Morgunblaðið - 21.09.1994, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Sjáðu Sannar lyi
y^our Weddlngs
tmd oFuneral
inifer Jason
rim Robbins
BLAÐIÐ
KIKA
BLÓRABÖGGULLINN
FJÖGUR BRÚÐKAUP OG JARÐARFÖR
Dramatísk gamanmynd um ævintýralegan sólarhring á dagblaðinu The
Sun í New York þar sem sannleikurinn lendir í harðri samkeppni við
fjárhag blaðsins og eiginkonuna sem þolir ekki alla þessa yfirvinnu!
Stórleikararnir Michael Keaton, Glenn Close, Robert Duvall og Marisa
Tomei í nýrri mynd frá Ron Howard
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.15.
Guðdómlegur gleðileikur með Hugh Grant, Andie McDowell og
Rowan Atkinson. Vinsaelasta mynd Breta fyrr og síðar.
Sýnd kl. 11.10.
Allra síðasta sýning
Kvikmyndir
Heimsfrægir leikarar og
heimsfrægar ófreskjur
INNAN skamms verða frumsýnd-
ar í Bandaríkjunum tvær kvik-
myndir þar sem tveir af vinsæl-
ustu leikurum Bandaríkjanna
koma fram í óvenjulegum hlut-
verkum. Tom Cruise leikur vamp-
íru í myndinni Interview with the
Vampire og Robert De Niro leikur
ófreskjuna, sköpunarverk dr.
Frankensteins, í mynd Kenneth
Branaghs, Mary Shelley’s Fran-
kenstein.
Upphaflega hafði Francis Ford
Coppola. hugsað sér að gera
Frankenstein-myndina en fannst
komið nóg af ófreskjum eftir að
hafa gert Bram Stoker’s Dracula.
Kenneth Branagh tók að sér hand-
ritið og lét endurgera það og færa
það nær upphaflegu sögunni.
Sjálfur ætlar Branagh að leika dr.
Frankenstein, en fékk De Niro í
lið með sér til að leika ófreskjuna.
Saman eyddu þeir félagar um
það bil ári í að hanna útlit ófreskj-
unnar sem dr. Frankenstein bjó.
Þeim fannst skipta miklu að hún
bæri merki uppruna síns en í sög-
EINHVERS staðar á bak við
þetta andlit er Robert
De Niro.
unni saumaði doktorinn sköpunar-
verk sitt saman úr líkamsleifum
VAMPÍRAN Tom Cruise.
EFTIR að River Phoenix
lést tók Brad Pitt við hlut-
verki hans í vampíru-
myndinni.
dauðlegra manna. „Það fór mikill
timi í að lesa sumar þær óhugnan-
legustu bækur sem ég hef nokk-
urn tíma komist í kynni við,“ seg-
ir Branagh. „Ein hét Mynd-
skreytta alfræðibókin um skurð-
aðgerðir á andliti og önnur var
handbók slysadeilda um andlitsá-
verka.“
í myndinni Interview With a
Vampire leikur' Tom Cruise vamp-
íruforingja.
Mikil leynd hvíidi yfir myn.d-
inni, langt umfram það sem tíðk-
ast í Hollywood. Allir leikarar og
tæknilið varð að undirrita eiðstaf
þar sem það lofaði að þegja um
allt sem myndinni viðkæmi og svo
mikil var leyndin að aukaleikurum
var sérstaklega skipað að láta hinn
feimna og einræna Tom Cruise í
friði.
Tom Cruise er að sjálfsögðu
stjarna myndarinnar en aðrir
leikarar eru engir aukvisar. Þar
eru á ferðinni Brad Pitt, sem tók
við hlutverkinu eftir að River Pho-
enix lést, Antonio Banderas,
Christian Slater og Stephen Rea,
sem lék aðdlhlutverkið í Crying
Game, en leikstjóri Inteiyiew with
a Vampire er einmitt Irinn Neil
Jordan, sem leikstýrði Crying
Game.
Fönn, fjör
o g fríðir kroppar
►MALIBU-ströndina í Kaliforníu
fennti á dögunum. Veðurguðirnir
munu þó ekki vera gengnir af
göflunum heldur hefur heimur
kvikmyndanna enn og aftur sann-
að að ekkert er ómögulegt.
Ástæða fannfergisins var sú að
upptökur á sérstökum jólaþætti
sjónvarpsmyndaflokksins
„Strandverðir" stóðu sem hæst.
Þótt veðurskilyrði hafi ekki verið
á bandi aðstandenda þessa sívin-
sæla sjónvarpsefnis létu þeir
drauminn um hvít jól engu að síð-
ur rætast. Þeir urðu sér einfald-
lega út um sérstakan búnað og
innan tíðar var ströndin á kafi í
gervisnjó.
Ef marka má meðfylgjandi mynd
höfðu breyttár aðstæður á strönd-
inni ekki mikil áhrif á fatatísk-
una. íturvaxnir englakroppar
spókuðu sig eftir sem áður í hald-
litlum klæðum. Ef marka má gleð-
ina, guðsmanninn og jólasveina-
húfurnar hefur hinn sanni jóla-
andi þó vafalaust svifið yfir vötn-
um á tökustað.
EKKI FÓR stór hluti af Malibu-ströndinni undir snjó enda yfir
30 stiga hiti þegar myndatakan fór fram.