Morgunblaðið - 30.10.1994, Síða 6
6 B SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
TÖLVIIRI
SKÓLAST ARFI
Næsta skref, segir Marinó G. Njálsson, er að snúa athyglinni að
því hvemig við notum hugbúnaðinn í stað þess að nota tölvuna.
Hún er bara hjálpartæki.
DÆMIGERÐ tölvustofa í íslenskum skóla.
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Bergsson hefur góðfús-
iega leyft Morgunblaðinu að
birta nokkur dæmi um samskipti
nemendanna við frumbyggjana.
Með bréfunum, sem hér er höfð
á ensku en eru lítillega stytt,
fylgja athugasemdir Bjöms.
1. bréf
Eftir nokkrar tílraunir tókst-
nemendunum loksins að komast
í samband við einstakiing af La-
kota-ættbálki og er eftirfarandi
bréf fyrstu viðbrögð hans.
Halló. -
Nei, ég held ekki að beiðni þín
sé framhleypin. Ég mun gera
hvað ég get til að breíða út orðið.
... Ef þú vilt, get_ ég sent fyrir-
spurnina áfram. Ég ætia einnig
að búa til tilkynningu og setja
hana upp í frumbyggjafræðslum-
iðstöðinni í skólanum.
Ég mun einnig grafa upp þau
netföng sem ég get hjá ættflokk-
unum ijórum, sem þú minnist á.
... Ég óska þér góðs gengis. Ef
þú hefur áhuga á að spyija um
„trúarbrögð1' Lakota, þá er ég
boðinn og búinn að hjálpa. Það
eru ákveðnir hlutir, sem ég vii
gjaman að nemendur þínir viti.
Hi ye!
ÚR NET-
DDCCIiy
uKtrUM
Kim Morris (Wakinyan Chikala)
Lakota Natíon/ Oglala
„Svona persónulegt samband,"
segir Bjöm, „breytir indíánum úr
fyrirbæri í kvikmynd eða þurri
tölfræði í lifandi fólk með raun-
veruleg vandamál. Fólk sem í stað
þess að skera höfuðleður af nem-
endum mínum sendir þeim upplýs-
ingar í gegnum tölvu og hefur auk
þess áícveðnar skoðanir á því
hvemig eigi að fjalla um eigin
þjóð í ritgerðinni."
2. bréf
Se’kon Terry (Terry sá um
samskiptin)
Það væri mér sönn ánægja að
heyra beint frá nemendum þínum.
Hvað netföng varðar, þá hef ég
netfang Oneida ættflokksins ...
... Mig langar líka til að þakka
þér fyrir. Þú ert að gera mikil-
væga hluti fyrir mig og mína.
Dave (Kayoshk)
„Þetta bréf er dæmi um sam-
skipti á netinu og hvemig við
fundum netfóng," segir Björn um
bréfið.
3. bréf
Nemendurnir rákust á að ekki
mátti spyrja um allt.
Hvers konar upplýsingar em
þið að leita að (menning, saga,
o.s.frv.)? Ég get mögulega látið
ykkur hafa upplýsingar um Dine
(Navajo) ættflokkinn. Samt verðið
þið að skiija að get ekki sagt
ykkur allt sem þið biðjið um og
ég vona að þið skijjið það.
Virðingarfillst, Joseph J. Otero,
Dine/Hopi
Um þetta bréf segir Bjöm:
„Þetta bréf er dæmi um, það sem
ekki má segja öðrum frá. Nem-
endur rákust á að ekki var hægt
að spyija indíánana um hvað sem
er. Engu að síður kom það á óvart
hvað indíánarair voru tílbúnir að
segja frá varðandi menningu
þeirra.
Hefur hefðbundin notkun
tölva í skólastarfí gengið
sér til húðar? Þetta var
meðal þeirra spuminga
sem komu upp á ráðstefnunni Tölv-
ur og nám, sem haldin var á vegum
Skýrslutæknifélagsins í lok ágúst.
Þar var komið saman skólafólk úr
grunn- og framhaldsskóla að velta
því fyrir sér hvort verið væri að
gera hlutina rétt. Niðurstaða ráð-
stefnunnar, ef hægt er að tala um
niðurstöður, var að við værum að
mörgu leyti á réttri leið, en margt
mætti betur fara. Einstaka aðili tók,
að vísu, svo djúpt í árinni að segja,
að of oft værum við að gera ranga
hluti og gera þyrfti gagngerar
breytingar strax!
Úrelt fyrirkomulag?
Sumir frummælendur deildu á
það fyrirkomulag, sem víðast ríkir,
að hafa.sérstakar tölvustofur og þar
af leiðandi sérstaka tölvutíma. Þetta
væri gamaldags hugsunarháttur og
sóun á verðmætum. Ennþá verra
væri að hafa sérstaka tölvuáfanga,
þar sem nemendum væri kennt að
nota tölvur. Líkja mætti því við að
hafa áfanga í notkun og umgengni
við blýanta. Tölvan væri líkt og blý-
anturinn hjálpartæki og það ætti
að umgangast hana sem slíka. Atli
Harðarson, tölvukennari við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, gekk svo
langt að leggja til að grannáfangi
í tölvufræðum í framhaldsskólum,
TÖL102/103, yrði Iagður niður.
En hvað á að koma í staðinn?
Hugmyndir fyrirlesara voru margar,
en granntónninn var, að nemendur
verða að nota tölvur sem verkfæri
í almennum áföngum. Þurfi að leysa
verkefni er ekkert sjálfsagðara en
að nota til þess tölvu.
En, af hveiju að kenna tölvunotk-
un í námi? Anna Kristjánsdóttir,
prófessor við Kennaraháskóla ís-
lands, ræddi um skólastarf í ljósi
tæknibreytinga. Hún benti. á að
skólastarf hafi þegar orðið fyrir tals-
verðum áhrifum vegna tæknibreyt-
inga og sagði, „að til þess að áhrif
þeirra verði i senn skýnsamleg og
mannvæn þarf að greina vel kjam-
ann í breytingunum". Hún velti líka
fyrir sér hvaða tæknilega kunnátta
væri nauðsynleg til að nota tölvum-
ar. Eiga nemendur að vinna einir
eða í hópum?
í erindi Önnu kom fram að haust-
ið 1990 hafi tölvunotkun verið lítil
í skólum. Norðausturhornið skar sig
helst úr með rúmlega tuttugu nem-
endur á hveija tölvu, en í R.eykjavík
var þetta hlutfall mun óhagstæðara.
En, hvers vegna þróast tölvuvæðing
í skólum hægt? Er það vegna skorts
á vélbúnaði? Anna taldi það líklega
skýringu, en ekki þá einu. Skortur
á hugbúnaði? Skortur á kennara-
námskeiðum? Vantar þrýsting frá
foreldram? Eða skilningsleysi ráða-
manna? Vafalaust eiga öll þessi at-
riði sinn þátt. í Bandaríkjunum er
talað um tölvuvæðingu grannskóla-
kerfisins sem þjóðarskömm. Eram
við kannski bara óþolinmóð?
Anna hvatti skólafólk til að
standa saman og taldi að skortur
væri á víðtæku samstarfi, yfírsýn
vantaði og við þyrftum að viður-
kenna að við vissum oft ekki hvert
skuli stefna. Hún benti á að við
ættum margt eftir ólært, en helsta
vandamálið væri skortur á notkun
upplýsingatækninnar. Tölvan gæti
styrkt sjálfstjóm, en hún gæti líka
fest okkur í sjálfvirkni.
Skrifa í skrefum
Þuríður Jóhannsdóttir, íslensku-
kennari í MH, flutti erindi sem hét
„Skrifað í skrefum", eftir vinnuferli
fyrir ritgerðasmið, sem hún kennir.
Hún sagði, að tölva og ritvinnslufor-
rit væru verkfæri. Það væri í verka-
hring þess, sem kennir ritgerða-
smíð, að kenna á ritvinnsluforrit.
Tölvan ýtir, að hennar áliti, undir
skipulögð vinnubrögð. Aðrir kostir
þess að skrifa á tölvu era: nemend-
ur skrifa meira, endurskoða efnið
betur, eiga auðveldara með að um-
skrifa, tilflutningur texta er ekkert
mál, textinn lítur vel út - skriftin
skiptir ekki máli, vinna með útlit
skjalsins eykur máltilfínningu og
tilfinningu fyrir lesandanum, það
ýtir undir gagnrýni og er aðlögun
að aðstæðum á vinnumarkaðnum.
Með hjálp íslenska menntanetsins
er síðan hægt að efla aðra þætti,
eins og öflun upplýsinga og heim-
ilda. Þá er hægt að skrifast á við
aðra, mynda umræðuhópa og fá
gagnrýni frá umræðuhópnum um
efni sem verið er að skrifa um.
Þuríður nefndi dæmi um tölvu-
notkun frá Rungsted Gymnasium í
Danmörku. Þar var öllum kennuram
kennt á ritvinnsluforrit skólans og
hugmyndafræði skrefaskrifa. Allir
nýnemar fá byrjendanámskeið í að
skrifa í -skrefum á tölvu og þeim
kennt að umgangast tölvuna sem
verkfæri. Skriftarverkstæði er opið
vissa daga í viku og kennarar hafð-
ir á vakt til aðstoðar.
í lok erindis síns fór Þuríður yfir
þau ritvinnsluforrit, sem era á
markaðnum, út frá kennslufræði-
legum þáttum. Það kom fram hjá
henni, að þau forrit, sem eru vinsæl-
ust (Word og WordPerfect), vantaði
kennslufræðileg atriði alveg. Hún
taldi að Writers Helper, Ritvöllur
og Sögusmiðjan (en það er danskt
forrit sem Hildigunnur Halldórs-
dóttir hjá Námsgagnastofnun hefur
aðlagað) væra að mörgu leyti betri.
Menntanetið við heimildaöflun
Þeir, sem kynnst hafa Mennta-
netinu og í gegnum það Intemet,
hafa komist að hvílíkan hafsjó upp-
lýsinga er þar að finna. Oft er sagt
að Intemet sé stærsti gagnabanki
í heimi. Ef upplýsingarnar liggja
ekki á lausu, sendir maður bara
hjálparbeiðni út á netið og fyrr en
varir hefur einhver svarað.
Bjöm Bergsson og Terry Gunnell
kennarar í MH hafa einmitt notað
þennan „eiginleika" netsins. Þeir
félagar vom með erindi á ráðstefn-
unni, sem hét_ „Til móts við nýja
heimsmynd". í mannfræðiáfanga,
sem Bjöm kenndi, þurftu nemendur
að skrifa ritgerð um frumbyggja
Norður-Ameríku og nota Mennta-
netið til að afla heimilda. Með hjálp
Terrys komust nemendur í samband
við á annan tug ættbálka frum-
byggja (indíána), þar af í gott sam-
band við sex. Hluta úr skólaári stóðu
nemendur í bréfaskriftum við
nokkra einstaklinga og tókst þannig
að afla upplýsinga fyrir ritgerðir
sínar. (Nokkur dæmi um þessi sam-
skipti eru sýnd í ramma hér á opn-
unni.) Bjöm lagði áherslu á það, að
til að fá upplýsingar urðu nemendur
líka að vera tilbúnir að veita upplýs-
ingar. Nemendur þurftu að ávinna
sér traust frumbyggjanna, sýna
nærgætni í spurningavali og vera
tilbúnir að gefa af sér til baka.
Þetta dæmi sýnir vel hvað hægt
er að gera með tölvuna og íslenska
menntanetið sem tæki. Sumir nem-
endanna höfðu lítið eða ekkert unnið
á tölvu áður en þeir skráðu sig í
áfangann, hvað þá að þeir kynnu
að nota Menntanetið. Meðan á
kennslunni stóð þurftu némendur
eðlilega að nota hvort tveggja. Fyrst
nutu þeir leiðsagnar kennara, en er
á leið gerðu þeir hlutina sjálfir. Þann-
ig var tölvan hjálpartæki, sem fyrst
og fremst auðveldaði nemendum að
komast í samband við heimildar-
menn. Það sem gerði tölvuna heppi-
legri en að nota síma og faxtæki
(sem hefðu vissulega getað komið
að sömu notum) er sá samskipta-
máti sem Intemetið býður upp á.
Fjarkennsla
Um nokkurt skeið hefur verið
boðið upp á fjarkennslu með hjálp
íslenska menntanetsins. Verk- 1
menntaskólinn á Akureyri hefur lík-
legast gengið lengst á þessari braut.
Haukur Agústsson, kennslustjóri
hjá skólanum, sagði frá reynslu
skólans og þeim reglum sem hann
fylgir í fjarkennslunni.
Fyrst tók hann fram, að fjar-
kennsla um tölvur líður fyrir subbu-
skap bréfaskóla i Bandaríkjunum.
Fjarkennsla um tölvu er jú bara
nútímalegt form á bréfaskólum. Það
nám er talið jafngilt námi á almenn- '
um skólabekk og því var lögð á það
áhersla í upphafí að fjarkennslan
skipaði sama sess.
Reynsla Verkmenntaskólans er,
líkt og víðast þar sem fjarkennsla
hefur verið reynd á þennan máta,
að árangur nemenda er betri en
þeirra sem sitja í kennslustofum.
Haukur taldi það meðal annars að 1
þakka viðmiðum sem sett voru í j
upphafí. Þau voru: 1. Nemendur
teljast nemendur skólans, sbr. öld- ’
ungadeildarnemendur. 2. Kennslan
miðast við áfanga kennda í skólan-
um. Fullri yfírferð er náð á hverri
önn. Föst skilaskylda á verkefnum.
Nemandi strikast út af nemenda-
skrá, ef skilað er einni viku of seint.
4. Aðeins eru lögð fyrir verkefni sem
hægt er að senda um tölvunet. 5.
Nemendur þurfa ekki að taka sér j
fyrir hendur ferðir vegna námsins. )
Próf tekin í skóla í nágrenni nem-
andans. ’
í haust varð stökkbreyting á um-
fangi fjarkennslunnar á Akureyri.
Það sem áður var sjálfboðavinna
tveggja kennara, er orðið að skipu-
lögðu námi í samræmi við námsskrá.
Á yfirstandandi önn era í boði ellefu
áfangar. Þetta era byijunaráfangar
í bókfærslu, dönsku, ensku, sögu,
stærðfræði, sálfræði, íslensku og I
þýsku. Auk þess era kenndir þrír )
framhaldsáfangar í ensku. Athygli .
vekur að ekki er boðið upp á neinn ’
tölvuáfanga, sem sýnir að það er
langt frá því að vera sjálfsagt að
kenna tölvufög í fjarkennslu.
En það er fleira sem gerir fjar-
kennslu góðan kost. Hér er eitt
dæmi frá Bandaríkjunum. í Fíladelf-
íu era einmenningstölvur notaðar
við lestrarkennslu fyrir lágtekjufólk.
Enginn kom á kvöldnámskeið, sem I
voru auglýst, en 100 manns skráðu j
sig á námskeið um Intemet þar sem .
hægt var að fá lánaða tölvu heim.
Framtíðin
Hörður Lárusson, deildarstjóri í
framhaldsskóladeild menntamála-
ráðuneytisins, ræddi um tölvunotk-
un í skólum með tilliti til framtíðar-
innar. Hann sagði, að á Norðurlönd-
unum hefði þróunin verið sú, að fjár-
mögnun tölvubúnaðar hafi færst frá *
ríkinu til sveitarfélaga og einkaað- )
ila. Hér á landi á þetta við hvað v
varðar grunnskólann, en framhalds-
skólarnir verða að sækja til ríkisins.
Til að geta skoðað framtíðina
verðum við að átta okkur á núver-
andi stöðu. Hörður taldi, að meðal
vandamála i dag væri rekstrarör-
yggi tölvukerfa. Ef nota eigi tölvur
í kennslu, verði að vera hægt að
treysta tölvukerfinu. (Greinarhöf-
undur þekkir það af eigin reynslu, >
sem yfirmaður tölvumála hjá Iðn- )
skólanum í Reykjavík. Fari net- v
þjónninn „niður“ meðan kennsla
stendur yfir hefur það ekki bara
áhrif á skrifstofu skólans heldur
fellur mögulega niður kennsla í fiór-
um kennslustofum, auk þess sem
það kann að hafa áhrif á kennara,
sem nota tölvur við undirbúning
kennslu. Með réttu vali á búnaði,
markmiðssetningu varðandi „viðun-
andi“ rekstraröryggi og réttri þjálf- *
un tölvuumsjónarfólks er að mestu j
hægt að útiloka þetta vandamál.) k
Því miður má of oft rekja vandamál
í tölvunotkun til þess, að kennarar