Morgunblaðið - 21.09.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 15
Reuter
Eldgosið flúið
IBUAR bæjarins Rabaul í Papúa á Nýju Gíneu hafa orðið að
flýja vegna eldgoss og hér er verið að koma með nokkra þeirra
tií Port Moresby. Yfir Rabaul liggur nú öskulag og flóðbylgja
utan af sjónum hefur skollið á bænum en samt eru fréttir um
að þjófar og ræningjar hafi flykkst þangað til að láta greipar
sópa um það, sem íbúarnir skildu eftir.
Frönsku forsetakosningarnar
Aukinn stuðningur
við Delors
París. Reuter.
JACQUES Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, nýtur
aukins stuðnings meðal Frakka, vegna forsetakosninganna á næsta ári,
samkvæmt skoðanakönnun, sem dagblaðið Le Parisien birti á miðviku-
dag. Edouard Balladur forsætisráðherra nýtur þó ennþá meira fylgis en
Delors. Þess ber að geta að hvorugur þeirra hefur enn lýst því yfír að
hann gefí kost á sér. Forsetakosningarnar verða haldnar í maí á næsta ári.
Samkvæmt könnuninni í Le Par-
isien bera 53% franskra kjósenda
nægilegt traust til Balladurs til að
geta séð hann fyrir sér sem forseta
en 52% bera að sama skapi sam-
bærilegt traust til Delors.
í áþekkri könnun í síðasta mán-
uði sögðust 47% bera traust til
Delors en 50% til Balladurs.
Tveir fyrrum forsætisráðherrar
njóta einnig töluverðs fylgis meðal
franskra kjósenda og eru það þeir
Jacques Chirac (37%) og Raymond
Barre (38%).
Svo virðist sem efnahagslífið í
Frakklandi sé nú farið að rétta úr
kútnum og er það ásamt aðgerðum
Frakka í Rúanda og handtöku
hryðjuverkamannsins Carlosar talið
styrkja stöðu Balladurs. Samkvæmt
könnun sem blaðið Le Figaro birti
á fimmtudag gæti nú líka aukinnar
bjartsýni meðal Frakka vegna stöðu
efnahags- og félagsmála miðað við
könnun sem gerð var fyrir hálfu ári.
Fyrrverandi uinanríkisráðherra handtekinn
Grunur um tengsl
við Camorra
Róm. Reuter.
ANTONIO Gava, fyrrverandi innanríkisráðherra Ítalíu og um margra ára
skeið einn af áhrifaríkustu leiðtogum kristilegra demókrata, var í gær
handtekinn vegna gruns um tengsl við mafíuna í Napólí er þar nefnir sig
Camorra. Fulltrúi saksóknara í borginni sagði að handtökuskipun hefði
verið gefin út á alls 98 manns, þ. á m. háttsettan sósíalistaleiðtoga, kaup-
sýslumenn og Camorra-formgja. Eij
gerðar uþptækar.
Gava er 64 ára gamall og var
hann vakinn fyrir sólarupprás á
heimili sínu og fluttur í herfangelsi.
Handtökumar fylgdu í kjölfar
vitnisburðar Carmine Alfíeris, sem
var æðsti maður Camorra þar til
hann var handtekinn 1992 ásamt
staðgengli sínum, Pasquale Ga-
lasso. Alfieri braut þagnareið sam-
takanna og hefur veitt mikilvægar
upplýsingar um samstarfsmenn
sína. Sjálfur braust Alfieri til valda
hjá samtökunum með því að ryðja
keppinautum vægðarlaust úr vegi,
ferillinn er blóðugur en nú segist
hann leysa frá skjóðunni til að
„komast nær Guði“.
Miðstöð valda Gava var í Napólí
og embætti innanríkisráðherra
veitti honum æðstu völd yfír lög-
reglu, upplýsingaþjónustu stjórn-
valda og baráttu gegn skipulagðri
glæpastarfsemi.
Giulio Andreotti, fyrrverandi for-
sætisráðherra og kristilegur demó-
krati, hefur verið sakaður um aðild
að sikileysku mafíunni og verður
ákveðið í desember hvort hann verð-
ur leiddur fyrir rétt.
iir að andvirði milljarða króna voru
Berlusconi treystir tökin
á útvarpi o g sjónvarpi
Mílanó. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Silvios Berlusconis
á Ítalíu hefur skipað nýja yfirmenn
yfír öllum þremur rásum ítalska
sjónvarpsins, RAI, en þeir, sem fyr-
ir voru, þóttu ekki nógu hlynntir
stjórninni. Þykir sumum sem fjöl-
miðlakóngurinn Berlusconi hafí nú
tök á allri útvarps- og sjónvarps-
starfsemi í landinu. Hefur þessi
ráðstöfun sætt harðri gagnrýni,
meðal annars fréttamanna hjá RAI.
Auk þess að skipt var um yfír-
menn sjónvarpsrásanna þriggja,
voru nýir menn skipaðir jrfír frétta-
og útvarpsdeildina og búist er við
fleiri mannabreytingum á næstu
dögum. Eru nýju mennirnir flestir
miðjumenn eða úr hægrisinnuðum,
kaþólskum hópum og sumir tengdir
flokki Berlusconis, Áfram Ítalía,
eða fyrirtæki hans, Fininvest.
Tveir stjórnarmenn í RAI neituðu
að samþykkja mannaskiptin, sem
þeir sögðu eingöngu af pólitískum
toga, og stjórnarandstaðan á Ítalíu
og fréttamenn RAI hafa mótmælt
þeim. Norðursambandið, einn
stjórnarflokkanna, var einnig
óánægt og hótaði að stöðva fjár-
framlög til RAI og leggja fram á
þingi frumvarp um bann við hringa-
myndun, sem neyddi Berlus'coni til
að selja tvær af Jaremur sjónvarps-
stöðvum sínum. Ástæðan fyrir þess-
ari óánægju Norðursambandsins er
hins vegar sú, að flokkurinn hefur
ekki fengið neina stöðu hjá RAI.
Giuseppe Giulietti, formaður í
TIL skotbardaga kom í Peking í
gær þegar kínverskur hermaður
lenti í átökum við lögreglumenn
eftir að hafa rænt jeppa og reynt
að komast á Torg hins himneska
friðar. Skaut hann sjö manns til
bana, þar á meðal íranskan sendi-
ráðsstarfsmann og son hans, áður
en hann féll sjálfur.
Atburðurinn átti sér stað á fjöl-
förnum gatnamótum en hermaður-
inn hafði komið til Peking á jeppa,
sem hann hafði rænt ásamt öku-
manni. Þegar hann skipaði honum
að fara með sig á torgið, ók ekillinn
stéttarfélagi blaðamanna hjá RAI,
sagði í fyrradag, að ítalska ríkisút-
varpið væri nú orðið að deild í fjöl-
miðlasamsteypu Berlusconis.
„Brátt mun einn maður ráða yfír
þessu öllu eins og á dögum fas-
ista,“ sagði hann.
bílnum út af veginum og á tré og
tókst að flýja. Hermaðurinn greip
þá sjálfvirkan riffíl og skaut af
handahófi á fólk með þeim afleið-
ingum, að sjö manns féllu. Hermenn
felldu síðar byssumanninn.
Haft er eftir heimildum, að her-
maðurinn hafí átt í einhveijum úti-
stöðum við yfírmenn sína og það
sé hugsanlega skýringin á því, að
hann vildi komast á Tiananmen-
torg. Það er táknrænt fyrir vald
kommúnistaflokksins og þar var
lýðræðisbylting námsmanna kæfð í
blóði fyrir nokkrum árum.
Blóðugur skot-
bardagi í Peking
Peking. Reuter.
FARSIMAKERFIÐ
GSIVl tarsímakerfiö
Póstur og simi hefur tekið í notkun
nýtt farsímakerfi hér á landi. Kerfið
kallast GSM (Global System for
Mobile Communication) og er
stafrænt farsímakerfi fyrir
talsímaþjónustu innanlands og milli
landa.
Fyrst um sinn nær GSM kerfið aðeins
til höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja
og Akureyrarsvæðisins en það verður
síðan byggt upp (áföngum út frá
helstu þéttbýlissvæðum landsins.
ms
Alþjóölegt kerfi
Notandi fær einnig aðgang að GSM
farsímakerfum í öðrum Evrópulöndum eftir
að nauðsynlegir samningar hafa verið gerðir.
GSM kortiö - lykillinn aö kerfinu
Áskrift að GSM kortinu er bundin við kort,
svokallað GSM kort sem stungið er í símann.
Kortið er í senn lykill að kerfinu og
persónulegt númer þess sem er notandi
og greiðandi þjónustunnar.
Kynntu þér nýja GSM farsfmakerfið og
stigðu skref í átt til framtíðarfjarskipta.
Allar nánari upplýsingar um GSM
farsímakerfið er að fá hjá seljendum
farsímatækja.
Þeir eru:
Bónusradíó, Bræðurnir Ormsson hf.,
Hátækni hf., Heimilistæki hf., (stel hf.,
Nýherji hf., Radíóbúðin hf., Radíómiðun hf„
Símvirkinn - Símtæki hf„ Smith & Norland hf„
söludeildir Pósts og síma í Ármúla,
Kirkjustræti, Kringlunni og
á póst- og slmstöðvum
umlandallt. “
PÓSTUR OG SÍMI