Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
HELGA
GISS URARDÓTTIR
•+■ Helga Gissurardóttir fædd-
1 ist í Byggðarhorni í Flóa í
Árnessýslu 28. maí 1911. Hún
lést á Landspítalanum 9. sept-
ember síðastliðinn og var minn-
ingarathöfn um hana í Dóm-
kirkjunni 20. september.
KÆR vinkona er látin. Þegar vin-
kona er kvödd koma upp í hugann
góðar minningar frá iiðnum árum.
Við Helga kynntumst í kjölfar þess
að við Oddný urðum vinkonur en
samband þeirra mæðgna var ætíð
náið. Helga kom frá stóru heimili
og má segja að það hafi henni allt-
af verið kært og eðlilegt að hafa
marga í kringum sig. Heimili þeirra
Vilhjálms á Grundarstígnum var
jafnan miðdepill fjölskyldunnar.
Eftir að þau fluttu af Grundarstígn-
um mátti finna söknuð til gamla
heimilisins en um leið skilning á
því að tímarnir breytast og kalia á
nýjar áherslur.
Haustið er tími uppskeru.
Hugurinn reikar til þess er við
Helga vorum saman á leikskólan-
um Mýri við sláturgerð. Leikskólinn
er rekinn af foreldrum barnanna
og kallar það á ýmiss konar sam-
vinnu þeirra sem er af hinu góða.
Sláturgerð er orðin fastur liður í
starfseminni. Ég hafði aldrei komið
nálægt sláturgerð en skyldunnar
vegna mátti ég til að vera með.
Það vantaði einhvern góðan til að
stjórna sláturgerðinni og einnig
þurfti að fá betri uppskrit en notuð
hafði verið. Oddný benti mér á að
tala við móður sína. Hún var fús
til að koma og liðsinna okkur. Mér
er minnisstæður þessi fyrsti laugar-
dagsmorgunn. Við ætluðum að
byija klukkan tíu og vorum stund-
víslega mættar. Enginn var kominn
svo við hinkruðum við. Eftir nokkra
stund kom Marta María matráðs-
kona leikskólans og við komumst
inn. Nokkur dráttur var á að for-
eldrar kæmu og sá ég að Helgu
leiddist biðin. Við ákváðum að hefj-
ast handa og mátti ég hræra í stór-
um bala með höndunum. Helga
stjórnaði allri blöndun og lét mig
smakka á. Mér þótti ekki beint
kræsilegt að smakka á blóðmörnum
en lét mig hafa það þegar hún full-
vissaði mig um að ekki væri hægt
að búa til góðan blóðmör nema að
vita nákvæmlega hvernig blandan
bragðaðist. Þegar ég hafði orð á
því hve mikið við værum að búa
til benti hún mér á að þetta hefði
nú ekki þótt mikið í sínu ung-
dæmi. Annars undraði hana mest
að karlar tækju þátt í sláturgerð-
inni. Það hefði þótt nánast guðlast
MINNINGAR
á hennar heimili. Helga átti eftir
að stjórna sláturgerð á Mýri í nokk-
ur ár og átti hún þakkir allra fyrir.
Síðasta ferð okkar til biskups-
vígslu í Skálholti í júlí verður mér
ógleymanleg. Helga var einstak-
lega ættrækin og stolt af sínu fólki.
Henni var mikil ánægja að vera
viðstödd biskupsvígslu Sigurðar
frænda síns og hitta um leið góða
vini og ættingja.
Elsku Vilhjálmur, ég sendi þér
og fjölskyldunni samúðarkveðjur
og þakka vináttu fyrr og síðar.
Bessí Jóhannsdóttir.
Þrettán ára stúlka, send austan
úr Hraungerði til Reykjavíkur í
skóla og tónlistarnám, kynntist ég
Helgu frænku minni fyrst fyrir al-
vöru, þeirri aivöru að Helga varð
mér sem önnur móðir og hefur ver-
ið það síðan. Ég bjó í nágrenni við
Helgu og borðaði hjá henni og henn-
ar ágætu fjölskyldu. Ég hreifst
strax af gegnheilum höfðingsskap
Helgu, hvort sem hann birtist í
framkomu hennar eða nánari sam-
skiptum, og ekki síður af nærgætni
hennar og næmum skilningi á öðru
fólki. Ég þykist viss um að ég tala
þessi orð fyrir munn fjölmargra
annarra, sem urðu þeirrar gæfu
aðnjótandi að kynnast Helgu. Hún
var í senn faileg, skemmtileg og
óvenju ræktarsöm, sérstaklega við
þá sem minna máttu sín vegna veik-
inda eða annarra erfiðleika. Helga
hafði alltaf efni á að rétta hjálpar-
hönd, þótt aldrei hafi hún haft úr
miklu að spila í veraldlegum skiln-
ingi. Því til staðfestu rifja ég upp
að rétt áður en hún heimsótti mig
einu sinni sem oftar til New York
var brotist inn á heimili mitt og
öllum skartgripum mínum stolið.
Ég var varla búin að ljúka frásögn-
inni þegar Helga tók af sér gullarm-
band og gaf mér, án þess að ég
gæti með fortölum aftrað henni,
með þeim orðum að hún gæti ekki
hugsað sér að ég-ætti engan skart-
grip. Það ber ég síðan með stolti.
Þótt armbandið sé áþreifanleg
minning um Helgu, er minningin
um andlega uppörvun hennar og
návist mér dýrmætari. Aldrei áður
hefur mig langað jafn mikið til þess
að segja jafn mörg falleg orð um
eina manneskju og núna. Stundum
afsakaði hún góðgerðir við mig með
því að ég héti eftir móður hennar.
Ég held hins vegar að það hafi ver-
ið diplómatískur fyrirsláttur hjá
henni, eftir það sem ég hef séð hana
gera fyrir aðra, sem ekki báru nafn
móður hennar. Elsku fjölskýlda og
vinir Helgu, ég tek heilshugar þátt
í sorg ykkar. Við kveðjum nú óvenju
mikla manneskju og engin mann-
eskja er mikilmenni, án þess að vera
fyrst og fremst góðmenni.
Lítill sveitastrákur austan úr
Flóa var ég staddur á mannamóti
í Reykjavík, borginni sem mér
fannst þá vera gluggi að alheimin-
um. Ég var því að vonum hálffeim-
inn í hópi krakka á mínu reki, sem
ég þekkti lítið, og áttu heima í
Reykjavík. Kemur þá ekki Helga
frænka siglandi í salinn, glæsilegri
en nokkur önnur kona á staðnum,
geislandi af sér gleði og hlýju. Ox
mér þá ásmegin og lýsti því yfir í
krakkahópnum að þetta væri hún
Helga frænka mín, systir hennar
mömmu. Og ekki stóð á því, ég
uppskar verðskuldaða virðingu
krakkanna fyrir að vera náskyldur
þessari glæsilegu konu. Reyndar
sagði pabbi minn heitinn að líklega
væri Helga mágkona sín eina ís-
lenska aðalskonan, sem fædd væri
aðalskona.
Ég naut þess um tíma að búa í
nágrenni við Helgu. Það var alltaf
hátíð þegar hún kíkti inn, gjarnan
undir því yfirskini að hún hafi verið
að prjóna vettlinga handa litlu stelp-
unni minni, eða spyija um heimilis-
föng hinna barnanna minna, sjálf-
sagt til þess að geta glatt þau eitt-
hvað líka. Heilshugar tek ég undir
allt, sem systir mín hefur sagt hér
að framan. Um leið og ég bið Guð
að blessa alla syrgjendur Helgu
Gissurardóttur, þessarar hetju
hversdagsins, leiði ég hugann að
því hvort þjóðfélagi okkar væri ekki
betur borgið undir leiðsögn stór-
brotinna höfðingja, sem blessaðir
væru með falslausu lítillæti og djúp-
um skilningi á stöðu lítilmagnans.
Með virðingu og söknuði kveð ég
nú kæra frænku rnína, sem hafði
alla þessa hæfileika.
Ingibjörg og Gissur
Sigurðarbörn.
RAD4 UGL YSINGAR
Blaðamaður
óskast til starfa á héraðsfréttablaði í næsta
nágrenni Reykjavíkur. Um hlutstarf getur
verið að ræða. Algjörum trúnaði heitið.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Strax
_______- 10748“ fyrir 25. þ.m._
Hjúkrunarfræðingur
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina Borgarnesi/Kleppjárnsreykjum er
laus frá og með 1. nóvember nk. Um er að
ræða hlutastarf.
Umsóknir sendist til stjórnar stöðvarinnar
fyrir 15. október nk.
íbúð óskasttil leigu
3ja-4ra herb. í Voga- eða Heimahverfi til
lengri eða skemmri tíma. Öruggar greiðslur
og góð umgengni.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar til af-
greiðslu Mbl. merktar: „G - 11795".
Löngumýrarkonur!
Fyrrverandi nemendur húsmæðraskólans á
Löngumýri í Skagafirði! Hittumst á „Kaffi
Mílanó" Faxafeni 11, föstud. 23. sept. kl. 20
og ræðum ferð vegna 50 ára afmæli skólans.
Undirbúningsnefndiri.
F É.L AGSSTARF
Kópavogur
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður hald-
inn miðvikudaginn 28. september 1994 kl. 20.30 í Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, 3. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gunnar Birgisson hefur framsögu um stjórnmálaviðhorfið. Al-
mennar umræður.
Fundurinn er aðeins opinn kjörnum fulltrúum í fulltrúaráðinu.
Áríðandi er að allir fulltrúar mæti og geri grein fyrir sér við inngang-
inn. Geti fulltrúi ekki mætt skal hann tilkynna formanni félags síns
sem boðar þá varamann.
Stjórnin.
VAuglýst eftlr fram-
boðum til próf kjörs í
Reykjaneskjördæmi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins við næstu alþingiskosningar fari fram 5. nóvember nk. Val
frambjóðenda fer fram með tvennum hætti.
a. Gerð er tillaga til kjörnefndar (Yfirkjörstjórnar) innan ákveðins
framboðsfrests sem kjörnefnd (Yfirkjörstjórn) setur. Tillagan er
því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn
flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa
í prófkjörinu. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsett-
um í kjördæminu.
b. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót-
ar frambjóðendum skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs sbr. a-lið hér að
ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda
liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til
prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingis-
kosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn, búsettir í Reykjanes-
kjördæmi, skulu standa að hverju framboði og enginn flokksmaður
getur staðið að fleiri framboðum en 7.
Framboðum þessum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og
stuttu æviágripi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Kjördæmisráðs sjálf-
stæðisfélaganna I Reykjaneskjördæmi, Strandgötu 29, Hafnarfirði,
kl. 16.00-18.00 sunnudaginn 9. október 1994.
-kjarnimálsins!
Sntá auglýsingar
IOOF 7 = 1769218* = R.
IOOF 9 = 175921 8V2 =
I.O.O.F. 7 = 1769218'/2 = R.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur kl. 20.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Allir
hjartanlega velkomnir.
Farfuglar
Eldri og yngri farfuglar.
Hin árlega haustferð Farfugla í
Valaból verður farin laugardag-
inn 24. september. Mæting við
Kaldársel kl. 13.30.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFELAG
B ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Laugardaginn 24. sept.
Kl. 08.00 dagsferð að Hrafnt-
innuskeri í tilefni vígslu nýs gisti-
skála F.(. Verð kr. 2.000,- Áríð-
andi að panta farmiða (s.
68 25 33) og greiða fyrir kl.
17.00 fimmtudag á skrifstofu FÍ
(taka með nesti til dagsins).
Brottför frá Umferöarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni
6.
Helgarferðir:
23.-25. sept. Landmannalaugar
- Jökulgil. Jökulgil liggur til suð-
austurs frá Landmannalaugum
upp undir Torfajökul. Jökulgil er
rómað fyrir litfegurð fjalla sem
að því liggja. Gist í sæluhúsi F(
í Laugum.
24.-25. sept. Þórsmörk, haust-
litir. Gist í Skagfjörðsskála.
Þórs-
mörkin er einstök á að líta (
haustlitum.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉIAGA
Háaleitisbraut 58-60
Kristniboðssamkoma í kvöld í
kristniboðssalnum kl. 20.30.
Ræðumaður er Margrét Hró-
bjartsdóttir en hún er á förum
til Eþíópíu til kristniboðsstarfa.
Þú ert hjartanlega velkomin(n) í
kvöld.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi
íslands
Skorski miðillinn Mary Armour
og breski miðillinn Irish Hall
verða með einkafundi til 24.
september. Enn er tímum óráð-
stafað.
Bókanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
Mlðfun
Pýrmídinn -
andleg
miðstöð
Vegna fjölda
áskorana verða
June og Geoff
Hughes með til-
raunakvöld i
kvöld, miðviku-
daginn 21. sept.
kl. 20.00.
Skyggnilýsing:
Fimmtudaginn
22. sept. kl. 20
sér June Hughes
um skyggnilýs-
ingu.
Allir velkomnir.
Pýramídinn
Dugguvogi 2,
símar 882526 og 881415.