Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI * Astandinu verður að linna Mývatnssveit. Morgunblaðið. GRUNNSKÓLI Skútustaðahrepps og Tónlistarskóli Mývatnssveitar voru settir 8. septernber síðastliðinn í Reykjahlíðarskóla. Skólastjóri Garðar Karlsson flutti skólasetning- arræðu og ræddi m.a. það óþolandi ástand sem nú ríkti í skólamálum Mývetninga og að því yrði að linna. Hann gat þess að breyting hefði orðið á skólastjórn og kennaraliði tónlistarskólans, Viðar Alfreðsson sem verið hefur skólastjóri skólans allmörg undanfarin ár lét af því starfi síðastliðið vor. Garðar Karlsson hefur nú verið ráðinn skólastjóri tónlistar- skólans ásamt grunnskólanum. Við lok skólasetningarinnar sem var flöl- menn, sungu allir viðstaddir Blessuð sértu sveitin mín við undirleik þýska kennarans. Á fyrsta kennsludegi í Reykjahlíð- arskóla, mánudaginn 12. september mættu aðeins þrír nemendur af 24 frá suðurhluta Mývatnssveitar í skólabílinn. Þessi skóladeila virðist því vera óleysanleg eins og er. Verðmæt- ur afli úr Smugunni ÞAÐ hefur verið heilmikil törn hjá strákunum í löndunargenginu eftir að frystitogarinn Baldvin Þorsteins- son EA kom úr stærsta túr sem ís- lenskt skip hefur farið í Smuguna. Þeir voru tvo daga að landa úr skip- inu sem kom með 400 tonn af fryst- um flökum sem gerir um eitt þúsund tonn af fiski upp úr sjó. Verðmæti aflans er um 92 milljónir króna, en síðast kom skipið með álíka verð- mætan afla að landi vorið 1993, 91,4 milljónir króna. Allt fullt Búið var að fylla alla frystigáma á hafnarsvæðinu þannig að síðdegis í gær þurfti að fara með nokkur bretti í frystigeymslur Strýtu hf. Arngrímur Brynjólfsson skipstjóri á Baidvini Þorsteinssyni sagði fyrri- hluti túrsins hefði gengið vel en ör- deyða síðustu níu dagana. „Nú snúum við okkur að karfaveiðum. Það er stefnt á Skeijadýpiskarfa en ef það er eitthvað meira í úthafínu þá lítur maður þangað,“ sagði Arngrímur. Tónleikar Kristins og Jónasar KRISTINN Sigmundsson og Jónas Ingimundarson halda tónleika í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju annað kvöld, fimmtudagskvöldið 22. september, kl. 20.30. Á tónleikunum munu þeir flytja íslensk og erlend lög og aríur af ýmsu tagi. Kristinn undirritaði á dögunum samning við Scala-óperuna í Mílanó þar sem hann mun syngja eitt af burðarhlutverkunum i Rínargulli Wagners snemma árs 1996, en á næstunni syngur hann í óperunni „Selda brúðurin" eftir Smetana í Genf og hlutverk Mefistofelesar í „Fordæmingu Fásts“ eftir Berlioz í París. Jónas hefur verið virkur í tónlistarlífi sem einleikari og einn- ig leikið með fjölmörgum söngvurum um áraraðir og hefur sam- starf þeirra Kristins staðið í meira en áratug. lörð til sölu Jörðín Litli Dunhagi I í Arnarneshreppi er til sölu. Á jör&inni er íbúðarhús byggt 1985 ca 125 m2, geldneytafjós 200 m2, byggt 1983, hesthús fyrir ca 40 hross og hlaða 1.325 m. Ástand húsa er gott. Ræktun 1 8,5 ha og ræktunarmöguleikar ca 20 ha. Fullvirðisréttur enginn. Fjarlægð fró Akureyri 12 km. Tilboð þar sem fram komi verð og greiðslufyrirkomulag sendist til Búnaðarsambands Eyjafjarðar, Oseyri 2, 600 Akureyri, merkt: Jörð 94", fyrir 28. september nk. Frekari upplýsingar gefnar þar í síma 96-24477 á skrifstofutíma. Skjólstæðingar heimahjúkrunar sífellt fleiri og álagið eykst Ekki hægt að sinna fleiri beiðnum Oskir um fleiri stöðugildi hafa verið árangurslausar KONNÝ K. Kristjánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðvarinn- ar á Akureyri, segir að álag á starfsfólk heimahjúkrunar sé sífellt að aukast og nú sé komið að þeim tímapunkti að ekki sé hægt að sinna öllum beiðnum um þjónustu. Margítrekað hafi verið óskað eft- ir fleiri stöðugildum við heimahjúkrun án árangurs. Til að koma til móts við auknar þarfir skjólstæðinga hafi þurft að skera niður á öðrum sviðum við fyrirbyggjandi störf, svo sem við skólahjúkrun, ungbarna- og mæðraeftirlit. Starfsemi heimahjúkrunar hófst árið 1974, tveimur árum síðar nutu 30 skjólstæðingar þjón- ustunnar en til þeirra var farið í 975 vitjanir. Á hveiju ári hefur skjólstæðingum fjölgað, voru 198 árið 1986 og var þá farið í um 9.800 vitjanir. Á liðnu ári voru skjólstæðingarnir orðnir 302 og vitjanir voru 21.572 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Haldbærar tölur fyrir yfírstandandi ár liggja ekki fyrir en ljóst er þó að enn hefur skjólstæðingum fjölgað. Vítahringur Stöðugildum hefur ekki fjölgað frá árinu 1990 þegar allir starfs- menn heilsugæslustöðvarinnar urðu ríkisstarfsmenn. „Við höfum margreynt að fá fleiri stöður en án árangurs,“ segir Konný en með því að bæta við tveimur stöðum hjúkrunarfræðinga telur hún að hægt sé að veita viðunandi hjúkr- un fyrir þann skjólstæðingahóp sem heimahjúkrunin sinni nú. Stöðugildi við heimahjúkrun eru 12, hjúkrunarfræðingar eru í 5 stöðum og sjúkraliðar 7. Sífellt fleiri leita eftir þjónustu heima- hjúkrunar og kapp hefur verið lagt á að sinna öllum beiðnum og finna bestu lausn hveiju sinni. Frá 1. desember 1992 höfum við veitt kvöldþjónustu. Föst helgarþjón- usta hófst snemma árs 1989. Kostnaður við kvöld- og helgar- þjónustu hefur ekki fengist greidd- ur sérstaklega úr ríkissjóði, þrátt fyrir síendurteknar beiðnir þar um. Eftir helgarvinnu (yfirvinnu) hefur starfsfólkið þurft að taka frí sem leiðir til þess að álagið verður enn meira á það starfsfólki sem fyrir er. Þetta er vítahringur sem erfitt er að komast úr. Fleiri skjólstæð- ingar bætast í hópinn og starfs- fólkið fer hraðar og hraðar yfir sem leiðir af sér ófullnægjandi þjónustu. Óeðlilegt álag er á starfsfólk heimahjúkrunar og við sjáum engan veginn fram á að geta sinnt öllum beiðnum um þjón- ustu sem berast. Samráð Konný segir að mun betur þurfi að vanda útskriftir hjúkrunar- sjúklinga af deildum sjúkrahúsa. Það geti ekki gengið að lofa sjúkl- ingum heimahjúkrun án þess að samráð um það sé haft við stjórn- endur heimahjúkrunar. Samvinna og samráð þurfi að vera mun meira milli stofnana sem sinni sjúkum og öldruðum. Beðið fyrir bænum og bæjarstjórn BÆNAVIKA stendur yfir hjá Hvítasunnukirkjunni og verð- ur á hveiju kvöld þessa viku gengið kringum bæinn og beðið fyrir bæjarfélaginu, at- vinnulífinu, bæjarstjórninni og fleiru. Bænastundirnar byija kl. 20.00 með sameiginlegri bæn í Hvítasunnukirkjunni og síð- an fara þeir sem til þess eru búnir í göngu en hinir halda áfram bæn í kirkjunni. Að lokinni göngu safnast allir aftur saman í kirkjunni og þar verður sungið og beðið saman. í frétt frá kirkjunni er fólk hvatt til að mæta og vera með í fyrirbæn fyrir bæjarfé- laginu. VETUR Þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga og sunnudaga. Verð frá kr. 3.200 fluqfélaq iiorémiaiitls hf SÍMAR 96-12100 og 92-11353

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.