Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 48
V í K G L*TT# alltaf á Miövikudögxun Lífið snýstumfestu MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 86 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Fjórir unglingspiltar réðust inn í verslun Nóatúns við Kleifarsel í gærkvöldi Ógnuðu með hnífi og rændu peningunum FJÓRIR grímuklæddir piltar réðust inn í verslun Nóatúns við Kleifarsel um kl. 21.35 í gærkvöldi. Einn þeirra ógnaði afgreiðslufólki með hnífi, á meðan hinir hrifsuðu seðla úr tveimur afgreiðslukössum verslunarinn- ar. Við svo búið hlupu þeir á brott. Einn þeirra náðist skömmu síðar og lögreglan hafði upplýsingar um hverjir félagar hans voru. Þrír pilt- anna réðust á afgreiðslustúlku í söluturni við Seljabraut á föstudags- kvöld, en þá náðu þeir ekki að hafa ránsfeng á brott með sér. „Þeir komu hlaup- ’ andi hérna inn og óðu strax að peningaköss- unum,“ sagði Pálmi Pálmason, starfsmað- ur verslunarinnar, í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. „Þeir voru allir svart- klæddir, einn með skíðahúfu og annar með rauðan trefil fyrir andlitinu og andlitin á hinum tveimur voru iíka hulin.“ Hrifsuðu seðlana Einn ræningjanna var með svokallaðan butterfly-hníf og otaði honum ýmist að Pálma eða samstarfskonu hans. „Þeir sögðu okk- ur að opna kassana, en tveir þeirra biðu ekki eftir því að við gerðum það, heldur stukku að kössunum og opnuðu þá sjálfír," sagði Pálmi. „Þeir hrifsuðu pen- ingaseðla úr kössunum og hlupu svo út. Þeir höfðu engan áhuga á öðru og létu allar vörur eiga sig, enda voru þeir að flýta sér mjög mikið.“ Samstarfskona Pálma hringdi á lögreglu, en hann kvaðst hafa hlaupið út til að reyna að sjá hvert ræningjarnir fóru. „Það var eins og jorðin hefði gleypt þá,“ sagði Pálmi, sem viðurkenndi að sér væri mjög PÁLMI Pálmason, starfsmaður Nóa- túns, sagði einn ræningjanna hafa ógnað sér og sam- starfskonu sinni með hnífi. brugðið eftir þessa reynslu. Einar Jónsson, tals- maður Nóatúnsversl- ananna, sagði í gær- kvöldi að ekki væri ljóst hve háa upphæð ræningjarnir hefðu haft á brott með sér. Hann sagði að þar sem fjöldi viðskiptavina greiddi með debetkort- um í stað seðla eða ávísana, hefðu ræn- ingjarnir haft mun minna upp úr krafsinu en ella. mmaem noatú'n Morgunblaðið/Kristinn LÖGREGLUMENN við rannsókn í verslun Nóatúns í Kleifarseli í gærkvöldi. Breiðholtslög- reglan gómaði þann fyrsta Þegar lögreglan fékk fréttir af ráninu handtóku lögreglu- menn í Breiðholti 15 ára pilt, sem hefur áður komið við sögu í afbrota- málum. Við yfirheyrslur játaði hann aðild að málinu og benti á þrjá 17 ára vitorðsmenn sína. í gærkvöldi átti lögreglan von á að ekki liði á löngu þar til þeir yrðu gripnir. Pilturinn 15 ára viðurkenndi einnig að hann og tveir félagar hans hefðu reynt að ræna peningum í söluturni við Seljabraut síðastliðið föstudagskvöld. Þar hrintu þeir af- greiðslukonu í gólfið, en hlupu tóm- hentir á brott við svo búið. Hátt í 140 vínveitingastaðir í Reykjavík Leyfilegur gesta- fjöldi 25 þúsund VÍNVEITINGAHÚS í Reykjavík eru nú orðin hátt í 140 talsins og hefur þeim fjölgað stöðugt frá ári til árs síðan bjórbanninu var aflétt árið 1989. Leyfilegur gestafjöldi á þessum veitingahúsum er tæplega 25 þúsund manns og lætur nærri að ríflega þriðjunginn af borgarbú- um á aldrinum 18-65 ára þurfi til að fylla alla staðina. Rúmlega helm- ingur vínveitingahúsanna er í mið- bænum eða tæplega 70 staðir. Gjaldþrot vínveitingahúsa hafa verið tíð í Reykjavík og segir Wil- helm Wessman, formaður Sam- bands veitinga- og gistihúsa, að feta þurfi í fótspor Dana og endur- skipuleggja áfengislöggjöfína þann- ig að erfiðara verði að fá leyfi til reksturs vínveitingastaða. Ástæðan sé sú að hér standi menn nú frammi fýrir því líkt og verið hafi í Danmörku, að ákveðnir veitingamenn láti staðina fara í þrot án þess að greiða tilskilin gjöld af rekstrinum til hins opinbera, en opni að því loknu nýjan stað og endurtaki leikinn. ■ Vínveitingastöðum fjölgar/24 Allt að 201 í hali við línuna að fiskverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða Útflutningsverðmæti Smugnfisks þrír milljarðar VERÐMÆTI þeirra 30.000 tonna af þorski, sem Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að hafi fengist í Barentshafi á árinu, er um þrír millj- arðar króna, miðað við að útflutningsverðmæti hvers kílós af þorski sé um 100 krónur. Aðstæður á mörkuðum geta þó verið mismunandi og mikið framboð stuðlað að verðlækkun. Nokkur ij'öldi íslenskra togara hefur undanfarið verið að veiðum á eða innan línunnar að fiskverndar- svæði Norðmanna við Svalbarða, en ördeyða er nú í Smugunni og hefur verið undanfarinn hálfan mánuð. Eitt norskt strandgæsluskip er á þessum slóðum og hefur það stuggað við togurunum en þeir jafnan haldið inn fyrir eða á línuna aftur. Sala á Smuguþorski gengur vel miðað við aðstæður, að sögn Sæ- mundar Guðmundssonar hjá ís- lenskum sjávarafurðum, en upp- gripafiskiríið sem var í Smugunni til skamms tíma hefur leitt til þess að verð hefur fallið nokkuð á Bret- landsmarkaði. Sæmundur segir að auk íslendinga líti Færeyingar og Norðmenn þann markað einnig hýru auga, og sakir þess reyni íslending- ar nú í auknum mæli að stefna af- urðum sínum inn á markaði á megin- landi Evrópu og í Bandaríkjunum. Hann segir að erfitt sé að gera sér grein fyrir verðmæti afurðanna um þessar mundir þar sem verðið breytt- ist nánast dag frá degi, en meðal- verðið hefði þó verið þokkalegt. Á annað þúsund tonn af þorski séu nú í pípunum hér á landi í augnablik- inu, og að stórum hluta sé þegar búið að selja þær birgðir. Geysilega stór fiskur Togarinn Siglir var í gær ásamt fjölda annarra íslenskra skipa við veiðar rétt við línuna að fiskvernd- arsvæði Norðmanna við Svalbarða og sagði Bjarni Eyjólfsson skip- stjóri í samtali við Morgunblaðið að þeir sem ekki brjóti norsku lögin fái ekki neitt, svo einfalt sé málið. Hann segir að fiskurinn sé allur þeim megin línunnar núna. Norska strandgæslan hafi ekkert annað gert en að fara um borð í ein þrjú eða fjögur íslensk skip og samskipt- in hafi verið ágæt. „Þeir gera í sjálfu sér ekki neitt, vara menn bara við og eru mjög kurteisir. Þetta er á línunni eins og við segjum. Við fáum engan stuðn- ing frá ríkisstjórninni sem er lið- ónýt og ekki útgerðinni heldur. Við eigum bara að koma með fisk,“ sagði Bjarni. Hann sagði að skipin veiddu í botntroll núna og fiskurinn væri geysilega stór. Skipin fengju allt upp í 20 tonn í hali. Siglir hefur verið í einn mánuð á miðunum. Fiskurinn er flakaður og frystur á Ameríkumarkað en allur úrgangur er bræddur. Bjarni kvaðst ekki eiga von á því að Norð- menn gripu til einhverra aðgerða vegna veiða íslensku skipanna við línuna. „Þeir væru þá búnir að því,“ sagði hann. Húsbréf fyrir 3,7 milljarða GUÐMUNDUR Árni Stefánsson fé- lagsmálaráðherra lagði fram tillögu á ríkisstjórnarfundi í gær um að gefinn yrði út nýr flokkur húsbréfa að upphæð 3,7 milljarðar. Að sögn Guðmundar Áma var ríkisstjórnin sammála um útgáfuna. Tæknilegum frágangi væri hins vegar ólokið. I lánsfjáflögum var gert ráð fyrir að gefin yrðu út húsbréf fyrir 11,5 milljarða í ár. Eftirspurn eftir hús- bréfum reyndist meiri og skýrist það fyrst og fremst af lækkun vaxta. Horfur eru á að útgefin húsbréf klár- ist í næsta mánuði. Leita verður heimildar Alþingis fyrir útgáfunni í aukalánsfjárlögum. „Við viljum koma í veg fyrir að það myndist biðlistar í húsbréfakerf- inu. Það væri ákaflega óheppilegt fyrir þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og fyrir kerfið í heild. Það gæti leitt til breytinga á gengi bréf- anna og afföll gætu aukist. Þessi mál þurfa að geta gengið snurðu- laust fyrir sig og það munu þau gera,“ sagði Guðmundur Árni. —• ----♦ ♦ ♦----- Drukknaði í Hvamms- tangahöfn Hvammstanga. Morgunblaðið. MAÐUR á áttræðisaldri fannst látinn i höfninni á Hvammstanga í fyrri- nótt. Hann hafði verið um tíma á öldrunardeild Sjúkrahússins á Hvammstanga. Að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar lögreglumanns var mannsins saknað síðla kvölds og var þá leitað af lög- reglu og Björgunarsveitinni Kára- borg. Um kl. 4.30 fanhst hann og virðist hafa fallið út af bryggjunni. Hinn látni hét Jakob Ágústsson, til heimilis að Lindarbergi á Vatnsnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.