Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ THE ANIMAL IS OUT Stórmyndin ÚLFUR (Wolf) ' RIE NICHOLSON P F E I F F E R VVOLF DYRIÐ GENGUR LAUST. Vald án sektarkenndar. Ást án skilyrða. Það er gott að vera ... úlfur! Jack Nicholson og Michelle Pfeiffer eru mögnuð í þessum nýjasta spennutrylli Mike Nichols (Working Girl, The | Graduate). Önnur hlutverk: James Spader, Kate Nelligan, Christopher Plummer og Richard Jenkins. Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.20. B.i. 16 ára. Einnig sýnd í Borgarbíói, Akureyri. STJORNUBIOLINAN Sími 991065. Verð kr. 39,90 mínútan. Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun! Verðlaun: Bíómiðar, Wolf hálsmen og bolir. Simi GULLÆÐIÐ Sýnd kl. 11. MIÐAVERÐ KR. 500 FYRIR BÖRN INNAN 12ÁRA. AMANDA VERÐLAUNIN 1994 BESTA MYND NORÐURLANDA SÝND KL. 5, 7 og 9. ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Betri tímar hjá Lucy? ►HÚN Lucy litla úr Dallas- þáttunum sálugu hefur ekki átt sjö dagana sæla þau árin sem lið- in eru siðan að þættirnir hurfu af skjánum. Hvert mislukkað sam- bandið rak annað, gjaldþrot og fleira miður skemmtilegt dreif á daga hennar. Um tíma leitaði hún sér huggunar hjá sértrúarhópum, en allt kom fyrir ekki. Nú vona allir fyrrum aðdáendur Dallas að betri tímar með blómum í haga séu framundan hjá Lucy, sem raunar heitir Charlene Tilton. Hún er nú tekin saman við ungan mann sem hún segir bera af öllum þeim ótal körlum sem hún hafi verið í tygjum við. Sá heitir Rob- ert McCrain og er 27 ára, en fregninni fylgir ekki hvaða at- vinnu kappinn stundar og má því ætla að hann tengist ekki kvik- myndageiranum. Þau Robert og Charlene hittust fyrst er þau voru að gera helgarinnkaupin i mat- vöruverslun. Eftir að hafa hist nokkra föstudaga í röð og skipst á augnagotum, tóku þau loks tal saman og síðan hefur ekki komist hnífur á milli þeirra, ef þannig mætti að orði komast... I á hverju miðvikudagskvöldi | I í Kolaportinu I | 12 ára og yngri kl. 17:00 | | 13og14ára kl. 18:30 | ■ 15og18ára kl. 20:00 | 17 ára og eldri kl. 21:00 | Glæsileg verðlaun og ' | | vinningar þar á meðal | ferðir á NBA leiki í New York! I Þátttökugjald 500 kr. á hvern ■ I leikmann fyrir hvert mótskvöld. . ! Skráið lið ykkar til þátttöku j hjá KKÍ í sima 685949 eða J mætið á staöinn. I_____________________________I Tvær léttklæddar þokkadísir álpuð- ust framhjá afmælisborðinu og lentu með á myn af 007 og félögum. Sean Connery skálar í tilefni dagsins. Smækkuð afmælisveisla 007 SEAN Connery, skoski leikarinn vinsæli, sá er gerði 007 ódauðleg- an, átti 64 ára afmæli fyrir skömmu og ætiaði ekki að gera of mikið mál úr því, enda þykir það ekki til- takanlega stórt afmæli. Til þessa hefur hin franska eiginkona hans, Micheline, skipulagt veislurnar og boðið ýmsum frægum einstakling- um sem eiga heimili á Costa del Sol, rétt eins og herra og frú Conn- ery. Má þar nefna auðkýfinginn Adnan Kashoggi og Soayu, fyrrum keisaraynju af Iran. Að þessu sinni baðst kappinn undan glysinu og valdi sjálfur gestalistann. Voru þar saman komnir nokkrir af elstu og bestu vinum Connerys. Ekkert var til sparað í veitingum, hver bakkinn af öðrum, hlaðinn sjávarréttum, var borinn fram og hver hvítvínsflaskan af annarri var framreidd og tæmd. Aldrei fór það svo, að kvenþjóðin fengi ekki full- trúa í veislunni, því er hún stóð sem hæst álpuðust óvart tvær léttklædd- ar þokkadísir fram hjá borðinu. Voru þær óðar kallaðar til og er þær báru kennsl á aðalmanninn á svæðinu slógu þær til. Lentu meira að segja á sumum afmælismynd- anna. Fjölskyldan heiðraði Tony Richardson ►FYRIR stuttu var kvikmyndin „Blue Sky“ frumsýnd í New York, en það var síðasta kvik- myndin sem Tony Ric- hardson leikstýrði áður en eyðniveiran dró hann til dauða. Meðal þeirra sem heiðruðu leikstjór- ann við þetta tækifæri var Vanessa Redgrave, breska stórleikkonan og fyrrum eiginkona Ric- hardsons, og dætur þeirra hjóna, Natasha, sem einnig er orðin mik- ils metin leikkona, og Joely. Fjáröflunaruppá- koma til handa eyðni- sjúkum var skipulögð í tengslum við frumsýn- inguna, en hana skipu- lagði og stjórnaði Eliza- beth Taylor. Á myndinni eru Vanessa Redgrave, fyrir miðju, t.v. er Nat- asha Richardson og t.h. Joely Richardson. Macintosh námskeið Mjög vandað og gott námskeið fyrir byrjendur. Stýrikerfi tölvunnar, ritvinnsla og kynning á helstu forritum. Með fylgir disklingur með deiliforritum, dagbókarforriti, teikniforriti, leikjum, veiruvamarforriti o. fl. • Hagstætt verð! Tölvu- og verkfræöiþjónustan Verkfræðístota Halldórs Kristjánssonar Grensásvegí 16 • sími 68 80 90 Keanu Reeves. Of mikill hraði í Speed? ►MYNDIN Speed, sem nú verið að sýna hérlendis hefur notið feikilegra vinsælda vestanhíifs og er ein mest sótta mynd sum- arsins og hefur einnig hlotið frábær viðbrögð gagnrýnenda. Einn er sá hópur kvikmynda- áhorfenda sem einnig þykist. hafa fengið mikið fyrir sinn snúð þar sem Speed er annars vegar en það eru þeir sem fara í bíó með því hugar- fari að koma auga á smáatriði sem ekki virðast geta komið heim og saman við framvindu sögunnar. Þessir aðilar eru t.d. búnir að komast að því að skömmu áður en fyrsta rútan springur upp í loft í myndinni er Keanu Reeves í þann veginn að fara að opna læst- an bilinn sinn. Hann hleypur af stað frá hálfnuðu verki en snýr svo við og rífur þá upp dyrnar á bíln- um og þeysir á brott. Hver opnaði dyrnar? Annað atriði snertir það að félagi Reeves, sem Jack Daniels leikur, er skotinn í vinstri fótinn en skömmu síðar er hann farinn að ganga við staf og haltrar þá á hægri fæti. Þá finnst sumum það ekki koma heim og saman að heyra ill- mennið sem Dennis Hopper leikur smella fingrum vinstri handar í símklefa i einu atriði myndarinnar með- an hann heldur á símtólinu í hægri hendi. Ástæðan? Jú, það hefur áður komið fram í mynd- inni að það vantar vinstri þu- malfingurinn á illmennið. Allir þorri þess fólks sem farið hefur á Speed lætur smámuni af þessu tagi hins vegar ekki tefja sig frá því að njóta mynd- arinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.