Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 17 LISTIR Þrjár skáldsögnr Guðbergs Bergssonar komnar á svið LEIKRITIÐ Sannar sögur af sál- arlífi systra verður frumsýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins á morgun, fimmtudag. Sannar sögur byggja á þremur skáldsögum Guðbergs Bergsson- ar, Hermann og Dídí, Það sefur í djúpinu og Það rís úr djúpinu, sem saman ganga undir nafninu Tangasögurnar. I fréttatilkynningu segir: „Lýst er íslensku mannlífi í öllum sínum furðumyndum og persónur verks- ins eru hver annarri kostulegri. Systurnar Anna og Katrín, sem þó-eru engar systur, heldur tengd- ar böndum óskyldleikans, togast á um athygli leikhúsgesta og stýra strengjabrúðum sínum um sviðið uns ekkert verður við ráðið. Mein- fyndin og raunsönn lýsing á svo- kölluðum íslenskum veruleika í öllum sínum grodda og slori! Leikgerðin er eftir Viðar Egg- ertsson, sem jafnframt er leik- stjóri verksins. Aðstoðarleikstjóri er Ásdís Þórhallsdóttir. Leikendur eru Guðrún S. Gísladóttir, Ingrid Jónsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Valdimar Örn Flygenring, Herdís Þorvaldsdóttir, Björn Karlsson, Jón St. Kristjáns- son, Höskuldur Eiríksson og Sverrir Örn Arnarson. Um lýsingu sá Ásmundur Karlsson, búninga Ása Hauksdóttir, leikmynd Snorri Freyr Hilmarsson og bókmennta- ráðunautur Þorvaldur Kristinsson. INGRID Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Guðrún S. Gísladóttir í bakgrunni. Allir vinna LEIKLIST Lciklistarhátíð í Mosfcllsbæ LEIKFÉLAG HÓLMAVÍKUR Lífið er lotterí. Syrpa úr verkum Jónasar Amasonar. Sýnd á leiklistar- hátíð Bandalags íslenskra leikfélaga í Mosfellsbæ. Á EINHVERN hátt passa fé- lagsheimiji vel utan um leikverk Jónasar Árnasonar. Hann skrifar verk sín af næmum skilningi á íslenskri alþýðu til sjávar og sveita. Það fólk er í senn viðfang hans og áhorfendur/áheyrendur. Þetta fólk sækir þorrablót í sínum félagsheimilum, styður sitt byggð- arlag með ráðum og dáð og er svo rótgróið í íslenskri menningu og tilteknum samfélagslegum við- horfum að erlendir straumar og stórviðburðir eru lítið annað en hjákátlegur endurómur í eyrum þess. Reykjavík er oft íjarri þessu fólki. Ókunnir vindar kveina þar við dyr. Því var það fjarskalega vel til fundið þegar Leikfélag Hólmavík- ur sýndr syrpu úr verkum Jónasar í Hlégarði á leiklistarhátíðinni sem haldin var nýlega í Mosfellsbæ. Leikendur brugðu upp atriðum úr Skjaldhömrum, Deleríum Búbónis, Koppalogni og á milli söng leik- hópurinn með leikrænum töktum ýmis lög við texta Jónasar og flest þjóðkunn. Hólmvíkingar brugðu á það heillaráð að setja upp kaffihús á dansgólfinu í Hlégarði og þar sá.tu áhorfendur í hálfrökkrinu og sötruðu kaffi og fengu sér mola með, þeir sem vildu, og þótt eng- inn dómur sé lagður á frammi- stöðu einstakra leikenda verður að segja að hópurinn hreif mig og að mér fannst alla aðra með feimn- islegu hispursleysi og að því er virtist eðlislægri kurteisi (sem er alls óskyld innflutta Dale Carn- igie-afbrigðinu). Þessi kurteisi fel- ur í sér hógværð og einlægni en um leið rögg og engan falskan slepjuskap. Húmorinn sem sprett- ur af slíku viðhorfi er ljúfur, léttur og hreinsandi eins og þegar maður þvær sér um hendurnar uppúr lindarvatni. Að vera áhorfandi að sýningu sem þessari rífur ekkert upp með rótum. Það sættir. Höf- undurinn, Jónas Árnason, sem fyrr um daginn hafði séð góða sýningu á Tápi og fjöri í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ, var viðstaddur. Reisnin stafar af honum, rétt rúm- lega sjötugum, eins og af enskum lordi. Hann var klæddur bleiser- jakka, rauðum. Á síðastliðnu leikári settu áhugaleikfélög upp sjötíu og fimm sýningar. Fjörutíu þúsund manns sáu þessar sýningar. Þessi félög hafa því miklu menningarlegu hlutverki að gegna, bæði fyrir leik- hópana sjálfa og byggðarlögin sem þeir starfa í. Stjórn Leikfélags Kópavogs skil- greinir þetta hlutverk ágætlega í leikskrá með Brúðuheimilinu og Heddu Gabler: Fyrir það fyrsta þarf leikfélagið að vera lifandi list- afl í bæjarfélaginu; bjóða bæjarbú- um og öðrum gestum upp á fjöl- breyttar sýningar og höfða í því sambandi til allra. Þannig þarf verkefnaskráin að taka mið jafn af börnum, unglingum og fullorðn- um, vera hæfileg blanda af íslensk- um leikverkum og erlendum, létt- meti og þyngra efni o.s.frv. I ann- an stað hefur félagið skyldum að gegna við félagsmenn sína og þarf að gæta að því að fólkið sem kýs að veija nær öllum frístundum sín- um við leiklistariðkan fái viðfangs- efni við sitt hæfi og njóti hveiju sinni hinnar bestu leiðsagnar fag- fólks. Annar flötur á málinu: Reyndur leikstjóri sagði mér að leikhúsvinna væri besta tiltæka meðalið við skammdegisþunglynd- inu. Fólk tæki aftur gleði sína í stórum hópum í glímunni við Þesp- is. Guðbrandur Gíslason Yisual Basic námskeið Tölvu- og verkfræðiþjónustan TölvusKóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 VELDU VERÐLAUNATÆKIN FRÁ Blomberq ■ Blomberg hlaut hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF verðlaun fyrir framúrskarandi glæsilega og vandaða eldavél á stærstu iðn- sýningu Evrópu í Hannover Pýskalandi. 586 framleiðendur frá 25 löndum kepptu um þessa eftirsóttu viðurkenningu. Við bjóðum 6 gerðir eldavéla á verði frá aðeins kr. 55,955* stgn m Að auki bjóðum við mikið úrval af helluborðum og innbyggingarofnum frá Blomberg *StaðgreiðslmfsIdttur er 5% Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28 “B 622901 og 622900 - Þjónusta í þína þágu - M 9406

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.