Morgunblaðið - 21.09.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 31
MIIMNINGAR
JÓNEMIL
STEFÁNSSON
+ Jón Emil Stef-
ánsson fæddist
á Jarðbrú í Svarf-
aðardal 4. maí 1902.
Hann lést á Dalbæ,
dvalarheimili aldr-
aðra á Dalvík 5.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Stefán
Tryg-gvi, f. 20. sept-
ember 1879, d. 18.
nóvember 1967,
bóndi og sjómaður,
og Jónína Sigfríður
Arnbjörnsdóttir, f.
28. september 1870,
d. 19. nóvember 1953. Þau hjón
bjuggu á Jarðbrú, Syðri-Más-
stöðum, Hjaltastöðum og síðast
á Dalvík. Stefán Tryggvi var
sonur Jóns bónda Jónssonar á
Jarðbrú og Kristínar Stefáns-
dóttur, þá ógift vinnukona en
síðar húsfreyja í Sæbóli á Upsa-
strönd. Jónína Sigfríður var
dóttir Arnbjöms Jónssonar
bónda á Þorleifsstöðum og
konu hans Soffíu Jónsdóttur
húsfreyju. Stefán og Jónína
áttu auk Jóns Emils annan son,
Arnbjöm Martein, f. 4. desem-
ber 1903, d. 10. júní 1988,
verkamaður á Dalvík. Hálfsyst-
ir Jóns, samfeðra, var Soffía
Vigfússína, f. 19. nóvember
1930, d. 23. maí 1992, húsfreyja
í Hlíð í Skíðadal. Jón Emil
kvæntist 17. maí 1929 Fanneyju
Stefaníu Bergsdóttur, f. 14.
október 1901, d. 17.
nóvember 1942. For-
eldrar hennar vom
Bergur Jónsson
bóndi á Hofsá í Svarf-
aðardal og seinni
kona hans Osk Vald-
ína Rögnvaldsdóttir
húsfreyja. Sonur
Jóns og Fanneyjar
var Rögnvaldur,' f.
14. september 1931,
d. 16. október 1933.
Fósturdóttir Jóns
Emils frá 1942 er
Guðrún Elín Skarp-
héðinsdóttir, f. 25.
mars 1940. Elín er dóttir Skarp-
héðins JúlíussOnar, f. 13. júní
1909, d. 29. september 1942, frá
Lykkju í Svarfaðardal, og Elín-
ar Sigurðardóttur, f. 21. sept-
ember 1907, frá Skáladal í
Sléttuhlíð í Norður-ísafjarðar-
sýslu. Maður Elínar er Gylfi
Björnsson deildarstjóri hjá
ÚKE á Dalvík. Sonur þeirra er
Jón Emil, hann á fjögur börn,
Tryggva Rúnar, Gylfa, Björn
og Elínu Maríu. Jón Emil Stef-
ánsson var trésmiður að mennt
og aflaði sér meistararéttinda
árið 1929. Hann stundaði iðn
sína allt til áttræðisaldurs og
eftir hann standa margar bygg-
ingar af mörgum gerðum, á
Dalvík, í Svarfaðardal og víðar.
Útför hans var gerð frá Dal-
víkurkirkju 10. september síð-
astliðinn.
Þótt sðlni grösin græn frá vori,
glói hrím á blaði og steinum,
gróðurilm úr gengnu spori
geymum við í hugans íeynum.
(Bjöm Daníelsson.)
Látinn er heiðursborgari Dalvík-
inga, Jón Emil Stefánsson trésmið-
ur á Dalbæ, 92 ára að aldri, þrotinn
að kröftum og saddur lífdaga. Hann
hvílir nú við hlið konu sinnar og
sonar í Upsakirkjugarði.
Jonni á Hvoli, eins og hann var
af flestum nefndur, byijaði snemma
að vinna fyrir sér og sinnti ýmsum
störfum í sveitinni. Hugur hans
hneigðist snemma til húsasmíða og
aflaði hann sér kennslu í þeirri iðn
hjá Gunnlaugi Sigfússyni smið á
Dalvík. Starfaði hann síðar hjá
Sveinbirni Jónssyni byggingameist-
ara á Akureyri og öðlaðist meistara-
réttindi í húsasmíði árið 1928.
Margar byggingar á Dalvík bera
merki um hlut Jonna í uppbyggingu
Dalvíkur. Má auk fjölda íbúðarhúsa
sérstaklega nefna Dalvíkurkirkju.
Jonni í Hvoli starfaði í þágu sveit-
arfélagsins um áraraðir, sérstak-
lega við vatnsveitu- og holræsa-
framkvæmdir, oft við erfiðar að-
stæður-og í því slarki hafði hann
góðan stuðning af Adda bróður sín-
um. Þegar heiðursborgarinn gang-
setti og vígði þar með nýja vatns-
veitu Dalvíkinga hinn 5. desember
1987 hafði hann við orð að oft hefði
verið erfiðara að koma vatni á veitu-
kerfi Dalvíkinga en að þrýsta á einn
lítinn hnapp.
í mörg ár rak Jonni trésmíðaverk-
stæði á Dalvík ásamt félögum sínum
Sveini Friðbjönissyni og Bimi Þor-
leifssyni og lét ekiri af störfum fyrr
en hann varð 80 ára. Jonni byggði
íbúðarhús sitt Hvol árið 1929, en
árið 1985 flutti hann á Dalbæ, heim-
ili aldraðra. Hvoll er nú í eigu Dalvík-
urbæjar og er þar nú starfrækt
Byggðasafn Dalvíkinga.
Hinn 17. nóvember 1942 varð
Jonni fyrir því áfalli að missa konu
sína. En ári síðar réðst til hans
María Siguijónsdóttir og studdi
hann við uppeldi Elínar fósturdóttur
hans. Þegar aldur færðist yfir og
heilsa tók að þverra nutu þau um-
hyggju fósturdótturinnar og manns
hennar Gylfa Björnssonar.
Ég þekkti Jonna í Hvoli allvel
og reyndi hann ekki að öðru en
góðu einu. Hann var léttur í lund
og átti svo gott með að lynda við
ungt fólk. Gamansemi hans var við-
bmgðið og tilsvör hans em enn í
hávegum höfð og létta gjarnan
samræður manna á millum. T.d.
má margur Dalvíkingurinn þakka
Jonna góðlátlegt uppnefni sitt þó
ég láti þeirra ógetið í þessum minn-
ingarbrotum. Þrátt fyrir háan aldur
fylgdist Jonni alltaf vel með öllum
vexti bæjarfélagsins og hafði sínar
ákveðnu skoðanir á flestum málum.
Dalvíkingar hafa notið samvista
við góðan og mætan mann. Þeir
létu í ljós þakklæti sitt og virðingu
með því að gera hann að heiðurs-
borgara Dalvíkur 11. september
árið 1980.
Ég votta Maríu, Ellu og Gylfa
samúð mína og bið Jóni Emil Stef-
ánssyni Guðs blessunar á nýjum
byggingarreit.
Kristján Þór Júlíusson.
HALLDÓR BECH
+ Halldór Bech, fyrrverandi
flugstjóri, fæddist í Reykja-
vík 9. júlí 1921. Hann andaðist
á heimili sínu í Reykjavík 10.
september síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Fossvogs-
kirkju 19. september.
FYRSTU kynni mín af Halla Bech
(eins og við kölluðum hann), voru
er hann kom með tilvonandi eigin-
manni mínum í heimsókn á æsku-
heimili mitt Stórahrauni en þeir
voru bernskuvinir og félagar. Halli
lærði rafvirkjun en fór síðan í flug-
nám til Tulsa í Bandaríkjunum og
var hann einn af fyrstu flugmönn-
um okkar. Er heim kom fór hann
að fljúga hjá Loftleiðum og þótti
afburðafær í því starfi. Blindflugs-
námi lauk hann síðan í Englandi.
Örlögin höguðu því þannig að
Halli hætti flugi og fór að vinna
hjá föður sínum Eiríki Bech er var
stofnandi og eigandi fyrirtækisins,
Nói Siríus og Hreinn. Síðan var
hann hjá Þorvaldi í Síld og fisk, en
í framhaldi af því fluttist hann
ásamt fjölskyldu sinni að Víðinesi
í Mosfellsbæ og var þar í 12 ár við
ýmis störf, síðast á skrifstofu. Halli
var víkingur til hvers konar vinnu
er hann tók sér fyrir hendur, enda
rammur að afli eins og Eiríkur fað-
ir hans.
Er ég fyrst kynntist Halla virtist
mér hann frekar hijúfur og lokað-
ur, en við nánari kynni kom í ljós
að hið innra bjó viðkvæmur og góð-
ur drengur, er hann alltaf málsbæt-
ur þeim er hallað var á. Halli var
skemmtilega hnyttinn í tilsvörum
og þó að hann hefði gott skopskyn,
heyrði ég hann aldrei grínast á
annarra kostnað.
Halli Bech var sannkallaður vinur
vina sina og trölltryggur.
Samband milli heimila okar hefír
alla tíð verið mjög náið og vinátta
barna okkar eins og bestu systkina.
Halli var bókamaður mikill og
víðlesinn en mest dáði hann þó vin
sinn Halldór K. Laxness og vitnaði
ósjaldan í hann á goðum stundum.
Á yngri árum stundaði Halli
íþróttir og þá aðallega box og var
alla tíð einlægur íþróttaáhugamað-
ur. Hann unni góðri tónlist og var
næmur á því sviði en í móðurætt
var hann náskyldur Páli ísólfssyni
orgelleikara og tónskáldi.
Lára systir mín, er seinna varð
kona Halla, veiktist af berklum og
var eitt ár á berklahælinu Vífils-
stöðum, en um það leyti bjó hún á
heimili okkar.
Halli slóst einu sinni í för með
okkur er við heimsóttum hana og
eftir að Lára kom heim, gerðist
Halli tíður gestur á heimili okkar,
en þessi fyrstu kynni enduðu á þann
veg að einu og hálfu ári seinna
gengu þau í hjónaband. Hjónavígsl-
an fór fram á sæmdarheimilinu
Víðivöllum við Sundlaugaveg, hjá
Guðnýju móður hans, er bjó þar
með seinni manni sínum Oskari
Guðnasyni yfirprentara.
Lára og Halli hafa staðið saman
í blíðu og stríðu og er Lára varð
fyrir alvarlegu slysi er leiddi til
ævilangra örkumla sýndi hann best
mannkosti sína, en í veikindum
hennar hefir hann á allan hátt að-
stoðað hana sem best má verða.
Halli lést skyndilega á heimili
sínu, en hann hafði lengi átt við
hjartabilun að stríða. Með Halla
Bech er genginn sterkur persónu-
leiki, sem æðrulaust gekk í gegnum
stórsjói og storma lífsins með reisn.
Láru systur minni, afkomendum
hennai- og venslafólki vottum við
Einar og fjölskylda dýpstu samúð.
Kristin Þórarinsdóttir
frá Stórahrauni.
+
Innilegar þakkir og kveðjur til allra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall
MAGNÚSAR GRÍMSSONAR
skipstjóra.
fyrir hönd aöstandenda
Þuriður Magnúsdóttir,
Bolli Magnússon,
Atli Magnússon,
Svanhildur Magnúsdóttir,
Matthildur Magnúsdóttir,
Helga Magnúsdóttir,
BJÖRN EINARSSON
+ Björn Einarsson fæddist í
Óspaksstaðaseli 28. desem-
ber 1918. Hann lést á Borgar-
spítalanum 27. ágúst síðastlið-
inn og var útför hans gerð frá
Áskirkju 6. september.
ÞEGAR ég kveð Bjössa hinsta sinni
kemur margt fram í huga minn.
Þær voru ófáar helgarnar sem
Bjössi og Trudel frænka komu í
sveitina og alltaf var eitthvað gott
í pokahorninu handa stórum systk-
inahóp. Þá var farið í bíltúr á bjöll-
unni þeirra. Eins og þegar farið var
til Reykjavíkur. Þá tók hann í hönd
barnsins og leiddi og leiðbeindi með
þolinmæði og hlýju. Þá endaði
göngutúrinn um borgina iðulega
með viðkomu í ísbúð þar sem keypt-
ur var ís og svo stakk hann af-
gangnum af peningnum í vasa
barnsins og sagði: „Þetta skaltu
geyma þar til þú verður stór.“ ~~~
Seinna sem unglingur átti ég
þess kost að. dvelja hjá þeim meðan
ég lauk skólaskyldu minni. Og einn-
ig þá naut ég leiðsagnar hans eftir
því sem hann best gat. Síðar meir,
þegar ég var búin að stofna fjöl-
skyldu, veitti hann góða hjálp og
fylgdist vel með öllu, sérstaklega
börnum mínum, sem hann sagði að
væru hans barnabörn.
Ég mun minnast Bjössa sem ró-
legs manns, en glettins og manns
sem átti til að gera góðlátlegt grín
að sjálfum sér, því þannig var hann.-w
Elsku Trudel, ég bið guð að vera
með þér í framtíðinni.
Ragneiður L. Georgsdóttir
og fjölskylda.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
DANÍEL JAKOB JÓHANNSSON
fæddur Mortensen,
Bergstaðastræti 64,
áður Bræðraborgarstíg 9,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 22. septem-
ber kl. 13.30.
María Jakobsdóttir, Jóhannes Guðmannsson,
Joan Peter Mortensen, Hanne Mortensen,
Marteinn Jakobsson, Helga Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
U
+
Hjartkær maðurinn minn, faðir, stjúp-
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN HJALTI ÞORVALDSSON,
Grandavegi 47,
fyrrv. umsjónarmaður hjá Lögreglu-
stöðinni, Almannavörnum og Utan
rikisráðuneytinu,
sem lést í Landspítalanum 13. septem-
ber, verður jarðsunginn föstudaginn 23.
september kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Guðrún S. Guðmundsdóttir.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJÖRTUR B. HELGASON
fyrrverandi kaupfélagsstjóri
í Sandgerði,
lést á Garðvangi í Garði, föstudaginn 9. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Sérstakt þakklæti til starfsfólks Garðvangs fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Sveinsína I. Hjartardóttir,
Guðrún Hjartardóttir,
Lilja Hjartardóttir,
Jón E. Hjartarson,
Erla Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Árni Jónsson,
Marteinn Guðjónsson,
Jón K. Guðmundsson,
Sigurhanna Gunnarsdóttir,
Kristján Haraldsson,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR ÁRSÆLSDÓTTUR,
Mjóuhlíð 14,
Reykjavík.
Jónina Þorbjörnsdóttir,
Hjalti Magnússon,
Ingibjörg Gunnþórsdóttir,
ívar og Kristín Laufey.
+
Útför bróður okkar,
KRISTJÁNS SÆMUNDSSONAR
prentara,
Blómvallagötu 13,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskapellu í dag,
miðvikudaginn 21. september,
kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigurjón Sæmundsson,
Eiríkur J.B. Eiríksson.