Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 9 Bústin jarðepli ÞAU voru engin smásmíði jarðeplin sem komu upp úr kartöflugarði við Logafold í Reykjavík enda eru litlu garðyrkjumennirnir, þeir Kjart- an, Gunnar, Svavar og Atli hreyknir. Alþjóðaþingmannasambandið Geir H. Haarde í framkvæmdastj órn GEIR H. Haarde, for- maður íslandsdeildar Alþjóðaþingmanna- sambandsins, Inter- Parliamentary Union, var kjörinn í 13 manna framkvæmdastjóm sambandsins á 92. þingi þess sem haldið var í Kaupmannahöfn 12.-17. september. Geir var einróma kjör- inn í framkvæmda- stjórnina sem einn full- trúi Vesturlandahóps- ins innan Alþjóðaþing- mannasambandsins, en hann hefur undanfarin tvö ár gegnt formennsku þess hóps. Geir er fyrsti íslenski þingmaðurinn sem tekur sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins. Við lok þings Alþjóðaþingmanna- sambandsins lét Geir H. Haarde af störfum sem formaður Vesturlanda- hópsins innan sambandsins, en hóp- urinn er skipaður þingmönnum 35 þjóðþinga frá ríkjum Vestur- og Mið- Evrópu og Norður-Ameríku auk Ástralíu og Nýja-Sjálands. Tveir þingmenn gáfu kost á sér í embætt- ið, en það voru þeir Peter Bosa frá Kanada og Leo McLeay frá Ástralíu. Varð niður- staðan sú að Kanada- maðurinn hlaut kosn- ingu. Nýr forseti Þá var jafnframt á þingi Álþjóðaþing- mannasambandsins . kosinn nýr forseti sam- bandsins, en kosið var á milli tveggja fram- bjóðenda, þeirra Gabri- els Valdes Subercase- aux, forseta öldunga- deildar síleska þingsins, og Ahmeds Fathys Sorours, forseta egypska þingsins. Baráttan milli þessara tveggja frambjóðenda var mjög hörð og jöfn og lyktaði hún með því að Ahmed Fathy Sorour var kjörinn forseti sambandsins með naumum atkvæðamun. Meginviðfangsefni þings Alþjóða- þingmannasambandsins að þessu sinni voru efling mannréttinda, bar- áttan við fátækt og fijáls heimsvið- skipti. Vatnstjón íhúsum nema millj- arði kr. F’JÁRHAGSLEGT tjón af völdum vatnsleka í húsum er talið vera að minnsta kosti einn milljarður króna á hveiju ári. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarstofnunar bygg- ingariðnaðarins, Átak um forvamir vatnstjóna, en verkefnið vann Rann- sóknarstofnunin í samvinnu við tryggingafélögin. ÁTAR Tfremslu röð frá upirhaff GEIRt - sími 91 -887660 - fax 91 -814775 Flest vatnstjón verða vegna bilana á lagnakerfum og eru innsteyptar lagnir og aðrar huldar lagnir í gólfi, baðkerum eða einangrun útveggja, valdar að þeim. Skýringa á hinum raunverulegum orsökum tjóna vegna hulinna neysluvatns- og hitalagna er sjaldnast að leita í efnisgöllum heldur er oftast um að ræða óheppi- lega staðsetningu lagna, lélegan frá- gang lagnaumhverfis, ranga efni- snotkun eða aðra handvömm hönn- uða, iðnaðarmanna, húseigenda eða annarra. Rörakerfi svíkja helst Athugunin náði til vatnstjóna sem urðu á höfuðborgarsvæðinu síðustu þijá mánuði ársins 1993. Tildrög þess að ráðist var í rannsókn á orsök- um vatnstjóna er að þeim fer sífellt fjölgandi, segir í skýrslunni. Athug- unin var framkvæmd á þann hátt að pípulagningarmenn sem önnuðust viðgerðir á lagnakerfum sem höfðu bilað og valdið vatnstjónum á þessu tímabili svöruðu að viðgerð lokinni nokkrum fyrirfram ákveðnum spurn- ingum. Langflest tjónin mátti rekja beint til rörakerfa, eða í 64% tilvika, en undir þann flokk falla eingöngu píp- ur og tengi. Þegar um mannleg mis- tök var að ræða hafði t.d. oft flætt út yfír brúnir baðkera. Tjónatilvikum var skipt í flokka og undir flokkinn Tæki og búnaður voru auk lausra tækja eins og þvotta- og uppþvottavéla flokkuð blöndunar- tæki, vatnslásar og annar búnaður, tengdur rörakerfi, bæði hita-, neyslu- vatns- og frárennsliskerfa. Til þessa flokks mátti rekja fimmta hvert tjón, flest þeirra urðu vegna bilunar í blöndunartækjum eða vatnslásum. 164 kr. á dag koma sparnabinum í lag! Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú bíður með að spara þangað til þú Síðustu sætin til Benidorm frá 39.900,- 28. sept. Nú seljum við síðustu sætin til Benidorm í sumar á hreint frábærum kjörum. Njóttu haustsins í yndislegu veðri við frábæran aðbúnað á góðu íbúðarhóteli á Benidorm í 3 vikur. Flamingo Benidorm íbúðarhótelið býður alla þjónustu, góðan garð með sundlaug, móttöku allan M v- 2 1 'búð> Flamingo, 28. sept. sólarhringinn, verslun, veitingastað og að sjálfsögðu nýtur þú góðarar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð frá kr. 39.900 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Verð frákr. 54.900 Flugvallarskattar og forfallagjöld, kr. 3.660 f. fullorðna, kr. 2.405 f. börn, ekki innifalin Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 heldur að þú hafir „efni" á því byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem hluta af reglulegum útgjöldum þínum, þannig verður sparnaðurinn auðveldari en þú heldur. Ert þú búin(n) aö spara 164 kr. í dag? Hringdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og byrjaðu reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-626040 GOTT FÓLK' / SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.