Morgunblaðið - 21.09.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 19
LISTIR
ÞÓRUNN Magnea Magnúsdóttir ásamt leikurum á æfingu á Karamellukvörninni.
Leikárið hafið hjá Leikfélagi Akureyrar
Karaniellukvörnin
frumsýnd um helgina
STARFSEMI Leikfélags Akur-
eyrar á nýju leikári er nú hafín
og æfingar standa yfir á fyrsta
verkefni vetrarins, sem er barna-
og fjölskyldusýningin Karamellu-
kvörnin eftir Evert Lundström og
Jan Moen. Alls verða sex verkefni
á fjölum leikhússins í vetur, þar
af þrjú íslensk verk.
Karamellukvörnin undir leik-
stjórn Þórunnar Magneu Magnús-
dóttur verður frumsýnd 24.
september. Þar segir frá því þegar
fólkið sem vinnur á bak við tjöldin
í leikhúsinu tekur eftir því að salur-
inn er fullur af börnum sem eru
komin til að sjá hið vinsæla leikrit
Karamellukvömina. En það er bara
einn hængur á: Sýningin á ekki
að vera fyrr en daginn eftir! Það
er enginn leikari í húsinu.
Karamellukvörnin er gaman-
leikur með söngvum fyrir alla fjöl-
skylduna.
Árni Jónsson þýddi leikritið,
Kristján frá Djúpalæk söngtexta
og Þórarinn Hjartarson hefur sam-
ið nýjan lokasöng fyrir sýninguna
núna. Tónlist Birgis Helgasonar
frá fyrri uppsetningu LA er einnig
flutt að þessu sinni. Auk þess hef-
ur tónlistarstjóri sýningarinnar,
Michael Jón Clarke, samið nokkur
ný lög í stað sænskra laga sem
voru áður í verkinu. Leikmynd og
búninga gerir Hallmundur Krist-
insson. Með helstu hlutverk fara
Dofri Hermannsson, Aðalsteinn
Bergdal, Sigurþór Albert Heimis-
son, Rósa Guðný Þórsdóttir, Þór-
hallur Gunnarsson og Bergljót
Arnalds.
í októberbyrjun verða teknar
upp að nýju sýningat á BarPari
þar sem Sunna Borg og Þráinn
Karlsson fara með 14 hlutverk
undir leikstjórn Hávars Siguijóns-
sonar. LA bryddaði upp á þeirri
nýjung að innrétta lítið leikhús
sérstaklega fyrir þessa sýningu og
kallaði það Þorpið. Frumsýning var
í janúar og gekk sýningin fyrir
fullu húsi fram í maílok, en þá tók
BarParið sig upp og setti barinn
sinn niður í Reykjavík á Listahá-
tíð. Sunna og Þráinn hafa hlotið
mikið lof fyrir túlkun sína.
Óvænt heimsókn um jólin
Jólasýning LA verður Óvænt
heimsókn eftir J.B. Priestley og
undir leikstjórn Hallmars Sigurðs-
sonar.
Arnar Jónsson verður gestaleik-
ari leikfélagsins og fer með aðal-
hlutverkið í sýningunni, rannsókn-
arlögreglumann sem er að rann-
saka lát ungrar stúlku sem hefur
verið í þjónustu efnaðrar fjöl-
skyldu. Hann fer á fund þeirra og
smátt og smátt kemur í Ijós að
hver og einn í ijölskyldunni gæti
borið ábyrgð á dauða stúlkunnar.
Heimilisfólkið er leikið af Sunnu
Borg, Þráni Karlssyni, Rósu
Guðnýju Þórsdóttur, Þórhalli
Gunnarssyni, Sigurþóri Alberti
Heimissyni og Bergljótu Arnalds.
J.B. Priestley er einn af kunnustu
leikritahöfundum Breta á þessari
öld. Hann skrifaði Óvænta heim-
sókn (An Inspector Calls) árið
1945 og vakti það þá mikla at-
hygli. Óvænt heimsókn hefur
áður verið sýnd í Þjóðleikhúsinu
1950 og hjá Leikfélagi Akureyrar
1968. Guðrún J. Bachmann hefur
þýtt leikritið að nýju fyrir Leikfélag
Akureyrar sem frumsýnir þriðja í
jólum.
Aldarminning Davíðs
í janúar verða hundrað ár liðin
frá fæðingu Davíðs skálds Stefáns-
sonar frá Fagraskógi. LA mun
minnast hans með nýju leikverki
eftir Erling Sigurðarson sem hann
nefnir Á svörtum Ijöðrum - úr ljóð-
um Davíðs Stefánssonar. Þar tjáir
skáldið hug sinn á ýmsum tímum
og leitar á vit minninganna þar
sem persónur stíga fram úr hug-
skoti hans og ijölbreytilegar mynd-
ir lifna. Undir leikstjórn Þráins
Karlssonar gæðast þessar tákn-
myndir lífi á leiksviði, þar sem
ástin er í aðalhlutverki.
Erlingur Sigurðarson er ís-
lenskufræðingur og kennari við
Menntaskólann á Akureyri. Fjöl-
margir leikarar, söngvarar og tón-
listarmenn munu koma fram á
sýningunni. Frumsýning verður á
aldarafmæli Davíðs, 21. janúar
1995.
Þar sem djöflaeyjan rís eftir
Einar Kárason í leikgerð Kjartans
Ragnarssonar verður frumsýnt í
marslok. Leikstjóri verður Kolbrún
Halldórsdóttir og mun Kjartan
endurskoða fyrri leikgerð sína í
samvinnu við hana með tilliti til
sýningar LA. Leikmynd gerir Axel
Hallkell Jóhannesson. Þar sem
djöflaeyjan rís verður viðamesta
sýning leikárs hjá LA.
Kirkjulist
Leikfélag Akureyrar hefur verið
einn af aðilum Kirkjulistarviku á
Akureyri frá upphafi, en hún er
að jafnaði haldin annað hvert ár.
Á Kirkjulistarviku í maí á næsta
vori verður LA með leiklistaruppá-
komu sem nefnist GUÐ/jón og
byggir á textabrotum og myndum
eftir ýmsa höfunda um manninn
andspænis almættinu. Handrit og
stjórn verður í höndum Viðars
Eggertssonar.
í vetur verða sjö fastráðnir leik-
arar hjá LA. Sem fyrr eru á föstum
samningi Aðalsteinn Bergdal, Rósa
Guðný Þórsdóttir, Sigurþór Albert
Heimisson, Sunna Borg og Þráinn
Karlsson. Þá hafa verið ráðnir til
starfa tveir ungir leikarar sem út-
skrifuðust í sumar, þau Þórhallur
Gunnarsson, frá Leiklistarskóla
íslands og Bergljót Arnalds, frá
Queen Margaret Collage of Art í
Edinborg. Auk þeirra mun fjöldi
lausráðinna leikara, leikstjóra,
leikmyndateiknara og tónlistar-
manna vinna að sýningum vetrar-
ins.
HELMUT Freitag
Frábær
orgelleikur
TÓNLIST
Kristskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Helmut Freitag lék verk eftir
Brahms, Schumann, Mendelssohn
og J.S. Bach. Föstudagur
16. september 1994.
EKKI er ólíklegt að fámenni á
tónleikum Helmuts Freitags, í
Landakotskirkju sl. föstudag, stafí
af því, að menn eru vanir því að
orgeltónleikar séu aðeins haldnir í
kirkju Hallgríms Péturssonar og auk
þess, að föstudagur, síðasti vinnu-
dagur vikunnar, hefur ævinlega ver-
ið erfiður tónleikadagur. Hvað sem
þessu líður voru þetta frábærir tón-
leikar. Tónleikarnir hófust á Prelúdíu
og fúgu í g-moll eftir Brahms, en
eftir hann liggja tvö slík verk, samin
1856-57 en ekki gefin út fyrr en
1927 og fyrst flutt tveimur árum
seinna í Berlín. Þetta er tónlist hins
unga fullhuga og erfitt verk í flutn-
ingi. Bach-fúgumar þrjár eftir
Schumann eru frá þeim tíma er hann
taldi sér þörf á að glíma við kontra-
púnktísk vinnubrögð og þó fúgurnar
væru mjög vel leiknar, eru þær ekki
meira en áhugaverðar sem tónsmíð-
ar. Schumann samdi alls sex Bach-
fúgur og ætlaði þær jafnt fyrir ped-
alpíanó og -orgel. D-moll sónatan,
sú nr. 3, eftir meistara Bach, var
aldeilis vel leikin af Helmut Freitag
og sama má segja um tvö kóralfor-
spil op. 122 eftir Brahms, Schmúcke
dich (nr. 5) og 0 Gott, du frommer
Gott (nr. 7), úr 11 kóralforspilum,
sem eru meðal síðustu tónsmíða hans
og gefín út að honum látnum, 1902.
Sjötta orgelsónatan eftir Mend-
elssohn er fallegt verk og miðþáttur
verksins, fúgan, ekta Bach-stúdía.
Helmut Freitag er frábær orgelleik-
ari og það kom hvað glæsilegast fram
í g-moll fantasíunni og fúgunni
(BWV 542) eftir meistara Bach,
bæði fantasíunni og ekki síst meist-
arafúgunni, sem var afburða vel leik-
ln’ Jón Ásgeirsson
MIKIL SALA — YFIR 200 BÍLAR Á STAÐNUM
BÍLAHÖLLIN, BÍLDSHÖFÐA 5, SÍMI 674949
J.R. BÍLASALAN, BÍLDSHÖFÐA 3, SÍMI 670333
Toyota Corolia XL sedan, árg. '90,
hvltur, ek. 70 þ.km., 5 g„ álfelgur,
aukadekk á felg um, einn eigandi.
V. 690 þús.
Toyota Hiace 4x4, bensfn, árg. ‘91,
blá sans., ek. 90 þ.km., aukadekk á
felgum. Bekkur getur fylgt. V.1,480m/vsk.
Hyundai Excel 1500 GL, árg. ‘87,
rauður, ekinn 106 þ.km., sjálfsk.,
nýtt lakk.V. 390 þús.
Mitsubishi Lancer 1500 GLX, árg. ‘89,
grár, ekinn 90 þ.km. 5 g„ nýtt púst.
V. 660 þús.
Lada 1500 station, árg. '92 rauöur,
ek. 48 þ.km., 5 glra. V. 480 þús.
Peugeot 205 junior, árg. '91, hvítur,
ekinn 65 þ.km., 5 dyra.
V. 490 þús.
Ford Explorer XLT, árg. '91 blár,
ek. 31 þ.km., sjálfsk., leöursæti.
V. 3,1 millj.
Ford Escort 1,6 CLX, árg. ‘94 l.blár, ek.
6 þ.km., álfelgur, spoiler, 5 g.
V. 1.270 þús.
Peugeot 405 GR, árg. '92, brúnn ek. 11 Toyota Corolla GLi liftback,
þ.km., sjálfsk. V. 1.350 þús. árg.‘93, rauöur,
ek. 18 þ.km.V. 1.250 þús.