Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 11
LANDIÐ
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
EYÐING birkiskógarins vestan Aðaldalsflugvallar er alvarlegt
mál sem úr þyrfti að bæta.
Alvarlegt sandfok
inn af Skjálfanda
Laxamýri - Mjög mikið landfok er
á svæðinu inn af Skjálfanda, nyrst
í Aðaldalshrauni. Víða á svæðinu
meðfram Laxá hefur melgresi látið
undan og mikið sandfok hefur spillt
hrygningarstöðvum. Sand hefur lagt
í neðstu hólmana í ánni sem hafa
þá hækkað og eru bakkarnir farnir
að brotna niður og eyðast.
Vestan Aðaldalsflugvallar má sjá
mikla eyðingu birkitrjáa þó svo að
stór hluti svæðisins hafi verið friðað-
ur um langt árabil. Víða má sjá
fúna birkilurka og dauðar hríslur
og engan nýgræðing er að finna í
sandinum. A einum stað hafa sand-
skaflar hafið innreið sína svo rétt
sést í toppa stórra trjáa upp úr ka-
faldinu.
Á sl. vori var sáð melgresi í 20
ha meðfram Laxá, norðan flugvallar-
ins, en það er einungis byijunin á
því stóra verkefni sem þarna þyrfti
að vinna.
Morgunblaðið/Silli
VEITENDURNIR Anna V. Þorsteinsdóttir og Birkir Þ. Jónsson.
Hótel Húsavík leigir
út veitingarekstur sinn
Húsavík - Hótel Húsavík hefur
leigt allan veitingarekstur hótelsins
til Önnu Vigdísar Þorsteinsdóttur,
sem verið hefur veitingastjóri hót-
elsins, og Birkis Þórs Jónssonar,
sem verið hefur starfandi kokkur
þar. Þau tóku við rekstrinum 1.
september sl. og hafa gert leigu-
samning til tveggja ára. Að öðru
leyti er rekstur hótelsins óbreyttur.
Miklar endurbætur og nokkrar
breytingar voru gerðar á hótelinu
á sl. vetri m.a. herbergjum fjölgað
svo að nú eru þau 34 og öll með
baði sem ekki var áður. Hafa þess-
ar breytingar þótt mjög til bóta.
Aðsókn á hótelinu á liðnu sumri
var góð en þar fjölgaði meira er-
lendum gestum en íslenskum.
Nokkrar ráðstefnur voru haldnar
og síðast hélt Læknafélag íslands
ársfund sinn á Hótel Húsavík og
lofuðu þeir aðstöðu og allan viður-
gjörning.
Húnvetningar halda
unglingalandsmót ÚMFI
Blönduósi - Annað unglingalands-
mót UMFÍ verður haldið í Austur-
Húnavatnssýslu, félagssvæði Ung-
ménnasambands A-Húnavantssýslu
(USAH) dagana 14., 15. og 16. júlí
á næsta ári. Formaður UMFÍ, Þórir
Jónsson, og framkvæmdastjórinn,
Sæmundur Runólfsson, kynntu sér
aðstæður í héraðinu fyrir skömmu.
Að sögn Valdimars Guðmannsson-
ar, formanns USAH, voru formaður
og framkvæmdastjóri UMFÍ ánægðir
með allar aðstæður og eru menn
bjartsýnir á að þátttaka verði góð í
ljósi góðrar reynslu af fyrsta ungl-
ingalandsmótinu sem haldið var á
Dalvík árið 1992. Unglingalandsmót-
ið verður haldið víða um sýsluna en
sundkeppnin verður haldin á
Hvammstanga í V-Húnavatnssýslu.
................................. '
Gott fyrirtæki til sölu
Vinsæll skyndibitastaður
- veitingahús
mjög vel staðsettur, er í rúmgóðu húsnæði sem tekur
80 manns í sæti. Mjög fjölbreyttur matseðill og léttvíns-
leyfi. Selst af heilsufarsástæðum. Þessi staður gefur
góðar tekjur!
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
Firmasala Reykjavíkur,
Gunnar Jón Yngvason, Suðurlandsbraut 50,
sími 885070, fax 684094.
011CA 01070 LARUSÞ.VALDIMARSS0N,framkvæmdastjori
L I I JU't I O / V KRISTJAN KRISTJANSSON, ioggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Nýlegt steinhús - frábært verð
Vel byggt 2ja hæða steinhús 176,3 fm nettó við Kögursel. 4 rúmg.
svefnherb. á efri hæð. Bflsk. (geymsluris) fylgir. Trjágarður.
Við Deildarás - frábært verð
Nýl. steinhús í sérfl. með 5 herb. íb. á hæð 136 fm. Innb. bílsk. 27 fm.
Jarðhæð tvær sólríkar 2ja herb. íb. m.m. Önnur tengd hæðinni.
Glæsil. trjá- og blómagarður. Mikið og gott útsýni.
Fyrir smið eða laghentan
Efri hæð 6 herb. 144,5 fm nettó á vinsælum stað við Safamýri. Stór-
ar sólsvalir. Allt sér. Bflskúr 27,6 fm. Skipti mögul. á 3ja herb. íb. t.d.
í Vesturborginni, Hlíðum eða í Heimum.
40 ára húsnæðislán kr. 3-5 millj.
Nokkrar 3ja herb. mjög góðar íbúðir m.a. við: Súluhóla, Eiríksgötu,
Dvergabakka, Furugrund og Vallarás. Hentar m.a. þeim sem hafa ekki
húsbréfalán. Vir\saml. leitið nánari uppl.
Gott steinhús - hagkvæm eignaskipti
Einbhús ein hæð um 165 fm auk bflskúrs 23,3 fm á vinsælum stað í
Vogunum. 5 svefnh. m.m. Sólverönd. Glæsileg lóð. Eignask. möguleg.
Skammt frá Háskólanum
Nýendurbyggð 2ja herb. íb. 65,5 fm nettó í kjallara við Tómasarhaga.
Allt sér. Fjórbýli. Vinsæll staður.
Sólrík íbúð við Sólvallagötu
2ja herb. góð kjallaraíb. Vel umgengin. Samþykkt. Rúmg. geymsla eða
föndurherb. Tilboð óskast.
• • •
Rúmgott húsnæði óskast í
gamla bænum eða nágr.
LAUGAVEG118 SfMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAIMI
51500
Hafnarfjörður
íbúðir til sölu:
Hjallabraut
Þjónustuíb. fyrir 60 ára og eldri.
2ja herb. ca 63 fm á 4. hæð.
Mikil sameign. Áhv. 3,2 millj.
Byggsj. rík. til 36 ára. Tengd
öryggisþjón.
Hjallabraut
Þjónustuíb. fyrir 60 ára og eldri.
2ja herb. ca 70 fm á 3. hæð.
Mikil sameign. Tengd öryggis-
þjón. Ekkert áhv.
Arnarhraun
5-G herb. ca 136 fm íb. á 3. hæð
í þríb. Bílskplata. 4 svefnherb.
Svalir. Útsýni. Nýtt gler. Nýtt
parket. Danfoss. Laus. Áhv. ca.
1,2 milij.
Álfaskeið
4ra-5 herb. ca 100 fm íb. á 1.
hæð í þríb. Sérinng. 3 svefn-
herb. Bílskréttur. Lítið áhv.
Álfaskeið
4ra herb. ca 100 fm íb. á 2. hæð
í fjölb. 3 svefnherb., arinn.
Tvennar svalir. Ekkert áhv.
Laus.
Klettagata
Tvær 4ra-5 herb. ca 100 fm íb.
í tvíbhúsi. Bílsk. fylgir báðum íb.
Endurn. rafi. Ib. seljast saman
eða sér. Ekkert áhv.
Grænakinn
Efri sérh. og ris i þríb. Sérinng.
3 svefnh., 2 stofur o.fl. Baðherb.
nýuppgert. Áhv. ca 2,7 m.
Vesturvangur
Einb. á einni hæð 142 fm. Bíl-
skúr 38 fm, garðskáli 20 fm.
Ræktuð lóð.
Vörðustígur
Einb., kj. hæð og ris. Góð stað-
setn. Utsýni. Garður. Eignin
þarfnast nokkurra endurb. Ekk-
ert áhv.
Flókagata
Einb. á fjórum pöllum ca 190
fm ásamt nýjum bflskúr og öðr-
um eldri. Eftirs. staðs. Mikið
endurn. m.a. þak, rafmagn, frá-
rennsli og innr. Ný sólstofa.
Garður. Svalir. Útsýni. Áhv. ca
2,5 millj. gamalt byggsjlán. Ath.
skipti á minni eign.
Atvinnuhúsnæði:
Drangahraun
Iðnaðarhúsn. 120 fm pússað
og málað. Innr. skrifstofa og
WC. Stór hurð.
Höfum kaupanda að:
Litlu sérbýli með bílskúr eða
annarri vinnuaðst. á ról. stað í
Hafnarfirði.
FASTEIGNASALA,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
Árni Grótar Finnsson hrl.,
Bjarni Lárusson hdl.,
símar 51500 og 51501.
Heimas. sölumanns 654171.
#)
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Á NORÐ URLANDI
BLÖNDUÓSI
föstudaginn 23. september, kl. 21
SAUÐÁRKRÓKI
laugardaginn 24. september kl. 14
AKilREYRI HÚSAVÍK
laugardaginn 24. september, ki. 21 sunnudaginn 25. september, kl. 14
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vánská
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Efnisskrá:
Þorkell Sigurbjörnsson: Díafónía
Jean Sibelius: Fiðlukonsert
Pjotr Tsjaikofskíj: Sinfónía nr. 5
Verð aðgöngumiða 1.000 kr. og 500 kr. fyrir námsfólk
HLUSTUM bLÍMSTRANOI hljómsveiti
Hef kaupanda að stórri
húseign í Keflavík
Æskileg stærð 160-200 fm, helst á einni hæð. Bæði
íbúðar- og iðnaðarhús koma til greina svo og önnur hús.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
Auglýsingastofa
Höfum fengið í einkasölu mjög þekkta auglýsingastofu
í Reykjavík. Um er að ræða rótgróið fyrirtæki með góð
viðskiptasambönd. Fyrirtækið er starfrækt í góðu, eigin
húsnæði, vel útbúið tækjum. Góð staðsetning. Sala
húsnæðis kæmi til greina.
Upplýsingar einungis á skrifstofunni, ekki í síma.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
Ráðxjöf ■ Bókhuld ■ Skalluaðstoð ■ Kaup og sulufyrirla'kju
Síðumúli 31 ■ I0S Reykjavík ■ Sími M 92 99 ■ h'ax f)H 19 45
Krislinn B. Raf>nursson, viðskiptafrœðinf’ur