Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Viðræður við Þjóðarflokkinn tefja stjórnarmyndun jafnaðarmanna Carlsson kynnir stjórnina í dag Stokkhólmi. Reuter. INGVAR Carlsson, leiðtogi jafnað- armanna og verðandi forsætisráð- herra Svíþjóðar sagðist í gær myndu fresta því fram til dagsins í dag að tilkynna um nýja ríkis- stjórn en ætlunin var að það yrði gert í gær í kjölfar kosningasigurs flokksins á sunnudag. Ástæða seinkunarinnar er sú að Carlsson hefur ekki getað rætt við Bengt Westerberg, formann Þjóðar- flokksins, vegna anna hins síðar- nefnda. Þrátt fyrir fylgisaukningu jafn- aðarmanna vantaði þá herslumun- inn til að ná meirihluta á þingi, hlutu 45,4%. Carlsson hefur átt viðræður við formenn sex smá- flokka en mestar líkur eru taldar á samstarfi við Þjóðarflokkinn, verði á annað borð mynduð meiri- hlutastjórn. Þjóðarflokkurinn tap- aði fylgi, úr 9,2% í 7,2% og vegna þessa sat Westerberg á löngum og ströngum fundum með flokks- mönnum sínum í gær. Hafði hann sagst myndu segja af sér, yrði útkoma flokksins verri en í síðustu kosningum. Iðnrekendur og kaupsýslumenn, svo og fjölmiðlar hafa hvatt mjög til þess að jafnaðarmenn myndi stjórn með Þjóðarflokknum en tals- menn hans vilja engu lofa. Sagði Karin Pilsater, sem sæti á í fram- kvæmdastjóm Þjóðarflokksins, að líkurnar á samstarfi flokkanna væru litlar. Flokksstjórnin hefði ekki umboð kjósenda til að ganga til stjórnarsamstarfs. Fylgi eykst við aðild Búist er við að jafnaðarmenn muni hrinda af stað mikilli herferð til að hvetja kjósendur til að sam- þykkja aðild að Evrópusambandinu í nóvember. Telja stjórnmálaskýr- endur að líkurnar á því hafi aukist í kjölfar kosningaúrslitanna, þrátt fyrir að naumur meirihluti lands- manna sé enn andvígur aðild, um 52%. Bilið minnkar þó óðum, fyrir ári voru 38% fylgjandi henni, nú eru þeir orðnir 48%. Stærstu stjórnmálaflokkarnir eru fylgjandi ESB-aðild, en afstaða Jafnaðarmannaflokksins hefur me§t áhrif þar sem hann er lang- stærstur. Um 60% kjósenda hans eru andvígir aðild en stjórnmála- skýrendur telja að þar sem verð- andi forsætisráðherra, Carisson, sé henni fylgjandi geti það haft úrslitaáhrif, fólk kjósi í samræmi við flokk sinn, svo og forsgetisráð- herrann. Burma-leið- togar hitta Suu Kyi Bangkok. Reuter. TVEIR háttsettir liðsmenn her- foringjastjórnar Burma, sem nú nefnist Myanmar, áttu að sögn þarlendra útvarps- og sjónvarps- stöðva fund með stjórnarand- stöðuleiðtoganum Aung San Suu Kyi í gær. Suu Kyi hefur verið í stofufang- elsi síðan 1989 en árið eftir sigraði flokkur hennar í frjálsum kosning- um. Herforingjarnir virtu hins veg- ar niðurstöðu þeirra að vettugi og síðan hefur stjórn þeirra verið ein- angruð á alþjóðavettvangi. Suu Kyi hefur hlotið friðarverðlaun Nóbels. Hér er hún með herforingjunum en myndin er tekin af sjónvarps- skjá. Reuter Stjömum skipað í læknis- skoðun New York. The Daily Telegraph. KVIKMYNDASTJÖRNUM í Hollywood mun bráðlega verða gert að gangast undir læknisskoðun hjá tryggingafé- lögum áður en þau tryggja myndirnar sem þær leika í. Leikarnir verða að fara í blóð- og þvagpróf til að kanna hvort þeir neyti eiturlyfja eða drekki óhóflega, auk þess sem heilsufar þeirra verður kann- að. Nú þegar hafa nokkrar stórsljörnur gengist undir slík próf, vegna ákvæða í starfs- samningum þeirra, m.a. Demi Moore, Bruce Willis og Syl- vester Stallone. Óvænt andlát Ástæðu þessa herta eftirlits má fyrst og fremst rekja til dauða tveggja kvikmyndaleik- ara á undanförnum mánuðum, sem urðu til þess að trygginga- félög urðu að greiða hundruð milljóna dala í bætur. Fram- leiðendur tveggja mynda sem River Phoenix hafði ekki lokið við að leika I, fengu 5,7 milljónir dala, um 400 milljón- ir kr. í tryggingabætur og framleiðendur myndar sem John Candy fór með aðalhlut- verkið í er hann lést, fengu um 14,5 milljónir dala, tæpan milljarð ísl. kr. Phoenix Iést úr of stórum eiturlyfja- skammti en Candy af völdum RIVER Phoenix var fórnar- lamb eiturlyfja en John Candy lést úr hjartaáfalli. hjartaáfalls. Tryggingaf élögin sem tryggðu myndir Phoenix neita að greiða tryggingarnar út þar sem leikarinn hafi ekki sagt satt um eiturlyfjanotkun sína. Tveimur mánuðum fyrir lát sitt undirritaði hann ásamt læknum sínum yfirlýsingu þar sem hann kvaðst aldrei hafa neytt ofskynjunarlyfsins LSD, heróíns, kókaíns, of mikils áfengis, þunglyndis-, róandi- eða ofskynjunarlyfja. í októberhefti viðskipta- tímaritsins Worth segir að nokkur af stærstu trygginga- félögum Bandaríkjanna krefj- ist þess nú að fá nákvæma útlistun á heilsufari aðalleik- ara í þeim kvikmyndum sem þau tryggi áður en samningur er gerður. Sjálf geta félögin ekki sett leikurunum skilyrði en þau hafa hins vegar þrýst á kvikmyndaframleiðendur, sem fyrirskipa leikurunum að fara í læknisskoðun til þess að fá tryggingu. Framvæmdastjórastaða NATO Ellemann-J ensen kemur til greina Kaupmannahöfn. Reuter. UFFE Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur, útilok- aði ekki þann möguleika að hann sæktist eftir stöðu framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO), í viðtali sem dagblaðið Politi- ken birti í gær. Þá sagði breska blaðið The Independent að Ellemann- Jensen kæmi vel til greina í embættið. Flest aðildarríki NATO styðja belgíska utanríkisráðherrann, Willy Claes, í embættið og framboð Elle- manns-Jensen kynni því að flækja málin, en mönnum er mikið í mun að sátt verði um eftirmann Manf- reds Wörner, sem lést í síðasta mánuði. Að sögn heimildarmanna innan NATO munu aðildarríkin ekki taka endanlega ákvörðun um framkvæmdastjóra fyrr en í lok september, að beiðni dönsku stjórn- arinnar. Vill verða forsætisráðherra „Ég hef aðeins áhuga á einu starfi nú, og um það verður tekin ákvörðun á miðvikudag,“ sagði Ellemann-Jensen í samtali við Poli- tiken og vísaði þar til þingkosning- anna sem gengið verður til í dag. Hafði blaðið eftir heimildarmör.n- um innan ríkisstjórnar jafnaðar- manna að stjórnin væri ekki andvíg því að styðja hann til embættisins. Er Ellemann-Jensen var spurður að því hvort hann væri reiðubúinn að ræða framkvæmdastjórastöð- una eftir kosningar, sagðist hann ekki geta svarað því að svo stöddu. Hann hefur hingað til neitað áhuga sínum á embættinu enda tekið þátt í kosningabaráttunni í heimalandi sínu af fullum krafti. Varasamt fiskmeti London. Reuter. FISKUR, sem lengi hefur verið tal- inn hollari en flestur annar matur, er kannski ekki jafn heilnæmur og af er látið. Að minnsta kosti ekki ef hann kemur úr Norðursjónum eða öðrum menguðum sjó. Mikil mengun á svæðum eins og Norðursjónum og stundum í fisk- eldinu veldur- því, að fiskurinn er oft sjúkur og getur þess vegna bein- iínis verið hættulegur heilsu manna. Kemur þetta fram í bresku tíma- riti, Healthy Eating, en þar segir, að rannsóknir sýni, að sumir hlutar Norðursjávar séu eins og efnasúpa. Þar sé að finna skordýraeitur, olíu og eitraða málma eins og kadmíum. í tímaritinu er vitnað til hol- lenskrar skýrslu en í henni segir, að 40% af sandkola, flyðru og skar- kola séu hlaðin kaunum og sárum og óhæf til neyslu. Það hvetur þó ekki fólk til að hætta fiskáti, heldur aðeins að vanda valið. jgj|f)STUTT Hizbollah- skæruliðar í Bosníu? HIZBOLLAH-skæruliðasam- tökin, sem hafa aðalstöðvar sínar í Líbanon og njóta stuðn- ings írana, segja einn liðs- manna sinna hafa fallið í bar- dögum með múslimum í Bosn- íu. Ekki var nánar tilgreint hvar eða hvenær maðurinn, Ramzi Mehdi, hefði fallið en sag^ að hann yrði grafinn í Suður-Líbanon. Abioia læknisþurfi LÆKNASAMTÖK í Nígeríu hafa beðið um bráðafund með Sani Abacha, hershöfðingja og æðsta manni herforingja- stjórnar landsins, og vilja þeir að hann leyfi stjórnarand- stöðuleiðtoganum Moshood Abiola að fá nauðsynlega læknishjálp. Abiola, er talinn hafa sigrað í síðustu forseta- kosningum í Nígeríu en er nú sakaður um landráð. Sum fé- lög læknasamtakanna hafa verið í verkfalli í nokkrar vikur en bjóðast til að hefja aftur störf fái Abiola hjálp. Grikkir fá bréf STJÓRNVÖLD í Frakklandi og Þýskalandi hafa ritað grísk- um ráðamönnum bréf þar sem hvatt er til þess að spenna á landamærum Grikklands að nágrannaríkjunum Aibaníu og Makedóníu verði rædd á vett- vangi Evrópusambandsins. Klaus Kinkel, utanríkisráð- herra Þýskalands, sagðist hafa miklar áhyggjur af þróun mála en Grikkir hafa fram til þessa ávallt hafnað öllum boðum um málamiðlun. Sjálfsmorðs- árás á herskip TAMÍLSKIR skæruliðar drápu eða' náðu sitt á vald 27 stjórn- arhermönnum í Sri Lanka í fyrrinótt en þá sigldu tvær sjálfsmorðssveitir þeirra á eft- irlitsskip við norðausturströnd landsins. Fimm skæruliðar létu lífið þegar bátar þeirra, sem voru hlaðnir sprengiefni, sigldu á eftirlitsskipið en í áhöfn þess voru 43 menn og hafði tekist að bjarga 16. Ótt- ast er, að þessi atburður geti gert að engu tilraunir nýrrar stjórnar á Sri Lanka til að binda enda á stríðið milli sing- hala og tamíla en það hefur staðið í 11 ár. Eftirför á 220 km hraða LÖGREGLUMAÐUR frá Þela- mörk er ókrýndur ökuníðingur Noregs eftir að hann brunaði á 220 km hraða á klst. eftir bugðóttum fjallvegi. Athæfi hans sætir nú rannsókn hjá innra eftirliti norsku lögregl- unnar. Lögreglumaðurinn hef- ur þá skýringu á aksturslaginu að hann hafí verið að elta ann- an ökuníðing. Sá var gripinn og mældist á 136 km hraða. Bíll lögreglumannsins var ekki útbúinn sírenum eða blikkljós- um en það hindraði hann ekki í því að hefja eftirför, þar sem hann taldi manninn aka allt of hratt. k m « i i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.