Morgunblaðið - 30.10.1994, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 B 5
Segja
gíslana
vera á lífi
Phnom Penh. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Kambódíu neit-
uðu í gær, að þrír gíslar Rauðra
khmera hefðu verið teknir af lífi
þrátt fyrir frétt þess efnis, sem
höfð var eftir hershöfðingjum í
stjórnarhernum. Erlendir stjórnar-
erindrekar í höfuðborginni, Phnom
Penh, eru þó svartsýnir á, að
mennirnir, Ástrali, Breti og
Frakki, muni finnast lífs.
Ieng Mouly, upplýsingará
ðherra Kambódíustjórnar, sagði,
að skæruliðaforinginn Noun Paet
hefði farið með gíslana frá bæki-
stöðvunum í Vine-fjöllum en
stjórnarherinn náði henni á sitt
vald sl. þriðjudag, Sagði hann, að
skæruliðaflokksins væri leitað á
stóru svæði.
Sok Bunsoeun hershöfðingi og
aðstoðaryfirmaður hersins í Suð-
ur-Kambódíu sagði á fimmtudag,
að Noun Paet hefði látið taka
mennina af lífi 27. september en
þeir eru Bretinn Mark Slater, Ástr-
alinn David Wilson og Frakkinn
Jean-Michel Braquet. Mouly sagði
hins vegar, að sést hefði til mann-
anna í fylgd með skæruliðunum
fyrir fáum dögum.
Hrakn-
ingar
í gúmbát
Madrid. Reuter.
FRÖNSK kona, Louise Longo-
Huyghe, fannst í liðinni viku
illa haldin en á lífi í gúmbát
eftir tveggja vikna sjóhrakn-
inga. Eiginmaður hennar hafði
látist viku fyrr og fimm ára
dóttur þeirra skolaði fyrir borð
rétt áður en hjálp barst.
Hjónin ætluðu að sigla til
Senegal í Vestur-Afríku frá
La Rochelle í Frakklandi. Þau
yfirgáfu skútu sína um 120
mílur undan norðvesturströnd
Spánar í vonskuveðri. Skútan
fannst síðar á reki og leit var
hafin að fólkinu. Áhöfn rússn-
esks flutningaskips kom auga
á bátinn og björgunarþyrla var
send á vettvang.
Amerísku
LURA FLEX
RÚMIN
• Gæði í gegn • Betri svefn
• Stressið burt!
Venjulsg amarfik dýna
Gerið góð kaup strax í dag
15%afstóttur
c§5Nýborg
ÁRMÚLA 23 - SÍMI812470
Styðjum mann með nýjar hugmyndir sem geta skapað
atvinnutækifæri fyrir þúsundir manna. I
Styðjum Kristfán Pálsson I
í 3.-4. SÆTIÐ í prófkjöri Sjálfstœðisflokksins í
RE YK J ANESK J ÖRDÆMI
Þarfer maður sem lœtur verkin tala
Stuðningsmenn
rm
.til framtíðar
A þessu ári hafa yfir 800.000
einstaklingar víðs vegar um heiminn
komist að þeirri niðurstöðu að
„Hyunáai er betri"