögun innan deildarinnar. Deildarfulltrúinn aðstoðar m.a. við undirbúning og framkvæmd funda menningar- málaráðherranna og embættis- mannanefndar. Ráðningartími frá 1. janúar1995. - Fulltrúi á mennta-, menningar- og rannsóknaskrifstofu sér um meðferð skjala, bókanir, ritarastörf o.fl. á menntadeild. Ráðningartími frá 1. febrúar 1995. - Fulltrúi á umhverfismála- og iðnaðarsviði sér um meðferð skjalá bókanir, ritarastörf o.fl. á umhverfis- mála- og iðnaðarsviði. Ráðningartími frá 1. janúar 1995. - Fuiltrúi í bókhaldsdeild sér um launagreiðslur, eftirlit með ferðareikningum og bókfærslu, auk annarra tilfallandi starfa í bókhaldi. Ráðningartími frá 1. desember 1994. - Fulltrúi í starfsmannadeild að- stoðar m.a. við mannaráðningar, endurmenntun og önnur verkefni í starfsmannahaldi. Ráðningartími frá 1. janúar1995. Upplýsingar um allar stööur Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára. Opinberir starfsmenn eiga rétt á orlofi sem ráðningartímabilinu nemur. Umsækjandi þarf að hafa góða fræðilega menntun og margra ára starfsreynslu hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Skrifleg eða munnleg færni í dönsku, norsku eða sænsku er forsenda fyrir ráðningu. Þekking á öðrum tungumálum er æskileg. Skrifstofa norrænu ráðherranefnd- arinnar vill stuðla að jafnri kynskipt- ingu og hvetur því bæði karla og konur til að sækja um störfin. Nánari skriflegar upplýsingar um ofannefndar stöður og umsóknareyðublöð má panta hjá: Nordisk Ministerrád, Box 3035, DK-1021 Köbenhavn K, Danmörku, eða í bréfsíma 90 45 33 96 02 02 eða 90 45 33 96 02 16. Þar eru gefin upp nöfn á fólki sem getur sagt nánar frá hverju starfi fyrir sig. Umsóknarfrestur rennur út 19. október 1994.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.