Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 37 BRÉF TIL BLAÐSINS DAGMÆÐUR hafa verið einn hlekkur í dagvistarmálum og mál þeirra þurfa að komast á hreint, segir í greininni. Dagvistar- mál bama Rangfærslur leiðréttar Athugasemd frá foreldri einhverfs barns Frá Krístjönu Jacobsen: MIG LANGAR að koma með at- hugasemdir varðandi skoðanakönn- un, sem Dagvist barna sendi frá sér nýlega til foreldra allra barna í Reykjavík frá 6 mánaða til 5 ára. Við dagmæður erum undrandi á hve könnunin er stefnumótandi. Þar er aðeins spurt um eina tegund vist- unar fyrir börn, þ.e. leikskólann, og foreldrar fengu umsóknarblað um leikskólapláss og spurt var hve margar stundir foreldrar óskuðu sér fyrir barn sitt. Okkur dagmæðrum finnst að við hefðum átt að vera með í könnuninni sem valkostur, svo könnunin væri marktæk og raunhæf. Dagvist barna hefur varla nefnt dagmæður á nafn í umræð- unni um dagvistarþörfina, þó sann- arlega hefði svo átt að vera þar sem við höfum um árabil verið einn hlekkur í dagvistun barna og þessi mál þurfa að komast á hreint, þó fyrr hefði verið. Dagmæður eru orðnar lang- þreyttar á að fram hjá þeim sé gengið, þegar þessi mál eru rædd. Eina umfjöllunin sem við höfum fengið í langan tíma er neikvæð fyrir okkur, eins og oft áður. Þar er talað um hvað heilsdagsdvöl hjá dagmæðrum væri dýr og hjá einka- reknum leikskólum. Raunverulegur kostnaður aldrei sýndur Er ekki verið að fela eitthvað í umræðunni, þegar talað er um hve dýrt sé að vista börnin hjá okkur? Af hverju er hinn raunverulegi kostnaður á barn á dagheimili og leikskóla aldrei sýndur. Það kostar um 38.000 á mánuði fyrir barnið á dagheimili, en það er ódýrara á leik- skólunum, enda þjónusta minni, t.d. er matur ekki innifalinn og skemmri vistunartímar (það hefur þó breyst undanfarið sumstaðar, a.m.k. þahn- ig að- matur fæst á Ieikskólanum). Þessir tveir vistunarkostir eru mun dýrari fyrir borgina, en dagmæður (þó byggingarkostnaði við dagvist- arheimili sé sleppt). Okkur finnst að þessir hlutir eigi að liggja ljóst fyrir, en ekki bara að dýrt sé að borga dagmæðrum. Dagmæður vilja vera með í umræðunni Við viljum vera inni í umræðunni sem valkostur í vistunarmálum barna, við spörum borinni upphæð með hverju barni sem vistast hjá okkur. Við teljum okkur engan veg- inn hafnar yfir gagnrýni, en við teljum að hin dagvistarformin séu það ekki heldur. Við dagmæður teljum það aug- ijóst og höfum lengi vitað að fólk (giftir foreldrar) myndi halda áfram með börn sín í vistun hjá okkur og ekki setja þau á leikskóla ef gjaldið væri sama hjá okkur og leikskólun- um. Með því er ég að sjálfsögðu ekki að segja að margir foreldar myndu ekki hætta með börnin hjá okkur og setja þau á leikskóla, þó gjaldið væri það sama, en það er langur vegur frá að allir myndu gera það. Við það myndi umsóknum um leikskóla fækka. Leikskóli er án efa góður kostur, dagmæður geta líka verið góður kostur, við erum misgóðar, það er starfsfólk á leikskólum einnig og í skólunum. í sambandi við nýfengna vistunar- möguleika fólks í grunnskólunum hefur komið fram að gæsla á barn, er 110 kr. á tímann, það er svipað og hjá okkur, þó aðeins dýrara. Ég hef ekki heyrt fólk kvarta yfir að það sé dýrt. Þá er aftur komið að könnun- inni, hún sýnir aðeins eina hlið þ.e. leikskólann. Dagmæður þurfa at- vinnuöryggi eins og aðrir, ef við eigum að geta starfað áfram sem dagmæður, það hefur ekki verið tekið tillit til þess hjá Dagvist barna. Kristín Blöndal mætti á fund hjá Samtökum dagmæðra nýlega, og svaraði fyrirspurnum. Hún fullyrti að taka ætti á okkar málum, og við myndum mæta skilningi þar. Þvi ber vissulega að fagna því við viljum vera valkostur í dagvistar- málum, og viljum vera góður val- kostur. - Foreldrum verði veitt sama fyrirgreiðsla alls staðar Ég vona að það sé misskilningur að ætlunin sé að leggja okkur niður annað hvot fljótt eða smám saman, eins og umrædd könnun getur vissulega gefið til kynna. Við viljum að hætt verði að hundsa okkur eins og gert hefur verið alltof lengi, þegar fjallað er um okkar mál. Kannski hefðum við dagmæður átt að kæra fyrir löngu til Samkeppnis- stofnunar þar sem við erum alls staðar í samkeppni við niðurgreidda barnagæslu. Mín stóra ósk, og allra dag- mæðra held ég, er sú að borgin sjái sér fært að veita forldrum í sambúð og giftum sömu fyrir- greiðslu hjá dagmæðrum og um leikskólavistun væri að ræða og hætti að mismuna foreldrum eftir vistunarformi. Þá loksins væri tekið á þessum málum af skilningi og sanngirni. KRISTJANA JACOBSEN, Vaglaseli 1, Reykjavík. Frá Sigfúsi Bjarnasyni: í MORGUNBLAÐINU 9. septem- ber síðastliðinn var yfirlýsing frá menntamálaráðuneyti sem var svar við opnu bréfi stjórnar Umsjónarfé- lags einhverfra, sem var í Mbl. 6. september. Mér er þetta mál skylt þar sem ég er foreldri eins af þessum ein- hverfu börnum sem rætt er um í báðum þessum bréfum og tel mig knúinn til að leiðrétta nokkrar rangfærslur ráðuneytisins. Þetta mál snýst um skólagöngu þriggja einhverfra barna sem eiga að hefja skólagöngu nú í haust. Menntamálaráðuneytið er búið að vera með ótrúlegan feluleik í þessu máli og halda okkur foreldrunum í óvissu í allt sumar, um það hvort, hvenær og hvar börn okkar eiga að vera í skóla nú í vetur og í fram- tíðjnni. 1. í yfirlýsingu menntamála- ráðuneytis er því haldið fram að ljóst hafi verið í sumar að ekki væri hægt að veita þessum börnum kennslu í Digranesskóla. Þetta er rangt, það var í vor og ráðuneytið hafði allt sumarið til að finna úr- ræði fyrir börnin, en það var ekk- ert gert. 2. Því er haldið fram að tekist hafi að finna úrræði fyrir eitt barn í Ölduselsskóla, þetta er rangt, enn er allt í óvissu um hvar þetta til- tekna barn mun stunda nám. 3. Því er haldið fram að öll þessi börn fái samsvarandi þjónustu og einhverf börn í Digranesskóla. Þetta er einnig rangt, okkar dreng- ur er í Melaskóla og er langt frá því að hann fái jafn langa kennslu og einhverfu börnin fá í Digranesi. 4. Því er vísað á bug að okkur foreldrum hafi verið synjað um við- töl við ráðherra og fleiri í ráðuneyt- inu. Þessu er haldið fram gegn betri vitund. 5. Það er fagnaðarefni að ráðu- neytið skuli hafa hafið viðræður við Reykjavíkurborg um að finna hentugt framtíðarhúsnæði fyrir kennslu þessara barna. Ég vona einungis að forsenda þessarar stað- hæfingar sé haldbetri en þær sem að framan greinir. Ég sem foreldri einhverfs barns er mjög ánægður með það að barni mínu skuli vera tryggt jafnrétti til náms og tel mig vera heppinn að lifa í þjóðfélagi, þar sem svo mikill skilningur ríkir gagnvart fötluðum. Það er aftur á móti dapurlegt til þess að vita að þeir aðilar sem starfa við það í menntakerfinu að sjá til þess að þörfum fatlaðra sé sinnt, skuli sýna af sér slíkt virðing- arleysi gagnvart þeim eins og hér er rakið að framan. Er það von mín og trú að menntamálaráðu- neytið fari nú að snúa sér að því að vinna að framtíðarlausn í þessu máii og hætti þessum skollaleik. f mínum huga er það skylda stjórnvalda að koma heiðarlega og án yfirlætis fram við þegna sína. Það getur verið að þeir sem stjórna í menntamálaráðuneytinu séu ekki sömu skoðunar, en ég vona þó að svo sé ekki. _ SIGFÚS BJARNASON, Ásvallagötu 79,Reykjavík. leysir vandann Reflectix er 8 mm þykk endurgeislandi einangrun í rúllum. 7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann. Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15, 38 og 76m. ! háaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi, tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl. Skæri, heftibyssa og límband einu verkfærin. BYGGINOAVÖRUVERSLUN P. Þ0R6RÍMSS0N & GO Alltaf tll á lagar Ármúla 29, sími 38640 Weetabix - hjartans mál! rmm Hollt fyrir barnið Auömolt fyrir afn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.